Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 7
Sigríður Kristrún Guðjónsdóttir Svínanesseli í Múlasveit
Guðrún Guðvarðardóttir frá Súðavík, Vestfjarðakona
Rannveig Jónsdóttir frá Efri-Miðvík í Aðalvík
Guðrún Anna Magnúsdóttir heitkona Magnúsar Hj. Magnússonar
Hulda Valdemarsdóttir Ritchie frá Hnífsdal
María Bóthildur Jakobína Pétursdóttir Maack frá Stað í Grunnavík
Rannveig Tómasdóttir frá Ísafjarðardjúpi
Kristrún í Hamravík
Þorbjörg hin digra í Vatnsfirði í Djúpi
Sigríður Magnúsdóttir stórráða frá Skáleyjum
Ragnheiður Ingibjörg Jónsdóttir í Kjós í Jökulfjörðum
Ingibjörg Júlíusdóttir á Melanesi á Rauðasandi
Guðrún Anna Magnúsdóttir,
heitkona Magnúsar Hj.
Magnússonar:
Þau hrekjast úr einum stað í
annan og lifa við sárustu fátækt.
Ægilegastar eru aðstæðurnar
hörmungaveturinn 1910 þegar
þau búa í Skálavík þar sem
Magnús Hjaltason er barnakenn-
ari Skálvíkinga. Bónarför
Magnúsar Hjaltasonar til Bjarna
bónda á Breiðabóli að selja sér
mótunnu komst í annála.
„Nei, nei, nei, djöfull þá
flöguna ég læt. Þeir sem ekki geta
haft að sér á haustin, þeir verða að
drepast þar sem þeir eru komnir.
Nei, djöfull þá flöguna ég læt.“
Ný bók að vestan
Hulda Valdemarsdótt-
ir Ritchie, fyrsta íslenska
stríðsbrúðurin:
„Þeir klæddu sig upp á
og komu á ballið en þorðu
ekki að bjóða upp neinni
íslenskri stúlku. Sátu bara
eins og þvörur.“
„Ég var að dansa þarna
á gólfinu, ég held við Leif
Páls og segi við Sam: Af
hverju dansarðu ekki? Why
don´t you dance? Fannst
þeir umkomulausir, grey-
in. Hann lét ekki segja sér
það tvisvar og bauð mér
upp í næsta dans. Svona
byrjaði það.“
Sigríður Magnúsdóttir
stórrráða frá Skáleyjum:
Mikið orð fór af Sigríði
Magnúsdóttur eftir að hún kom
til Austfjarða. Hún var kvenna
vænst og bar sig vel. Var betur
menntuð en flestar aðrar konur
og gat valið úr vistum. Hún ræðst
til þeirra hjóna Sigurðar Jónssonar og Ástríðar
Vernharðsdóttur í Möðrudal.
Ber heimildum saman um að bústjórn Sigríðar
hafi verið með miklum myndarbrag. Hún var hins
vegar slíkum annmarka háð að vilja „taka allt yfir“
þar sem hún var á vettvangi.
Guðrún Guðvarðar-
dóttir Vestfjarðakona:
Guðrún starfaði
löngum á dagblaðinu
Þjóðviljanum við að skrá
auglýsingar og jafn-
framt að herja þær út úr
kaupmönnum og kaupfé-
lögum. Þar var náttúrlega við ramman reip að draga eins og gefur
að skilja á blaði sem alltaf beitti upp í vindinn. Fljótlega kom í ljós
að Gunna Guðvarðar var í sérstöku sambandi við fólk fyrir vestan
og flokkslínur flæktust nú ekki fyrir fótum hennar. Hún hringdi
í hann Einar sinn Guðfinnsson í Bolungarvík og lauk þeim sím-
tölum alltaf með kveðju eða auglýsingu frá Einari hennar.
kr. 1.980-
Þessi bók er gefin út til heiðurs vestfirskum konum.
Vonandi koma fleiri í kjölfarið.
Fæst í bókaverslunum um land allt