Morgunblaðið - 07.12.2010, Síða 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
2 9 5 4
1 5 6 7
5
8 2 9
6 2 7
7 5
6 8 4 7
4 6
8 1 9
6
3 9 2
5 1 4
2 9 5
1 6 4
4 7 6 2
6 5 1
9 3
2 5 7 9
2 3
6 7 9
9 1
2
6 5
8 3 2
9 4 1
3 5 4
4 7 1 3
5 6 2 7 9 1 3 4 8
4 7 3 2 8 5 6 1 9
8 1 9 6 4 3 2 7 5
7 3 5 4 1 8 9 2 6
1 9 4 3 2 6 8 5 7
2 8 6 9 5 7 4 3 1
9 2 7 5 6 4 1 8 3
6 5 8 1 3 2 7 9 4
3 4 1 8 7 9 5 6 2
5 1 4 2 8 6 9 7 3
7 9 3 1 4 5 2 8 6
2 8 6 7 9 3 1 4 5
4 7 5 9 6 2 3 1 8
8 3 2 4 5 1 7 6 9
9 6 1 3 7 8 5 2 4
3 2 8 5 1 4 6 9 7
6 5 7 8 2 9 4 3 1
1 4 9 6 3 7 8 5 2
8 6 4 9 2 7 5 1 3
3 1 7 6 5 4 8 9 2
2 9 5 1 8 3 4 6 7
7 4 1 2 9 5 6 3 8
9 2 6 8 3 1 7 4 5
5 8 3 4 7 6 1 2 9
6 3 2 5 1 8 9 7 4
4 7 8 3 6 9 2 5 1
1 5 9 7 4 2 3 8 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 7. desember,
341. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Á þeim degi skulu leif-
arnar af Ísrael og þeir af Jakobs húsi,
sem af komast, eigi framar reiða sig á
þann sem sló þá, heldur munu þeir
með trúfesti reiða sig á Drottin, Hinn
heilaga í Ísrael. (Jesaja 10, 20.)
Kunningi Víkverja er lífsglaðurmaður, hláturmildur og liggur
gjarnan hátt rómur. Kvöld eitt á dög-
unum þótti nágranna hans nóg um og
knúði dyra hjá kunningjanum til að
biðja hann vinsamlega um að hafa
lægra. Hvað haldið þið að kunninginn
hafi verið að gera svo ónæði hlaust af?
Jú, að sjálfsögðu að tefla!
x x x
Annar kunningi Víkverja varóheppinn á dögunum. Hann hef-
ur verið bíllaus um skeið en fékk lán-
aðan bíl einn daginn til að reka erindi.
Að vonum var kunninginn eins og
kýrnar á vorin, spretti úr spori niður
Ártúnsbrekkuna. Brosið breyttist þó
fljótt í grettu. Lögreglan stöðvaði
nefnilega kunningjann neðst í brekk-
unni og sektaði fyrir of hraðan akstur.
Ekki nóg með það. Síðar um daginn
fékk hann stöðumælasekt í mið-
bænum. „Þessi bíll kostaði mig fjöru-
tíu þúsund kall,“ stundi kunninginn
aumur og ætlar að halda sig við hjólið.
x x x
Íslendingar nota orðatiltækið „aðleiða saman hesta sína“ talsvert í
ræðu og riti, oft í brenglaðri merk-
ingu. Þannig er ekki óalgengt að sjá
setningar á borð við: „Söngvararnir
leiddu saman hesta sína í laginu“ eða
„stórleikaranir munu leiða saman
hesta sína í sýningunni“. Þarna er
orðatiltækið notað í merkingunni „að
sameina krafta sína“ eða „að vinna
saman“ sem er rangt. „Að leiða sam-
an hesta sína“ merkir að etja kappi
eða keppa við einhvern.
x x x
VR-auglýsingin, þar sem verslana-eigendur eru hvattir til að virða
hvíldartíma í desember, er farin að
birtast á skjám landsmanna enn ein
jólin og ekkert nema gott um það að
segja. Auglýsingin er skemmtileg og
vel gerð. Það er bara eitt atriði sem
gerir hana ótrúverðuga: Það eru eng-
ar kassadömur í íslenskum stórmörk-
uðum á sama aldri og blessunin hún
Dísa. Nema þær heiti þá Dizsza.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 bréfbera, 4 ósann-
indi, 7 þekkja, 8 ber, 8 verk-
færi, 11 sefar, 13 lof, 14
grískur bókstafur, 15 flutn-
ing, 17 ófögur, 20 beita, 22
munnbita, 23 kynið, 24
þekkja, 25 hellti öllu úr.
Lóðrétt | 1 laumuspil, 2 sól,
3 geð, 4 gleðskap, 5 beljaki,
6 agnar, 10 frek, 12 borg, 13
mann, 15 févana, 16 Æsir, 18
viðurkennum, 19 þyngd-
areiningu, 20 skynfæri, 21
nægilegt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ofurhugar, 8 efnuð, 9 dapur, 10 una, 11 glaum, 13 rýr-
an, 15 hafts, 18 safna, 21 átt, 22 áleit, 23 aðals, 24 okurkarls.
Lóðrétt: 2 fenna, 3 ráðum, 4 undar, 5 Alpar, 6 deig, 7 grun, 12
urt, 14 ýsa, 15 hrár, 16 flekk, 17 sátur, 18 staka, 19 fjall, 20
ansa.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 f5 2. g3 Rf6 3. Bg2 e6 4. 0-0
Be7 5. c4 0-0 6. d4 d6 7. Rc3 De8 8. b3
a5 9. Bb2 Ra6 10. a3 Bd7 11. Re1 c6
12. Rd3 Bd8 13. e4 e5 14. dxe5 dxe5
15. De2 f4 16. gxf4 exf4 17. Rxf4 Rc5
18. Had1 Bc7 19. b4 axb4 20. axb4
Bxf4 21. bxc5 Bg4 22. f3 Dh5 23. Bh1
Dxc5+ 24. Kg2
Friðrik Ólafsson fagnaði 75 ára af-
mæli sínu í upphafi þessa árs og af því
tilefni verða birtar tíu fléttur frá hans
langa skákferli. Það er viðeigandi að
hefja þessa för í Sjómannaskólanum í
Reykjavík árið 1955 en þá tefldi Frið-
rik einvígi við hinn danska Bent Lar-
sen um Norðurlandameistaratitilinn í
skák. Friðrik hafði hér svart og þving-
aði Danann til uppgjafar eftir 24. …
Bh3+! þar sem hvítur yrði mát eftir
25. Kxh3 Dh5+ 26. Kg2 Dxh2#.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þunnildi.
Norður
♠ÁD1082
♥86
♦ÁK5
♣Á85
Vestur Austur
♠KG7 ♠63
♥2 ♥ÁG97543
♦1032 ♦D76
♣KDG643 ♣7
Suður
♠954
♥KD10
♦G984
♣1093
Suður spilar 3G.
Hjá BR stendur nú yfir svokallaður
Cavendish-tvímenningur, en þá er gert
upp eins og um sveitakeppni væri að
ræða. Enska tækniheitið er „imps across
the field“, sem á mannamáli þýðir að yf-
irslagir og aukadánar eru léttir í vasa, en
þunn geim og slemmur telja drjúgt. Ein-
mitt þess vegna freistuðust mörg NS-
pörin til að reyna við 3G í spilinu að ofan.
Sá samningur er ekki gæfulegur með
♣K út, en hindrun austurs í hjarta gaf
fyrirheit um hagstæða legu.
Einn sagnhafi spilaði þannig: Dúkkaði
♣K, drap næsta slag á ♣Á og spilaði
hjarta. Austur fór upp með ásinn og spil-
aði aftur hjarta. Sagnhafi notaði innkom-
una til að svína ♠10. Tók síðan ♦Á-K og
sendi austur inn á ♦D. Nú er fátt um
fína drætti í vörninni og austur hélt
sagnhafa í níu slögum með því að spila
spaða.
7. desember 1879
Jón Sigurðsson forseti lést í
Kaupmannahöfn, 68 ára. Hann
var jarðsettur í Reykjavík 4.
maí 1880 ásamt Ingibjörgu
Einarsdóttur konu sinni, sem
lést 16. desember 1879.
7. desember 1881
Minnisvarði um Jón Sigurðs-
son var afhjúpaður á gröf
hans í Hólavallagarði í
Reykjavík, tveimur árum eftir
að hann lést. Varðinn var
reistur fyrir samskotafé og
var afhjúpaður „í viðurvist
mesta fjölmennis af öllum
stéttum,“ eins og sagði í Ár-
bókum Reykjavíkur.
7. desember 1933
Ríkisútvarpið útvarpaði mið-
ilsfundi í fyrsta sinn. Þar töl-
uðu ýmsar verur í gegnum
Láru Ágústsdóttur miðil.
7. desember 1970
Íslensk kona fékk nýra úr
bróður sínum. Skurðaðgerðin
var gerð í London. „Þetta mun
vera í fyrsta skipti sem nýrna-
flutningur er gerður á Íslend-
ingum,“ sagði Morgunblaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Eiginlega má segja að afmælisdagurinn minn
falli í skuggann á stórafmæli konunnar. Að þessu
sinni fær hún því að eiga sviðið,“ segir knatt-
spyrnumaðurinn og -þjálfarinn Óli Stefán Fló-
ventsson sem fagnar 35 ára afmæli sínu í dag.
Unnusta hans, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, varð
hins vegar þrítug á sunnudag. En þau eru ekki ein
um að fagna afmælum sínum í fjölskyldunni því
systir Óla Stefáns átti afmæli í gær og unnusti
hennar einnig á sunnudag. „Þannig að það er nóg
að gera í fjölskyldunni við að kaupa afmælis-
gjafir.“
Óli Stefán býr ásamt konu og barni á Höfn í Hornafirði þar sem
hann þjálfar knattpsyrnulið Sindra – en er auk þess í sjúkraliðanámi.
Hann segir að veisluhöld í tilefni afmælisdagsins hafi í gegnum tíðina
litast af þeirri staðreynd að um prófatíma sé að ræða. Eins er farið í
ár og fer afmælisdagurinn t.a.m. að mestu í að klára siðfræðiritgerð.
Óli hyggst þó engu að síður taka sér pásu til að elda góðan mat og
njóta stundarinnar með fjölskyldunni. „En þetta er ekkert stórmál.
Ég hélt vel upp á þrítugsafmælið og mun eflaust einnig gera það þeg-
ar ég verð fertugur.“ andri@mbl.is
Óli Stefán Flóventsson 35 ára
Konan fær að eiga sviðið
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
7. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.54 0,5 7.11 4,2 13.29 0,5 19.30 3,8 11.01 15.38
Ísafjörður 2.56 0,4 9.06 2,4 15.39 0,3 21.19 2,0 11.41 15.08
Siglufjörður 5.08 0,3 11.21 1,4 17.43 0,1 11.26 14.49
Djúpivogur 4.22 2,4 10.39 0,5 16.28 2,0 22.38 0,4 10.39 14.59
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Dagurinn í dag einkennist af léttleika
og daðri. Þú og óvæntu gjafirnar sem allir
dýrka þig fyrir fleyta þér upp vinsældalistann.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Afkastageta þín minnkar vegna ótta við
að tapa! Reyndu að átta þig á því og af hverju
þú ert hrædd/ur við að tapa og sættu þig við
það. Ekki segja of mikið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Einhver sviptir hulunni af fjölhæfni
sinni. Kynntu þér reglur laganna og hvort allt
er eins og það á að vera. Vinur kemur á óvart
fljótlega.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það getur verið gaman að hafa
mannaforráð en þá og því aðeins að þú farir
vel með vald þitt. Þú ert komin/n á fremsta
hlunn með að panta draumaferðina.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er ekki til of mikils ætlast að vonast
til að verkefni verði skemmtilegt og auðvelt.
Orð þín eru hnitmiðuð og markviss og hitta
beint í mark.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert vinur þeirra sem enga vini eiga.
Gefðu þér tíma til að grandskoða málin áður
en þú tekur afstöðu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Innsæi þitt hefur glæðst upp á síðkastið,
ekki síst í líf annarra. Vinkona/vinur þarfnast
þín. Ekki snúa baki í vandmálin, þau hverfa
ekki við það.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Nú er dagurinn til þess að leyfa
hæfileikunum að njóta sín óhindrað. Því fyrr
sem það er gert þeim mun betra.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það getur skipt sköpum að beita
réttum aðferðum til þess að ná árangri.
Sýndu þolinmæði. Hugsanlega þýðir kannski
nánast alltaf nei.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Formfestan gerir þig lata/n og
leiða/n. Ef þú trúir því ekki að þú eigir eitt-
hvað skilið, þá færðu það heldur ekki. Ef þú
trúir að þú fáir – þá færðu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vinir þínir og fjölskylda sýna þér
óvenjumikinn stuðning á þessu ári. Taktu þér
tíma til þess að kanna stöðuna.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það getur reynst þér skeinuhætt að
byrgja allar tilfinningar inni. Mundu að þol-
inmæði þrautir vinnur allar.
Stjörnuspá
Jón Ben.
Georgsson frá
Brekku, Hlíð-
arvegi 54 í Ytri-
Njarðvík, er 85
ára í dag.
85 ára