Morgunblaðið - 07.12.2010, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Sannkallað fjölskyldumenning-
armafíukvöld var haldið í Rósen-
berg-kjallaranum
á sunnudags-
kvöldið þegar
söfnuðust saman
meðlimir Megas-
ar- og Þórunnar
Erlu-Valdimars-
fjölskyldunnar og
skemmtu áhorf-
endum með lestri
og söng. Lesið
var upp úr fjórum
bókum sem eru í
bókaflóðinu um þessi jól, Mörg eru
ljónsins eyru hennar Þórunnar, Degi
kvennanna sem Þórunn og Megas
sömdu saman, Köttum til varnar
sem Gunnar sonur Þórunnar skrif-
aði og Tregðulögmálinu sem Yrsa,
tengdadóttir Þórunnar, samdi. Þórð-
ur, sonur Megasar, spilaði lög föður
síns með kvartettnum sínum og
Lilja, systir Þórunnar, spilaði með
henni. Svo spilaði Gunnar með
hljómsveitinni sinni Malneirophre-
niu sem er loksins að gefa út plötu
núna fyrir jólin. Eftir þeirri plötu
hefur lengi verið beðið enda hefur
hljómsveitin verið starfrækt í mörg
ár. Ofan á allt þá eru synir Þórunnar
og Megasar svilar, þar sem syst-
urnar flinku Yrsa og Bryndís Halla
sellóleikari eru með þá í fanginu á
sér. „Já, það er gaman að Gunnar
tengist bóka- og músíkfjölskyldu,“
segir Þórunn, „og að synir okkar
Megasar eigi konur sem eru systur.
Þetta er svona eins og sonur skó-
smiðs finni dóttur skósmiðs, það er
ekki óalgengt. Pakk vill pakk, eins
og danskurinn segir,“ segir Þórunn.
Á bleiku marsípanskýi
Aðspurð hvernig stemningin hafi
verið um kvöldið svarar Þórunn:
„Stemningin var mjúk eins og bleikt
marsípanský, allir ljómandi. Yrsa
syngur jafn vel og systir hennar spil-
ar á sellóið, það var himneskt. Heil-
agt var þegar Megas söng með eð-
alkvintett úr Melabandinu, maður
var klökkur að svo fínir listamenn
kæmu fyrir vini sína. Tríó Gunnars
Malneirophrenia vissi ég að sviki
ekki, en hissust var ég á því þegar ég
söng og djassaði á píanóið (með Lilju
systur á horn) að míkrófónninn var
úr gulli. Ekkert klikkaði, húsið lyft-
ist. Vala Þórsdóttir las og kynnti svo
fallega. Þetta var besta kvöld í
heimi. Allir jólasveinar. Grýla södd,“
segir Þórunn. Aðspurð hvort þau
hafi verið að fram eftir kvöldi eða
hvort hún hafi rekið krakkana sína
snemma í háttinn eftir að þau voru
búin að lesa og spila, svarar Þórunn:
„Maður leyfir lausagöngu katta.“
Bóka- og tónlistarklan
heldur menningarkvöld
Pakk vill pakk, segir Þórunn Ný menningarmafía að
myndast þar sem allir meðlimir fjölskyldunnar eru lista-
menn Þau skapa ýmist með penna eða hljóðfæri
Menningarvaka Þó nokkur fjöldi gesta mætti um kvöldið til að berja menningarmafíuna augum. Allir höfundarnir
komu líka með tónlistaratriði eftir að hafa lesið uppúr bók sinni, meira að segja Megas.
Þórunn Erlu-
Valdimarsdóttir
Sonurinn Gunnar Eggertsson las
uppúr bók sinni Köttum til varnar.
Morgunblaðið/Eggert
Jólaljósmyndakeppni Canon og
mbl.is er nú í fullum gangi en
hún hófst í byrjun mánaðarins.
Sigurmynd þessarar viku kall-
ast „Fyrstu jólin“ og var tekin af
Hildi Lind Sævarsdóttur.
Keppnin stendur til 6. janúar
nk. en þá fer skipuð dómnefnd yf-
ir innsendar myndir og velur
þrjár bestu til verðlauna en í
verðlaun eru myndavélar frá Ca-
non.
„Fyrstu jólin“
Jólaljósmyndakeppni Canon og mbl.is
http://mbl.is/folk/ljos-
myndakeppni/
Ein áhrifamesta forspá dægurtónlistariðnað-
arins ef svo mætti kalla er listi BBC, The so-
und of …, sem er birtur í upphafi hvers árs.
Listi yfir fimmtán listamenn sem þykja lík-
legir til stórræða hefur nú verið birtur á
heimasíðu BBC en áhrifafólk úr breskum tón-
listariðnaði, alls 160 manns, sér um að velja á
listann. Efstu listamennirnir fimm verða svo
kynntir sérstaklega í janúarbyrjun.
Ellie Goulding þótti líklegasta stjarnan í
fyrra en listamenn sem hafa verið nefndir í
samantektinni í níu ára sögu hennar eru t.d.
Little Boots, Adele, Mika, Corinne Bailey
Rae og Keane.
Í ár eru söngvaskáld eins og Anna Calvi,
Daley og Clare Maguire nefnd en einnig
poppstirnið Jessie J og græm-listamaðurinn
Wretch 32. Rokksveitirnar Mona, The Vacc-
ines (sem hefur á að skipa Íslendingnum Árna
Hjörvari), Esben and the Witch, Warpaint og
Yuck eru líka nefndar.
BBC kynnir „Hljóm 2011“
Listinn
* James Blake
* Anna Calvi
* Daley
* Esben & the Witch
* Jessie J
* Clare Maguire
* Mona
* The Naked & Famous
* Nero
* Jai Paul
* The Vaccines
* Warpaint
* Jamie Woon
* Wretch 32
* Yuck
Harry Potter, Hermione Granger, Ron
Weasley og Voldemort eru komin aftur
í magnaðasta ævintýri allra tíma
Aðsóknar-
mesta myndin
á Íslandi í dag
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
- BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
- Time Out New York
„IT’S THE BEST FILM IN
THE SERIES.“
- ORLANDO SENTINEL
HHHH
„ÞETTA ER KLASSÍK
VORRA TÍMA.“
- Ó.H.T. – RÁS 2
HHHH
„THE BEST ROMANTIC
COMEDY OF THE YEAR!“
- GREG RUSSELL,
MOVIE SHOW PLUS
„HIN FULLKOMNA
STEFNUMÓTAMYND.“
- BONNIE LAUFER, TRIBUTE CANADA
„KATHERINE HEIGL AND JOSH
DUHAMEL SIZZLE IN A COMEDY
THAT’S SURE TO WIN YOUR HEART.“
- JEANNE WOLF, PARADE
„SPRENGHLÆGILEG.“
- ALI GRAY, IVILLAGE.COM
„HEIGL AND DUHAMEL
ARE THE BEST ON-SCREEN
COUPLE OF THE YEAR.“
- JOAN ROBBINS, ENTERTAINMENT
STUDIOS
„YOU’LL FALL IN LOVE
WITH ‘LIFE AS WE KNOW IT.’“
- MARIA SALAS, THE CW
„FUNNY, SEXY AND
SURPRISINGLY SWEET!“
- SAINT BRYAN, NBC-TV
SÝND Í KRINGLUNNI
„EXCELLENT.
A ZEITGEIST FILM.“
- RICHARD CORLISS, TIMES
„SHARP, TIMELY
AND VERY FUNNY.“
- KAREN DURBIN, ELLE
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIRÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - KR. 700
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSKÖLL, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
700 kr.
Tilboðil
700 kr.
Tilboðil
700 kr.
Tilboðil
BESTA SKEMMTUNIN
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30 L DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20 10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10 10 RED kl. 8 - 10:20 12
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30 VIP KONUNGSRÍKI UGLANNA kl. 5:50 ísl. tal 7
/ ÁLFABAKKA
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30 L DUE DATE kl. 8 - 10:10 10
HARRY POTTER kl. 5 - 6 - 8 - 9 10 ÆVINTÝRI SAMMA - 3D kl. 6 ísl. tal L
/ EGILSHÖLL