Morgunblaðið - 17.12.2010, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2010
ÞAÐ REDDAST
Svalasta ævisagan!
Sveinn Sigurbjarnarson lítur
um öxl og sögurnar flæða
fram: Fyndnar, magnaðar,
óhugnanlegar.
holabok.is/holar@holabok.is
3. prentun
komin í ve
rslanir
Skötuveislan er byrjuð, auglýsa fisksalar, skötu-
ilmurinn finnst víða og margir hafa tekið forskot
á sæluna sem nær hámarki á Þorláksmessu.
Þeir sem verka skötu, fisksalar og aðrir, safna
henni gjarnan nær allt árið eða þar til verkun
hefst, en landsmenn torga ómældum tonnum af
kæstri skötu fyrir jól. Ekki eru samt allir á eitt
sáttir um þessa hefð en þeir sem á annað borð
borða skötu telja hana gjarnan herramannsmat.
Því kæstari því betri segja margir og árétta að
skötustappa að vestfirskum sið taki öðru fram á
þessu sviði.
Guðmundur Júlíusson, verslunarstjóri í Nóa-
túni í Hamraborg í Kópavogi, segir að fólk hafi
sínar skötuhefðir og margir séu með sérþarfir.
Um 60% neytenda vilji hafa hana meðalkæsta,
sumir bragðminni og aðrir vel kæsta. „Allir vilja
þykka bita,“ segir hann. steinthor@mbl.is
Skötuveislan er byrjuð og skötuilmurinn nær hámarki víða um land á Þorláksmessu
Morgunblaðið/Ernir
Vestfirsk skötustappa dregur vagninn
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þrír þingmenn Vinstri grænna, þau
Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og
Ásmundur Einar Daðason, sátu hjá
við atkvæðagreiðslur um lokaaf-
greiðslu fjárlaga á Alþingi í gær. Í yf-
irlýsingu þingmannanna segja þau að
í ljósi „skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis þá teljum við að ríkisstjórnin
og forystumenn hennar þurfi að taka
vinnubrögð sín til gagngerrar endur-
skoðunar. Vinnubrögð sem viðhöfð
hafa verið við gerð fjárlagafrum-
varpsins, sem og í ýmsum öðrum
stórum og afdrifaríkum málum, hafa
einkennst af forræðishyggju og for-
ingjaræði frekar en lýðræðislegri
ákvarðanatöku.“
Fjárlögin voru afgreidd með 32 at-
kvæðum stjórnarliða. Allir þingmenn
stjórnarandstöðuflokkanna auk þing-
mannanna þriggja úr Vg sátu hjá, alls
31 þingmaður. Hefð er fyrir því við
lokaafgreiðslu fjárlaga að stjórnar-
andstæðingar sitji hjá fremur en að
sýna andstöðu sína með því að greiða
atkvæði á móti. Þinginu ber skylda til
að hafa lokið afgreiðslu fjárlaga
næsta árs fyrir lok hvers árs. Afar
óvenjulegt er hins vegar að einstakir
stjórnarþingmenn séu með svo afger-
andi hætti á móti fjárlagafrumvarpi
og sitji hjá við at-
kvæðagreiðslur
um allar breyting-
artillögur og fjár-
lögin í heild.
Hafnað í þing-
flokki VG
Lilja og Ás-
mundur Einar
gerðu grein fyrir
því við upphaf at-
kvæðagreiðslunnar í gær að þau og
Atli Gíslason gætu ekki stutt frum-
varpið. Lilja sagði að þau þrjú hefðu
lagt fram tillögur um breytingar á
frumvarpinu í þingflokki Vinstri
grænna en þeim verið hafnað.
Í yfirlýsingu þingmannanna
þriggja í gær segir að efnahagsstefna
ríkisstjórnarinnar sem birtist í fjár-
lagafrumvarpinu byggist á áætlun
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hafi
sætt gagnrýni hagfræðinga víða um
lönd. Þau segja forgangsröðun í
frumvarpinu ekki nægilega mikla í
þágu velferðar, menntunar og bættra
lífskjara almennings.
„Við undirrituð, og fleiri í þing-
flokki VG, höfum um nokkurt skeið
varað við því að fylgja áfram í blindni
efnahagsáætlun AGS. Fjölmargar til-
lögur okkar varðandi forgangsröðun,
tekjuöflun, millifærslur og útgjöld í
núverandi fjárlagafrumvarpi hafa
ekki fengið málefnalega umræðu. Til-
lögur okkar hafa verið í samræmi við
grunnstefnu VG og ályktanir flokks-
ráðsfunda,“ segir þau.
Ásmundur Einar sagði við at-
kvæðagreiðsluna að hin ranga for-
gangsröðun birtist skýrt í að lagðir
væru milljarðar í aðildarumsóknina
að ESB á sama tíma og skorið væri
niður til velferðar- og heilbrigðis-
mála.
„Forræðishyggja og foringjaræði“
Fjárlög afgreidd með 32 atkvæðum Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason
og Lilja Mósesdóttir sátu hjá Gagnrýna harðlega vinnubrögð ríkisstjórnarinnar
Lilja
Mósesdóttir
Atli
Gíslason
Ásmundur Einar
Daðason
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Samkvæmt samningi ríkisins við Spöl
ehf. 1991 skuldbatt Steingrímur J.
Sigfússon, þáverandi samgönguráð-
herra, sig til þess að hefja ekki inn-
heimtu vegtolla á vegum í nágrenni
Hvalfjarðarganga sem hafa myndu
neikvæð áhrif á umferð um þau. Sam-
kvæmt þessum samningi eru veg-
gjöld á Vesturlandsvegi frá göngun-
um því óheimil.
Samningur um rétt Spalar til þess
að eiga og reka samgöngumannvirkið
undir Hvalfjörð var fyrst gerður 1991
og undirrituðu þáverandi samgöngu-
ráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson,
þáverandi fjármálaráðherra, samn-
inginn fyrir hönd ríkisins. Endanleg-
ur samningur var síðan undirritaður
1995 og það gerðu Halldór Blöndal,
þáverandi samgönguráðherra, og
Friðrik Sophusson, þáverandi fjár-
málaráðherra, fyrir hönd ríkisins.
Samningurinn stendur
Gísli Gíslason, stjórnarformaður
Spalar, segir að stjórnin vilji ekki
blanda sér í almennar umræður um
veggjöld en veggjöld á Vesturlands-
vegi skipti máli fyrir rekstur Spalar,
ákvæði þess efnis að leyfa þau ekki
hafi verið sett inn í samninginn við
ríkið og augljóst sé að ríkið verði að
virða samninginn.
Á heimasíðu Spalar er rifjað upp að
að afstaða löggjafarsamkomunnar
hafi verið afskaplega skýr árið 1995
og tillagan samþykkt með 43 sam-
hljóða atkvæðum.
Veggjöld í nágrenni Hval-
fjarðarganga eru óheimil
Steingrímur
undirritaði samn-
ing þess efnis 1991
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samgöngubót Hvalfjarðargöng
voru formlega opnuð 11. júlí 1998.
Íslensk ung-
menni, Einar
Örn Arason og
Sólveig Svanhild-
ur Jónsdóttir, 19
ára og tvítug,
voru dæmd í sex
ára fangelsi fyrir
spænskum dóm-
stól í Madríd í
gærdag. Dóminn
hlutu þau fyrir
innflutning á kókaíni. Greint var
frá þessu í fréttum RÚV.
Parið var handtekið á flugvell-
inum í Madríd fyrir ári í dag en
tollverðir fundu í fórum þeirra 5,2
kíló af kókaíni. Þau komu til borg-
arinnar frá Lima í Perú.
Að því er RÚV greinir frá kom-
ust þau Einar og Sólveig að sam-
komulagi við saksóknara um lág-
marksrefsingu vegna
innflutningsins gegn því að játa sök
sína í málinu. Parið var í reynd
dæmt í níu ára fangelsi en vegna
breytinga á spænskum hegning-
arlögum sem taka gildi á Þorláks-
messu dragast þrjú ár af refsing-
unni.
Þá er ekki lagst gegn því að par-
ið verði sent til Íslands til afplán-
unar dómsins.
Ungt par
dæmt í sex
ára fangelsi
Voru með 5,2 kíló
af kókaíni í farangri
Parið var með
kókaín meðferðis.
Lilja Mósesdóttir ritaði á
Facebook-síðu sína í gærkvöld:
„Spurning hverjum er sætt í
þingflokknum – þeim sem
fylgja eftir vilja félaganna og
ályktunum flokksins eða þeim
sem afvegaleiðast innan múra
valdsins.“
Þá kveðst hún hafa farið úr
vinnuhópi vegna fjárlagavinn-
unnar vegna þess að ekkert var
hlustað á tillögur hennar. „Ég
bað Steingrím margoft um að
skoða skattlagningu séreigna-
sparnaðarins en sem hann gerði
aldrei, því hann vildi ekki fara
þessa leið.“
„Innan múra
valdsins“
LILJA MÓSESDÓTTIR