Morgunblaðið - 28.12.2010, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. D E S E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 303. tölublað 98. árgangur
ÞARF OFT NOKKR-
AR TILRAUNIR
TIL AÐ HÆTTA
VALDAGRÆÐGI,
OFLÆTI, SVIK
OG UPPLAUSN
GILLZENEGGER,
JÓN STÓRI OG
HRINGEKJAN
LÉR KONUNGUR 29 KJÁNAHROLLUR ÁRSINS 30HJÁLPAR REYKINGAFÓLKI 10
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Innbrotahrinan sem gekk yfir höf-
uðborgarsvæðið um jólahelgina þarf
ekki endilega að vera tengd hátíð-
unum að sögn lögreglu, þótt fólk sé
þá stundum á faraldsfæti og grun-
semdir séu uppi um að þjófar fylgist
með heimilum fólks úr fjarlægð.
Í miðborg Reykjavíkur og vestan
Snorrabrautar hefur innbrotum
t.a.m. fækkað mikið og segir Ómar
Smári Ármannsson stöðvarstjóri lík-
legt að það megi rekja til þess að
fækkað hefur í hópi síbrotamanna
sem eru búsettir á svæðinu, en svo
virðist sem mest sé um að menn
brjótist inn í sínu nærumhverfi.
„Þetta eru mjög fáir brotamenn
orðið á okkar svæði, það eru helst
tveir sem við höfum augastað á sem
hafa takmarkaða virðingu fyrir eig-
um annarra. Athyglinni er sérstak-
lega beint að þessum virkustu með
það fyrir augum að stoppa ferilinn.“
Sömu menn oft á ferðinni
Sigurbjörn V. Eggertsson stöðv-
arstjóri í Kópavogi segir algengt að
sömu menn standi að baki mörgum
innbrotum, því fari hrinurnar gjarn-
an mikið eftir því hvaða síbrota-
menn séu lausir hverju sinni. Þrjú
innbrot voru framin í Kópavogi um
helgina.
Þjófar hafa hinsvegar verið af-
kastamestir í Hafnarfirði þar sem
innbrot eru orðin yfir 20 talsins síð-
an í nóvember, þar af rúm 15 í
heimahús. Þrír menn hafa verið
handteknir en rannsókn stendur enn
yfir og of snemmt að álykta hvort
sömu menn standi bak þeim öllum.
Síbrotamenn oftast á ferð
Innbrotahrinur tengjast því oft hvort síbrotamenn ganga lausir í hverju hverfi
Í Hafnarfirði hefur innbrotum í heimahús fjölgað mjög Hvatt til grannagæslu
Morgunblaðið/ÞÖK
Bíræfið Innbrotsþjófar sátu ekki
auðum höndum þessa jólahátíð.
Alvarlegt umferðarslys varð í Langadal í Húna-
vatnssýslu um kl. 19 í gærkvöld er tengivagn
flutningabíls á leið norður lenti á flutningabíl
sem kom úr gagnstæðri átt. Ökumaður síð-
arnefnda bílsins var fluttur mikið slasaður með
þyrlu Landhelgisgæslunnar frá Blönduósi til
Reykjavíkur.
Slysið varð í brekku á hringveginum vestan
við Bólstaðarhlíðarbrekku. Ekki er fullljóst hver
orsökin var en annaðhvort hefur tengivagninn
losnað aftan úr bílnum eða hinn bíllinn lent á
tengivagninum. Á honum voru steypurör sem
dreifðust um veginn á 300-400 metra kafla.
Umferð var beint um Þverárfjallsveg í gær-
kvöldi. Að sögn lögreglu á Blönduósi var ekki
búist við að hægt yrði að opna veginn á ný fyrr
en liði á nóttina.
Þar sem slysið varð er víravegrið og lenti ann-
ar flutningabíllinn á því. Að sögn sjónarvotta
slitnaði annar vírinn en hinn kom í veg fyrir að
bíllinn færi út af veginum.
Alvarlega slasaður eftir árekstur
vöruflutningabíla í Langadal
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Á slysstað í Langadal Við áreksturinn valt annar bíllinn út af veginum en tengivagn hans varð eftir. Hinn bíllinn hafnaði á víravegriði.
Fimm daga vist-
un á frístunda-
heimili í borg-
inni með
síðdegis-
hressingu mun
hækka á næsta
ári úr 10.515
krónum í 12.940
eða um 23%.
Minni hækkun
verður á 8
stunda vistun fyrir börn í leik-
skóla. Hins vegar mun matar-
áskrift í grunnskóla hækka um
10%, úr 5000 í 5500 krónur á
mánuði. »4
23% hækkun á
frístundaheimilum
Hátíð Krakkar í
kassabílaralli.
Í Hafnarfirði fjölgaði innbrotum
um 53% frá 2007 til 2009.
Fyrstu 10 mánuði ársins 2010
stefndi hinsvegar í fækkun en
það gæti breyst eftir þá hrinu
sem gengur nú yfir. Mest munar
um aukin innbrot í heimahús, að
sögn Margeirs Sveinssonar lög-
reglufulltrúa. Hann segir mörg
dæmi þess að fólk loki ekki
nógu vel þegar það fer að heim-
an, en öflug nágrannavarsla
hafi margsannað sig. Fólk er
hvatt til að tilkynna lögreglu
grunsamlegar mannaferðir.
Heimilin vöktuð
FLEST INNBROT SÍÐLA ÁRS
Róbert Marshall, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, segir skort á póli-
tískri forystu í því ástandi sem skap-
ast hefur í Landeyjahöfn.
„Samgönguráðherra þarf að stíga
inn í þetta mál af myndugleik og
taka utan um þessa atburðarás. Ef
Siglingastofnun stendur sig ekki í
því að hafa tiltækt dæluskip til þess
að vinna á meðan hægt er að vinna í
að halda höfninni opinni þá þarf
samgönguráðherra að tryggja að
það sé gert,“ segir Róbert í samtali
við Morgunblaðið.
„Það er ekki ásættanlegt að það sé
ákvarðanataka í Siglingastofnun um
að loka þessari meginsamgönguleið
Eyjamanna í þrjár vikur vegna þess
að eitthvert skip þarf að fara í skoð-
un í Danmörku,“ segir Róbert sem
kveður Siglingastofnun hafa átt að
sjá vandamálið fyrir og tryggja
lausn á því.
Náttúruöflin hafa tekið völdin
Ögmundur Jónasson samgöngu-
ráðherra segir pólitíska forystu
gagnvart Eyjafjallajökli eða vindátt-
unum hafa afskaplega lítið að segja.
„Ég veit ekki hvort hann ætlast til
þess að ég fari að spjalla við nátt-
úruöflin. Það eru þau sem hafa tekið
völdin og við gerum það sem við get-
um til að nýta það mannvirki sem
þarna var reist. Um það hélt ég að
væri bærileg sátt. Síðan vegum við
það og metum þegar á það er komin
reynsla hvernig best sé að snúa sér í
málinu. Svona digurbarkalegar yf-
irlýsingar breyta þarna engu,“ segir
Ögmundur sem kveður stjórnvöld
ætla að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til þess að gera höfnina not-
hæfa. jonasmargeir@mbl.is
Skortur á
pólitískri
forystu
Morgunblaðið/RAX
Þreyttur á bið
eftir Landeyjahöfn