Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 32
AF JÓLAMYNDUM Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Á dögunum birti kvik-myndavefurinn Empirelista yfir bestu jólakvik- myndir allra tíma, að mati lesenda vefjarins, og hreppti ofbeldis- myndin Die Hard fyrsta sætið, en sú mynd var frumsýnd á jólum 1988 og fer hasarinn fram í jólaboði í há- hýsi mikils fyrirtækis. Lengra nær jólaboðskapurinn ekki í þeirri mynd, ef frá er talinn hamingju- endir þar sem allir kyssast og verða vinir eftir að hryðjuverkamönnum hefur verið komið fyrir kattarnef. Á listanum var hins vegar einnig öllu jólalegri kvikmynd sem virðist alltaf komast á lista yfir tíu bestu jólamyndir allra tíma, a.m.k. þegar Bandaríkjamenn fá að ráða, It’s a Wonderful Life með hinum dásamlega leikara James Stewart í aðalhlutverki, frá árinu 1946. Hvað er það eiginlega við þessa kvik- mynd sem gerir hana að slíku jóla- eftirlæti? Jú, ég sá hana í fyrsta sinn um daginn og skil nú vel af hverju hún á fast sæti á jólalistum. Boðskapurinn er nefnilega sá að líf- ið sé dásamlegt og að öll él birti upp um síðir, hversu svört sem þau kunna að vera og að öll séum við nú mikilvæg hér á jörð. Þetta er auð- vitað voða sætt og fallegt en lífið er nú öllu flóknara í raunveruleik- anum, ekki eru allir svo heppnir að höndla hamingjuna á lífsleiðinni, sumir deyja úr hungri, aðrir úr kulda o.s.frv. Litla stúlkan með eld- spýturnar veit allt um það.    It’s a Wonderful Life segir afævi George nokkrum Bailey, allt frá uppvaxtarárum fram að miðri ævi. Bailey á sér þann æsku- draum að nema lönd og lenda í miklum ævintýrum en þarf að gefa drauma sína upp á bátinn til að bjarga smábæ sem hann býr í, Bed- ford Falls, frá því að lenda í klóm auðjöfursins Potters. Bailey tekur að sér að reka lánastofnun föður síns og veitir mörgum þurfandi bæjarbúanum fjárhagsaðstoð og gerir fólki kleift að koma sér þaki yfir höfuðið. Bailey er dáður mjög í bænum fyrir örlæti sitt og vænt- umþykju í garð bæjarbúa, kvænist æskuástinni sinni og eignast með henni fjögur falleg börn. En babb kemur í bátinn þegar frændi hans og samstarfsmaður týnir mikilli fúlgu fjár og stefnir allt í að stofn- unin fari á hausinn og Bailey með. Og ekki nóg með það því lögreglan telur Bailey hafa stolið pening- unum, hann er eftirlýstur og lítur út fyrir að hans bíði fangelsisvist. Úrkula vonar tekur hann reiði sína út á fjölskyldunni, drekkur sig blindfullan og hyggst fyrirfara sér. Þá kemur verndarengill til bjargar (bókstaflega) og sýnir honum hvernig lífið hefði verið hefði hann aldrei fæðst. Þarf ekki að spyrja að því að bærinn hefði orðið eitt alls- herjar lastabæli og eiginkona Bai- leys óhamingjusamur bókasafns- Hið yndislega líf James Stewart Yndislegt Stewart er stórkostlegur í hlutverki George Bailey í kvik- myndinni jólalegu, It’s a Wonderful Life. » Þarf ekki að spyrjaað því að bærinn hefði orðið eitt alls- herjar lastabæli og eig- inkona Baileys óham- ingjusamur bókasafnsvörður. 32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010 SÝND Í ÁLFABAKKA H - SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK EXORCISM THELAST ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - KR. 700 GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI „BREATHTAKING“ - THE PEOPLE HHHHH MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Í BÍÓ FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA „LANGFLOTTASTA BÍÓUPPLIFUNIN Á ÖLLU ÁRINU. ÞAÐ ER LOFORÐ!“ - T.V. - KVIKMYNDIR.IS „JEFF BRIDGES IS SENSATIONAL“ - BOXOFFICE MAGAZINE „HIGH-STYLE ADVENTURE“ - ROLLING STONE „PREPARE TO HAVE YOUR MIND BLOWN“ - J.H, FOX-TV „3D MOVIE EVENT OF THE YEAR“ - TOTAL FILM „COOLEST FILM OF THE YEAR“ - S.N, CBS TV „VISUALLY ARRESTING“ - TIME EIN MAGNAÐASTA ÞRÍVÍDDARMYND ALLRA TÍMA 700 kr. Tilboðil 700 kr. Tilboðil700 kr. Tilboðil SAMbio.is TRON: LEGACY - 3D kl. 3:20 - 5:50 - 8 - 10:40 - 11 10 HARRY POTTER kl. 2 - 5 - 8 - 11 10 TRON: LEGACY kl. 2 - 5:20 - 8 - 10:40 VIP DUE DATE kl. 5:30 - 8 10 MEGAMIND - 3D ísl. tal kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - enskt tal:8:30 L ÆVINTÝRI SAMMA - 3D ísl. tal kl. 1:30 L THE LAST EXORCISM kl. 10:40 16 KONUNGSRÍKI UGLANNA ísl. tal kl. 1:30 - 3:40 7 LIFE AS WE KNOW IT kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:40 L FURRY VENGEANCE kl. 1:30 L / ÁLFABAKKA TRON: LEGACY kl. 12:15 - 2:45 - 5:20 - 8 - 10:40 10 NARNIA 3D kl. 12:15 - 2:45 - 5:20 - 8 L MEGAMIND 3D ísl. tal kl. 12:15 - 2:45 - 5:20 L HARRY POTTER kl. 8 10 MEGAMIND 3D enskt tal kl. 10:30 L ÆVINTÝRI SAMMA 3D kl. 12:15 ísl. tal L LITTLE FOCKERS kl. 2:45 - 5:20 - 8 - 10:10 - 11 12 / EGILSHÖLL „ÓGNVÆNLEGA SKEMMTILEG.“  SARA MARIA VIZCARRONDO  BOXOFFICE MAGAZINE HHHHH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.