Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 362. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Létust á brúðkaupsnóttinni
2. Samið um sölu á Heklu
3. Réðust inn á heimili
4. Reykjavík eins og fiskiþorp
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Landinn liggur nú yfir hinum svo-
kölluðu jólamyndum eins og lög gera
ráð fyrir. Helgi Snær Sigurðsson
varpar ljósi á eina slíka í pistli sínum,
It’s a wonderful life, þar sem James
Stewart fer á kostum miklum »32
Hin sígilda jólamynd
Skráning í
hljómsveita-
keppnina Wacken
Metal Battle er
hafin og stendur
yfir til 20. janúar.
Sigurvegari
keppninnar held-
ur svo út til
Þýskalands sum-
arið 2011 og mun spila á Wacken í al-
þjóðlegum úrslitum Metal Battle
keppninnar. Nánari upplýsingar er að
finna á www.metal-battle.com.
Skráning í Wacken
Metal Battle hafin
Æskuvinirnir Þorsteinn Guðmunds-
son og Lýður Árnason slá saman í
skemmtikvöld á Nema-Forum í kvöld.
Steini og Helgi Svavar Helgason sjá
um fyrri hlutann og svo
tekur Lýður við með
hljómsveitinni Grjót-
hruni ásamt þeim
Grími Atlasyni, Jóni
Elíassyni, Hrólfi
Vagnssyni
og Pétri
Hjalte-
sted.
Lýður og Þorsteinn
í Nema-Forum
Miðvikudagur Suðvestlæg átt 5-10 m/s og léttskýjað á austanverðu landinu, en skýjað
og yfirleitt þurrt vestantil. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum á A-landi.
Fimmtudagur og föstudagur (gamlársdagur) Suðlæg átt 5-10 m/s og dálítil rigning,
en þurrt að kalla á austanverðu landinu. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða léttskýjað á Norður- og Austurlandi en smáskúrir eða él á
vestanverðu landinu. Hiti 0 til 5 stig.
VEÐUR
Það verða FH og Akureyri
sem leika til úrslita í deilda-
bikarnum í karlaflokki í
handknattleik í íþróttahús-
inu við Strandgötu í kvöld.
Bæði lið unnu stórsigra í
gær en FH skellti Fram og
Akureyri vann stórsigur á
Haukum. Hjá konunum
mætast Fram og Valur í úr-
slitum. Fram hafði betur á
móti Fylki í undanúrslit-
unum og Valur marði
Stjörnuna. »3
Stórir sigrar hjá
Akureyri og FH
Arsenal vann í gærkvöld góðan sigur
á meisturum Chelsea, 3:1, þegar liðin
áttust við í ensku úrvalsdeildinni á
Emirates Stadium. Með sigrinum
komst Arsenal upp í annað sætið en
fyrir leikinn hafði Chelsea unnið
fimm síðustu viðureignir liðanna. Allt
gengur hins vegar á afturfótunum hjá
meisturunum þessa dagana. »1
Arsenal skellti meist-
urum Chelsea
ÍÞRÓTTIR
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Hálendi Íslands og óbyggðir eru
ekki bara sumarland, sem ein-
ungis má heimsækja í júlí og
ágúst. Á marga staði er hægt að
fara allan ársins hring og kjósa
sumir jafnvel að verja áramót-
unum fjarri byggðum.
„Þú sérð í það minnsta flugeld-
inn þinn mjög vel, þegar þú skýt-
ur honum upp,“ segir Skúli H.
Skúlason, framkvæmdastjóri Úti-
vistar, þegar hann svarar því
hvernig það sé að vera fjarri
skarkala borgar og bæja um ára-
mót. Löng hefð er fyrir áramóta-
ferð Útivistar í Bása á Goðalandi
og verður engin undantekning
gerð þar á í ár. Nú þegar hafa yf-
ir tuttugu manns skráð sig í ferð-
ina að sögn Skúla og segir hann
því að aðsóknin sé ágæt í ár.
Sumir fara aftur og aftur
Alls taka skálarnir í Básum
mest um 80 manns, en Skúli segir
ekki æskilegt að fara með meira
en sextíu manns þangað á þessum
árstíma, svo vel sé rúmt um fólk.
Enn er því hægt að bæta við í
ferðina.
Hann segir að ferðin sé vinsæl
hjá ákveðnum kjarna í Útivist og
sumir mæti jafnvel ár eftir ár. En
á hverju ári bætast við ný andlit
sem vilja upplifa óvenjuleg ára-
mót til tilbreytingar.
Dagskráin er skemmtileg á
hverju ári og er meðal annars far-
ið í blysför um Bása, gengið um
gil og skorninga og kveikt á blys-
um. Á gamlárskvöld er brenna og
kvöldvaka auk þess sem farið er í
göngu- og skíðaferðir eftir því
sem færið leyfir. Þegar vel viðrar
er náttúrufegurðin svo auðvitað
óviðjafnanleg og ekki skemmir
fyrir ef norðurljós leika um himin,
ómengaðan af ljósmagni þéttbýlis-
ins.
Áramótaferð FÍ féll niður
Ferðafélag Íslands ráðgerði leið-
angur inn í Landmannalaugar yfir
áramótin, þar sem fólk gat hvort
heldur sem er komið á eigin jeppa
eða borgað fyrir far. Sú ferð féll
því miður niður vegna dræmrar
þátttöku, en eflaust spilar þar inn í
veðurfarið að undanförnu og
hversu mjög snjó hefur tekið upp á
því svæði. Hjá FÍ er engu að síður
hægt að borga fyrir afnot af skál-
um ef fólk vill vera í þeim á eigin
vegum. Um tuttugu manns verða í
skálanum í Landmannalaugum yfir
áramótin, á eigin vegum.
Í óbyggðum um áramótin
Sumir fagna
áramótum fjarri
mannabyggðum
Ljósmynd/Anna Soffía Óskarsdóttir
Öðruvísi áramót Í áramótaferð Útivistar inn í Bása á Goðalandi er hefð fyrir blysför á gamlárskvöld. Þá myndast
oft skemmtileg stemning þegar blysin lýsa upp kletta og gil. Svo er haldið til kvöldvöku inni í skála.
Ferðafélag Íslands verður með
stóra ferð í Langadal í Þórsmörk á
þrettándanum. Nánast fullbókað
er í ferðina en nokkur sæti enn
laus, að sögn Páls Guðmunds-
sonar framkvæmdastjóra. Hátt í
sextíu manns ætla að skella sér.
Í þrettándaferðinni eru farnar
gönguferðir í Snorraríki og söng-
helli, kveiktur varðeldur, og dans-
að í kringum hann og jólalögin
sungin. Á miðnætti er svo boðið
upp á stjörnuskoðun með leiðsögn
fararstjóra, ef skýjafarið leyfir.
Löng hefð er fyrir þessari þrett-
ándaferð og nýtur hún alltaf mik-
illa vinsælda, ekki síst hjá fjöl-
skyldufólki. Þeir sem ekki komast
út úr bænum um sjálf áramótin
geta því engu að síður komist í há-
tíðlega stemningu í óbyggðum á
þrettándanum.
Þrettándaferð í Þórsmörkina
FERÐAFÉLAGIÐ MEÐ STÓRA FERÐ Á ÞRETTÁNDANUM
Alfreð Finnbogason, knatt-
spyrnumaður ársins á Íslandi 2010,
er kominn af stað með sínu nýja fé-
lagi, Lokeren í Belgíu, og er löglegur
með því frá áramótum. „Ég verð að
vera þolinmóður, bíða eftir mínu
tækifæri og reyna að nýta það sem
best,“ segir Alfreð. »4
Bíð eftir mínu tækifæri
og reyni að nýta það