Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þjónusta Reykjavíkurborgar við íbúana hækkar í mörgum tilvikum um 10 til 30% og í einstaka tilfelli enn meira. Útgjöld fjölskyldna, ekki síst barnafjölskyldna, geta aukist um tugi þúsunda á ári. Gjaldskrár vegna þjónustu borg- arinnar við íbúana hafa verið sam- þykktar en ekki gefnar út í heild. Haft var samband við nokkur svið borgarinnar til að fá dæmi um breyt- ingar. Birtast þau í töflunni hér að ofan, ásamt breytingum á tekju- skatti og útsvari. Í yfirliti um skattabreytingar sést að svipuð upphæð verður í launaum- slaginu í janúar og nú í desember. Útsvarið hækkar verulega en tekju- skatturinn lækkar samsvarandi. Það er vegna færslu kostnaðar við þjón- ustu við fatlaða frá ríki til sveitarfé- laga. Einnig kemur til 0,17 prósentu- stiga hækkun útsvars í Reykjavík. Ríkið hækkaði þrepin í tekjuskatts- kerfinu um 4,7% vegna verðlags- hækkana á árinu en persónuafslátt- urinn var látinn standa í stað. Launahækkanir sem væntanlega verður samið um á árinu leiða því til hækkunar á skattbyrði almennings. Þótt margar gjaldskrár borgar- innar hækki um 10-30% eru dæmi um að gjöld fyrir mikilvæga þjónustu hækki minna. Þá eru einnig dæmi um þjónustu sem lækkar í verði, þótt það sé fáséð, og jafnvel að hætt sé að innheimta gjald fyrir þjónustu. Byrjað verður að nýju að innheima aðgangseyri að listasöfnum borgar- innar, það er að segja að sýningum í Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ás- mundarsafni, og mikil hækkun verð- ur á Árbæjarsafni og landnámssýn- ingunni í miðbænum. Þær skýringar eru yfirleitt gefnar á gjaldskrárhækkunum að óbreytt verð hafi verið á þjónustunni nokkur undanfarin ár. Nú er verið að taka inn hluta slakans þannig að búast má við áframhaldandi hækkunum um- fram verðlag á næstu árum. Einnig er stefnt að samræmingu á milli sviða sem gæti leitt til hækkunar og lækkunar. Gjaldskrárbreytingar hjá Reykjavíkurborg - dæmi Tekjuskattur og útsvar í Reykjavík jan. 2011 des. 2010 jan. 2011 des. 2010 jan. 2011 des. 2010 Heildarlaun 300 000 300 000 500 000 500 000 800 000 800 000 Tekjuskattur 24 027 27 755 73 563 79 595 153 114 164 435 Útsvar* 41 472 37 526 69 120 62 544 110 592 100 070 Skattar samt. 65 499 65 281 142 683 142 139 263 706 264 505 *Útsvar í Reykjavík, 14,4% Við útreikning er tekið tillit lögbundins framlags launþega í lífeyrissjóð 2011 2010 breyting % Grunnskólar Mataráskrift, mánaðargjald 5500 5000 10% Frístundaheimili (frá 1. febrúar) 5 daga vistun, fyrir mánuð 10 040 8 365 20% Síðdegishressing 2 900 2 150 35% Leikskólar 8 stunda vistun 21 760 20 655 5% 8 stunda vistun (börn námsfólks) 21 760 16 799 30% Aldraðir Hádegismatur (matarmiðar) 550 525 5% Heimsendur matur 730 690 6% Tímagjald vegna þrifa í heimaþjónustu 1000 530 89% Tímagjald vegna félagslegrar umönnunar 0 530 Opið félagsstarf 1000 690 45% Strætó Stakt gjald 350 280 25% Grænt kort (1 mán.) 6400 5600 14% Rautt kort (3 mán.) 14500 12700 14% 11 miðar, hver ferð 273 227 20% 20miðar, börn 12-18 ára, hver ferð 105 100 5% 2011 2010 breyting % Sund Fullorðnir 450 360 25% Börn 6-18 ára 100 110 -9% 10 miða kort fullorðinna 3000 2500 20% 10miða kort barna 900 900 Árskort fullorðinna 28 000 24 000 17% Árskort barna 10 000 10 000 Húsdýragarður Börn, um helgar 600 500 20% Fullorðnir, um helgar 700 600 17% Skemmtimiðar í tæki 270 220 23% 10 miða kort 2200 2000 10% Söfn Bókasafnsskírteini 1500 1300 15% Árbæjarsafn og landnámssýning 1000 600 67% Listasöfn borgarinnar* 1000 0 *Hægt verður að kaupa menningarkort sem gildir í bókasöfnum og á öllum söfnum og sýningum Hundahald Leyfi fyrir hundi 16 300 15 400 6% Eftirlitsgjald 17 500 15 400 14% „Handsömunargjald“ 23 500 21 500 9% Tuga prósenta hækkanir  Útgjöld fjölskyldna í Reykjavík aukast vegna gjaldskrárhækkana um áramót  Byrjað á ný að innheimta gjald fyrir aðgang að listasöfnum borgarinnar Morgunblaðið/Einar Falur Listasafn Verk eftir Erró sett upp á sýningu í Hafnarhúsi. ódýrt og gott Grillaður kjúklingur og Pepsi eða Pepsi Max, 2 l 998kr.pk. Ingu Þórsdóttur prófessor voru veitt heiðursverðlaun verðlaunasjóðs Ásu Guðmundsdóttur Wright. Inga hlaut verðlaunin fyrir framúrskarandi ár- angur í rannsóknum á sviði næring- arfræði sem haft hafa áhrif á fræðslu og forvarnir meðal fjöl- margra þjóðfélagshópa. Rannsóknir Ingu leiddu m.a. til þess að Mjólk- ursamsalan þróaði Stoðmjólk fyrir atbeina heilbrigðisyfirvalda. „Mér þykir mjög vænt um þetta. Þetta er mikill heiður og þetta er hvatning fyrir mig og allt það unga fólk sem ég hef unnið með. Ég á marga góða yngri samstarfsmenn sem hafa verið doktorsnemar hjá mér og svo er ég með doktors- og meistaranema. Þetta er voðalega gaman fyrir okkur öll,“ segir Inga um verðlaunin í samtali við Morg- unblaðið. Bakhjarlar næstu tíu árin Sigrún Ása Sturludóttir, sem situr í stjórn sjóðsins, veitti verðlaunin í Þjóðminjasafninu í gær að við- stöddum forseta Íslands, mennta- málaráðherra, rektor Háskóla Ís- lands og þjóðminjaverði. Alcoa Fjarðarál og HB Grandi hafa gert samkomulag við sjóðinn um að gerast bakhjarlar hans næstu tíu árin. Sigrún Ása kveður stuðn- inginn mikilvægan fyrir starfsemi sjóðsins. „Þeir veita fé til sjóðsins. Þeir gera okkur kleift að veita verð- launin og við erum þeim alveg sér- staklega þakklát fyrir að styrkja þetta starf.“ Ásusjóður var stofnaður af Ásu til minningar um eiginmann sinn, ætt- ingja og aðra venslamenn á hálfrar aldar afmæli Vísindafélags Íslend- inga. jonasmargeir@mbl.is Inga fékk Ásuverðlaun Vísindafélagsins Morgunblaðið/Ernir Verðlaun Á myndinni eru f.v. Þráinn Eggertsson, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Stefán Einarsson eig- inmaður Ingu, Inga Þórsdóttir verðlaunahafi, Sigrún Ása Sturludóttir og Sveinbjörn Björnsson fv. háskólarektor. Hjón á sjö- tugsaldri í Breiðholti klófestu þjóf í gær. Hjónin höfðu farið út í verslun en komu heim að manni sem lét greipar sópa. Konan kom þá í veg fyrir að þjófurinn kæmist út um dyr hússins en þegar þjófurinn ætlaði út um glugga tókst heimilisföðurnum að klemma hann fastan á útleið. Þar beið þjófurinn í mikilli klemmu þar til lögregla kom á vettvang og handtók hann. Lögreglan segir manninn vera góðkunningja sinn en hann var yf- irheyrður í gærkvöld. Þá rændu tveir menn Spar-verslun í Vesturbergi á tíunda tímanum í gærkvöld. Þeir komust undan með eitthvað af peningum en lögreglan handtók þá skömmu síðar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir þá hafa komið við sögu lögreglu áður. Báðir voru færðir til yfirheyrslu í gær- kvöld. Þjófur í klemmu í Breiðholti Búast má við að- gerðalitlu veðri um áramótin um allt land, að sögn Óla Þórs Árna- sonar, veðurfræð- ings á Veðurstofu Íslands. Líklega verður skýjað og nokkur rigning víðast hvar en þar sem hitastigið er lágt þarf lítið til að rigningin breytist í slydduél á gamlárskvöld. „Þetta er mjög hæg sunnanátt og jafnvel suðaustanátt hér á suðvest- urhorninu og líklega myndi úrkom- an skila sér lítið inn á höfuðborg- arsvæðið um kvöldið,“ sagði Óli Þór. Hann sagði líklegt að vindur myndi snúast úr suðvestan í hæga suðaust- anátt með kvöldinu. „Þetta er mjög aðgerðalítið veður. Við getum búist við að víðast hvar á landinu verði hitastigið á landinu 0-5 stig en það er hætt við að verði fremur skýjað. Stóra spurningin er hvort það verð- ur svo lágskýjað að menn sjái ekki allt sem verður skotið upp. En í heildina verður þetta ágætis veður.“ Hann sagði minnkandi lægð vera á Grænlandssundi en síðan kæmi önnur á miðvikudag og fimmtudag, leifarnar af henni myndu verða á höfuðborgarsvæðinu á gamlársdag. Líklega milt um áramótin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.