Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Leikritið Ofviðrið eftir William Shakespeare verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu annað kvöld, í leikstjórn Oskaras Korsunovas sem er margverðlaunaður leikhússtjóri borgarleikhússins í Vilníus og marg- verðlaunaður fyrir sín störf. Ofveðrið gerist á eyju, einhvers- staðar og hvergi – í ríki hugarflugs- ins. Þar ræður Prospero ríkjum (Ingvar E. Sigurðsson) og hefur dvalið þar í útlegð árum saman ásamt ungri dóttur sinni (Láru Jó- hönnu Jónsdóttur), skrímslinu Ka- liban (Hilmi Snæ Guðnasyni) og þjóni sínum Ariel (Kristínu Þóru Haraldsdóttur). Tækifæri gefst til að gera upp málin þegar ofsaveður skolar á land skipi þeirra sem á sín- um tíma sviku Prospero. Sannleikur í klassíkinni „Shakespeare á alltaf við; þar er svo ríkur sagnabrunnur að leita í,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu. „Okkur fannst vera kominn tími á Shakespeare og fannst Ofviðrið eiga erindi; þjóðin hefur gengið gegnum miklar raunir á síðustu misserum og þá getur verið gott að leita sannleik- ans í klassíkinni. Þar er oft að finna svör við stóru spurningunum.“ Magnús Geir segir margar ástæð- ur fyrir því að Ofviðrið varð fyrir valinu, ekki síst að það var gamall draumur leikstjórans að setja Of- viðrið á svið. „Auk þess vorum við sammála um að það ætti ágætlega við, miðað við hvar íslenska þjóðin er stödd. Of- viðrið gerist í kjölfar mikilla áfalla, þetta er eftirleikur stormsins og verkið endar á fyrirgefningu og upp- hafi nýrra og bjartari tíma. Að mörgu leyti er þetta bjart verk. Of- viðrið á ríkt erindi við Íslendinga í dag.“ Leikhús í leikhúsinu Oskaras Korsunovas er í hópi kunnustu leikstjóra heims í dag og Magnús Geir segir það lengi hafa verið draum sinn, og fleiri íslenskra leikhúsmanna, að fá hann til Íslands. „Eitt af fyrstu verkum mínum eft- ir að ég var ráðinn í Borgarleikhúsið var að leggja snörur fyrir Kors- unovas,“ segir hann. „Hann er afar eftirsóttur og bókaður langt fram í tímann og því var ekki sjálfgefið að hann fengist til að vinna með okkur. Nú eru tvö ár síðan gengið var frá ráðningu Oskarasar og ákveðið var að setja upp Ofviðrið. Síðan hefur hann fylgst vel með því sem er að gerast í Borgarleikhúsinu, séð flest- ar sýninga okkar á þessum tíma og kynnst leikhópnum vel. Auk þess hefur Oskaras sótt mikið í náttúru Íslands og viðað að sér upplýsingum um stöðu mála hér á landi. Þótt hann leikstýri líka nútímaverkum er Korsunovas afar reyndur leikstjóri klassískra verka, ekki síst Shake- speare. Hann hefur djúpan skilning á skáldinu og skýra sýn á verkið. Leiðin sem hann fer er að mínu mati heillandi. Þetta er síðasta verk Shakespeares og að vissu leyti upp- gjör við listina, ævistarfið og leik- húsið. Í uppfærslunni nálgast Kors- unovas þetta þar; sýningin er að miklu leyti óður til listarinnar, leik- hússins og skáldskaparins. Prospero er leikstjórinn og eyjan sem verkið gerist á verður að leikhúsi. Á sviðinu birtist því leikhús í leikhúsinu og við finnum í senn fyrir leikaranum sjálfum og persónunni sem hann leikur,“ segir Magnús Geir. Á sviðinu Ofviðrið er „að vissu leyti uppgjör við listina, ævistarfið og leikhúsið,“ segir Magnús Geir Þórðarson. „Ofviðrið á ríkt erindi við Íslendinga í dag“ Elektra Ensemble heldur áramóta- tónleika á Kjarvalsstöðum á fimmtu- dagskvöldið og hefjast þeir kl. 20. Efnisskrá tónleikanna er sett saman til að fagna áramótunum þar sem bregður fyrir hinum ýmsu dans- formum. Rímnadans, valsar, tangó- ar, sverðdans og elddans munu hljóma, m.a. verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Jón Leifs og de Falla. Elektra Ensamble Dansinn er und- irliggjandi í efnisskránni. Áramóta- tónleikar Valgerður Þóra hefur sent frá sér bókina Á milli heima. Er þetta hennar áttunda bók, sú fyrsta í fjögur ár. Sagan er um skólabörn sem m.a. halda fundi með skóla- stjórum og kenn- urum skóla í Reykjavík, Kópavogi og Þýskalandi og eignast síðan land- skika á Indlandi gegnum samtök á Indlandi til að byggja þar skóla fyrir fátæk börn. Börnin safna peningum til byggingar skólans. Kennararnir fræða börnin um einnig um allt sem tengist álverksmiðjum og þau fá ánægjulegan fund með ráðherra í kjölfarið. Ný bók Val- gerðar Þóru Valgerður Þóra Vetrarhefti tíma- ritsins Þjóðmála 2010 er komið út Meðal efnis er ítarleg rannsókn- arritgerð Gústafs Níelssonar um vanhugsaða bar- áttu Íslands fyrir sæti í Örygg- isráði SÞ, Ólöf Nordal fjallar um óðagotið varðandi fyrirhugaðar stjórnarskrárbreyt- ingar, Ragnhildur Kolka segir frá skrifum Dalrymple um hnignun vestrænna velferðarríkja og Björn Bjarnason skrifar um vaxandi virð- ingarleysi stjórnvalda fyrir lögum og rétti. Að vanda birtast einnig allmargir ritdómar í Þjóðmálum. Vetrarhefti Þjóðmála Þjóðmál - nýtt hefti Jólasýning Borgarleikhússins, Ofviðrið eftir William Shake- speare, verður frumsýnd á Stóra sviðinu annað kvöld. Of- viðrið er síðasta leikritið sem breski skáldjöfurinn skrifaði, gleðileikur sem sagður er ein- kennast af húmor, ást og krafti. Litháinn Oskaras Kors- unovas, sem er eftirsóttur leik- stjóri á alþjóðlega sviðinu, leik- stýrir og meðal leikara eru þau Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason og Kristín Þóra Haraldsdóttir. Verkið er sett upp í samstarfi við Íslenska dansflokkinn. Leikmynd hannar Vytautas Narbutas, Fillipía I. Elíasdóttir sér um búninga og Björn Berg- steinn lýsingu. Högni Egilsson semur tónlistina og danshöf- undur er Katrín Hall. Sölvi Björn Sigurðsson hefur þýtt Ofviðrið fyrir uppfærsluna. Valinkunnir þátttakendur OFVIÐRIÐ FRUMSÝNT Munið að slökkva á kertunum Slökkvilið höfuborgasvæðisins Útikerti eru oft staðsett þannig að hætta er á að yngsta kynslóðin rekist í þau og að yfirhafnir fullorðinna, sérstak- lega kápur og frakkar fullorðinna sláist í loga þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.