Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ríkisstjórninhefur nán-ast allan sinn feril verið í viðræðum við líf- eyrissjóðina um að fjármagna vega- framkvæmdir fyrir sig og fá í staðinn að rukka þá sem aka þar um, óháð því hvort þeir eigi annan kost til að komast leiðar sinnar eða ekki. Eftir margra mánaða þref sprakk þessi tilraun eins og svo margt sem þessi rík- isstjórn bjástrar við. Sagt var að ágreiningur um vaxtapró- sentu hefði verið þúfan sem velti hlassinu. Nú segist rík- isstjórnin ætla sér að gera þetta sjálf. Hún muni láta vegagerðina sjá um að bjóða út framkvæmdir með hefð- bundnum hætti og rukka svo þá vegfarendur sem nota nýju spottana eða göngin. Af hverju var þetta ekki gert strax? Svarið sem gefið er almenningi er að það sé vegna þess að Al- þjóða gjaldeyrissjóðurinn hafði bannað þessa aðferð lengi vel en hafi nú leyft hana. Þetta eru ósannindi. Það er ekki flóknara en það. AGS hafði bannað og bannar enn að ríkisstjórnin tæki lán fyrir nýj- um vegaframkvæmdum, sem yrðu endurgreidd með núver- andi tekjustofnum. En AGS segir, og það hefur legið fyrir allan tímann, að vilji ríkið leggja viðbótarskatta á illa pínda bifreiðaeigendur til að borga viðbótarframkvæmdir, þá má það gera það sjóðsins vegna og hefur alltaf mátt það. Það er nefnilega enginn eðl- ismunur á að láta lífeyrissjóð- ina rukka inn skattinn og klípa örlítið af fyrir sig eða að ríkið geri það sjálft. En á þeim 20 mánuðum sem þetta tilgangs- lausa þref við líf- eyrissjóðina hefur staðið hefur ým- islegt gerst sem gerir þetta ókræsilega mál enn verra en það var. Þjóðin er að verða svo skattpínd að það er mikill ábyrgðarhluti að bæta þar nokkru við. Þess utan mun þessi sérstaka skattheimta koma mjög óeðlilega niður. Bifreiðaeigendur greiða þegar mikla skatta umfram það sem felst í þeim beinu og óbeinu sköttum sem þeir borga ásamt öðrum borgurum þessa lands. Vissulega hafa á síðustu tveim- ur áratugum orðið stórkostleg- ar framfarir í þjóðvegakerfi landsins og öðrum þeim vegum sem lagðir hafa verið fyrir skattfé. Nú háttar hins vegar þannig til að smærri hluti sér- skatta á bifreiðar og notkun þeirra gengur til vegafram- kvæmda en hefðbundið hefur verið á undangengnum árum. Við þær aðstæður er forkast- anlegt að bjóðast til að leggja nýja skatta á umferðina og segjast gera það „til þess að skapa störf“. Þegar þessi við- bótarskattheimta bætist við þá sem núverandi ríkisstjórn hef- ur stofnað til á sínu stutta valdaskeiði, sem flestum þykir orðið ömurlega langt, má ljóst vera að enn hægir á hjólum at- vinnu- og efnahagslífs. Sá sam- dráttur verður mun meiri, og einkum þó varanlegri, en þau fáeinu störf sem menn látast vera að kaupa með enn einni skattpíningunni. Hugmyndir um auknar vegafram- kvæmdir með við- bótarskattlagningu eru skaðlegar} Varasamar hugmyndir Seðlabankarsem búa ekki í gerviveröld hafta og gengisfölsunar eru óöruggir með sig um þessar mundir. Þegar lit- ið er á tilkynningar þeirra og spár síðustu 18 mánuðina hef- ur verðhjöðnun verið vanda- málið sem við væri að fást. Væntingarnar utan seðla- bankaveggjanna eru aðrar. Verðbólgan er komin á kreik. Hún getur orðið snúið við- fangsefni áður en við er litið. Þessi er raunin í Bretlandi. Verið róleg, segir Englands- banki. Verðbólguhættan verð- ur úr sögunni þegar árið 2012 gengur í garð. Vandinn er sá að hinar vitlausu spár um ný- liðna fortíð verða til þess að lítið traust ríkir á tali og töfluspeki um næstu framtíð. Seðlabanki Evrópu er í mikl- um vandræðum. Hann talaði upp gríska efnahaginn eins lengi og hann gat. Reyndar hætti hann því ekki fyrr en ekki heyrðist í honum vegna há- vaða á markaðnum. Þá var reynt að skuldsetja Grikki út úr vandanum. Sama atburða- rás varð á Írlandi. Allt í lagi í Portúgal, sagði ESB fyrir fá- einum vikum. Þar eru mats- fyrirtæki að tilkynna versn- andi horfur ótt og títt. Og nú hefur skuldabréfaálag rokið upp úr öllu valdi. Markaður- inn er hættur að kæfa traustsyfirlýsingar ESB á titrandi ríkjum með hávað- anum einum. Vantraustið á ríkjunum sem til umræðu hafa verið hefur færst yfir á bankann. Þá gæti fjandinn verið laus. Yfirlýsingar nokk- urra helstu seðla- banka hafa reynst haldlausar} Trúverðugleiki að bresta 5 . Við höfum sett saman áætlun til að draga smám saman úr gjaldeyris- höftum til miðlungs langs tíma. Ríkisstjórnin hefur samþykkt hana (áður en endurskoðunin fór fram) og hún hefur eftirfarandi aðalatriði:  Hægt verður að byrja að aflétta gjald- eyrishöftum þegar lykilforsendum er full- nægt. Nánar tiltekið verðum við að: […] (iv) safna nægum gjaldeyrisforða (þannig að við getum stutt við gengisstöðugleika og lausafé bankakerfisins ef þess reynist þörf). Þessi sakleysislega klausa er í viðhengi (!) 1 – „Ísland – minnisblað um stefnu í efnahags- og fjármálum“ við viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, 20. október 2009. Undir viljayfirlýsinguna skrifa Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Már Guð- mundsson seðlabankastjóri. Nú líta margir til Írlands og örlaga þeirrar merku þjóðar, sem lét skattgreiðendur bera ábyrgð á útþöndu og ósjálfbæru bankakerfi. Íra bíður áþján og skuldafang- elsi um fyrirsjáanlega framtíð. Írsk stjórnvöld hafa ákveðið að taka stjarnfræðilega hátt lán hjá AGS og ESB, til að koma í veg fyrir að bankakerfið fari á hliðina. Eins gott að Íslendingar fóru aðra leið, segja nú marg- ir. Eins gott að Íslendingar létu bankana fara í þrot og létu skattgreiðendur ekki borga brúsann. Því miður hafa þeir sem þetta segja að miklu leyti rangt fyrir sér, því þótt íslenska ríkið hafi ekki tekið ábyrgð á öllum skuldum gömlu bankanna, hefur það í raun tekið ábyrgð á gríðarlegum skuldbind- ingum Íslendinga í erlendri mynt. Með þessari viðhengisgrein sem vitnað er til hér að ofan skuldbindur ríkissjóður sig til þess (haldi samkomulagið við AGS) að sjá bönkunum fyrir lausafé í erlendri mynt, á stöðugu gengi (les: seðlabankagengi), þegar gjaldeyrishöftunum verður aflétt. Hvers vegna munu þeir þurfa lausafé í erlendri mynt? Til þess að greiða erlendum eigendum eigna í krónum, þegar og ef þeir vilja skipta krónunum sínum í mynt sem er gjaldgeng á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Og hvaða eignir eru þetta? Yfirlit yfir krónueignir útlendinga er ekki til, en leiða má líkur að því að þær nemi hundruðum, ef ekki yfir þúsund milljörðum. Þeir eiga krónur í ríkis- skuldabréfum, eigið fé í nýju bönkunum, skuldir Íslend- inga við gömlu bankana, lán erlendra móðurfélaga til ís- lenskra dótturfélaga og svo mætti áfram telja. Auðvitað getur ríkissjóður ekki staðið undir þessari skuldbindingu. Þess vegna verður gjaldeyrishöftunum varla aflétt í bráð, verði samningnum við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn ekki slitið. Líklega verður sú leið farin, að láta ríkissjóð safna gjaldeyrisforða (núna er gjaldeyris- eign hins opinbera neikvæð um 386 milljarða króna) – blóðmjólka íslenska útflutningsatvinnuvegi, smám sam- an á næstu árum og áratugum. ivarpall@mbl.is Ívar Páll Jónsson Pistill Viðhengið sem breytir öllu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is D rög að frumvarpi til laga um breytingu á náttúruverndarlögum hafa vakið upp hörð viðbrögð skógrækt- armanna. Með frumvarpinu er ætl- unin meðal annars að draga úr nei- kvæðum áhrifum ágengra „lifandi framandi lífvera“ hér á landi, sem ógnað geta líffræðilegri fjölbreytni og valdið verulegu fjárhagslegu tjóni. Jafnframt er markmiðið að sporna við akstri utan vega og að vernda tilteknar jarðmyndanir og vistkerfi. Ísland hefur skuldbundið sig á alþjóðavettvangi til þess að vernda upprunalegt lífríki landsins, en ágengar framandi tegundir eru taldar ein helsta ástæða hnignunar líffræðilegrar fjölbreytni í heim- inum, að því er segir í athugasemd- um við frumvarpið. Til þess að fyrr- greind markmið náist verða settar hömlur við því hvaða tegundir líf- vera má flytja til landsins, og hverj- ar má flytja milli landsvæða. Miðað við 62 ára gamalt rit Með hugtakinu framandi lífvera er átt við dýr, sveppi, örverur og plöntur, sem „ekki koma náttúru- lega fyrir í lífríki landsins.“ Hvað plöntur varðar er horft til þriðju út- gáfu Flóru Íslands, sem kom út árið 1948. Á meðal þeirra plantna sem ekki koma þar fyrir eru margar trjá- tegundir sem hvað mest eru notaðar í skógrækt hér á landi. „Þetta eru allar trjátegundir sem við notum í skógrækt nema þær innlendu, reyni- viður, birki og blæösp,“ segir Að- alsteinn Sigurgeirsson, forstöðu- maður Rannsóknarstöðvar skóg- ræktar og sviðsstjóri rannsókna- sviðs Skógræktar ríkisins. Hann segir þær tegundir sem mikilvæg- astar séu í skógrækt í dag varla hafa verið gróðursettar hér á landi fyrr en upp úr síðari heimsstyrjöld eða um svipað leyti og Flóra Íslands var tekin saman. Þar sem miðað hafi verið við það að tegund væri farin að fjölga sér náttúrulega til að teljast ílend, væri þessar tegundir ekki að finna í ritinu. Svandís Svavarsdóttir umhverf- isráðherra sagði nýverið í viðtali við Fréttablaðið, að ekki ætti að lesa of mikið í ákvæði frumvarpsins sem snúa að flutningi plantna á svæði á hverjum þær koma ekki náttúrulega fyrir. Aðalsteinn segir frumvarps- tillögurnar ákaflega skýrar. „Það er allt bannað nema það sem sér- staklega er leyft með undanþágum,“ segir hann. Í frumvarpstillögunum er vísað til skrár, sem útbúin verður, yfir þær tegundir sem undanþegnar eru ákvæðum laganna. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu verða um 50 tegundir á þeirri skrá. Ekkert samráð við smíðina Ætla má að erfitt geti reynst að taka afstöðu til mögulegra afleiðinga lagabreytinganna, til dæmis á skóg- rækt, nema skráin yfir undanþegnar tegundir sé höfð til hliðsjónar. Að- alsteinn segist ekki hafa séð hana og ekkert samráð hafa verið haft við Skógrækt ríkisins við frumvarps- vinnuna. „Ég hef spurst fyrir annars staðar, og það kannast enginn við að samráð hafi verið haft við hags- munaaðila, hvorki í skógrækt né í öðrum greinum, landgræðslu eða landbúnaði, áður en tillögurnar voru settar fram,“ segir hann. Frestur til að skila at- hugasemdum við frum- varpið til umhverfisráðu- neytisins var upphaflega til 7. janúar, en hefur verið framlengdur og er nú til 21. janúar næstkomandi. Óánægja með ný náttúruverndarlög Morgunblaðið/Árni Sæberg Varnir Með frumvarpi um breytingar á náttúruverndarlögum er leitast við að tryggja líffræðilegan fjölbreytileika og verjast ágangi nýrra tegunda. „Það eru allar tegundir, að því er virðist, sekar uns sakleysi þeirra er sannað,“ segir Að- alsteinn, spurður að því hvort litið sé á allar tegundir sem ekki eru skráðar í Flóru Ís- lands eða á undanþáguskrá. „Þetta eru rússalerki, sitka- greni, stafafura, alaskaösp, hvítgreni, blágreni, og svona tuttugu aðrar tegundir. Sumar eru svona minniháttar teg- undir, svo ég tali nú ekki um þær tegundir sem gætu átt eftir að vera mikilvægar í skógrækt okkar með hlýnandi loftslagi, sem við vitum sjálfsagt minna um. List- inn er í sjálfu sér enda- laus yfir tegundir sem eru ekki einu sinni komnar á skrá hjá okkur í dag, en gætu orðið mik- ilvægar þegar fram líða stund- ir.“ Allar teg- undir sekar FRAMANDI TEGUNDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.