Morgunblaðið - 28.12.2010, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010
✝ Bjarney Guð-mundsdóttir var
fædd 23. október
1921. Hún lést 21.
desember sl.
Foreldrar hennar
voru Guðmundur
Einarsson, f. í Þor-
leifskoti, Laug-
ardælasókn 13. októ-
ber 1892, d. 14. maí
1951, og Guðrún
Pálsdóttir, f. í Hala-
koti, Bræðratungu-
sókn 4. september
1896, d. 3. ágúst
1982. Bjarney fæddist í Geirakoti
í Sandvíkurhreppi og ólst upp í
Maður hennar var Jón Ólafs-
son, f. í Múla, Gufudalssveit 18.
apríl 1916, d. 13. febrúar 1992.
Synir þeirra eru: Páll Birgir, f. 4.
janúar 1945, kona hans er Guð-
rún Baldursdóttir, Guðmundur
Rúnar, f. 10. júní 1948, kona hans
er Ingibjörg Jónsdóttir, Sigurður
Valur, f. 4. júlí 1950, kona hans
er Margrét Gunnarsdóttir, Ómar
Jón, f. 5. júní 1956, kona hans er
Valborg Röstad. Barnabörn,
langömmubörn og langa-
langaömmubörn eru allstór hóp-
ur.
Útför Bjarneyjar fer fram frá
Háteigskirkju í dag, 21. desem-
ber 2010, og hefst athöfnin kl. 15.
sveitinni ásamt systk-
inum sínum Sigríði
Guðrúnu, f. 2. október
1924, d. 17. nóvember
2008 og Einari Guð-
mundssyni, f. 15. ágúst
1928, d. 22. apríl 1992.
Bjarney flutti til
Reykjavíkur og fékk
vinnu í Álafossi, en þar
kynntist hún Jóni
Ólafssyni sem seinna
varð maðurinn hennar.
Þau byggðu sér heimili
að Háteigsvegi 50,
eignuðust fjóra syni og
hún annaðist heimilið af mikilli kost-
gæfni enda myndarkona.
Bjarney Guðmundsdóttir er lát-
in í hárri elli, 89 ára gömul.
Alltaf var gaman að koma í eld-
húsið á Háteigsveginum þar sem
Bjarney og Jón bjuggu með sonum
sínum. Nóg var af veitingum í boði
og hægt að fá kaffisopa og jóla-
köku, en þar var siður að baka á
föstudögum og maður kom aldrei
að kofanum tómum.
Bjarney vann við ýmis störf, en
lengst af vann hún á Prjónastof-
unni Önnu ásamt Guðrúnu Jóns-
dóttur (Gógó) sem var mikil vin-
kona Bjarneyjar. Það var alltaf
kátt á hjalla á prjónastofunni við
Kársnesbraut og mikið prjónað og
skrafað. Stundum kíkti ég við í
heimsókn og þá brugðum við okk-
ur upp í íbúð og fengum okkur
kaffi, það voru ánægjulegar stund-
ir.
Bjarney starfaði mikið með
kvenfélagi Háteigssóknar og voru
þær duglegar að halda basara þar
sem seldar voru kökur og annað
góðgæti, og ekki má gleyma jóla-
hlaðborðinu, en Bjarney sauð
hangikjöt og bakaði alltaf heimsins
bestu flatkökur fyrir jólamat Há-
teigssóknar. Á jólahlaðborðið kom-
um við Gógó alltaf og komu varla
jólin án þess. Ekki má gleyma
jólamatnum á Háteigsveginum á
jóladag þar sem allt frændfólkið
hittist. Þar var boðið upp á sviða-
sultu, rófustöppu og hangikjöt með
uppstúf, sem mér þótti skrítin
samsetning, þekkti ég þetta ekki
úr jólamatnum á mínu heimili.
Uppfrá þessu borðaði ég sviða-
sultu og rófustöppu, sem ég vildi
ekki borða þar til ég kynntist
þessu hjá tengdaforeldrum mínum.
Mig langar sérstaklega að
minnast þess þegar séra Tómas
og Unnur kona hans buðu öllum
eldri kvenfélagskonum í jólamat
af miklum höfðingjaskap og var
það mér mikil ánægja að fá að
koma með Bjarneyju inn á heimili
þeirra, og þakka ég fyrir það.
Við eigum svo margar góðar
minningar af tíma okkar með
Bjarneyju, öllum bíltúrunum sem
við fórum í á sunnudögum, í
Kópavoginn og til Þingvalla, í
heimsóknir til ástvina og ýmislegt
annað. Bjarney og Jón fóru á
hverju ári til sólarstranda og
ferðuðust mikið og stunduðu sól-
böðin og fórum við fjölskyldan
með þeim tvisvar sinnum og var
það yndislegur tími, við skemmt-
um okkur vel og börnin eiga
þessa minningu í sínu hjarta.
Þótt erfitt sé, er nú komið að
því að kveðja hana tengdamömmu
og þótt sorgin sé mikil núna, þá
mildast hún við minningarnar og
þá vissu að nú er friðurinn yfir
hana Bjarneyju kominn.
Mig langar sérstaklega til að
þakka öllu starfsfólki á Hrafnistu
í Reykjavík sem annaðist tengda-
mömmu með mikili natni og hlýju
allt til dauðadags.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Margs er að minnast og margs
er að þakka. Kveð ég þig með
söknuði og vona að þú hvílist í
friði.
Margrét Gunnarsdóttir.
Bjarney Guðmundsdóttir
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR ÁGÚSTSSON
frá Vík,
Tjarnarási 9a,
Stykkishólmi,
verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju fimmtu-
daginn 30. desember kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarfélög og orgelsjóð Stykkishólmskirkju.
Elín Guðrún Sigurðardóttir,
Magdalena Sigurðardóttir, Alfreð S. Jóhannsson,
Þór Sigurðsson, Hallfríður Guðrún Einarsdóttir,
Oddný Sigurðardóttir, Eiríkur Jónsson,
Dagný Sigurðardóttir, Þorvaldur Jónsson,
Þorgerður Sigurðardóttir, Kristján Már Unnarsson,
Sigríður Sigurðardóttir, Ingjaldur Arnþórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg föðursystir okkar,
VALGERÐUR JÓNA ANDRÉSDÓTTIR
fyrrverandi kaupkona,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðviku-
daginn 29. desember kl. 15.00.
Katrín A. Magnúsdóttir,
Unnur Magnúsdóttir,
Þórhildur Magnúsdóttir,
Andrés Magnússon.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og
samúð við andlát og útför móður okkar,
SIGURBJARGAR SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Dvalarheimilinu Höfða,
áður Háholti 33,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða.
Guðný Guðjónsdóttir,
Rúnar Guðjónsson,
Hugrún Guðjónsdóttir,
Kristín Guðjónsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR JÓNATAN KRISTJÁNSSON
málari,
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund,
áður Heiðargerði 27,
Reykjavík,
lést á Grund föstudaginn 17. desember.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju miðvikudaginn
29. desember kl. 11.00.
Jóna Laufey Hallgrímsdóttir,
Margrét Þóra Guðmundsdóttir, Ólafur Þór Sigurvinsson,
Kristján Guðmundsson, Margrét Jóhannsdóttir,
Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir, Ásgeir Sigurvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN ERLENDSSON
kennari og fv. framkvæmdastjóri HSÍ,
Hraunbæ 103,
áður Rauðalæk 67,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju fimmtu-
daginn 30. desember kl. 11.00.
Ingileif Jónsdóttir, Birgir Björn Sigurjónsson,
Anna Jóna Hauksdóttir,
Kristín Jónsdóttir, Þórarinn Eyfjörð,
Jón Erlendsson, Eva Úlla Hilmarsdóttir,
Magnús Birgisson, Hrafnhildur Hjaltadóttir,
Árni Birgisson, Salvör Gyða Lúðvíksdóttir,
Sigrún Eyfjörð,
Þorsteinn Eyfjörð
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞÓRHILDUR SIGURÐARDÓTTIR,
Suðurgötu 17-21,
Sandgerði,
verður jarðsungin frá Safnaðarheimilinu í Sand-
gerði, miðvikudaginn 29. desember kl. 14.00.
Steinunn Fríðhólm Friðriksdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson,
Sigurður Sævar Fríðhólm Friðriksson, Sólrún Bragadóttir,
Rúnar Þórarinsson,
Jón Fríðhólm Friðriksson, Alma Jónsdóttir,
Friðrik Þór Friðriksson, Marta Eiríksdóttir,
Fanney Friðriksdóttir, Theodór Blöndal Einarsson,
Heiður Huld Friðriksdóttir, Eiður Þórarinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
BALDUR BJÖRNSSON
múrari,
áður til heimilis að,
Hraunbæ 76,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk föstudaginn
10. desember, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju
fimmtudaginn 30. desember kl. 11.00.
Jóna Guðný Þorsteinsdóttir,
Guðný Baldursdóttir, Jón Þorsteinsson,
Kristbjörg Baldursdóttir, Guðmundur Ásgeirsson,
Guðmundur Baldursson, Rut Magnúsdóttir,
Björn Þór Baldursson, Guðrún Sigurpálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRID KARLSDÓTTIR,
Mávahlíð 4,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 14. desember á öldrunar-
lækningadeild Landspítalans í Fossvogi.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 29. desember kl. 13.00.
Garðar Sigurðsson,
Sigurður Egill Garðarsson,
Karl Friðrik Garðarsson, Áslaug Guðjónsdóttir,
Guðrún Garðarsdóttir, Snæbjörn Kristjánsson,
Gunnlaugur Garðarsson, Sigríður Halldórsdóttir,
Kristín Fríða Garðarsdóttir, Ólafur Fannberg,
Anna María Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt
er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar