Morgunblaðið - 28.12.2010, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2010
✝ Hörður Ingvalds-son var fæddur í
Kópavogi 12. október
1960. Hann lést af
slysförum í Reykjavík
18. desember 2010.
Foreldrar Harðar eru
Ingvaldur Rögnvalds-
son, f. 1931, og Helga
Hafdís Gústafsdóttir,
f. 1937. Systkini
Harðar eru Þóra, f.
1957, Haukur, f. 1959,
Barði, f. 1962 og Ey-
rún, f. 1967.
Eiginkona Harðar
er Sigrún Hallsdóttir, f. 1960. Móðir
Sigrúnar er Anne Marie Hallsson, f.
1923, faðir Sigrúnar var Hallur
Hallsson, f. 1920, d. 1980. Börn
Harðar og Sigrúnar eru: Tinna
Harðardóttir, f. 1981. Sambýlis-
maður hennar er Brynjar Þór
Bjarnason, f. 1975, og börn þeirra
eru tvö, Emma Sif Brynjarsdóttir, f.
2008, og Arnar Freyr Brynjarsson,
f. 2009. Sonur Harðar og Sigrúnar
er Jens Harðarson, f. 1984. Sam-
býliskona hans er
Aleksandra Pantic, f.
1987.
Hörður var kjötiðn-
aðarmeistari að
mennt og vann fram-
an af við þá iðn, gerð-
ist síðar versl-
unarmaður og
starfaði seinni hluta
ævinnar sem slíkur.
Hörður var mikill úti-
vistarmaður og ferð-
aðist mikið um landið,
jafnt byggðir þess
sem fjöll og firnindi
ásamt fjölskyldu sinni og vinum.
Hann hóf nám í ferðamálafræði við
Endurmenntun Háskóla Íslands nú
í haust. Hörður var byltingarsinni
og ötull baráttumaður fyrir frelsi
og mannréttindum. Hann tók mjög
virkan þátt í þeirri miklu rétt-
indabaráttu alþýðunnar sem staðið
hefur undanfarin ár.
Útför Harðar verður gerð frá
Neskirkju í dag, 28. desember 2010,
og hefst athöfnin kl. 15.
Elsku Hörður.
Svo blíður
Svo góður
Svo réttsýnn
Svo hugrakkur
Svo kraftmikill
Svo heiðarlegur
Svo skemmtilegur
Minn besti vinur
Hetjan mín
Ég var þín og takk fyrir að vera minn
Sofðu rótt
Lukka
Sigrún Hallsdóttir.
Elsku pabbi minn.
Ég trúi því ekki að þú sért farinn
frá mér. Tilfinningin er svo yfirþyrm-
andi að ég get varla hugsað. Ég er
föst í tímalykkju þar sem síminn
hringir stöðugt og á hinni línunni er
mamma að biðja mig að koma niður á
Borgarspítala. Ég man ekki hvað
gerðist eftir það fyrr en ég sit og það
er læknir að segja okkur að þú sért
farinn. Eftir það suðar bara í eyrun-
um.
Gatið sem þú skildir eftir í lífi okk-
ar er svo stórt að ég veit ekki hvernig
við eigum nokkurn tímann að geta
stoppað í það. Hvert sem litið er sjást
ummerki um þann stórkostlega
mann sem þú hafðir að geyma og
þann yndislega föður sem þú varst.
Þú varst mér svo mikil fyrirmynd þó
svo að ég hafi ekki sagt þér það nógu
oft. Þú hvattir mig alltaf til dáða og
sást hæfileika í mér sem ég kom ekki
auga á sjálf. Þú gerðir kröfur til mín
en ætlaðist aldrei til of mikils. Þú
varst stoltur af mér, og það er ég líka
svo óendanlega af þér.
Þú varst svo skrítinn karl, sérvitur
með eindæmum en það var bara það
sem gerði þig svo frábæran. Þú áttir
það til að leggja þig í miðju matar-
boði eða fara bara inn í stofu að spila
á gítarinn. Þú varst alltaf uppfullur af
alls konar fróðleik sem þú þreyttist
aldrei á að deila með okkur hinum
hvort sem við nenntum að hlusta á
það eða ekki. Svo varstu líka svo
fyndinn. Þú varst sá eini sem hlóst
alltaf að langsóttu bröndurunum
mínum sem enginn annar fattaði. Þá
langaði mig alltaf að teygja mig yfir
borðið og knúsa þig fast.
Að kveðja þig þennan hræðilega
dag var það erfiðasta sem ég hef
nokkurn tímann gert. Ég reyndi að
banna þér að fara en þú svaraðir
ekki, sama hvað ég kallaði. Höndin
þín sem var alltaf svo hlý og mjúk
kreisti mína ekki til baka.
Ég sakna þín svo hræðilega mikið,
elsku pabbi minn.
Tinna.
Elsku pabbi. Ég elska þig svo
óendanlega mikið og ég vildi að ég
gæti bara haldið utan um þig og sagt
þér allt sem ég er að hugsa. Ég á svo
margar góðar minningar frá því sem
við gerðum saman og ég mun geyma
þær innst í hjarta mínu þangað til ég
dey. Erfiðast fyrir mig er að hugsa
um allt það sem við áttum eftir að
gera saman, því þegar við vorum öll
fjölskyldan saman að veiða eða bara
að eiga notalega kvöldstund heima
þá leið mér best. Hvernig þú hjálp-
aðir mér í gegnum erfiða tíma og
hvernig þú varst alltaf til staðar þeg-
ar ég þurfti á þér að halda er mér
dýrmætt. Ég vil reyna að vera eins
góður maður og þú varst og hjálpa
mömmu minni og systur í gegnum
þessa erfiðu tíma sem eru framundan
því ég veit að það er það sem þú værir
að segja við mig að gera ef þú gætir
talað við mig núna. Þú ert hetjan mín
og fyrirmynd og ég mun alltaf minn-
ast þín sem manns sem gerði allt fyr-
ir fjölskyldu sína, vini og þá sem
þurftu á aðstoð að halda, eins og þú
sýndir margoft í verki. Ég er svo
endalaust stoltur og hreykinn af því
að vera sonur þinn og ég mun monta
mig af því að hafa verið pjakkurinn
þinn um alla ævi.
Jens.
Elsku besti Hörður frændi minn.
Það er svo margt sem þú hefur
kennt mér og ég trúi að þú verðir ein-
hvers staðar hérna hjá okkur þótt við
sjáum þig ekki og að þú vakir yfir
okkur fjölskyldunni þinni og vinum.
Það er svo margt sem þú hefur kennt
mér, bæði hvernig maður á að koma
fram og fullt af fleiri skemmtilegum
hlutum eins og að gera veiðiflugur,
mæla pundin í dekkjum, opna
kampavínsflöskur og í flestum óskum
mínum sem hafa ræst hefur þú átt
hlutdeild. Margar stelpur vilja vera
prinsessur og það fékk ég að vera
þegar við fórum til Frakklands í
kastalann; fara í jeppaferðir á flotta
jeppanum þínum, horfa á alvöru eld-
gos, veiða, fara í útilegur og þegar við
vorum að keyra hvort á sínum bílnum
vorum við oft með talstöðvar og
svona get ég haldið áfram endalaust.
Ég var að hugsa um það hvað ég
var fegin að ég fór með ykkur Sig-
rúnu á skíði um seinustu páska þótt
ég nennti ekki þegar þú spurðir mig
en ég ákvað að drífa mig með og það
var svo æðislega gaman. Þið voruð
svo dugleg að koma til okkar í heim-
sókn og það þykir mér svo vænt um.
Núna á þriðjudaginn vorum við pabbi
að keyra í ófærð og vorum næstum
því búin að festa bílinn og það fyrsta
sem ég hugsaði þá var að núna væri
Hörður sko til í að vera með okkur.
Takk fyrir að leyfa mér að kynnast
þér, þú varst svo æðisleg persóna og
svo yndislegur og góður maður og út
af því ert þú ein af fyrirmyndunum
mínum. Þótt þú og Sigrún væruð
eldri en ég fannst mér þið oft vera
jafnaldrar mínir því þannig voruð þið
alltaf og þannig á ég alltaf eftir að
muna eftir þér. Minningarnar um þig
eiga alltaf eftir að lifa í hjartanu á
okkur öllum sem þekktum þig og við
eigum öll eftir að sakna þín svo mikið.
Ég elska þig svo mikið.
Þín frænka,
Avantí Ósk Pétursdóttir.
Það er óraunverulegt að vita að þú
sért farinn Hörður, hrifinn burt án
fyrirvara. Ég hef aðeins þekkt þig í
nokkur ár en nógu lengi til fá að
þakka fyrir að hafa eignast góðan
vin.
Þú varst ótrúlegur karakter,
hreinskiptinn og sagðir þína mein-
ingu umbúðalaust og stóðst við þína
sannfæringu og það eru eiginleikar
sem gera mann ekki allra. Hafðir ein-
staklega skemmtilegt skopskyn,
varst með afbrigðum uppátækjasam-
ur, bévítanum duglegri til allra
verka.
Þann tíma sem við unnum saman
þá sýndirðu útsjónarsemi og gast
nálgast verkefnin frá nýjum sjónar-
hornum og áttir einstaklega gott með
að vinna viðskiptavinina á þitt band
með fagmannlegum rökum.
Þú varst mikill náttúrunnandi og
elskaðir að ferðast um landið þitt með
Sigrúnu þinni, varst hrókur alls fagn-
aðar í góðum hóp. Ég hef fáa þekkt
sem voru jafn miklir matgæðingar og
þú og gilti þá einu hvort við vorum að
borða hreindýr veitt og eldað af þér,
spriklandi sushi í Veiðivötnum, kobe-
naut á glæsihóteli í Shanghai eða ind-
verskar dásemdir í London, svo hafð-
irðu líka merkilega gott nef fyrir rauð-
víni.
Ef til vill var sterkasta karakter-
einkennið þitt sú ótrúlega sterka rétt-
lætiskennd sem þú bjóst yfir, þú
þurftir ungur að árum að verða að
manni og sú lífsreynsla hefur meitlað
óharðnaðan strákling og um leið
myndað skráp, þeir heppnu sem náðu
að kynnast þér eignuðust félaga og
vin sem hafði hjarta úr gulli og var
traustur sem klettur.
Þú sagðir mér stundum sögur af
frænda þínum Axel sem var gamalt
hörkutól og tók þátt í Gúttóslagnum á
Austurvelli á sínum tíma, Axel kenndi
þér að svara að sjómannasið auk ann-
arra „góðra“ siða og þú fékkst bágt
fyrir, smápatti í skóla, fyrir að nýta
þér kunnáttuna. Og líkt og hann forð-
um þá tókst þú virkan þátt í bylting-
unni sem varð í Hruninu þar sem þú
misstir vinnuna eins og þúsundir ann-
arra. Þú hins vegar beittir ekki hnefa-
réttinum en barðist engu að síður fyr-
ir réttlæti þínu og ekki síður annarra
sem hrunið lék grátt. Það sem hins
vegar stóð hjarta þínu næst var fjöl-
skyldan , Sigrún og börnin þín, Tinna
og Jens, það leið nánast ekki sá dagur
sem við unnum saman að þú minntist
ekki á þau og þú sást ekki sólina fyrir
Sigrúnu og þið voruð í raun eins og ein
manneskja, einstaklega samrýmd og
samhent. Það að þú hafir verið hrifs-
aður burt er hræðilega óréttlátt og ég
bið allar góðar vættir að vaka yfir Sig-
rúnu og börnunum þínum í þeirri erf-
iðu baráttu sem stendur yfir og fram-
undan er við sorg og missi. Ég þakka
fyrir að hafa fengið að rölta með þér
smáspöl í lífsgöngunni og eftir situr
ljúf og góð minning um einstakan
dreng. Og eins og þú sagðir sjálfur,
Hörður, „betra er að vera góður en
vondur“, og það varstu sannarlega.
Hvíl í friði
Ásgeir Ólafsson.
Brosandi á rigningardegi á Austur-
velli, hlæjandi með vindil í sólskini
fyrir framan Húsið, strangur á svip í
Héraðsdómi Reykjavíkur, einbeittur
að berja tunnur fyrir framan Alþingi,
stríðinn á Íslenska barnum, dreyminn
á svip að tala um landið sem hann
unni, ábúðarfullur „fulltrúi“ með
Dalla. Þannig var Hörður.
Kvöldið sem hann lést spurði ég
mig: „Hvaða orð lýsa Herði best?“
Upp í huga minn komu lýsingarorðin:
réttsýnn, hlýr, brosmildur, kjarkaður,
traustur og samfélagslega meðvitað-
ur.
Það var samfélagslega meðvit-
undin sem skilaði Herði á Austurvöll
haustið 2008 vegna þess að hann
skynjaði að fram undan væri áður
óþekkt samfélagsástand. Hann átti
sér hugsjón um réttlátt, óspillt og
heilbrigt samfélag fyrir fjöldann og
leit á það sem samfélagslega skyldu
að uppræta sóðaskap spilltra emb-
ættis- og stjórnmálamanna þegar
þeir loksins misstu grímuna. Á
Austurvelli hitti hann og kynntist
öðrum sem deildu með honum hug-
sjóninni. Þegar leið að jólum 2008
höfðu sum þeirra kynnst betur en
önnur og ljóst að sum myndu hafa
lengra úthald en önnur. Hörður bjó
yfir bæði úthaldi og þreki: Hann var
kominn til að vera og á Austurvelli
stóð hann lýðræðisvaktina síðustu
tvö árin sín. Hann varð ein mikil-
vægasta stoðin í grasrótarhreyfingu
Austurvallar. Hann var grasrót sem
Austurvöllur ól, fóstraði og nærði.
Hann var Austurvellingur!
Það mátti treysta því að Hörður
tæki þátt í aðgerðum og viðburðum
Austurvellinga, jafnt smáum sem
stórum: Í samvinnu við aðra ræktaði
hann kartöflur á Austurvelli, sló þar
upp tjaldborg heimilanna og bauð
gestum og gangandi á uppskeruhá-
tíð. Hann var virkur félagi í Siðbót,
Alþingi götunnar, Heimavarnarlið-
inu og Íslandsdeild Attac. Hann var
auðvitað fremstur í flokki 30. nóv. sl.
á Austurvelli þegar Attac vakti at-
hygli á því að ríkisstjórnin fram-
lengdi völd AGS yfir Íslandi fram á
haustið 2011. Hörður stóð vaktina
gegn Icesave í sumri og sól jafnt
sem nístingskulda og frosti og kom
að undirbúningi blysfararinnar á
Austurvelli og síðar á Bessastöðum.
Hann sá strax valdníðsluna sem
felst í kæru og ákæru á hendur 9-
menningunum og studdi þá opinber-
lega.
Hörður bað ekki um athygli þótt
hann stillti sér upp í fremstu röð.
Á aðventunni var Austurvelling-
um boðið á opnunarhátíð sýningar-
innar Falsbókmenntir eftirhrunsár-
anna. Ég gekk um sali og hugsaði:
„Hvar eru Hörður og Sigrún? Hvað
tefur þau?“ Töfin verður eilíf því
skammt frá varð Hörður fyrir bíl og
það slokknaði á lífinu hans.
Það er óhjákvæmilegt að einstak-
lingur eins og Hörður var skilji eftir
sig djúpt skarð. Ef til vill verður
skarðið hans aldrei fyllt, frekar en
mörg önnur.
Hörður var útivistarmaður. Hann
hafði gaman að því að ganga, skíða
og reyna vel útbúinn bílinn. Hann
þekkti landið sitt vel og naut feg-
urðar og frelsis óbyggðanna. Kom-
andi vor hefði hann útskrifast sem
leiðsögumaður enskumælandi
ferðamanna og hann hlakkaði til að
leiðsegja náttúruferðamönnum í
klæðskerasaumuðum ferðum á eigin
bíl.
Við leiðarlok þakka ég fyrir Hörð
og sendi þér, elsku Sigrún mín, mín-
ar hlýjustu kveðjur.
Helga Garðarsdóttir.
Hörður Ingvaldsson
Það var sólbjartur
fagur sumarmorgunn
í Fram-Skorradal,
12. júlí 1936. Ég vaknaði í rúmi
ömmu minnar undir suðursúð
gömu torfbaðstofunnar í Vatns-
horni. Sólin skein inn um guggann
á austurstafni. Hafði vaknað við
sársaukahljóð frá móður minni og
var ekki slíku vön. – „Eitthvað
stangar mömmu“ varð mér að orði.
Nú kvað við annað hjóð. „Hvað
Kristjana
Höskuldsdóttir
✝ Kristjana Hösk-uldsdóttir fæddist
í Vatnshorni í Skorra-
dal í Borgarfjarð-
arsýslu 12. júlí árið
1936. Hún lést á
Droplaugarstöðum 5.
desember 2010.
Útför Kristjönu
Höskuldsdóttur var
gerð frá Neskirkju
20. desember 2010.
me-ar nú?“, var mín
áyktun. – Um vetur-
inn hafði ég náð að
heilsa upp á amal-
ynda hrúta sem
renndu á garðaband-
ið úti í fjárhúsum þar
sem ég gekk um
garðann, í þeirri von
að koma á mig höggi.
– Handan við sundið
milli rúmanna sat
hann Bjarni afi minn
og talaði hlýlega og
róandi til mín og
tjáði mér að hér
myndu engir slíkir óvættir á ferð,
heldur væri hér að kveðja sér
hjóðs lítið systkini mitt. Það leið
aðeins örstutt stund þar til Ásta
ljósmóðir kom inn fyrir græna
hengið sem skipti baðstofunni í tvö
spil. Hún hélt á hvítum stranga í
handarkrika sínum og upp úr þeim
handklæðisreifum kíkti lítið barns-
andlit með mikið dökkt hár á
höfði. „Sjáðu hvað þú hefur eign-
ast fallega litla systur,“ sagði Ásta
og brosti sínu heillandi brosi.
Hún litla systir mín óx og náði
góðum þroska eins og blómskrúð
dalsins. Kvik og síviljug til vika og
verka. „Ég skal hlaupa“, var henn-
ar viðkvæði. Ung var hún þegar
hún leit á það sem heilaga skyldu
sína að skúra gólfin um helgar.
Margar á ég minningar frá því
þegar við vorum að þrífa kjall-
arann eða flytja upp á loft á vorin,
eftir að við vorum flutt í nýja íbúð-
arhúsið. Stinga upp garða og setja
niður kartöflur. Lífið var æsku-
glöðum unglingum leikur; fara í
berjamó, vitja um silunganet, út-
reiðartúrar og smalamennskur.
Heyskapur, þegar vel viðraði.
„Dalurinn ljúfi sem lokkar og seið-
ir – gefðu mér bernskunnar unaðs-
draum á ný,“ segir Jón frá Ljár-
skógum.
Hve allar mínar minningar um
systur mína eru bjartar og hlýjar!
Man hana fermingarbarn í Fitja-
kirkju og þykka jarpa hárið henn-
ar breiddist um herðar og bak og
nam við bekkinn þar sem hún sat.
Sautján ára var hún orðin fær um
að leika tónlistina sem tilheyrði
fermingarathöfn. Seinna átti hún
svo eftir að mennta sig meira á
því sviði og leika á fullkomnari
hljóðfæri í stærri kirkjum. Man
hana unga og glæsilega brúði í
síðum hvítum kjól sem hún sjálf
hafði saumað í Kvennaskólanum á
Blönduósi. – Man hve heimili
hennar í Melaleiti var ætíð snyrti-
legt og fallegt og dæturnar vel
klæddar í heimagerðum flíkum.
Sami þokki var yfir heimili þeirra
hjóna eftir að þau áttu sitt annað
heimili á Tómasarhaga 40. Þar var
afkomendunum ætíð skjól og
griðastaður og þau studdu barna-
börnin til þroska. Allur lífsstíll
systur minnar bar vott um list-
ræna fágun og sjálf var hún
ímynd hreysti og lífsgleði. Heim-
ilið var hennar unaðsreitur og öll
bústörf, úti sem inni, léku henni í
höndum.
Engan „skúlptúr“ sé ég fara
betur við landslag en vel hirt
bændabýli og engin listaverk taka
fram fallegum búfénaði í sæld.
Gott var hennar dagsverk.
Hennar er gott að minnast. Ró
verði hvíldin í bernskudalnum.
Sigríður Höskuldsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein.
Minningargreinar