Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 7
lúðustofnsins felist ekki í að friða lúðu sem er eldri en 10 ára, eins og 90% af afla þeirra sem stunda beinar lúðuveið- ar er samansettur. „Tillaga Hafrann- sóknastofnunarinnar varðandi þá að- ferð við uppbyggingu fiskstofna gengur þvert á stefnu hennar gagnvart öðrum fisktegundum þar sem áhersla er lögð á friðun ungfisks við uppbyggingu,“ segir í bréfinu. „Í stað þessarar tillögu vilja lúðuveiðimenn að allri lúðu styttri en 80 cm sé sleppt. Sú leið hefur verið reynd hjá nokkrum þjóðum og hefur skilað góðum árangri í uppbyggingu stofns- ins.“ Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, skoðaði í framhaldinu löndunartölur á fiskmörkuðum árið 2009 og reyndi að finna út meðalþyngd og fjölda einstak- linga í lúðuafla. „Niðurstaða mín er sú að lítill fjöldi var veiddur með haukalóð, en langflestir fiskanna komu sem með- afli og þá einkum í dragnót,“ segir Örn. „Mín niðurstaða var að í dragnót hefðu komið 16.088 lúður og aðeins 222 hefðu verið þyngri en tíu kíló. Á lúðulínu eða haukalóð hefðu hins vegar komið 436 lúður og aðeins ein þeirra hefði verið undir tíu kílóum. Þótt þessar niðurstöð- ur séu ekki hávísindalegar þar sem erf- itt er um upplýsingaöflun þá ættu þær að gefa mynd af þessum veiðum.“ Hafrannsóknastofnun hefur einnig reynt að meta stærð þeirrar lúðu sem kemur í einstök veiðarfæri og þar kem- ur fram að sú lúða sem fæst á línu, hvort heldur er haukalóð eða venjulega fiskilínu, er mun stærri en kemur í önn- ur veiðarfæri. Aðgerðir erfiðar Í skýrslu starfshóps um lúðuveiðar er bent á ýmis vandkvæði sem gætu staðið í vegi fyrir markvissum aðgerð- um til verndar lúðustofninum við Ís- land. Þau helstu eru: a) meginhluti aflans hefur lengst af verið meðafli í öðrum veiðum og samanstendur að mestu leyti af ókynþroska fiski, b) líf- fræðin er flókin, lítið er vitað um ung- viðisstig, göngur og hvar uppeldis- og hrygningarsvæði eru, c) ekkert stofn- mat er til og d) lúðan lýtur engri veiði- stjórn, þ.e. engar takmarkanir eru sett- ar á veiðarnar. eyrissjóðinn (AGS) og umsóknina um inngöngu í Evrópusambandið. Ekki náðist sátt um þessi ágrein- ingsmál á fundi þingflokks- ins 5. janúar sl. og var þá ákveðið að þau yrðu áfram rædd á fundi í dag. Þá eru framundan fundir flokksforystunnar með VG- félögum víða um land. Þeir þrír þingmenn vinstri-grænna sem sátu hjá í atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið á Alþingi fyrir jól, Lilja Mósesdóttir, Atli Gísla- son og Ásmundur Einar Daðason, sendu frá sér greinargerð í gær sem þau lögðu fyrir þingflokksfundinn í síðustu viku þar sem þau útskýrðu frekar hvers vegna þau kusu að sitja hjá í atkvæðagreiðslunni. Þar segir m.a.: „Við höfðum gagnrýnt fjárlagafrumvarpið frá því í maí á síðasta ári, en markmiðið með breyting- artillögunum var að verja velferðarkerfið á Ís- landi og sporna við kreppustefnu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Óbilgirnin í okkar garð kom á óvart m.a. í ljósi þess að tillögur annarra stjórnarliða sem fram komu milli annarrar og þriðju umræðu höfðu hlotið jákvæða af- greiðslu þingflokka stjórnarflokkanna og fjár- laganefndar.“ Meiri niðurskurður síðar Þá segir að niðurskurður ríkisútgjalda eins og gert sé ráð fyrir á þessu ári muni „auka Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fundar í dag öðru sinni frá áramót- um um djúpstæð ágreiningsmál sem til staðar eru innan hans, og raunar flokksins í heild, í tengslum við ýmis stefnumál ríkisstjórnar- innar, s.s. efnahagsmál, fjárlagafrumvarp rík- isstjórnarinnar, samstarfið við Alþjóðagjald- samdráttartilhneiginguna í hagkerfinu enn frekar sem síðan leiðir til þess að skera þarf enn meira niður á árinu 2012 en nú er gert ráð fyrir“. Þeim hafi því verið ómögulegt að styðja fjárlagafrumvarpið í ljósi þess að fjárlögin munu „auka vanda heimilanna í landinu og festa ójöfnuðinn enn frekar í sessi“. Fjárlagafrumvarpið og vinnubrögðin í kringum það hafi verið kornið sem fyllti mæl- inn ofan á önnur mál, s.s. kúvendingu í Ice- save-málinu, aðlögunarviðræður við Evrópu- sambandið, málefni Magma Energy og HS orku o.fl. „Í þessum mikilvægu málaflokkum hefur verið farið gegn stefnu flokksins og sáttavilji forystunnar ekki fyrir hendi,“ segir í greinargerðinni. Fjárlögin kornið sem fyllti mælinn  Segja þau auka vanda heimilanna og festa ójöfnuð í sessi FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011 Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gætirðu tryggt barninu þínu ógleymanlega upplifun. Tveir krakkar á aldrinum 7-9 ára verða dregnir út og fara ásamt fylgdarmanni á leik í UEFA Champions League og leiða leikmenn inn á völlinn í boði MasterCard, aðalstyrktaraðila UEFA Champions League. Til að taka þátt þarf að nota MasterCard kortið a.m.k. 10 sinnum frá 10. jan.-1. feb. 2011. Dregið vikulega um skemmtilega aukavinninga. UPPLIFUN SEM ALDREI GLEYMIST Barnið þitt gæti fengið að leiða leikmann inn á völlinn í leik í UEFA Champions League Skráðu þig til leiks á www.kreditkort.is Tæplega 40 þúsund manns hafa skrifað undir mótmæli á heimasíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda gegn rukkun vegatolla á vegum út frá höfuðborgarsvæðinu. Á heima- síðu FÍB kemur fram að þegar 37.500 undirskriftir hafi verið komnar hafi komið í ljós að mót- mælin berist hvaðanæva af land- inu, þótt langflestar undirskrift- irnar séu af höfuðborgarsvæðinu. Þannig hafi hlutfallslega flestar undirskriftir komið frá Suðurnesj- unum en Vesturland og Suðurland fylgi fast á eftir. Í kvöldfréttum Útvarps í gær sagði Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, að mótmæli tugþúsunda manna yrði að taka alvarlega og væri svo mikil andstaða við vegatolla yrði að seinka vegaframkvæmdunum sem þeim er annars ætlað að greiða fyrir. ingibjorgrosa@mbl.is Mótmæla vegatollum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.