Morgunblaðið - 10.01.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011
K
O
R
T
E
R
.
I
S
Þrettándagleði Hauka verður á Ás-
völlum í dag, mánudag. Hátíðin
hefst kl. 18 með gleði, söng og dansi
undir stjórn Magga Kjartans og
Helgu Möller. Álfar púkar og tröll
verða á staðnum og jólasveinninn
kíkir í heimsókn. Hægt verður að
kaupa stjörnuljós og kyndla á
staðnum ásamt góðum veitingum
s.s. kakó og vöfflum.
Gleðinni lýkur kl. 19 með flug-
eldasýningu.
Þrettándagleði Hauka
í dag á Ásvöllum
Líðan Péturs Kristjáns Guðmunds-
sonar, sem slasaðist þegar hann
féll fram af bjargi í Austurríki á
nýársnótt og skaddaðist alvarlega
á mænu, er stöðug og er hann á
batavegi.
Vonir standa til að heimflutn-
ingur Péturs verði sem fyrst, segir
í frétt frá aðstandendum hans.
Þeir vilja koma á framfæri þakk-
læti til þeirra fjölmörgu sem sýnt
hafa Pétri hlýhug og stuðning
með einum eða öðrum hætti.
„Í ljósi alvarleika slyssins hafa
margir óskað eftir að fá að leggja
honum lið í formi fjárstuðnings.
Þeim viljum við benda á að hægt
er að leggja inn á reikning Péturs,
nr. 0319-13-301627, kt. 250386-
6059.
Pétur ólst upp á Flúðum í
Hrunamannahreppi, og hefur
kvenfélag hreppsins ákveðið að
láta ágóða af þorrablóti félagsins
renna óskiptan til hans,“ segir í
fréttinni.
Vona að flutningur
heim verði sem fyrst
Það sem einkennir rennsli vatns-
falla á vatnsárinu 2009/2010 er
annars vegar hin mikla jökulbráð á
svæðum þar sem aska frá Eyja-
fjallajökulsgosinu lá í hæfilegri
þykkt á jöklum landsins og hins
vegar lítið rennsli í drag- og lindám
vegna lítillar úrkomu, einkum á
Vesturlandi. Vatnsárið er skil-
greint frá 1. september til 31. ágúst
ár hvert.
Sem dæmi má nefna að rennsli
Jökulsár á Fjöllum við Grímsstaði
var mjög nærri meðallagi þar til í
júní þegar jökulbráðin hófst. Hlýtt
var í veðri og sólríkt. Rennslið fór
langt fram úr meðallagi og vatns-
magnið sem rann fram í júní, júlí og
ágúst varð 1,4 km3 meira en á sama
tíma í meðalári.
Rennsli Markarfljóts var ekki
mikið á jökulbráðnunartímanum.
Líklegt er að þykk aska hafi ein-
angrað vatnasviðið á norðvestan-
verðum Mýrdalsjökli en úrkoma
kemur kröftuglega fram í Markar-
fljóti, að því er fram kemur á vef
Veðurstofunnar.
Mikil jökulbráð, en
lítið rennsli í dragám
Ómar Garðarsson
omar@eyjafrettir.is
Nýtt fjölnota íþróttahús við Há-
steinsvöll í Vestmannaeyjum var
formlega tekið í notkun sl. laugar-
dag. Heildarkostnaður við byggingu
hússins er um 400 milljónir kr.
Í nýja íþróttahúsinu er 50 sinnum
60 metra knattspyrnuvöllur með
nýjasta og fullkomnasta gervigrasi
sem völ er á, 60 metra hlaupabrautir,
aðstaða til hástökks, langstökks,
stangarstökks og kastgreina nema
spjótkasts. Allt tartanbrautir.
Vantaði aðstöðu fyrir frjálsar
Aðstaða til íþróttaiðkunar hefur
verið mjög góð í Vestmannaeyjum,
þrír löglegir handboltavellir, fjórir
grasvellir í fullri stærð, 18 holu golf-
völlur og 25 metra innilaug með
glæsilegu útisvæði. En frjálsar
íþróttir hafa búið við heldur bág skil-
yrði og knattspyrnu hefur vantað að-
stöðu til æfinga yfir veturinn.
Fjölmenni var við vígsluna. Elliði
Vignisson bæjarstjóri, sagði að með
byggingu hússins væri stigið stórt
skref fram á við fyrir knattspyrnu og
frjálsar íþróttir. Líka hugsa kylfing-
ar sér gott til glóðarinnar.
Það kom í hlut Hallgríms Júlíus-
sonar og Sigríðar Garðarsdóttur,
íþróttamanna æskunnar í Vest-
mannaeyjum, að klippa á borðann.
Íþróttahús fyrir 400 milljónir
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Bætt aðstaða Fjölmenni var við athöfn í nýja fjölnota íþróttahúsinu.
Nýtt fjölnota íþróttahús í Vestmannaeyjum bætir
mjög aðstöðu fyrir knattspyrnu og frjálsar íþróttir