Morgunblaðið - 14.01.2011, Page 8

Morgunblaðið - 14.01.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2011 Maria Damanaki tilkynnti 21.desember sl. að hún hefði óskað eftir sérstökum fundi í hinni sameiginlegu nefnd ESB- og EES-landa 14. janúar 2011 til að ræða framkvæmd löndunarbanns á makrílskip frá Ís- landi og Færeyjum. Jón Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra sagði að þetta sýndi að deil- an vegna makríls við ESB væri að færast á nýtt stig með slíkum hót- unum. Ágreininginn yrði að leysa með samningi strandríkja.    Daginn eftir að Maria Dam-anaki gaf yfirlýsingu sína gekk Stefán Haukur Jóhannsson, sendiherra Íslands gagnvart ESB og formaður viðræðunefndar Ís- lands við ESB, á fund hennar. Eftir fundinn sagði sendiherrann að Maria Damanaki ætlaði að „beita sér fyrir lausn makríldeilu Íslands og sambandsins“.    Ummæli sendiherrans birtust áruv.is 22. desember. Taldi hann, að viðhorf Damanaki gæfu skýra vísbendingu um aukinn skilning Evrópusambandsins á sjónarmiðum Íslendinga í makríl- deilunni og fundur þeirra Dam- anaki hefði verið „afar“ jákvæð- ur. Hann taldi þó „of snemmt fyrir Íslendinga að fagna sigri í deilunni, ekki hafi verið um eig- inlegar samningaviðræður að ræða“.    Nú hefur framkvæmdastjórnESB tilkynnt refsiaðgerðir gegn Íslendingum vegna ákvarð- ana þeirra um makrílveiðar. Ekki hefur verið upplýst hvort Stefán stækkunarstjóri Íslands líti á þetta sem fullnaðarsigur eftir sinn jákvæða fund með kommiss- arnum. En mat hans á ESB mun verða vandlega skoðað eftir þetta. Stefán Haukur Jóhannsson Jákvæður ósigur STAKSTEINAR Veður víða um heim 13.1., kl. 18.00 Reykjavík 1 alskýjað Bolungarvík -2 snjókoma Akureyri -3 snjókoma Egilsstaðir -3 alskýjað Kirkjubæjarkl. 2 alskýjað Nuuk -5 snjókoma Þórshöfn 4 skýjað Ósló -10 snjókoma Kaupmannahöfn 1 þoka Stokkhólmur -7 heiðskírt Helsinki -3 snjókoma Lúxemborg 11 súld Brussel 12 skýjað Dublin 11 skýjað Glasgow 10 léttskýjað London 12 skýjað París 12 skýjað Amsterdam 10 skýjað Hamborg 5 þoka Berlín 5 skýjað Vín 8 skúrir Moskva -1 skýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 12 heiðskírt Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 16 léttskýjað Róm 11 heiðskírt Aþena 12 skýjað Winnipeg -10 snjókoma Montreal -7 skýjað New York -2 heiðskírt Chicago -5 alskýjað Orlando 5 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 14. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:58 16:17 ÍSAFJÖRÐUR 11:31 15:54 SIGLUFJÖRÐUR 11:15 15:35 DJÚPIVOGUR 10:34 15:39 BAKSVIÐ Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Síðastliðið vor var deiliskipulagstil- laga fyrir lóð í Vatnsmýrinni sam- þykkt en þar er gert ráð fyrir að reisa stúdenta- og vísindagarða. Til- lagan var auglýst stuttu síðar og í kjölfarið bárust athugasemdir frá íbúum í nágrenninu. Að sögn Eiríks Haukssonar, framkvæmdastjóra Vísindagarða sem eru með lóðina til ráðstöfunar, er ný og endurbætt deiliskipulagstillaga nánast fullfrá- gengin og verður hún að öllum lík- indum kynnt opinberlega síðar í þessum mánuði. Svæðið nýtt sem bílastæði Samkvæmt tillögunni verður Sæ- mundargata lengd út að Eggerts- götu og munu stúdentagarðarnir rísa á milli nýja götukaflans og Oddagötu. Á meðfylgjandi mynd er það svæði afmarkað með rauðum lit. Vísindagarðarnir verða staðsett- ir á því svæði sem afmarkað er með bláum lit en þar verður heimilt að starfrækja stofnanir og fyrirtæki á sviði rannsókna, vísinda og þekk- ingar sem hafa hag af staðsetningu á háskólasvæðinu, leggja háskóla- starfseminni lið með nálægð sinni eða tengjast henni. Svæðið í heild sinni er í dag að hluta nýtt sem bíla- stæði til bráðabirgða en að öðru leyti óhreyft. Aðspurður hvenær hægt verði að ráðast í framkvæmdir segir Eiríkur það taka að minnsta kosti 100 daga að fá ferlið samþykkt eftir að til- lagan hefur verið aug- lýst. Um leið og sam- þykki fæst verður farið í framkvæmdir. „Það er gert ráð fyrir að þeim ljúki að fullu árið 2013. Þetta gæti samt eitthvað hnikast til og mér þætti ekki ósennilegt að það yrði á árinu 2014 sem þessu myndi ljúka að fullu,“ segir Eiríkur og bætir við að hús- næði verði skilað og það tekið í notkun í áföngum. Hætta fylgir gróðrinum Sinueldur kviknaði á þessu fyr- irhugaða byggingarsvæði á þriðju- dagskvöld en að sögn Eiríks mun atvikið ekki setja strik í reikning- inn. „Ég mun fara yfir þetta mál með slökkviliði höfuðborgarsvæðis- ins til að athuga hvað við getum gert til að koma í veg fyrir að svona geti gerst. Þetta er hætta sem því fylgir að hafa náttúrulegan gróður í borgarlandinu.“ Framkvæmdum lýkur sennilega að fullu 2014  Ný deiliskipulagstillaga gerð opinber fljótlega  Sinubruninn hefur ekki áhrif Háskólaumhverfi Á mynd má sjá nýja skipulagið. Vísindagarðar eru merktir með bláu og stúdentagarðar rauðu. Eftir auglýsingu deiliskipulagsins voru gerðar breytingar á uppdráttum og greinargerð til að koma til móts við athugasemdir frá hags- munaaðilum. Til dæmis hefur heildarbyggingarmagn verið minnkað úr 72.500 m² í 61.900 m². Hús vísindagarða lækk- uð að jafnaði um eina hæð og hámarksíbúðaeiningum í stúdentagörðum fækkað úr 340 einingum í 300. Bílastæðakröfur hafa verið færðar til samræmis við minna byggingarmagn og bílastæðum í götum fækkað. Þá var ákveðið að lækka sjö hæða turn sem átti að rísa í miðju vísindagarða til samræmis við aðra byggð. Sjö hæða turn lækkaður BREYTING Á DEILISKIPULAGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.