Morgunblaðið - 14.01.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.01.2011, Blaðsíða 11
Sambýlingar Bryndís, Veronica, Natasa og Edda í góðu stuði heima í stúdentaíbúðinni í Salamanca. um kallað út um eldhúsgluggann á krakkana í hinum íbúðunum og það var mikilli samgangur á milli íbúða. Við eignuðumst marga vini sem við höldum enn sambandi við og spjöll- um við á skæpinu og á facebook og aldrei að vita nema maður heimsæki eitthvað af þessum félögum síðar.“ Brasilíubúinn alltaf að elda Bryndís segir að sambúðin hjá þeim sexmenningunum hafi gengið vel. „Íbúðinni var eiginlega skipt í tvennt, það voru til dæmis tvær eldavélar. En auðvitað varð maður stundum pirraður, Brasilíustrák- urinn var til dæmis frekar mikið fyr- ir að halda partí og hann lét okkur hin stundum ekki vita af því fyrr en tveimur tímum áður, sem gat komið sér illa ef maður ætlaði að fara að sofa. Og við þurftum að læsa her- bergjunum okkar ef það var partí, annars var hætta á að einhverju yrði stolið. En þetta voru frábærir krakkar sem við bjuggum með og Brasilíubúinn eldaði ógeðslega góð- an mat, hann hafði svo mikinn áhuga á mat og var alltaf að elda fyrir okk- ur, enda kom ég nokkrum kílóum þyngri heim.“ Skruppu til Portú- gals og Madrid Bryndís segist hafa bætt sig heilmikið í spænskunni þrátt fyrir að þau hafi aðallega talað saman á ensku sem bjuggu saman. Þetta var því ekki bara lærdómsferð heldur líka ferð í skóla lífsins. „Námið var í tvo og hálfan mánuð eða eina önn, en ég var í mánuð að leika mér. Við ferðuðumst líka svolítið, fórum til Portúgals og Madrid, en bærinn Salamanca er á milli Madrid og Portúgals, tekur þrjá tíma að fara með rútu til Madrid, en sjö tíma að fara með lest til Lissabon. Við skruppum líka til Tenerife. Sala- manca er háskólabær og þar eiga heima um 150 þúsund manns en auk þess eru um 30 þúsund erlendir stúdentar þar.“ Langaði ekkert heim Þær Bryndís og Edda Rún unnu eins og forkar í sumar til að safna fyrir skólavistinni en þær þurftu að borga um 400.000 hvor fyrir skólann og íbúðarhúsnæðið. Við það bættist svo vasapeningur fyrir mat og öðru lifibrauði og for- eldrarnir styrktu þær því til far- arinnar. Þær komu heim rétt fyrir jól og sakna sárt sambýlinganna. „Ég er eiginlega orðin afbrýðisöm, því núna er nýtt fólk að flytja inn til þeirra, mig langar mest til að fara aftur út. Ég verð að játa að mig langaði ekkert heim. Ég var eig- inlega á bömmer fyrst eftir að ég kom heim, var alltaf í vondu skapi og langaði bara aftur út. En ég er búin að jafna mig,“ segir Bryndís og hlær. Hún getur líka hlakkað til næsta ævintýris, sem er að fara til Kanada og vinna þar sem barn- fóstra. „Ég verð hjá ótrúlega full- kominni fjölskyldu, er búin að tala heilmikið við þau á skæpinu og líst vel á þetta allt saman. Þetta eru kan- adísk hjón með eitt barn, eins og hálfs árs, og það er líka skiptinemi á heimilinu. Mig hefur lengi langað til Kanada, ég vil skoða sem ólíkust svæði heimsins. Ég ætla að vona að ég komist á skíði,“ segir Bryndís sem stefnir á að fara í hjúkr- unarfræðinám í Háskóla Íslands í haust. www.corintio.usal.es www.salamanca-university.org DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2011 Förðunarlínurnar fyrir vor og sumar 2011 hafa verið lagðar og spanna í raun allan skalann. Allt frá brons- og pastelllitum yfir í æpandi rauða, græna og bláa liti. Þeir fá að tóna á móti dökkbleikum eða appelsínu- gulum lit á varirnar. Þá er nú ekkert sem segir lengur að áberandi augu og varir megi ekki fara saman. Það besta við þetta allt saman er þó fjölbreytnin sem gerir hverri konu kleift að velja sér þá liti sem henni fara best. Skærlitaðir varalitir Dökkbleikur og appelsínugulur verða vinsælastir í vor og sumar, notaðu ljósa pastelliti á augun og nóg af maskara. Náttúrulegt Förðun þar sem annars vegar eru notaðir ljósir litir á kinnbein og hins vegar bronslitir á augu og kinnbein til að ná fram auknum frískleika. Skærir augnskuggar Christian Dior valdi áberandi og skæra augnskugga í lík- ingu við þessa, bleikan, grænan og rauðan á vor- og sumarsýningu sína. Förðun vor og sumar 2011 Áberandi augu og varir Reuters Pastel Mjúkir litir í förðun sem tóna vel saman og eru hæfilega áberandi. HUSK er 100% náttúrulegt „þarmastillandi“ efni. HUSK er hreinsuð fræskurn indversku lækninga- jurtarinnar Plantago Psyllium. HUSK er án sykurs eða bragðefna og bætir starfsemi þarmanna á vægan hátt. HUSK fæst í lyfjaverslunum og heilsuverslunum um allt land! Náttúrulegar trefjar sem halda meltingunni í góðu formi 20% afsláttur Upplýsingar um Husk duft til inntöku: Virkt efni: Ispaghula husk. Ábendingar: Náttúrulyf til meðferðar við þrálátri hægðatregðu; til notkunar við aðstæður þar sem mjúkar hægðir og auðveld hægðalosun eru æskileg. Viðbótarmeðferð við einkennum niðurgangs af ýmsum orsökum og meðferð þegar þörf er á aukinni neyslu trefja, t.d. við iðraólgu. Skammtar og lyfjagjöf: Dagsskammtur fyrir fullorðna, aldraða og börn eldri en 12 ára: 2-3 mæliskeiðar (3-5 g) kvölds og morgna. Blanda skal u.þ.b. 5 g með 150 ml af köldu vatni, mjólk, ávaxtasafa eða öðrum drykkjum, hræra rösklega og drekka svo fljótt sem mögulegt er. Drekka skal að auki nægilegan vökva. Taka skal náttúrulyfið inn að deginum a.m.k. hálfri til einni klukkustund fyrir eða eftir máltíð og inntöku annarra lyfja. Frábendingar: Ispaghula husk er ekki ætlað sjúklingum með hægðateppu eða einkenni frá kviðarholi af ógreindum orsökum, kviðverki, ógleði eða uppköst, nema að ráði læknis. Ispaghula husk er heldur ekki ætlað sjúklingum sem hafa þrengingar í meltingarvegi, sjúkdóma í vélinda eða magaopi, þaninn ristil, sykursýki sem erfitt er að meðhöndla eða ofnæmi fyrir ispaghula eða einhverjum öðrum innihaldsefnum náttúrulyfsins.Varnaðarorð: Fyrirstaða getur myndast í meltingarvegi ef vökvaneysla er ekki nægileg samhliða notkun náttúrulyfsins. Ef kyngingarörðugleikar hafa einhvern tíma átt sér stað eða um sjúkdóma í koki er að ræða skal ekki nota náttúrulyfið. Sjúklingar með bráðan bólgusjúkdóm í meltingarvegi eða truflanir í saltbúskap ættu ekki að nota náttúrulyfið. Milliverkanir: Frásogi annarra lyfja sem tekin eru samhliða, t.d. kalsíums, járns, litíums og sinks, vítamína (B12), glýkósíða með verkun á hjarta og kúmarín afleiða getur seinkað. Af þessum ástæðum skal taka náttúrulyfið a.m.k. hálfri til einni klukkustund fyrir eða eftir máltíð og inntöku annarra lyfja. Gæta þarf varúðar þegar lyf sem draga úr hreyfanleika maga og þarma (morfínlík lyf, lóperamíð) eru notuð samhliða vegna hættu á teppu í meltingarvegi. Aukaverkanir: Vindgangur og kviðverkir geta átt sér stað við notkun náttúrulyfsins, einkum í upphafi meðferðar. Þaninn kviður, hætta á fyrirstöðu í görnum eða vélinda og hægðateppa, sérstaklega ef vökvaneysla er ekki nægilega mikil. Geymið ekki við hærri hita en 25°C. Geymið í upprunalegum umbúðum. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja náttúrulyfinu. 10 desember 2008. Sími 577 1215, Holtasmári 1, 201 Kópavogur ehb@ebridde.is, www.ebridde.is 15. janúar – 15. febrúar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.