Morgunblaðið - 14.01.2011, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2011
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Þeim sem sáu tónleika Herberts Guðmunds-
sonar í Íslensku óperunni fyrir tíu árum síðan
gæti brugðið við þær fréttir að þeir séu fyrst
að koma út á mynddiski núna. En það er ekki
af góðu. Það var mikið lagt í þessa tónleika
sem voru teknir upp á fimm myndavélar og
sjónvarpsbíllinn var fyrir aftan óperuna og
mixaði allt saman samstundis. En þegar átti að
skoða masterinn til að koma efninu á disk þá
fannst hann ekki og hefur ekki enn fundist.
Gott fólk
„Það var eitthvað slúðrað um það, þar sem
bíllinn fór norður eftir þetta verkefni og tók
þar upp fótboltaleik að fyrir mistök hefði verið
tekið yfir tónleikana, en maður mun aldrei vita
fyrir víst hvað gerðist,“ segir Herbert. „Þetta
tafði ferlið svakalega. Við urðum að vinna
þetta uppá nýtt. Við áttum tökur úr öllum ka-
merunum sem við notuðumst við og við erum
mjög ánægðir með útkomuna. Þetta er að fá
rosa góða dóma og menn yfir sig ánægðir.
Bloggarinn Jens Guð var að gefa þessu fjórar
og hálfa stjörnu. Þetta var í fyrsta skiptið sem
ég var með strengjasveit. Ég var líka með svo
gott fólk með mér, einsog Jón Elvar úr Stjórn-
inni, Jóa Ásmunds á bassa, Tryggva Hübner á
gítar, Þór Úlfars á píanó og Ingólf Sigurðsson
á trommur,“ segir Herbert.
Herbertsson projekt
Aðspurður hvað sé framundan hjá honum
segist hann aðallega vera að vinna með syni
sínum Svani sem stendur en þeir starfa undir
heitinu Herbertsson projekt. „Það er í start-
holunum, það hafa tvö lög farið í spilun. Lögin
„Time“ og „Treasurés hunt“ sem er smá skot á
útrásarvíkingana. Við gefum síðan plötu út
með vorinu,“ segir Herbert.
Tónleikarnir þurrkaðir út
Herbert Tíu ára gamlir tónleikar Herberts Guðmundssonar eru loksins komnir út á diski.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2011
hefst með viðhöfn annað kvöld.
Keppnin verður með svipuðu sniði og í
fyrra. Alls keppa 15 lög sín á milli í
beinni útsendingu frá myndveri Sjón-
varpsins og velja áhorfendur tvö lög
áfram í símakosningu hvert kvöld.
Undanúrslitakvöldin verða þrjú, á
laugardaginn, 22. janúar og 29. jan-
úar. Það verða því sex lög sem keppa
til úrslita 12. febrúar og verður lagið
sem ber sigur úr býtum framlag Ís-
lands í Evróvisjónkeppninni sem
haldin verður í Düsseldorf í Þýska-
landi í maí.
Líkt og verið hefur verða lögin
frumflutt á Rás 2 í vikunni áður en
þau verða flutt í Sjónvarpinu til að
gefa áhorfendum kost á að heyra lögin
fyrirfram. Ennfremur verður sér-
stakur upprifjunarþáttur 5. febrúar til
að byggja upp stemninguna fyrir úr-
slitakvöldið.
Nýr kynnir
Nýjabrum er þó á einum lið keppn-
innar en Guðmundur Gunnarsson
mætir nýr til leiks við hlið Ragnhildar
Steinunnar Jónsdóttur á sviðinu.
Guðmundur segir að þetta nýja
hlutverk leggist vel í sig. „Undirbún-
ingurinn hefur gengið betur en maður
þorði að vona.“
Hann segir samstarfið við Ragn-
hildi Steinunni hafa gengið vel og gott
að hafa reynda manneskju sér við
hlið. „Hún er reynsluboltinn þó að hún
sé yngri en ég,“ segir Guðmundur og
bætir við að hún gefi honum góð ráð.
Hann er ekkert stressaður yfir því
að koma fram í beinni útsendingu.
„Ég sef alveg á næturnar. Þetta verð-
ur bara skemmtilegt enda er þetta
mikil veisla,“ segir hann.
Guðmundur segir keppnina verða
að mestu leyti með hefðbundnu sniði.
„Nema við ætlum að leggja meiri
áherslu en oft áður á lagahöfundana
sjálfa og kynnum þá meira til sög-
unnar. Í mörgum tilvikum eru þetta
ekki atvinnutónlistarmenn, heldur
frekar það sem kallað hefur verið
skúffuskáld. Þetta er þeirra keppni,“
segir hann enda heitir keppnin
SÖNGVAkeppni en ekki SÖNG-
keppni.
Ennfremur stendur Sjónvarpið fyr-
ir Evróvisjónkeppni fyrir áhorfendur
Sjónvarpsins og hlustendur Rásar 2
og verða veitt einhver verðlaun í
hverjum þætti auk þess sem tveir
heppnir vinna gistingu, miða og far á
keppnina stóru í Düsseldorf.
Góðir gestir í hverjum þætti
Góðir gestir sem standa utan
keppninnar koma fram í hverjum
þætti. „Við ætlum að fá tvo þjóð-
þekkta einstaklinga í heimsókn til
okkar í hvern þátt, ólíklegt par sem
ekki er endilega tengt Evróvisjón,“
segir Guðmundur og ljóstrar upp um
það að náttúruverndarsinninn og
sjónvarpsmaðurinn Ómar Ragn-
arsson og útvarpsmaðurinn Andri
Freyr Viðarsson verði fyrstu gest-
irnir.
Guðmundur segist umfram allt
ætla að koma til dyranna eins og hann
sé klæddur (og þá auðvitað vel klædd-
ur eins og á meðfylgjandi mynd). „Það
þýðir ekkert að þykjast vera einhver
annar en maður er.“
Vert er að vekja athygli á því að
Sjónvarpið hefur að venju sett upp
góðan vef tileinkaðan keppninni á ruv-
.is, þar sem hægt er að hlusta á lögin,
skoða myndir og hlusta á viðtöl við
keppendur og flytjendur.
Þar sem skúffuskáldin skína
Söngvakeppni
Sjónvarpsins hefst
annað kvöld
15 lög í keppni
á þremur undan-
úrslitakvöldum
Grín Kynnarnir bregða á leik í anda Evróvisjónsmellsins „Eitt lag enn“.
Hress Guðmundur Gunnarsson og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir eru hresst og vel klætt kynnapar.
15. janúar
Lagið þitt
L&T: Ingvi Þór Kormáks-
son
F: Böddi og JJ Soul Band
Ef ég hefði vængi
L&T: Haraldur Reynisson
Flytjandi: Haraldur
Reynisson
Elísabet
L&T: Pétur Örn
Guðmundsson
F: Pétur Örn
Guðmundsson
Huldumey
L: Ragnar Hermannsson
T:Anna Þóra Jónsdóttir
F: Hanna Guðný Hitchon
Ástin mín eina
L&T: Arnar Ástráðsson
F: Erna Hrönn Ólafsdóttir
22. janúar
Þessi þrá
L&T: Albert Guðmann
Jónsson
Flytjandi: Íslenska sveitin
Segðu mér
L: Jakob Jóhannsson
T: Tómas Guðmundsson
F: Bryndís Ásmundsdóttir
Nótt
L:María Björk Sverrisd.
Marcus Frenell og Beatrice
Eriksson
T:Magnús Þór Sigmundss.
F: Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir
Eldgos
L:Matthías Stefánsson
T: Kristján Hreinsson
F:Matthías Matthíasson
og Erla Björg Káradóttir
Beint á ská
L: Tómas Hermannsson
og Orri Harðarson
T: Rakel Mjöll Leifsdóttir
F: Rakel Mjöll Leifsdóttir
29. janúar
Ég trúi á betra líf
L: Hallgrímur Óskarsson
T: Eiríkur Hauksson og
Gerard James Borg
F:Magni Ásgeirsson
Ég lofa
L: Jógvan Hansen og
Vignir Snær Vigfússon
T: Sigurður Örn Jónsson
F: Jógvan Hansen
Morgunsól
L&T: Jóhannes Kári
Kristinsson
F: Georg Alexander
Valgeirsson
Sáluhjálp
L&T: Pétur Örn
Guðmundsson
F: Buff
Aftur heim
L: Sigurjón Brink
T: Þórunn Erna Clausen
F: Sigurjón Brink
L: Höfundur lags
T: Höfundur texta
F: Flytjandi