Morgunblaðið - 11.03.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Um klukkan 18 í gærkvöldi kom
varðskipið Týr til Reykjavíkur
með stálpramma í togi en hans
hafði verið leitað undanfarið.
Fannst hann um 15 sjómílur suð-
vestur af Malarrifi. Pramminn er
8-10 metrar á lengd og 4 metrar á
breidd en sást ekki á ratsjá þann-
ig að skipum og bátum stafaði
hætta af honum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, fann prammann eftir að til-
kynning barst frá fiskiskipi. Illa
gekk að koma taug yfir í hann
vegna veðurs. Dimm él voru á
svæðinu og þungur sjór. Að lokum
tókst þó að snara prammann síð-
degis á miðvikudag.
Snöruðu hættu-
legan stálpramma
og drógu í land
Sveitarfélagið Árborg ætlar að greiða
niður skuldir og lækka fasteignaskatt
á íbúðarhúsnæði á næstu þremur ár-
um, 2012-2014. Öll hækkun fasteigna-
skattsins frá hruni á að ganga til baka.
Skatturinn verður lækkaður um 0,025
prósentustig á ári og fer úr 0,35% í
0,275%. Álagningin lækkar því um
rúman fimmtung (21,6%) á tímabilinu.
Þetta kemur fram í nýrri þriggja
ára fjárhagsáætlun Árborgar fyrir ár-
in 2012-2014. Ekki er gert ráð fyrir
miklum fjárfestingum og áhersla verð-
ur lögð á aðhald í rekstri, samkvæmt
greinargerð. Stefnt er að lækkun
skulda um hálfan milljarð króna. Fjár-
magnsliðir eiga að verða jákvæðari um
82 milljónir árið 2014 en árið 2011 á
föstu verðlagi.
Eyþór Arnalds, formaður bæjar-
ráðs Árborgar, sagði að hagrætt hefði
verið í stjórnkerfi sveitarfélagsins.
Millistjórnendum var fækkað og var-
anlegum sparnaði náð.
„Við erum að skila hluta af þessum
sparnaði til eigenda sveitarfélagsins,
íbúanna, og vinda ofan af þeim skatta-
hækkunum sem farið var í í kringum
hrunið,“ sagði Eyþór. Hann benti á að
fasteignamat í Árborg lækkaði um
10% í ár miðað við 2010. Fasteigna-
skattur íbúanna lækkar því um 10% að
krónutölu á þessu ári. „Þessu til við-
bótar ætlum við að lækka álagn-
inguna,“ sagði Eyþór.
Hann sagði að sveitarfélagið hefði
verið skuldsett mikið fyrir hrunið og
skuldir tvöfaldast á fimm árum, þrátt
fyrir lítil erlend lán. Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga sendi Árborg
viðvörun í fyrra. Gripið var til aðgerða
til að mæta ábendingunum og lækka
skuldir. Eyþór sagði að bæjaryfirvöld
ætluðu ekki einungis að þjóna eftirlits-
nefndinni heldur og íbúunum.
gudni@mbl.is
Lækkar fasteignaskattinn
Árborg ætlar að lækka fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði á næstu þremur árum
Einnig á að greiða skuldir sveitarfélagsins niður um hálfan milljarð króna
„Þetta er okkar
framlag til að skila
sparnaðinum og
líka að gera Ár-
borg ákjósanlegan
búsetukost.“
Eyþór Arnalds
Útlit er fyrir að frostakaflanum
ljúki á sunnudag, þegar aftur hlýn-
ar í veðri. En það verður skamm-
góður vermir því Veðurstofan spáir
aftur kólnandi veðri og snjókomu
eða éljum víða um land á þriðjudag
og miðvikudag.
Töluvert frost hefur verið á land-
inu undanfarna daga, einkum inn
til dala og á hálendinu. Í fyrrinótt
var mesta frostið í byggð, 19 stig,
en það var á Haugi í Miðfirði,
Brúsastöðum í Vatnsdal og Reykj-
um í Fnjóskadal. Mesta frostið á
landinu var hins vegar 26 stig á
sjálfvirkri veðurstöð sem kennd er
við Kolku við Blöndulón og er í lið-
lega 500 metra hæð.
Gangi spá Veðurstofunnar eftir
um rigningu og hláku í tvo eða þrjá
daga um og eftir helgi fer hún fyrir
lítið gamla veðurspáin um að ösku-
dagur eigi sér átján bræður með
líku veðri. Enn geta þó aðrir
túlkunarmöguleikar gengið eftir,
að öskudagsveðrið verði næstu
átján miðvikudaga eða að ein-
hverjir átján dagar á föstunni
skarti svipuðu veðri og öskudagur.
helgi@mbl.is
Skammgóður vermir
væntanlegur um helgina
Frostið fór í 19 gráður inn til dala norðanlands
Ísland Það sér varla á dökkan díl á landinu þessa dagana. Snjó hefur náð að festa á öllu landinu, utan landræmu
með ströndinni á Suður- og Suðausturlandi. Þá sést móta fyrir stærstu vötnum. Gervitunglamynd NASA er fengin
af vef Veðurstofunnar. Hún var tekin í fyrradag. Í gær hafði bæst við dökkur skýjabakki sunnan við landið.
Farið er að sjá fyrir endann á loðnuvertíðinni. Sindri Við-
arsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum (VSV), sagði síðdegis í gær að Ísleifur
VE hefði verið að fara í síðasta túr skipa VSV á þessari
vertíð. Kap VE var á leið í land með fullfermi og Sig-
hvatur Bjarnason VE var á miðunum.
Unnið er á vöktum við hrognakreistingu og frystingu í
VSV og reiknaði Sindri með að törninni lyki um helgina.
Loðnuskipin voru að veiðum í Faxaflóa og við Reykjanes-
ið í gær.
Fram kemur á heimasíðu HB Granda að úthlutaður
loðnukvóti skipa HB Granda náðist í gær, er áhöfnin á
Ingunni AK tók síðasta kastið á vertíðinni. Haft er eftir
Vilhjálmi Vilhjálmssyni, deildarstjóra uppsjávarsviðs fé-
lagsins, að hvort tveggja veiðar og vinnsla hafi gengið
mjög vel þrátt fyrir rysjótt tíðarfar. Hrognavinnsla og
-frysting stendur enn yfir á Akranesi og Vopnafirði.
Heildarkvóti skipa HB Granda á vertíðinni var rúm-
lega 61 þúsund tonn og er sá mesti síðan á vertíðinni 2005
en þá nam kvótinn um 122 þúsund tonnum.
Loðnuvertíðinni að ljúka
Búist við að törninni við vinnslu hrogna ljúki um helgina
Veiðar og vinnsla hafa gengið vel þrátt fyrir erfitt tíðarfar
A
T
A
R
N
A
á morgun.
Fjöldi tilboða
í tilefni dagsins.
Opið frá 10 til 16.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Sölusýning
Bræðurnir Robert og Vincent
Tchenguiz fóru rakleiðis til Cannes
í Suður-Frakklandi eftir að þeim
hafði verið sleppt úr haldi bresku
lögreglunnar í fyrrakvöld. Þeir
voru yfirheyrðir vegna þeirrar
óvenjumiklu fyrirgreiðslu sem þeir
nutu hjá Kaupþingi síðustu árin
fyrir fall bankans. Nú stendur yfir
gríðarmikil ráðstefna um fasteigna-
mál í Cannes og höfðu bræðurnir
ráðgert að slá upp veislu á snekkju
Vincents í tilefni af því, en þeir
hafa verið stórtækir á fast-
eignamarkaðnum, einkum í Bret-
landi.
Haft var eftir Sarosh Zaiwalla,
fyrrverandi lögmanni bræðranna, á
fréttavef Bloomberg, að þeir hefðu
tapað miklum fjármunum við fall
bankans. Hefðu þeir vitað að bank-
inn stæði jafnilla og raun ber vitni
hefði þeim verið í lófa lagið að
flytja viðskipti sín annað, en þar
sem þeir gerðu það ekki telji þeir
sig eiga rétt á skaðabótum. Þessi
afstaða er í beinni mótsögn við það
sem kemur meðal annars fram í
skýrslu Rannsóknarnefndar Al-
þingis um viðskipti bræðranna við
bankann.
Sjömenningarnir sem handteknir
voru í London í fyrradag voru látn-
ir lausir að kvöldi sama dags, en á
meðal þeirra voru þeir Sigurður
Einarsson, Ármann Þorvaldsson og
Guðni Níels Aðalsteinsson. Hér á
Íslandi voru tveir handteknir á
miðvikudaginn og yfirheyrðir vegna
málsins. Þeim var sleppt samdæg-
urs. Enginn hefur verið kærður.
einarorn@mbl.is
Telja sig eiga rétt
á skaðabótakröfu
gegn Kaupþingi
Tchenguiz-bræður héldu veislu á
snekkju Vincents í Cannes í gær
Reuters
SFO Frá húsleit lögreglunnar í
London nú á miðvikudaginn.
Skannaðu kóðann
til þess að fylgjast
með máli Tchengu-
iz-bræðranna á
mbl.is.