Morgunblaðið - 11.03.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011
María Elísabet Loraco
„Niðurstöður erlendra rannsókna
benda til þess að hið opinbera leggi
áherslu á sköpun hefðbundinna
karlastarfa í kreppuástandi sem leið-
ir til þess að konur eru lengur at-
vinnulausar,“ segir Eygló Árnadótt-
ir, MA í kynjafræði.
Velferðarvakt velferðarráðuneyt-
isins lét vinna fyrir sig tölulega sam-
antekt á upplýsingum sem gefa vís-
bendingar um stöðu kvenna í
kreppunni. Eygló Árnadóttir, MA í
kynjafræði, og Eva Bjarnardóttir,
MSc í alþjóðastjórnmálakenningum,
unnu verkefnið og studdust þær við
erlendar rannsóknir á áhrifum at-
vinnuleysis og efnahagslegra örðug-
leika á konur. Til að svara spurn-
ingum um ástandið á Íslandi studd-
ust þær við kyngreind gögn frá
ráðuneytum, stofnunum og hags-
munasamtökum sem lágu fyrir á
tímabilinu október 2010 til janúar
2011.
Gögn ekki alltaf kyngreind
Við nánari skoðun kom í ljós að
opinber gögn eru ekki alltaf kyn-
greind eins og lög segja til um sam-
kvæmt 16. grein laga um jafna stöðu
og janfnan rétt kvenna. Sú stað-
reynd takmarkaði niðurstöður sam-
antektarinnar þar sem ekki lágu fyr-
ir öruggar forsendur. Skortur á
opinberum kyngreindum gögnum
olli vandræðum við upplýsingaöflun,
og takmarkaði það verulega niður-
stöður samantektarinnar.
Niðurstöður samantektarinnar
benda þó til þess að ákveðið mynstur
sé sameiginlegt með þróun efna-
hagslægðar annarra landa þegar lit-
ið er til atvinnuleysis og atvinnu-
uppbyggingar hins opinbera.
Karlar sem starfa í einkageiran-
um missa fyrst vinnuna en konur
sem starfa í opinbera geiranum
missa vinnuna seinna. Samkvæmt
upplýsingum sem Eygló og Eva
skoðuðu virðist ríkjandi mynstur
vera að hið opinbera bregðist við at-
vinnuleysi með atvinnuuppbyggingu
sem skapi í meira mælihefðbundin
karlastörf.
Samkvæmt þessu eru meiri líkur á
því að konur verði lengur atvinnu-
lausar en karlar. Mun lengri tími líði
þangað til ný störf skapast í opin-
bera geiranum.
Hámarksgreiðslur í fæðingar-
orlofi hafa verið lækkaðar niður í
300.000 kr. á mánuði og mikill munur
er á skerðingu á launa-greiðslum á
milli kynja. Þá hafa 49% karla orðið
fyrir skerðingu á móti 19% kvenna
sem undirstrikar launamismuninn.
Niðurstöðurnar benda til þess að
vanskil á lánum hafi aukist mark-
tækt meira hjá einstæðum konum en
körlum.
Konur koma verr út
úr kreppunni en karlar
Morgunblaðið/Ómar
Fögnuður Margþætt hátíðarhöld fóru fram á alþjóðlegum baráttudegi kvenna á þriðjudaginn.
Þegar konur missa störf hjá hinu opinbera eru þær lengur atvinnulausar
„Erfitt að nálgast kyngreind
gögn um til dæmis einstæða
foreldra, heimavinnandi foreldra,
heilsu kvenna, námslán, eignir
og skuldir, sérstaka fjárhags-
aðstoð og fleira,“ segir Eygló og
vill vekja athygli á mikilvægi
þess að kyngreina opinber gögn.
,,Rannsóknir á langtíma-
atvinnuleysi í kjölfar efnahags-
þrenginga benda þó til þess að
konur séu lengur atvinnulausar,“
segir Eygló.
Eitt af því sem takmarkaði
niðurstöður verkefnisins var
hversu fáar erlendar rannsóknir
á áhrifum efnahagskreppu á
konur eru aðgengilegar. Helst
mátti nálgast upplýsingar um
Svíþjóð og Bretland í þessu
samhengi.
„Konur eru meirihluti ríkis-
starfsmanna, svo þegar ríkis-
störf eru skorin niður bitnar það
fremur á atvinnu kvenna.
Heilbrigðisgeirinn og skóla-
kerfið eru t.d. hinar hefðbundnu
kvennastéttir og stærstu at-
vinnugeirar hins opinbera, segir
Eygló Árnadóttir.
Konur lengur án atvinnu
MIKILVÆGT ER AÐ KYNGREINA OPINBER GÖGN
Jóhann Torfi Ólafsson
„Við þurfum að endurskoða hvaða
gildi eiga að vera grundvöllur í okkar
samfélagi,“ segir Neil Hawkes, aðal-
fyrirlesari á fag-
ráðstefnu reyk-
vískra grunn-
skólakennara sem
haldin var í ní-
unda skipti á mið-
vikudag.
Hawkes, sem
er fyrrverandi
kennari og skóla-
stjóri, starfar sem
alþjóðlegur ráð-
gjafi á sviði
menntamála. Hann er frumkvöðull
kennsluaðferðarinnar Lífsmennt,
sem fjallar um að virða sjálfan sig,
aðra og umhverfið í kringum sig.
„Kennsluaðferðin á að hvetja skóla og
starfsfólk þess til að endurskoða sitt
gildismat svo að ungt fólk taki þau til
sín og noti í sínu eigin lífi.“ Gildin sem
Lífsmennt byggir á eru traust, heið-
arleiki, virðing, skilningur, umönnun,
ást og friður en Hawkes segir alla
geta sammælst um þessi gildi.
Hawkes telur að á síðustu áratug-
um hafi orðið hnignun í gildismati
fólks víðsvegar í heimunum og telur
bankakreppuna eina birtingarmynd
þess. „Ef farið er aftur um 100 ár var
sterkt gildismat á heimilum fólks,
sem mótað var af kirkjunni, ríkinu og
stofnunum þess. Um miðbik síðustu
aldar fór samfélagið að fjarlægast frá
þessum gildum samfélagsins. Því er
þörf á nýju gildismati, hugrænu gild-
ismati, sem allir geta samþykkt að
eigi að vera grundvöllur samfélags-
ins,“ segir Hawkes. „Ungt fólk í dag
elst upp án góðra gilda og því þarf að
byrja í skólakerfinu að kenna því já-
kvæð hugræn gildi.“
Margir skólar, m.a. í Bretlandi og
Ástralíu, hafa notfært sér Lífsmennt
sem grundvöll í sínu skólastarfi.
Rannsókn sem gerð var í háskól-
anum í Newcastle í Suður-Ástralíu
leiddi í ljós að námsárangur nemenda
varð betri eftir innleiðingu kennslu-
aðferðarinnar. „Niðurstöður sýndu
að Lífsmennt eykur vilja til að læra
og gera vel í skóla,“ segir Hawkes.
„Ein af ástæðum þess er aukið traust
sem byggist upp milli nemenda og
starfsfólks skólans og hefur jákvæð
áhrif á námsárangur.“ Hawkes skor-
ar á íslensk stjórnvöld að innleiða
Lífsmennt sem hann kallar „byltingu
hjartans og hugans.“
Bylting hjart-
ans og hugans
Jákvætt gildismat bætir árangur
Neil
Hawkes
Júlíus Vífill Ingvarsson lagði fram
tillögu í borgarráði í gærmorgun í
nafni borgarráðsfulltrúa Sjálfstæð-
isflokks, þar sem lagt er til að
fundargerðir í borgarkerfinu verði
gerðar skiljanlegar venjulegu fólki.
Tillagan er svohljóðandi:
„Fundargerðir borgarráðs og
annarra ráða borgarinnar eru
stuttar og stikkorðakenndar. Oft
eru þær óskiljanlegar þeim sem
vilja kynna sér hvar mál eru stödd
í kerfinu eða niðurstöður í ein-
stökum málum. Í þeim tilgangi að
opna stjórnsýsluna og auðvelda
borgarbúum að fylgjast með gangi
mála er lagt til að gögn sem lögð
eru fram á fundum verði gerð að-
gengileg og birt á vefsvæðum
borgarinnar samhliða fund-
argerðum ráða og nefnda. Aukið
upplýsingflæði er sjálfsögð þjón-
usta sem mun vonandi virka hvetj-
andi á borgarbúa að taka virkan
þátt í vinnslu og ákvörðunum í ein-
staka málum á vettvangi borg-
arinnar.“
Júlíus segir að það sé orðið
löngu tímabært að opna kerfið í
borginni og hleypa sem flestum að
upplýsingum um það sem þar er að
gerast. „Það er ákall samtímans og
fyrir okkur sem störfum á þessum
vettvangi er þátttaka borgarbúa
forsenda þess að vel takist til,“
segir Júlíus.
Fundar-
gerðir verði
skiljanlegar
Þátttaka borgarbúa
er forsendan
Ekki með útileikina
Vegna fréttar í blaðinu í gær um út-
sendingar af útileik Íslands og
Þýskalands í handbolta skal það
leiðrétt að Stöð 2 Sport hefur ekki
sýnt beint frá útileikjum Íslands í
undankeppni EM, heldur RÚV.
Beðist er velvirðingar á rangherm-
inu en Stöð 2 Sport sýndi frá HM í
Svíþjóð í janúar sl. og frá heimsbik-
armóti í sama landi í desember sl.
LEIÐRÉTT