Morgunblaðið - 11.03.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011
Bændur staðfestu eindregnaandstöðu sína við aðild Íslands
að Evrópusambandinu á nýaf-
stöðnu Búnaðarþingi.
Þeir setja fram það
sem þeir kalla varn-
arlínur vegna aðlög-
unarviðræðnanna sem
nú standa yfir og
leggja sérstaka áherslu á kröfu um
varanlegar undanþágur frá land-
búnaðarlöggjöf ESB.
Tekið er fram að tímabundnarundanþágur nægi ekki og að
varnarlínurnar séu lágmarks-
kröfur sem ekki verði vikið frá.
Þá krefjast bændur þess aðstjórnvöld kanni nú þegar af-
stöðu ESB til varnarlína Bænda-
samtakanna.
Í samþykkt Búnaðarþings er einn-ig tekið fram að Bænda-
samtökin taki ekki þátt í undirbún-
ingi eða aðlögunarstarfi sem leiði
beint eða óbeint af yfirstandandi
samningaferli, s.s. vinnu við að út-
færa sameiginlega landbún-
aðarstefnu ESB fyrir íslenskar að-
stæður.
Þá segir í samþykktinni að allarumræður sem leiði af sér
grundvallarbreytingar á umhverfi
íslensks landbúnaðar verði að bíða.
Krafa bænda er sjálfsögð og eðli-leg. Óheiðarlegt er að halda
áfram viðræðum við ESB nema bú-
ið sé að fá skýr svör um að ESB vilji
fallast á lágmarkskröfur á borð við
þær sem bændur hafa sett fram.
En allir vita raunar að ESB ætl-ar alls ekki að gera grundvall-
arbreytingar hjá sjálfu sér til að Ís-
land geti gerst aðili. Þess vegna
fara aðlögunarviðræðurnar fram á
röngum forsendum.
Sjálfsögð krafa
Bændasamtakanna
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.3., kl. 18.00
Reykjavík -6 snjókoma
Bolungarvík -4 alskýjað
Akureyri -7 snjókoma
Egilsstaðir -6 skýjað
Kirkjubæjarkl. -6 léttskýjað
Nuuk -11 léttskýjað
Þórshöfn 0 skýjað
Ósló -2 snjókoma
Kaupmannahöfn 5 skúrir
Stokkhólmur 2 skúrir
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 7 skúrir
Dublin 7 skýjað
Glasgow 3 léttskýjað
London 12 léttskýjað
París 11 skýjað
Amsterdam 10 léttskýjað
Hamborg 7 skúrir
Berlín 10 skýjað
Vín 6 skýjað
Moskva -1 heiðskírt
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 16 heiðskírt
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 8 léttskýjað
Winnipeg -13 skýjað
Montreal 1 slydda
New York 7 alskýjað
Chicago 0 alskýjað
Orlando 16 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:01 19:15
ÍSAFJÖRÐUR 8:08 19:18
SIGLUFJÖRÐUR 7:52 19:01
DJÚPIVOGUR 7:31 18:44
Látin er í Reykjavík Valgerður
Hafstað listmálari, áttræð að aldri.
Valgerður fæddist í Vík í Skaga-
firði 1. júní 1930, yngst tíu syst-
kina. Hún lærði myndlist við
Akademi for fri og merkantil kunst
í Kaupmannahöfn og Myndlista- og
handíðaskólann í Reykjavík en fór
til frekara náms í París árið 1951.
Þar lærði hún málun og mósaík við
Academie de la Grande Chaumiere
og Atelier Severini og eftir það
gerð steindra glugga í Atelier
Barrilet.
Valgerður hélt fjölda einkasýn-
inga og tók þátt í samsýningum hér
á landi, í Bandaríkjunum og
Evrópu. Nú stendur yfir sýning á
nokkrum verka hennar í Stúdíó
Stafni við Ingólfsstræti.
Í Frakklandi kynntist hún eig-
inmanni sínum, André Énard
myndlistarmanni, og bjuggu þau
lengi skammt frá París. Síðan
fluttu þau til New York þar sem
þau stunduðu kennslu samhliða list-
málun. Þau eignuðust þrjá syni:
Árna Olivier sem búsettur er í
Reykjavík, Grím André sem býr í
París og Halldór Yves sem býr í
Los Angeles í Bandaríkjunum.
André lést í New York sl. sumar
en Valgerður var nýflutt til Íslands
er hún lést.
Valgerður
Hafstað
Andlát
Rannsóknir, sem gerðar voru í kjöl-
far eldgossins í Eyjafjallajökli á síð-
asta ári, benda ekki til þess að
öskufallið úr jöklinum hafi haft
veruleg áhrif á heilsufar búfjár.
Matvælastofnun segir, að ekki sé
ástæða til að óttast mikil áhrif af
flúor í fóðrinu og ekki virðist vera
alvarleg uppsöfnun af járni í búfé.
Full ástæða er þó talin til þess að
fylgjast sérstaklega með heilsufari
búfjár á stóru svæði á Suðurlandi
og með því hvort einhver langtíma-
áhrif verða af öskufalli og öskufoki.
Óttinn reyndist ástæðulaus
Á vef Matvælastofnunar er gerð
grein fyrir niðurstöðum rannsókna
og segir þar, að dýralæknum sem
fóru um öskufallssvæðið fyrstu tvo
dagana, hafi verið verulega brugðið
og þeir hafi óttast að hross og ann-
ar búfénaður, sem var úti, mundi
falla eða veikjast á næstu dögum.
Sá ótti reyndist ástæðulaus.
Eftirlitsdýralæknar hafi fylgst
náið með gripum sem koma í slát-
urhús, þá sérstaklega lungum
þeirra. Ekkert grunsamlegt hefur
fundist og engin stórsæ ummerki
um ösku í lungum jafnvel þótt dýr-
in væru að koma beint úr mekk-
inum.
Ekki mikil áhrif af öskufalli
Full ástæða til að hafa sérstakt eftirlit með heilsu búfjár
- nýr auglýsingamiðill
VirðingRéttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Félagsfundur VR verður haldinn á Hilton Nordica Hótel
þriðjudaginn 15. mars nk. kl. 19:30.
Dagskrá:
1. Kynning frambjóðenda til trúnaðarstarfa fyrir félagið.
2. Fyrirspurnir og umræður.
Félagsmenn hvattir til að mæta.