Morgunblaðið - 11.03.2011, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011
dönsku skáldkonuna Karen Blix-
en. Hann fékk heiðursverðlaun,
sem báru nafn hennar, 1999.
Eins og mörgum íslenskum
skáldum var honum margt til
lista lagt. Thor var fjölhæfur og
kom víða við. Hann var formaður
íslenska rithöfundasambandsins
PEN í mörg ár og alþjóðasam-
bandið naut góðs af formennsku
hans. Við erum mörg í danska
rithöfundasambandinu, sem eig-
um góðar minningar um Thor.
Árið 2005 héldu samtökin ráð-
stefnu í Bled í Slóvakíu. Thor
mætti í tæka tíð og gaf sér tíma
til að fara í það sem hann kallaði
pílagrímsfjallgöngu. Nokkrum
árum áður vorum við nokkur
með Thor í ferð um Grænland.
Erindið var að fjalla um tjáning-
arfrelsi en það gafst tími til ann-
ars. Thor skemmti samferða-
mönnum sínum með söng á
hinum ýmsu málum, þar á meðal
ítölsku og spænsku. Þvílík rödd,
þvílíkur styrkur og þvílíkur mað-
ur. Thor skrifaði um glóð og með
glóð í baráttunni fyrir ofsóttum
rithöfundum víðsvegar í heimin-
um. Blanda af alvörugefni, létt-
leika og mannlegri hlýju eru ein-
kenni sem við munum minnast í
fari þessa mikla skálds og heims-
manns. Hann var menningar-
fulltrúi lands síns jafnt heima og
að heiman. Stórt skáld er farið en
eftir standa verkin og minningin
um stóra íslenska skáldið hann
Thor Vilhjálmsson.
Klaus Slavensky rithöfundur,
í stjórn danska rithöfunda-
sambandsins PEN.
Mikið misstum við í Thor Vil-
hjálmssyni, og mikið færði hann
okkur á þeim sex áratugum sem
liðnir eru frá fyrstu bók hans.
Hann var skeleggur málsvari
frelsis og mannréttinda, einkum
lét hann til sín taka á menning-
arsviðinu og var í fremstu röð
baráttumanna fyrir hagsmunum
skálda. Thor dó síðastur Birt-
ingsmanna, ásamt vinum sínum
Einari Braga og Herði Ágústs-
syni hélt hann út tímaritinu Birt-
ingi í áratug, frá því á miðri tutt-
ugustu öld. Það átti víst ekki
marga áskrifendur, en þeim mun
áhrifaríkari þegar frá leið, það
ruddi braut nýjum menningar-
straumum erlendis frá og sköpun
innanlands. Nýsköpun í bók-
menntum, byggingarlist, mynd-
list og tónlist, allt birtist þetta af
miklum krafti í Birtingi.
En fyrst og fremst minnumst
við Thors sem listfengs sagna-
skálds, eins hinna fremstu á Ís-
landi. Hann var engum líkur, fór
sínar eigin leiðir í skáldskap,
fjarri hefðum, og mætti þess-
vegna mikilli andstöðu framanaf.
En hann hélt sinni stefnu, hvað
sem á bjátaði, og vann loks sigur
og almenna viðurkenningu fyrir
aldarfjórðungi. Þá hafði hann
sent frá sér sögulega skáldsögu,
Grámosinn glóir, sem gerðist á
Íslandi öld áður, mannlíf 19. ald-
ar varð þar óvenjulifandi og ná-
komið í ljóðrænum myndum.
Fyrri sögur hans gerðust í Suð-
ur-Evrópu, sem hann var
nákunnugur, einnig þær halda
varanlegum áhrifum. En alla tíð
einkenndust sögur hans af mjög
myndrænni framsetningu, um-
hverfi og persónur voru skynj-
anlegar. Svo réðst hann gegn
sagnahefðinni og væntingum les-
enda með því að stöðva sögugang
með ítarlegum lýsingum, persón-
ur voru nafnlausar, hverfðust ein
í aðra. Söm voru einkenni sagna
hans, hvert sem sögusviðið var.
Hann lýsti róstusömu og nötur-
legu næturlífi Reykjavíkur sam-
tímans í Náttvíg, Sturlungaöld í
síðustu sögum sínum, ýmist var
hann meinhæðinn í skopstæling-
um eða birti látlausa fegurð, en
ávallt með vönduðum stíl, sem
greip lesendur og hélt föstum.
Ég lýsti nokkrum sögum hans í
bók minni Kóralforspil hafsins
(1992) og vil því ekki orðlengja
hér. Aðrir verða til að rekja feril
Thors. Ég var svo heppinn að
kynnast Thor persónulega, og
naut skemmtilegra viðræðna og
mikils fróðleiks hans um bók-
menntir og menningu. Ógleym-
anlegar verða mér einnig ræður
hans, þar sem hann fór um víðan
völl af miklu andríki, sem engin
bönd héldu.
Örn Ólafsson, Árnasafni,
Kaupmannahöfn.
„Enginn maður er eyland“ orti
skáldið John Donne og mátti til
sanns vegar færa um Thor: hann
var heimur. Sem hringsnerist
eftir eigin lögmálum og ástríðum
og ártíðum. Undri var það líkast
hve hann eins og færðist í aukana
eftir því sem lækkaði í stunda-
glasinu og síðasta spölinn var
hann bókstaflega allsstaðar.
Hvarvetna blasti við hið ægi-
fagra höfuð hans eða signatúra
yfir hálfa síðu í gestabók.
Myndavélarnar drógust að hon-
um eins og flugur að ljósi, en líka
var fróðlegt að ganga með hon-
um um borgarstræti erlendis og
sjá augu ókunnra leita hann uppi
líka þar. „Þetta er einhver sem
ég á að þekkja.“
Sjómennska var honum ein-
kennilega í blóð borin, ekki nóg
með að hann stigi ölduna þegar
hann gekk um malbikuð strætin,
„að standa vaktina“ var orðtak
honum tamt og mannlífið virtist
hann helst skynja sem bátsferð
þar sem allir verða að leggjast á
árar til að ná höfn. Honum var
ástríða að verða að liði og naut
sín við aðstæður þar sem því varð
við komið. Dæmigert hvernig
hann sprakk út í hamfaragosinu í
Vestmannaeyjum árið 1973 þar
sem menn lögðu nótt við dag við
björgunarstörf af ástríðu sem
Thor þótti falla á þegar tekið var
að meta störfin til launa og
skipuleggja sem slík.
Lýsandi var vetrarferð Thors
fyrir aðeins tveimur árum norður
á Strandir til að liðsinna ungu
kvikmyndagerðarfólki við töku á
myndskeiði. Veður voru válynd
og á einum stað áttu menn í baksi
við að hemja bát við bryggju og
ekki að sökum að spyrja að Thor
var óðara hlaupinn úr hópi lista-
fólksins til hjálparstarfa.
Ógleymanleg er stundin frá
því í vetur þegar Thor tók við
heiðursdoktorsnafnbót frá Há-
skóla Íslands ásamt Álfrúnu og
Matthíasi. Þakkarorð sín hóf
hann á áminningu til rithöfunda
um að kunna að þegja og laut því
næst höfði, margir héldu að máli
hans væri þar með lokið og ætl-
uðu að taka til við lófatak. En þá
reisti hann makkann og byrjaði
blaðlausan spuna sem þyrlaði
myndum, hrifum og kímni um
bergnuminn salinn.
Nærvera Thors í lífi okkar
gerir að verkum að við fráfall
hans er eins og kafla sé lokið eða
þráður dreginn út úr okkar eigin
ævi. En minnumst þá orða Johns
Donne á öðrum stað í hugleiðing-
unni frægu sem vitnað var til í
upphafi þessa máls: „Þegar einn
maður deyr er ekki kafla svipt
burt úr bókinni heldur snúið á
betra mál.“ Og nú bíður verka
Thors að vera snúið á „betra
mál“ framtíðar. Verka sem iðu-
lega fela heilt ljóð í einum saman
titlinum: „Skuggar af skýjum“,
„Snöggfærðar sýnir“, „Morgun-
þula í stráum“ …
Það var lygilegt happ að Er-
lendur Sveinsson skyldi ná að
kvikmynda nýfarna göngu Thors
um Jakobsveginn til Compostella
á Spáni. Þar er Thor svo rétt
lýst, ferðalanginum með augun
fránu sem allt leitast við að
nema, umlukinn heiminum róm-
anska sem honum var ástríða.
Margir vegvísar á þeirri ferð
aukast nú að merkingu og líf
Thors tekur á sig mynd píla-
grímsgöngu með mörgum áföng-
um og langþráðum áfangastað í
vændum.
Pétur Gunnarsson.
Rétt eins og bækur Thors
munu lifa þá mun minningin um
litríka og stórbrotna persónu
gera það líka; það mætti hæglega
safna saman andríkum mönnum
og eiga margar góðar stundir við
að tala um hann og segja af hon-
um sögur. Og honum myndi ekki
þykja síður gaman en öðrum. Ég
var nokkrum sinnum fenginn til
þess við merkistilefni að hafa um
hann nokkur orð eða kynna og ég
vissi að hann vildi enga mærð,
enda var hann lifandi og virkur
og logandi af fjöri allt til hinsta
dags; helgimyndaklastur hefði
ekki átt við hann. Og jafnan var
hann örlátur á hrós, á borð við:
„Jaá, Einar minn, þú ert nú alltaf
svo vaskur.“ En það var aldrei
neitt einfalt í máli Thors og líka
hrós frá honum gat verið
skemmtilega tvírætt, jafnvel því
meir sem tilefnið var minna; ég
rifjaði upp sögu á dagskrá hon-
um til heiðurs í Norræna húsinu
fyrir fáum árum um það er við
Tolli listmálari heimsóttum þau
Thor og Margréti í litla þakíbúð í
fallegu húsi þar sem þau dvöld-
ust um hríð í útjaðri Berlínar. Ég
spurði hvort hér væri ekki gott
að vera og því samsinnti Thor,
nema hann sagði að það væri
ólag á ofninum þarna við
gluggann, hann fengist ekki til að
hitna; væri þó Thor búinn að
snúa og smella tökkum á alla
mögulega vegu. Ég leit á gripinn
og sýndist í fljótu bragði þetta
vera venjulegur pottofn fyrir
heitt vatn, en sá þó liggja frá
honum rafmagnssnúru. Og mikið
rétt, ég stakk í samband og allt
varð funheitt að bragði. Og Thor
ætlaði aldrei að hætta að hrósa
mér fyrir þetta galdraverk; hví-
líkur þúsundþjalasmiður ég væri.
„Það leikur allt í höndunum á þér
vinur. Sama um hvað þú vélar.“
Það var sífellt ævintýri að vera
samvistum við hann. Heyra sög-
urnar, orðkynngina, hugmynda-
flugið. Allar sögurnar um Thor
lýsa ákafamanni, trölli í öllum
sínum tiltektum, glaðværum og
fyndnum; tryggum sínum vinum
en harðdrægur fjandmönnum;
þær segja sögur af manni sem
gat verið erfiður, þrjóskur og
fyrirferðarmikill, en aldrei lítil-
mótlegur, aldrei smár í sniðum,
undirförull eða óhreinn. Við
Hildur hittum hann síðast
helgina áður en hann kvaddi, þau
Margrét bæði glöð og brosandi,
enda vorum við á útskriftartón-
leikum sonardóttur þeirra, og
svona mun maður minnast
Thors; með stórt bros fullt af
gleði og hlýju, leikandi á als oddi
innanum vinina og ættingjana,
allt sitt fólk; ef hugtökin skarð
fyrir skildi og sjónarsviptir hafa
einhverntíma átt við, þá er það
nú.
Einar Kárason.
Þegar hið mikla tóm varð til
við andlát Thors Vilhjálmssonar
og vaxandi ómur hljómmikils
anda hans tók samstundis til við
að fylla út í þetta tóm, „þá var
eins og ég heyrði þessa rödd“
lesa þennan texta af blöðum
Sveigs, síðustu skáldsögu jöfurs-
ins, þar sem segir:
„Þó stóð allt áfram kyrrt fyrir
sjónum hans. Einsog heimurinn
hefði allur náð að staðfesta
draum, fullnað sem ekki liði frá,
varanlega skipan. Var það þessu
líkt að deyja? Var það þessu líkt
að komast til Guðdómsins og öðl-
ast eilífa náð?“
Með þessum texta hefst þriðji
hluti kvikmyndar okkar um lífs-
gönguna miklu: „Gengið til
orða“. Mér varð hugsað til píla-
grímanna, sem höfðu kynnst
orðasmiðnum á veginum til hl.
Jakobs og gerðu sér vonir um
endurfundi, þegar kvikmynda-
bálkurinn um ferðina yrði tilbú-
inn. Ég hlaut að færa þeim þessa
harmafregn að Thor væri allur.
En með hvaða orðum? Í þeirri
spurn staðnæmdist hugur minn
við síðustu klukkustundirnar á
lífsvegi Thors. Skrifaði þeim að
hann hefði verið að ganga frá við-
skiptum vegna birtingar ljóðs
eftir sig erlendis fyrr um daginn.
Hann hefði síðan farið í Kvik-
myndasafn Íslands um kvöldið að
sjá meistaraverk Sergei Eisen-
steins, Ivan grimma. Þar bar
fundum okkar saman. Þó svo
Thor hefði ekki tölu á því, hve oft
hann hefði séð myndina var hann
upptendraður að sýningu lokinni.
Hrifnæmi var snar þáttur í per-
sónu hans, síkvik, síung og smit-
andi. Og hún nærðist á þekkingu
og afburðaminni sem nú varð til-
efni frásagna á leiðinni út úr
bíóinu. Á gangstéttinni fyrir utan
réðum við ráðum okkar því við
höfðum verið að áforma viðbót-
arinnlestur upp úr Sveig fyrir
„Gengið til orða“. Hann sagðist
vera upptekinn næsta dag og ég
næstu tvo þar á eftir. Við
ákváðum því að upptakan yrði í
byrjun næstu viku. Lögmálið,
sem segir að við ráðum ekki
framtíðinni, var okkur víðsfjarri.
En nú var stutt í endalokin,
kannski tvær klukkustundir. Áð-
ur en við kvöddumst greindi
hann mér frá hrunsflækjum í
bankanum fyrr um daginn við að
geta fengið greitt fyrir birtingu
ljóðsins. Það eimdi eftir af hugar-
angri hjá þessum tilfinningaríka
manni eftir þessi viðskipti: „Það
er ekkert pláss fyrir andríki í nú-
tímanum,“ sagði hann og leit á
klukkuna sem vantaði 20 mínút-
ur í tíu. Hann sá fram á að hann
næði í ræktina þar sem hann
gæti hrist af sér óyndið fyrir
næturvinnuna framundan, texta-
smíði eða myndlistariðkun. Hann
myndi ná þangað fyrir lokun. Þar
með skildi leiðir.
Það varð ekkert af næturvinn-
unni. Heilsuræktin varð hans
endastöð. En þessi grand finale
endurspeglar myndina af Thor
Vilhjálmssyni. Engin eftirgjöf í
stíl, hvorki í lífi né dauða, fremur
en í texta sem lifir dauðann af.
Kvatt á fleygiferð á 86. aldursári.
Við Ásdís og fjölskyldan öll
sendum Margréti og fjölskyldu
Thors okkar dýpstu samúðar-
kveðjur. Við vitum að harmur
barnabarnanna er mikill, Thor
var þannig afi. Það fundu barna-
börnin okkar, Fidel og Daníel,
þeir áttu við hann stefnumót,
sem ekki verður af. En þá er að
minnast orða í svari pílagrímsins
Mick Casale: „Thor mun alltaf
verða á meðal okkar.“
Erlendur Sveinsson.
Á unglingsárum mínum las ég
fyrstu bók Thors, Maðurinn er
alltaf einn, og varð fyrir mikilli
uppljómun. Bókin var ólík öllu
því sem ég hafði áður lesið, fram-
setning og yfirbragð bar með sér
nýstárleg, framandi áhrif frá
stóru löndunum. Með fylgdu
myndir, skissur eftir Thor.
Hrifning mín á ritlist hans hefur
fylgt mér æ síðan. Hann er mátt-
arstólpi í okkar löngu, viðburða-
ríku, bókmenntasögu eins og Eg-
ill, Snorri, Eysteinn munkur,
Hallgrímur, Jónas, Einar Ben.,
Halldór og nokkrir aðrir. Thor er
stundum orðmargur, frásagnar-
mátinn þá straumþungur og
hægstreyminn. Hann getur því
verið seinlesinn, en við endurtek-
inn, eða margendurtekinn lestur,
uppljúkast snilldartaktar Thors
þeim sem beita skilningarvitum
sínum og næmleika til hins ýtr-
asta.
Manni þykir þeim mun vænna
um fúgur Bachs og strengjakvar-
tetta Beethovens eftir því sem
maður kynnist þeim betur. Þetta
er einkenni mikillar listar, og
þetta á við um verk Thors. Mér
fannst oft að Thor væri barokk-
maður í margbreytileika sínum.
Bækur hans eru ótrúlega fjöl-
breyttar. Þar skiptist á alvara,
spaug, farsi og gráglettni, sorg
og gleði. Öll stílbrigði tungunnar
og bókmenntanna leika í höndum
Thors. Hann var líka tungumála-
maður góður og frábær þýðandi.
Á löngum, litríkum listamanns-
ferli gerði Thor aldrei neina
málamiðlun við meðalmennsk-
una, hvort sem hún var héðan
komin eða erlendis frá.
Hann hlýddi alltaf rödd hjart-
ans, kunni að þroska meðfædda
hæfileika sína, lifði fyrir list sína
og með henni; því hann var sann-
ur og heill í listsköpun sinni.
Atli Heimir Sveinsson.
Við Thor hittumst í fyrstu
heimsókn minni til Íslands sum-
arið 1971. Þá grunaði mig ekki að
Ísland ætti eftir að verða annað
föðurland mitt og að ég myndi
setjast hér að.
Strax í þessari fyrstu heim-
sókn eignaðist ég góða vini meðal
íslenskra rithöfunda. Einar
Bragi kynnti mig fyrir Thor Vil-
hjálmssyni. Þá var innsiglaður
ævilangur vinasáttmáli okkar
þriggja. Síðan kom ég til Íslands
á hverju ári til að hitta vini mína
og njóta íslenskra bókmennta.
Thor heillaði mig frá fyrstu
stund. Það var undravert hvað
hann átti jafn traustar rætur í ís-
lenskri hefð, menningu og nátt-
úru – og evrópskri menningu,
bæði klassískum bókmenntum og
módernisma. Það var einmitt á
mörkum þess þjóðlega og alþjóð-
lega sem skáldskapur Thors varð
til. Ein af bókum hans hafði strax
mikil áhrif á mig: „Fljótt, fljótt
sagði fuglinn“. Aldrei fyrr hafði
ég lesið nokkuð þessu líkt. Bókin
sleppti ekki af mér takinu og ég
byrjaði að þýða hana án þess að
hafa gert samning um útgáfu.
Thor hvatti mig áfram og ég lauk
verkinu „con amore“. Útgefandi
fannst og þannig varð Thor, góðu
heilli, þekktur í Noregi áður en
hann fékk verðskulduð bók-
menntaverðlaun Norðurlanda.
Einn góðan veðurdag 1980
sátum við heima hjá honum. Það
barst í tal að ég myndi taka þátt í
mikilli dagskrá í Niðarósdóm-
kirkju um Lilju Eysteins Ás-
grímssonar þá um sumarið og ég
minntist á að í þessari dagskrá
yrði líka einhver „íslensk söng-
dama“. „Sem heitir?“ spyr „ma-
Morgunblaðið/Sverrir
Thor Vilhjámsson ásamt Nóbelskáldinu Halldóri Laxness.