Morgunblaðið - 11.03.2011, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011
✝ Sigríður Frið-riksdóttir
fæddist að Rauð-
hálsi í Mýrdal 3.
júlí 1908. Hún lést
á Hrafnistu í
Reykjavík 28. febr-
úar 2011.
Á Rauðhálsi var
hún til 8 ára ald-
urs. Þá missti hún
föður sinn og fjöl-
skyldan tvístraðist,
en hún fór þá til Vest-
mannaeyja til Jennýjar Guð-
mundsdóttur og Jóns Guð-
mundssonar á Mosfelli.
Foreldrar hennar voru Þór-
unn Oddsdóttir frá Pétursey, f.
5. júlí 1875, d. 23. júlí 1959 og
Friðrik Vigfússon frá Sól-
heimum, f. 17.nóvember 1871,
d. 13. nóvember 1916. Systkini
Sigríðar, sem komust á legg
voru Vigfús f. 1897, d. 1918.
Sigurður f. 1898, d. 1980. Þor-
bergur f .1899, d. 1941. Þórunn
f. 1901, d. 1972. Ragnhildur f.
1902, d. 1977.Oddsteinn f. 1903,
d. 1987. Árþóra f. 1904, d. 1990.
Högni f. 1907, d. 1929. Kristín f.
1910, d. 2009. Ólafur f. 1911, d.
1984. Ragnheiður f. 1912, d.
1984. Þórhallur f. 1913, d. 1999
og Þórhalla f. 1915, d. 1999.
Sigríður giftist árið 1929
Halldóri Elíasi Halldórssyni frá
Sjónarhóli á Stokkseyri, sem
lést 8. október 1975. Kjörsonur
þeirra er Jón Berg
Halldórsson f. 1.
júlí 1935. Eig-
inkona hans er
Helga Sigurgeirs-
dóttir f. 24. nóv-
ember 1936. Börn-
in eru Guðmundur,
hann á þrjá syni.
Halldór Berg,
kvæntur Áslaugu
Hrönn Helgadóttir
og eiga þau tvo
syni og eina dóttur, Sigurbjörg,
gift Jóhannesi G. Helgasyni og
eiga þau tvo syni og eina dótt-
ur, og Ólafur Þór, kvæntur
Guðrúnu Guðmundsdóttur og
eiga þau eina dóttur og einn
son. Barnabörnin eru 11 og
barnabarnabörnin 3.
Sigríður og Halldór reistu
sér hús árið 1942 að Helgafells-
braut 23 í Vestmannaeyjum og
bjuggu þar til 1972 er gosið
hófst, en þá fluttu þau til
Reykjavíkur og keyptu íbúð að
Efstalandi 14 og bjó hún þar til
95 ára aldurs að hún ákvað að
fara á Hrafnistu í Reykjavík,
þar sem hún lést 28. febrúar
2011. Hún starfaði í frysti-
húsum í yfir 40 ár og lengst af
sem verkstjóri
Útför Sigríðar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 11. mars
2011, og hefst athöfnin kl. 13.
Jarðsett verður í Fossvogs-
kirkjugarði.
Elskuleg tengdamóðir mín,
Sigríður Friðriksdóttir, hefur nú
kvatt þennan heim eftir langa
ævi. Ég kynntist henni fyrst þeg-
ar ég fluttist til Eyja og við Jón
sonur hennar hófum búskap á
neðri hæðinni í húsi þeirra hjóna
Sigríðar og Halldórs að Helga-
fellsbraut 23. Þarna bjuggum við
næstu fjögur árin á meðan hús
okkar var í byggingu. Ég komst
fljótt að því að þarna fór kröftug
og ákveðin kona sem sagði álit
sitt umbúðalaust, en um leið
hjálpsöm og tillitssöm með af-
brigðum. Oft sagði hún við mig
þegar hún kom heim úr vinnu,
farðu nú út í heimsókn, ég skal
passa börnin.
Hún vann í frystihúsum alla
starfsævi sína og sem verkstjóri
lengst af. Maður getur ekki skilið
hvenær hún hafði tíma til að gera
alla þá handavinnu sem hún
gerði, en eftir hana liggja saum-
aðar og flosaðar myndir, auk
heklaðra dúka og allskyns fínnar
handavinnu. Hún var mjög jafn-
réttissinnuð og barðist fyrir
sama kaupi fyrir sömu störf,
enda náði hún því sjálf á fjórða
áratugnum. Hún og Halldór eig-
inmaður hennar lifðu í hamingju-
ríku hjónabandi, þar sem ríkti
samheldni og ást og umhyggja,
en Halldór lést árið 1975.
Sigríður var mikil Eyjakona
og sá mikið eftir Eyjunum en
þau fluttu þaðan í Vestmanna-
eyjagosinu 1973 og áttu þangað
ekki afturkvæmt. Hún bjó að
Efstalandi 14 frá 1974 og sá um
sig sjálf til 95 ára aldurs en þá
vildi hún fara á Hrafnistu í
Reykjavík þar sem hún lést 28.
febrúar 2011.
Ég vil í þessum fáu orðum
kveðja ástkæra tengdamóður og
hafi hún þakkir fyrir allt það sem
hún var mér og okkur öllum.
Megir þú hvíla í guðsfriði.
Helga Sigurgeirsdóttir.
Sigríður, sem við kveðjum í
dag, var föðursystir mín og
uppáhaldsfrænka. Hún var líka
elskuð mágkona móður minnar.
Hún var glæsileg skartkona og
fyrsta konan sem ég heyrði um
að hefði karlmannskaup. Hún
vann í frystihúsi í um 40 ár, þar
af var hún verkstjóri í 14 ár. Sig-
ríður fæddist á Rauðhálsi í Mýr-
dal, níunda af fjórtán systkinum
sem upp komust, en foreldrar
hennar eignuðust sautján börn.
Eftir lát föður Sigríðar 1916 var
henni komið í fóstur til Vest-
mannaeyja. Hjá fósturforeldrum
sínum á Mosfelli átti Sigríður
heimili þar til hún giftist Halldóri
Halldórssyni 1929. Þau hjónin
eignuðust einn son, kjörsoninn
Jón Berg. Á heimilinu var líka
móðir Sigríðar, Þórunn Odds-
dóttir, síðustu tuttugu æviár sín.
Það sem gerði Sigríði svo eft-
irminnilega var atorka hennar,
hjálpsemi og tryggð. Þessi glæsi-
lega kona, sem vann við fiskverk-
un í áratugi, bjó fjölskyldu sinni
fallegt og hlýlegt heimili. Hún
ræktaði blóm, kartöflur og aðrar
matjurtir og var mikil hannyrða-
kona, heklaði fína dúka og saum-
aði út myndir og veggteppi. Hve-
nær hún hafði tíma til þessa er
undrunarefni því vinnutíminn í
frystihúsinu var oft mjög langur.
Fram á síðustu ár hafði Sigríður
brennandi áhuga á þjóðfélags-
málum og fylgdist með pólitísk-
um umræðum af áhuga.
Margt breyttist við eldgosið í
Vestmannaeyjum 1973. Eftir það
settust þau hjónin að í Reykja-
vík. Fljótlega eftir komuna til
Reykjavíkur var Sigríður farin
að vinna í frystihúsi hjá Ísfélag-
inu. Þegar félagið flutti starfsemi
sína út í Eyjar var Sigríður beðin
að koma með. Hún sló til og fór
aftur til starfa í Vestmannaeyj-
um. Halldór maður hennar, sem
var orðinn heilsuveill, var eftir í
Reykjavík en Sigríður fór á milli
eftir því sem vinnan leyfði. Eftir
að Halldór lést 1975 var viðvera
Sigríðar í Eyjum meiri. Þar bjó
hún, kona hátt á sjötugsaldri, í
verbúð og að eigin sögn fór
ósköp vel um hana. Þannig hafði
hún þetta í fimm ár eða þar til
hún hætti að vinna 71 árs að
aldri. Mér fannst það stórmerki-
legt að þessi fullorðna kona gæti
og yndi því vel að búa í verbúð.
Þannig var hún þessi frænka
mín, hún æðraðist, en saknaði
Vestmannaeyjanna ætíð og lífs-
ins sem þar var lifað fyrir gos.
Það starf sem hún kunni og
kunni vel var að vinna í frystihúsi
og því starfi hélt hún áfram
starfsævina á enda.
Eftir að Sigríður hætti að
vinna bjó hún ein við rausn og
myndarskap í íbúð sinni og naut
þar aðstoðar Jóns Bergs sonar
síns og konu hans. En engan veit
ég betri son en Jón Berg. Þegar
ég dáðist að því við frænku mína
hve einstaklega umhyggjusamur
og góður sonur Jón væri, þá
sagði hún gjarnan: „Já, hann
Nonni minn er góður, en ekki er
hún Helga síðri!“ Þegar Sigríður
var orðin 95 ára fór hún á Hrafn-
istu í Reykjavík. Þar undi hún
sér vel og rómaði ætíð aðbúnað
og alúð starfsfólksins. Að lokinni
langri ævi frænku minnar er mér
efst í huga þakklæti fyrir ára-
tuga vináttu og væntumþykju.
Að síðustu sendi ég mínum kæra
frænda, Jóni Berg, og konu hans
Helgu innilegar kveðjur.
Auður Þorbergsdóttir.
Sigríður
Friðriksdóttir
✝ Snorri Gíslasonfæddist í
Reykjavík 4. janúar
1934. Hann lést á
Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi 2.
mars sl.
Foreldrar
Snorra voru Krist-
jana Jónsdóttir, f.
26.10. 1908 og Gísli
V. Guðlaugsson, f.
16.1. 1905.
Systkini hans eru: Guð-
laugur, Anna, Þorleifur og
Una.
Snorri kvæntist Emilíu
L’Orange árið 1958. Þau
skildu. Börn þeirra eru: 1)
Anna Stella, f. 23.8. 1958.
Maður hennar er
Þórður C. Þórð-
arson. Dóttir
hennar frá fyrra
hjónabandi er
Emilíana Torr-
ini. 2) Áki, f.
20.5. 1961. Börn
hans eru: Snorri
Freyr, Álfheiður
Stella og Emil.
3) Una, f. 8.3.
1964. Maður
hennar er Pétur Sveinsson.
Synir þeirra eru Sveinn Rún-
ar og Daníel Árni. Barnabörn-
in eru þrjú.
Útför Snorra fer fram frá
Laugarneskirkju í dag, 11.
mars 2011, kl. 11.
Okkur systurnar langar að
minnast með örfáum orðum
Snorra bróður okkar, sem lést
eftir stutta en erfiða legu á
lungnadeild Borgarspítalans 2.
mars sl.
Snorri var elstur okkar systk-
inanna sem ólumst upp á Laug-
arnesvegi 57, en þar var mið-
punktur stórfjölskyldunnar og
alltaf opið hús fyrir vini og vanda-
menn. Hann var lífsglaður og vin-
margur á sínum yngri árum og
hafði gaman af að skemmta sér.
Allt sem viðkom bílum og tækjum
vakti áhuga hans og þær voru ófá-
ar stundirnar sem hann eyddi í að
þrífa og nostra við bílana sína.
Hugurinn reikar aftur í tímann
þegar við systurnar voru litlar og
stóri bróðir var í millilandasigl-
ingum. Það var mikill spenningur
hjá okkur þegar von var á honum í
land, því alltaf kom hann færandi
hendi. Eitt skiptið hafði hann
meðferðis stóra skjaldböku, en
þær voru afskaplega sjaldséð dýr
hérlendis og mörg manneskjan
rak upp stór augu þegar „Blaka“,
en það var hún alltaf kölluð, sil-
aðist um í garðinum við húsið okk-
ar.
Snorri átti við langvarandi
veikindi að stríða, sem ágerðust
með árunum. Það var honum
mjög erfitt þegar mátturinn í
höndunum fór sífellt þverrandi og
hann hætti að geta bjargað sér
sjálfur með ýmsa hluti, en það var
alveg ótrúlegt hvað hann var út-
sjónarsamur og þrautseigjan mik-
il. Þar hafði sitt að segja hvað
hann var í verunni mikið snyrti-
menni.
Nú þegar komið er að leiðar-
lokum viljum við þakka fyrir þann
tíma sem við áttum saman. Bless-
uð sé minning Snorra bróður okk-
ar.
Una og Anna.
Þegar systir Snorra Gíslasonar
hringdi í mig og tilkynnti mér að
bróðir sinn, Snorri, væri látinn,
kom mér til hugar sannleikskorn-
ið sem er það að við eigum aldrei
morgundaginn vísan.
Þegar maður stendur á landa-
mærum lífs og dauða skynjar
maður betur hvað uppspretta lífs-
ins, svo og dauðinn er mikið undur
og okkar mannanna börnum lítt
skiljanlegt.
Ég kynntist Snorra fyrir
nokkrum áratugum. Þau kynni
urðu að vináttuböndum sem
hvorki trosnuðu né brustu þar til
kallið kom. Snorri var fyrir marga
hluti sérstakur maður; vel gefinn,
ljúfur í viðkynningu, áberandi
orðvar, hallaði aldrei orði á nokk-
urn mann, svo að sómi var að,
glaðlyndur, orðheldinn og sam-
viskusamur, sannleikurinn var
hans gull.
Í æsku varð Snorri fyrir því
óláni að slasast illa í umferðar-
slysi, sem varð þess valdandi að
hann hélt ekki fullum líkamsstyrk
eftir það. Þann kross bar Snorri af
karlmennsku til æviloka.
Fyrir einu ári fékk Snorri heift-
arlega lungnabólgu, frá þeim tíma
hefur hann barist fyrir bata, en
varð að lokum að lúta í lægra haldi
fyrir kallinu, sem okkur öllum er
ætlað. Í baráttu sinni við veikindin
hélt Snorri fast í vonina um bata
og horfði glaðbeittur til vorsins,
vorsins með meiri birtu og yl, en
kallið kom.
Ekki stóð Snorri einn og
óstuddur í veikindum sínum, þar
komu að líknandi hendur systra
hans, það var aðdáunarvert að
fylgjast með þeim kærleika, ástúð
og umhyggju sem þær sýndu
bróður sínum í veikindum hans.
Ég þóttist skynja að systkinahóp-
urinn, en þau voru fimm, hefði al-
ist upp í umhyggju og kærleika
góðra foreldra og þessi mikla um-
hyggja systra hans væri ávöxtur
uppeldisins, hver getur óskað sér
betri vöggugjafar en góðra for-
eldra? Alla þessa umhyggju
systra sinna kunni Snorri vel að
meta og þakka.
Snorri hefur nú lokið dagsverki
sínu með sóma, sáttur við Guð og
menn. Leiðir skiljast um stund.
Því kveð ég góðan vin ,Snorra
Gíslason, hinstu kveðju, góðar
minningar lifa. Ég trúi því og
treysti að góður Guð leiði góðan
dreng til meiri birtu á þeirri eilífð-
arbraut sem framundan er.
Börnum, barnabörnum og
systkinum Snorra, öllum ættingj-
um og vinum hans sendi ég mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Hafsteinn Sveinsson.
Snorri
Gíslason
Kveðja.
Svo viðkvæmt er lífið sem
vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann
allsherjardóm
Guðrún
Eyjólfsdóttir
✝ Guðrún Eyjólfs-dóttir fæddist
11. maí 1923 á Hofi í
Öræfum. Hún lést
28. febrúar 2011.
Foreldrar hennar
voru Eyjólfur Eyj-
ólfsson og Guðlaug
Oddsdóttir.
Systir Guðrúnar
er Þuríður Eyjólfs-
dóttir.
Útför fer fram frá
Áskirkju í dag, föstudaginn 11.
mars 2011 kl. 13.
sem ævina telur í
dögum.
Við áttum hér saman
svo indæla stund
sem aldrei mér
hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á
guðanna fund
það geislar af
minningu þinni.
(Friðrik
Steingrímsson.)
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Jónína Sigurbjörg og Páll,
Sigríður og Sigurjón.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Beagle-hvolpar til sölu
Hreinræktaðir Beagle-hvolpar til
sölu. Leita eftir góðum heimilum.
Verða tilbúnir til afhendingar ca.
15. mars nk. og verða afhentir með
örmerkingu, HRFÍ-ættbók og heilsu-
farsbók ásamt gjafapakka. Nánari
uppl. í síma 862 1304.
Hljóðfæri
Píanó óskast
Mjög vandað píanó óskast.
Sími 866 6970, Irina.
Húsnæði óskast
3ja herb. íbúð óskast á leigu
helst í Ytri-Njarðvík. Hámark 75 þús.
á mánuði. Er með kött.
Upplýsingar í síma 695 0673.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Til sölu
STIGA borðtennisborð
Ný sending.
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
s. 568 3920.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Skattframtöl
Framtöl - bókhald - ársreikningar
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga
og rekstraraðila. Mikil reynsla. Einnig
bókhald, ársreikn. o.fl. fyrir fyrirtæki.
HAGSTÆTT VERÐ. S. 517-3977.
www.fob.is
Þjónusta
ERFÐASKRÁR
Ég, Hilmar Þorsteinsson, meistara-
nemi í lögfræði, tek að mér
samningu erfðaskráa, þannig að
öllum lagaskilyrðum sé fullnægt.
Hóflegt verð — persónuleg
þjónusta. Sími: 696 8442,
netfang: hth56@hi.is
Bílar aukahlutir
Pall-lok á ameríska pickupa
Á lager pall-lok frá www.undercover-
info.com - þetta eru sterk og létt lok
sem gefa pallbílnum aukið notagildi
og minnkar eyðslu.
Uppl. Frank, sími 844 5222.
Bílaþjónusta