Morgunblaðið - 11.03.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.03.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2011 Forráðamenn The Natural Hi- story Museum í Bretlandi hafa ákveðið að skila jarðneskum leif- um 138 karla og kvenna heim til Torres Strait- eyjanna norðan við Ástralíu. Bein og lík- amsleifar íbúa ýmissa fjarlægra landa er að finna í breskum söfnum, en aldrei fyrr hefur svo mörgum verið skilað. „Þetta er fólkið okkar og það er að koma heim – það er stórkost- legt,“ hefur The Guardian eftir talsmanni íbúanna. Til að vottta hinum látnu virð- ingu ákvað safnið að leyfa engar myndatökur af beinunum sem hafa flest verið í Bretlandi síðan um miðja 19. öld. Sum voru minjagripir sjómanna en breskur læknir safn- aði stórum hluta þeirra. Beinum 138 eyjarskeggja skilað heim Ein Torres Strait-eyjanna. Sýning Íslensku óperunnar, Svanasöngur, þar sem einum af rómuðum ljóða- flokkum Schu- berts er fléttað saman við nú- tímadans, verður færð upp í menn- ingarhúsinu Hofi á Akureyri í kvöld, föstudag, klukkan 20. Sýningin var frumsýnd í Íslensku óperunni í febrúar og fékk einróma lof gagnrýnenda. Þetta er í fyrsta sinn sem Ís- lenska óperan færir upp sýningu í Hofi. Nýbakaðir handhafar Íslensku tónlistarverðlaunanna, Ágúst Ólafsson barítónsöngvari og Gerrit Schuil píanóleikari flytja verkið með fulltingi Láru Stefánsdóttur dansara. Bandaríski danshöfund- urinn Kennet Oberly annaðist hina nýstárlegu sviðsetningu. Óperan sýnir Svanasöng í Hofi í kvöld Frá sýningu á Svanasöng. Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í þriðja sinn upp á sameiginlega dagskrá nú um helgina. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni og fjöl- breytt dagskrá. Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis. Fulltrúar allra sveitarfélag- anna fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameig- inlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verk- efnið stutt af menningarráði Suðurnesja. Dagskrá safnahelgarinnar má sjá á vefnum safnahelgi.is og kennir þar ýmissa grasa. Söfn Safnahelgi á Suðurnesjum Úr Listasafni Reykjanesbæjar. Danuta Szostak, ræðismaður Póllands á Íslandi, mun opna sýninguna IS(not) - (EI)land í Listasafni Árnesinga á morg- un, laugardag kl. 14. Hluti sýn- ingarinnar verður síðan opn- aður í Gerðubergi í Reykjavík kl. 16 sama dag. Á sýningunni má sjá afrakst- ur úr ferðalögum fimm marg- verðlaunaðra pólskra ljós- myndara og fimm íslenskra rithöfunda sem ferðuðust í pörum um Ísland á síð- asta ári. Á sunnudaginn kl. 16 verður boðið upp á sýn- ingarspjall með þátttöku sex af listamönnunum, pólskra og íslenskra. Myndlist (EI)land í Lista- safni Árnesinga Hluti verks á sýningunni. Á morgun, laugardag klukkan 15, verður opnuð í Listasafni Ísafjarðar sýningin Sögustaðir - Í fótspor W.G. Collingwoods með ljósmyndum sem Einar Falur Ingólfsson tók með hlið- sjón af vatnslitamyndum sem William Gershom Collingwood málaði hér á landi sumarið 1897. Sýningin var áður í Boga- sal Þjóðminjasafns Íslands og vakti mikla athygli. Á sýningunni má sjá valdar ljósmyndir Einars Fals og eftirtökur verka Collingwoods. Einar Falur mun vera með leiðsögn um sýn- inguna á opnuninni. Sýningin er í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Myndlist Sýningin Sögu- staðir á Ísafirði William Gershom Collingwood. Vöktun er heiti sýningar myndlist- armannanna Katrínar Elvarsdóttur og Péturs Thomsen sem verður opn- uð í Listasafninu á Akureyri á morg- un, laugardag, klukkan 15. Þau vinna bæði með ljósmynda- miðilinn og hafa á síðustu árum vak- ið umtalsverða athygli fyrir verk sín; Pétur meðal annars fyrir myndröð sína frá byggingu Kárahnjúkavirkj- un og af byggingarsvæðum í jaðri höfuðborgarsvæðisins, og Katrín fyrir innhverfa og ljóðræna mynd- heima eins og birtast í myndröðum hennar Margsaga og Hvergiland, sem hún sýnir á Akureyri. „Þessar myndraðir birtast hér á annan hátt en á fyrri sýningum mín- um, því ég blanda þeim nokkuð sam- an,“ sagði Katrín í gær þegar þau voru að hengja verkin upp. Þau Pétur sýna um 30 verk hvort. „Mér finnast verkin okkar virka vel saman hér, í rauninni mun betur en ég bjóst við,“ sagði hún. Í grein eftir Sigrúnu Sigurðar- dóttur í sýningarskránni segir að þrátt fyrir að myndefnin séu við fyrstu sýn ólík, og þar með tilgangur listamannanna, „eiga þau Pétur og Katrín það sameiginlegt að snerta veruleikann undur varlega í verkum sínum“. Gott yfirlit yfir verk þeirra Um ljósmyndir Péturs segir Sig- rún að „barátta mannsins við nátt- úruöflin [verði] bæði stórbrotin og dapurleg. Eyðileggingarmáttur mannsins í tilraunum sínum til að ná náttúrunni á sitt vald hefur sjaldan verið gerður jafn áþreifanlegur í ís- lenskri myndlist.“ Hún segir síðan að samspil hins raunverulega og hins óraunverulega verði allt að því áþreifanlegt í verk- um Katrínar. „Hún birtir okkur ekki bara augnablik þar sem erfitt er að greina milli draums og vöku heldur skapar hún tilbúinn heim úr veru- leikanum sjálfum með þeim hætti að áhorfandinn á erfitt með að átta sig á hvað sé tilbúningur og hvað ekki.“ Auk þess að sýna myndir úr Kára- hnjúkaseríunni, sem Pétur sýndi í Listasafni Íslands í haust og gagn- rýnendur Morgunblaðsins völdu eft- irminnilegustu sýningu ársins, sýnir Pétur verk úr seríunni Umhverfing sem hann sýndi í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á Listahátíð í vor sem leið. „Þetta er gott yfirlit yfir það sem við höfum verið að gera á síðustu tveimur, þremur árum,“ sagði Pétur í gær. „Ég er mjög sáttur við það hvernig verkin koma út hér í safninu – þetta kemur skrambi vel út. Ákveðinn heimur myndast þegar myndir okkar beggja eru komnar hér upp, ákveðið andrúmsloft. Ég er með hlutlægari nálgun, hún huglægari, en engu að síður vekja verkin ekki óskyldar tilfinningar. Markmiðið er að fá fólk til að staldra við og velta hlutum fyrir sér. Maður óskar þess að ná því fram.“ Þau Katrín og Pétur hafa haldið fjölda einkasýninga á verkum sínum og tekið þátt í samsýningum víða um lönd. Sýningin í Listasafninu á Ak- ureyri stendur til 1. maí. efi@mbl.is „Snerta veruleikann undur varlega í verkum sínum“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Listamennirnir „Þetta kemur skrambi vel út,“ segir Pétur sem er hér ásamt Katrínu í Listasafninu á Akureyri.  Katrín Elvars- dóttir og Pétur Thomsen sýna á Akureyri Hedda Gabler, hið klassíska leikrit Henriks Ib- sens, var frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikúsinu í gærkvöldi. Ilmur Kristjánsdóttir fer með hlutverk Heddu en aðrir leikarar í sýningunni eru Brynhildur Guðjónsdóttir, Eggert Þorleifsson, Harpa Arnar- dóttir, Kristbjörg Kjeld, Stefán Hallur Stefánsson og Valur Freyr Einarsson. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Hún hlaut Grímuna sem leikstjóri ársins árið 2008 fyrir upp- setningu sína á Þeim ljóta í Þjóðleikhúsinu, og hún hefur vakið athygli fyrir nútímalegar og stíl- hreinar sýningar á nýjum erlendum leikritum. Nú tekst hún á við þetta stórvirki klassískra leik- bókmennta. Segja má að í leikritinu ráðist Ibsen að kjarna þeirra borgaralegu lífsgilda sem móta líf nútíma- manna og stýra löngunum þeirra og ótta. Að lokinni sex mánaða brúðkaupsferð kemur Hedda Gabler heim í glæsilega einbýlishúsið sitt. Fastráðning eiginmanns hennar við háskólann er á næsta leiti, tilveran er þægileg og framtíðin hef- ur verið kortlögð. En það líður ekki nema sólar- hringur þar til Heddu hefur tekist að mölva þessa fullkomnu mynd. Hvenær verður krafa nútíma- mannsins um öryggi að rammgerðu fangelsi? Leikmyndarhönnuður er Finnur Arnar Arnar- son, búningahönnuður er Filippía I. Elísdóttir, tónlist er eftir Barða Jóhannsson, lýsingu hannaði Halldór Örn Óskarsson og þýðingin er eftir Bjarna Jónsson, sem jafnframt er dramatúrg sýn- ingarinnar. Ilmur leikur Heddu Gabler Spurt um lífsgildin Ilmur og Eggert Þorleifsson í hlutverkum sínum í Heddu Gabler.  Klassískt leikrit eftir Henrik Ibsen sett upp í Kassa Þjóðleikhússins Galdurinn er að það er leikið af tveimur leikurum sem skipta sífellt um persónur.38 » Konur að keppa á saumavélum er eitt af viðfangs- efnum sýningar Rósu Sigrúnar Jónsdóttur, Saumavél, sem opnuð hefur ver- ið í Artóteki Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Á sýningunni er myndband frá áðurnefndri keppni sem fram fór nýlega undir stjórn Rósu Sigrúnar. Reyndu þar þrjár konur með sér hver væri sneggst við saumaskapinn og skipti þá lengd saumsins höfuðmáli. Hin saumuðu klæði kvennanna eru svo hluti af sýningunni, stillt upp á stöpla. Þetta er 14. einkasýning Rósu Sigrúnar. Konur í keppni á saumavélum Frá keppninni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.