Morgunblaðið - 14.03.2011, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.03.2011, Blaðsíða 24
24 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HJÁLP! ÞAÐ ER KÖTTUR Á HÆLUNUM Á MÉR! ÉG GAF HONUM UMBOÐ HANN VILL AÐ VIÐ HÆGJUM Á OKKUR OG BROSUM BREITT HVAÐ ERTU AÐ LESA? ÞETTA ER AÐLÖGUÐ ÚTGÁFA AF SHERLOCK HOLMES... AÐLÖGUÐ ÚTGÁFA? SVO HÚN HENTI YNGRI LESENDUM EKKI ÓSVIPAÐ ÚTÞYNNTU MALTÖLI ÞETTA GÆLUDÝRA- FLUGFÉLAG ER ALGJÖR SNILLD VONANDI LENDI ÉG VIÐ HLIÐINA Á EINHVERJUM SEM LEYFIR MÉR AÐ SOFA Í FRIÐI HALLÓ... HALLÓ... HALLÓ... HALLÓ... FRÁBÆRT, NÆSTU FJÓRIR TÍMARNIR ÆTTU AÐ LÍÐA HRATT TAKK FYRIR AÐ HITTA MIG MEÐ SVONA STUTTUM FYRIRVARA SJÁLFSAGT MÁL, ÉG ER BARA ÁNÆGÐ MEÐ AÐ GETA HJÁLPAÐ ÉG VEIT AÐ ÞAÐ GETUR VERIÐ ERFITT AÐ TALA VIÐ NÝJAN SÁLFRÆÐING, EN JÓHANNES KEMUR AFTUR Í NÆSTU VIKU ÞETTA VAR EKKERT MÁL ÉG KANN MIKLU BETUR VIÐ ÞIG EN HANN WOLVERINE ROTAÐI ÞIG EKKI! ÞÚ ÞÓTTIST BARA HAFA MISST MEÐVITUND EINHVERN VEGINN ÞURFTI ÉG AÐ KOMAST NÁLÆGT ÞÉR HANN TEKUR EKKI EFTIR ARMINUM MÍNUM Ég vil ekki borga Icesave Mig langar að segja frá því að ég ætla að segja nei við Icesave. Ég skulda mikið í bankanum og þarf að borga af íbúð. Svo er það matur, skólamat- ur, rafmagn og fleira og fleira. Það er ekki hægt að borga Ice- save, ef launin eru bú- in og hvernig á þá að lifa? Hvar á ég að fá mat? Ég er með syk- ursýki. Ef fólk sam- þykkir að segja já þá verður enn erfiðara fyrir okkur að borga Icesave og þá verður allt erfitt fyrir okkur og allir peningar búnir? Mér finnst að bankar, Jón Ásgeir og Björgólfur Thor eiga að borga sjálfir en auðvitað ekki við. Hvað um fólk sem er skuldlaust, getur það kannski borgað Icesave eða hvað? Ég sá um daginn að Siv Friðleifs- dóttir þingkona ætlar að segja já og er samþykk Icesave, en til hvers? Er hún að reyna að auglýsa sig eða hvað? Ekki hlusta. Þið megið ekki gleyma ef þið skuldið mikið. Nokkrir eru búnir að missta íbúð og bíl. Það er betra að segja nei í kosning- unum, eruð þið ekki sammála? Ég er reið og áhyggjurfull. Segjum nei í Ice- savekosingum. Anna. Forsetinn – einelti - Silfur Egils Í Silfri Egils um dag- inn hefði stjórnandi þáttarins getað haft í inngangi þáttarins eftirfarandi: Í þessum þætti ætlum við að leggja forseta vorn í einelti. Mér blöskraði þátturinn. Kæra þjóð, hættið nú að leggja forsetann í einelti. Eyðið orkunni í annað. Ég segi takk, elsku forseti, fyrir að leyfa mér að kjósa í Icesave-málinu. Kjósandi. Ást er… … að vefja örmum þínum um axlir hans. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnust. kl. 9, útsk./ myndlist kl. 13. Félagsv. kl. 13.30. Þrír nem. af menntavís.sviði HÍ kynna sýn barna á heiminn kl. 14.30. Árskógar 4 | Handav./smíði/útsk. kl. 9. Félagsv. kl. 13.30. Myndl. kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Bútas., handav., leikfimi kl. 13, sögustund kl. 13.45. Dalbraut 18-20 | Myndlist/postulín kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13. Dalbraut 27 | Handav. kl. 8, bænast. kl. 9.30, leikf. kl. 11, uppl. kl. 14 á 2. hæð. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, danskennsla kl. 17. Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9. Botsía kl. 11. Handverkskl. Valdórs kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Handav. kl. 9, botsía kl. 9.30, gler/postulín kl. 9.30/ 13, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15, kó- ræf. kl. 17, skapandi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulín kl. 9, trésk. kl. 9.30, ganga kl. 10, hand- av./brids kl. 13. Félagsv. kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvennaleikf. kl. 9.15, 10, 11, vatnsleikf. kl. 12.10. Jónshús lokað. Félagsstarf Gerðubergi | Tréútsk./ handav. kl. 9. Spilasal. op e. hád. Kóræf. kl. 15.30. Jóga á morgun kl. 15.30. Furugerði 1, félagsstarf | Bókband kl. 10. Leikfimi kl. 13. Framhaldssaga kl. 14. Háteigskirkja - starf eldri borgara | Spil, spjall og kaffi kl. 13. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga kl. 10 frá Haukahúsi, kór kl. 10.30, gler- bræðsla kl. 13, trésk. kl. 13, félagsv./ botsía kl. 13.30, vatnsleikf. kl. 14.40. Dansleikur 18. mars. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30/ 9.30/10.30. Vinnust. kl. 9. Brids kl. 13. Sýning á hekl. dúkum. Hæðargarður 31 | Tölvuleiðb. kl. 13.15, skap. skrif kl. 16, hláturjóga á þri., thachi á þri-/fim., frams.hóp. á miðv., Þegar amma var ung á fös. og myndlsýn. alla virka daga. Korpúlfar Grafarvogi | Ganga frá Egils- höll kl 10, skartgripag. kl. 13, sjúkraleikf. kl. 14.30 Eirborgum. Botsía kl. 13.30 Eir- borgum. Sundleikfimi kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hring- borðið - spjallh. kvenna kl. 10.30, handv-/bókast. kl. 11.30, Prjónakl. og fl. kl. 13, botsía kl. 13.30, söngstund kl. 15. Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10. Handav. kl. 9/13. Útsk. kl. 9. Djákni kl. 14. Vesturgata 7 | Handavinna, botsía, leikf. kl. 9.15. Tölvuk. kl. 12, kóræf. kl. 13. Vesturgata 7 | Handav., botsía, leikfimi kl. 9.15, tölvukennsla kl. 12, kóræf. kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, postulín/bókband kl. 9, morgunst. kl. 9.30, botsía kl. 10, framh.saga kl. 12.30, handav./stóladans/spil kl. 13. Karl Kristjánsson alþingismaðurskrifaði stutta athugasemd í Heima er best árið 1957, þar sem þessi vísa Hallgríms Péturssonar hafði birst og undir henni staðið: „Óþekktur höf.“ Kuldinn bítur kinnar manns, kólnar jarðarfræið. Ekki er heitur andinn hans eftir sólarlagið. „Man nú enginn Hallgríms dýru ljóð?“ spyr Karl og bætir við: „Vís- an er á sinn hátt eitt af listaverkum hin mikla skálds. Hún er þrjú hundruð ára gömul, en í henni sá góðmálmur, sem ekki fellur á. Og hún leikur létt á tungu og er ung- leg, eins og hún væri ort á þessu vori.“ Magnús Jónsson, prófessor og al- þingismaður, segir í riti sínu um Hallgrím Pétursson að ýmsar sögur séu til frá uppvexti hans og eigi þær einkum að sýna, hve snemma hann hafi farið að yrkja og það snilldarvel. Sumar þessar vísur eru herfilegasta rímhröngl og engu barni ætlandi, aðrar meira og minna lærð trúfræði. En einstaka eru ekki ólíkar því að ortar væru af ungmenni. Má til þeirra telja vísuna um kattarrófuna. Á hún að vera svo til komin að köttur sat á kláfi undir palli en fjalirnar í pallgólfinu voru svo gisnar að rófan á kettinum kom upp á milli þeirra. Á þá sveininum Hallgrími að hafa hrotið þessi vísa af munni: Í huganum var ég hikandi, af hræðslu nærri fallinn er kattarrófan kvikandi kom hér upp á pallinn. Halldór Blöndal (halldorblondal@simnet.is) Vísnahorn Kattarrófan kvikandi - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.