Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 1. M A R S 2 0 1 1
Stofnað 1913 67. tölublað 99. árgangur
KEILIR HJÁLPAR
FÓLKI AÐ FÁ NÆGA
HVÍLD Í SVEFNI
HEFUR LEIKIÐ
MARGVÍSLEG
HLUTVERK
GLATT Á HJALLA Á
GRASRÓTARKVÖLDI
GRAPEVINE
HINN HÆFILEIKARÍKI JAVIER BARDEM 28 HALDIÐ Í 25. SKIPTI 29VERÐLAUNAKODDI 10
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Bandarískar og evrópskar flugvélar og skip
héldu áfram árásum á skotmörk í Líbíu í gær,
annan daginn í röð. Var svo komið að engar
flugvélar Muammars Gaddafis Líbíuleiðtoga
hættu sér á loft, flugbann var í reynd í gildi.
Búið er að sundra að mestu loftvarna- og fjar-
skiptastöðvum hersins. Fulltrúi hersins í Líb-
íu lýsti í gærkvöld yfir einhliða vopnahléi í að-
gerðunum gegn
uppreisnarmönn-
um frá kl. 19.
Arababandalag-
ið gagnrýndi í gær
loftárásirnar hart
og sagði aðgerð-
irnar mun víðtæk-
ari en öryggisráð
Sameinuðu þjóð-
anna hefði heimil-
að þegar það sam-
þykkti flugbann til
að vernda óbreytta
borgara fyrir árás-
um herja Gaddafis.
Ban Ki-moon,
framkvæmdastjóri
SÞ, sagðist vona
að Líbíumenn stæðu við orð sín í þetta skipti
en vopnahléi var lýst yfir aðfaranótt föstudags
í kjölfar ályktunar öryggisráðsins. Árásum
var samt haldið áfram gegn uppreisnarmönn-
um.
Markmið bandalagshersins er að loka á
næstu dögum fyrir birgðaleiðir Líbíuhers. Vit-
að er að mjög reynir á þessar leiðir enda að-
eins um að ræða fáa góða vegi sem flestir eru
við ströndina og vegalengdirnar eru miklar.
Óljóst er um mannfall í átökunum, Banda-
ríkjamenn sögðu að engir óbreyttir borgarar
hefðu enn fallið í loftárásunum. Líbískir rík-
isfjölmiðlar fullyrtu að 48 óbreyttir borgarar
hefðu fallið.
MLoftárásir á Líbíu »12
Lýsa aftur yfir vopnahléi
Líbíuher sagði einhliða vopnahlé í stríðinu við uppreisnarliðið hafa tekið gildi klukkan 19 í gær
Vesturveldin beita fjölda orrustu- og sprengjuflugvéla auk stýriflauga og hafa komið á flugbanni
Reuters
Skotmörk Farartæki á vegum Líbíuhers springa eftir loftárás flugvéla Vesturveldanna í gær á veginn milli Benghazi og Ajdabiyah.
Verja Gaddafi
» Dyggir stuðn-
ingsmenn Gaddafis
úr röðum óbreyttra
borgara hópast nú í
byrgi hans í Tripoli.
» Fólkið segist ætla
að verða „mennskir
skildir“, og tryggja
þannig að ekki verði
gerðar loftárásir á
byrgið.
Bergþóra Njála Guðmunsdóttir
ben@mbl.is
Fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórn
Arion banka, Kristján Jóhannsson,
hafnaði boði Bankasýslunnar á föstu-
dag um að segja af sér vegna stuðn-
ings síns við ákvörðun um laun for-
stjóra bankans. Í gær tilkynnti
Bankasýslan að hún myndi ekki end-
urnýja umboð Kristjáns í stjórn
bankans á aðalfundi hans síðar í vik-
unni.
„Ég sagðist frekar vilja standa með
minni samvisku í þessu máli,“ segir
hann. „En þetta kemur mér verulega
á óvart vegna þess að öll samskipti
mín við Bankasýsluna hafa verið fag-
leg og opin og góð.“
Braut ekki gegn stefnunni
Í samtali við Morgunblaðið segir
Þorsteinn Þorsteinsson, formaður
stjórnar Bankasýslunnar, að stjórnin
telji ekki að með ákvörðun sinni hafi
Kristján brotið gegn eigendastefnu
ríkisins. „Við hefðum talið æskilegt
og eðlilegt að stjórnarmaðurinn hefði
metið það þannig af sinni eigin fyr-
irhyggju að þetta væri mál sem ekki
væri eðlilegt að fulltrúi ríkisins tæki
þátt í.“ Ekki er gerð athugasemd við
störf fulltrúa Bankasýslunnar í stjórn
Íslandsbanka, en hann sat hjá í sam-
bærilegu máli þegar tekin var
ákvörðun um laun forstjóra bankans.
Þorsteinn segir Bankasýsluna ekki
hafa orðið fyrir pólitískum þrýstingi
vegna málsins. Ákvörðun hennar hafi
verið tekin um miðja viku „þannig að
t.d. þetta viðtal við forsætisráðherra
sem var á laugardag gat ekki haft
nein áhrif á okkur.“
Elín Jónsdóttir, forstjóri Banka-
sýslunnar, vildi ekki tjá sig um málið,
þar sem það væri á forræði stjórnar
Bankasýslunnar. »8
Vildi standa með eigin
samvisku í málinu
Fulltrúi Bankasýslunnar í stjórn Arion neitaði að segja af sér
Seint í gærkvöldi voru tæplega
3.000 manns búin að skrá nafn sitt á
níu klukkutímum á undirskrifta-
lista þar sem skorað er á borgar-
stjórn að falla frá áformum sínum í
skólamálum. Aðstandendur undir-
skriftasöfnunarinnar, sem fer fram
á vefsvæðinu www.born.is, eru for-
eldrar grunn- og leikskólabarna í
Reykjavík.
Um helgina fóru fram fundir
borgaryfirvalda með foreldrum þar
sem hugmyndir um sameiningu
skóla voru kynntar og einkenndi
reiði viðbrögð foreldra. Agnar Már
Jónsson, einn aðstandenda söfn-
unarinnar, segir sparnað vegna
áætlunar borgarinnar aðeins nema
um 150 milljónum á ári. »4
Undirskriftir
tæplega 3.000
Morgunblaðið/hag
Á þakinu Söfnun undirskrifta hófst
um miðjan dag í gær.