Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 21. MARS 80. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Brjóstunum að kenna
2. Ingólfur Snær fundinn
3. Ofurmáni veður í skýjum
4. Gaddafi hótar hefndum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ástin er þema hádegistónleika Ís-
lensku óperunnar sem fara fram kl.
12:15 á morgun. Óperurnar Ösku-
buska, Brúðkaup Fígarós og Ást-
ardrykkurinn eru í forgrunni og verð-
ur gestasöngvari Garðar Thór Cortes.
Morgunblaðið/Kristinn
Ást og aftur ást í
Íslensku óperunni
Í tilefni af út-
gáfu bókarinnar
Þjóðfáni Íslands –
Notkun, virðing
og umgengni er
öllum boðið í húsnæði útgefandans
Crymogeu, Barónsstíg 27, á miðviku-
daginn kl. 20:30. Auk útgáfunnar
sem verður fáanleg í bókaverslunum
verður einnig gefin út sérstök við-
hafnarútgáfa, handbundin í leður, í
takmörkuðu upplagi. Formála bók-
arinnar skrifaði frú Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti.
Útgáfuteiti í tilefni
bókar um þjóðfánann
Háloftamyndin vinsæla, Top Gun,
verður sýnd í mánudagsbíói Háskóla
Íslands og Háskólabíós í kvöld. Mynd-
in skaut Tom Cruise upp á stjörnu-
himininn og var ein vinsælasta kvik-
mynd ársins 1986. Þá slógu
lögin í myndinni einnig í
gegn. Fjöldi umsókna í
bandaríska sjóherinn
fimmfaldaðist og voru
ungir karlmenn ólm-
ir í að feta í spor
hetjunnar Mav-
ericks.
Oddaflug úr fortíð-
inni í Háskólabíói
Á þriðjudag Vestanátt, hvöss í fyrstu en mun hægari síðdegis. Þurrt
og bjart SA- og A-lands, annars él. Frostlaust með suðurströndinni
en allt að 8 stiga frost í innsveitum norðaustanlands.
Á miðvikudag Vestanátt og dálítil él V- og N-lands. Frost 0 til 10
stig, kaldast í innsveitum N-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-13 m/s og él eða slydduél en úr-
komulítið á Austurlandi. Hiti um eða undir frostmarki.
VEÐUR
KR-ingar urðu í gærkvöld
fyrsta liðið til að tryggja sér
sæti í undanúrslitum Ís-
landsmóts karla í körfu-
bolta með því að sigra
Njarðvíkinga í annað sinn í
jafnmörgum leikjum.
Stjarnan sneri hinsvegar
blaðinu við gegn Grindavík,
vann leik liðanna í Garða-
bænum á sannfærandi hátt
og tryggði sér oddaleik suð-
ur með sjó. »3
KR-ingar fyrstir í
undanúrslitin
Blakbikararnir fóru
norður og austur
Grétar Rafn Steinsson verður ekki
með íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu þegar það mætir Kýpur í und-
ankeppni Evrópumótsins um næstu
helgi. Grétar spilaði með Bolton gegn
Manchester United á laugardaginn
en Ólafur Jóhannesson landsliðs-
þjálfari segir að Grétar geti lítið sem
ekkert æft vegna meiðsla og best
hafi verið fyrir hann að fá hvíld. »1
Grétar Rafn ekki með
landsliðinu á Kýpur
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Fjöruverðlaunin voru veitt í fimmta
sinn við hátíðlega athöfn í Iðnó í gær.
Verðlaunin eru bókmenntaverðlaun
kvenna og eru veitt konum af konum
en dómnefndir eru einvörðungu
skipaðar konum. Fjórar konur hlutu
verðlaun í þremur flokkum.
Skáldsagan Ljósa eftir Kristínu
Steinsdóttur hlaut verðlaun í flokki
fagurbókmennta, Konan sem fékk
spjót í höfuðið eftir Kristínu Lofts-
dóttur var verðlaunuð í flokki fræði-
bóka og í barna- og unglingaflokki
var það Þankaganga eftir Völu Þórs-
dóttur og Agnieszku Nowak sem var
verðlaunuð.
Vegur verðlaunanna hefur aukist
með árunum og vonast aðstand-
endur þeirra til þess að geta veitt
peningaverðlaun í framtíðinni. Í
þetta skiptið fengu verðlaunahafar
verðlaunaskjal og tvo gripi.
Fyrstu fullorðinsverðlaunin
Þetta er í annað sinn sem Kristín
Steinsdóttir hreppir verðlaunin en
hún fékk þau árið 2007 fyrir Á eigin
vegum en það var önnur skáldsaga
hennar sem hún skrifaði fyrir full-
orðna. Kristín er margverðlaunaður
barnabókahöfundur en Fjöruverð-
launin voru þau fyrstu sem hún fékk
í „fullorðinsflokki“ og segir hún þau
hafa veitt sér mikla hvatningu.
„Þá var ég komin á blað.
Þetta var fyrsta viðurkenn-
ingin sem mér hlotnaðist fyrir
fullorðinsbók. Ég var búin að
koma mér svo vel fyrir í
barnabókaheiminum og það
var sagt við mig: Ætlarðu
ekki bara að vera þar?“
segir Kristín, sem seg-
ir kvenna-
bókmenntaverð-
laun eiga
sannarlega rétt
á sér og tóku
hinir verðlaunahafarnir aðspurðir
undir þetta viðhorf.
„Það væri rosalega gaman ef þessi
þörf væri ekki,“ segir Kristín og
bendir á að það hafi í raun og veru
„ekkert ógurlega mikið breyst“ frá
tímum Guðrúnar frá Lundi. Um
þriðjungur félaga í Rithöfundasam-
andi Íslands er konur. „Konurnar
þurfa stöðugt að vera að minna á sig.
Það er ákveðinn hroki ef það þarf að
vera að tala svona verðlaun niður,“
segir hún.
Karlmenn voru að sjálfsögðu líka
velkomnir á Góugleðina, eins og við-
burðurinn kallaðist. Konur voru þó í
miklum meirihluta en karlmenn voru
þónokkrir og sögðu þeir sem til
þekkja að þeim hefði fjölgað með
árunum.
Konur verðlauna konur
Fjöruverð-
launin voru veitt
í fimmta sinn
Morgunblaðið/hag
Verðlaunahafarnir í Iðnó Kristín Loftsdóttir, Kristín Steinsdóttir, Vala Þórsdóttir og Agnieszka Nowak.
Á hátíðinni voru flutt tvö
skemmtileg erindi um rithöf-
undinn Guðrúnu Árnadóttur frá
Lundi (1887-1975) en áhugi á
verkum Guðrúnar hefur farið
vaxandi að undanförnu. Fyrra
erindið flutti langömmubarn
Guðrúnar, Marín Guðrún
Hrafnsdóttir bókmennta-
fræðingur, og það síðara
Guðrún Jónsdóttir ís-
lenskufræðingur. Mar-
ín varpaði ljósi á persónu skáldkon-
unnar m.a. með því að lesa upp
bráðfyndið símaviðtal sem blaða-
maður Morgunblaðsins tók við
hana árið 1952, sem bar vott um
húmor og hæversku Guðrúnar. Síð-
an lýsti Marín því hvernig hún hefði
vísað í skrif sín sem „pár, klór og
söguvitleysur“. Þessar „söguvit-
leysur“ voru engu að síður vinsæl-
ustu bókmenntir landsins um og
eftir miðja síðustu öld.
Pár, klór og söguvitleysur
GUÐRÚNAR FRÁ LUNDI MINNST Á GÓUGLEÐINNI
Marín Guðrún
Hrafnsdóttir
Skannaðu kóð-
ann og fylgstu
með veðrinu á
KA og Þróttur frá Neskaupstað urðu í
gær bikarmeistarar karla og kvenna í
blaki en leikið var til úrslita í Laug-
ardalshöllinni. Norðfirðingar lögðu
HK í miklum spennuleik, 3:2, í
kvennaflokki en KA fór hinsvegar
frekar létt með Stjörnuna, 3:0, í
karlaflokki. »4-5