Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
VaraformaðurSamfylking-arinnar og
formaður borg-
arráðs, Dagur B.
Eggertsson, tók
sér frí frá endurskipulagningu
skólakerfisins í Reykjavík í lið-
inni viku til að útskýra fyrir
verktökum hvað hefði helst taf-
ið fjárfestingar og nýfram-
kvæmdir, sem hann viður-
kenndi að brýn þörf væri fyrir.
Dagur sagði þrennt skipta
mestu um litlar framkvæmdir:
Fall krónunnar, Icesave og
mikil skuldsetning hins opin-
bera.
Verktakar sátu furðu lostnir
undir boðskapnum, enda vita
þeir betur. Þeir vita að lækkun
gengis krónunnar gagnvart er-
lendum gjaldmiðlum eykur
áhuga útlendinga á að ráðast í
fjárfestingar hér á landi en
dregur ekki úr honum, og þarf
auk þess ekki að draga úr
áhuga innlendra á fram-
kvæmdum. Að kenna Icesave
um er alger fjarstæða, enda
hefur ítrekað komið fram að
Icesave hindrar ekki erlenda
fjármögnun. Skuldsetning hins
opinbera getur skipt máli ef um
óarðbær verkefni er að ræða,
en á afar lítinn þátt í því hve
fjárfestingar og nýfram-
kvæmdir hafa verið litlar í tíð
núverandi ríkisstjórnar.
Það sem mestu skiptir í
þessu sambandi, og það vissu
allir sem hlustuðu á fjarstæðu-
kenndan boðskap varafor-
manns Samfylkingarinnar, er
að ríkisstjórn Samfylking-
arinnar hefur unnið
skipulega gegn
nýrri fjárfestingu í
landinu. Fjárfest-
ing í sjávarútvegi
hefur verið stöðvuð
með því að setja framtíð hans í
algera óvissu. Fjárfesting í iðn-
aði hefur verið hindruð með
ýmsum hætti, svo sem með
fjandskap við áhugasama er-
lenda aðila, með löglausum yf-
irgangi ráðherra og með algeru
áhugaleysi á öllu því sem flokk-
ast gæti undir verklegar fram-
kvæmdir. Ekkert er gert til að
koma hlutum á hreyfingu, að-
eins þvælst fyrir í hverju mál-
inu á fætur öðru.
En það er ekki nóg að ríkis-
stjórn Samfylkingarinnar
hindri framkvæmdir og dragi
úr möguleikum Íslands á er-
lendri fjárfestingu, til að mynda
með aðför ráðherra að gjald-
miðli landsins. Borgarstjóri í
boði Samfylkingarinnar segir í
viðtali við erlenda fjölmiðla að
krónan sé „Mikkamúsarpen-
ingur“. Það er út af fyrir sig
ekki við því að búast að borg-
inni eða fyrirtækjum hennar
gangi vel að fjármagna sig þeg-
ar borgarstjóri talar með þess-
um hætti. Það er hins vegar
staðbundinn vandi og hefur
ekkert með Icesave eða annað
að gera. Borgarstjóri og ráð-
herrar Samfylkingarinnar geta
að vísu skemmt fyrir öðrum
með ábyrgðarlausri framkomu,
en sá vandi verður ekki leystur
með því að kenna Icesave um að
standa í vegi fyrir fjárfest-
ingum.
Verktakar trúa ekki
kenningum Dags
um fjárfestingar}
Furðukenningar
Forsætisráð-herrann gerði
um helgina at-
hugasemdir við
launagreiðslur til
skilanefndar-
manna sem véla
án umboðs eða eftirlits með
þrotabú gömlu bankanna.
Hún sagði að þær upplýs-
ingar væru að koma fram
núna og væru sem „blaut
tuska“ framan í almenning,
nú þegar kjaraviðræður
stæðu yfir. Hætt er við því að
megn ýldulykt sé komin í
tuskuna þá, því að upplýs-
ingar um að skilanefndar-
menn og slíkir hafi haft fimm
milljónir króna á mánuði eða
ríflega það hafa legið fyrir vel
á annað ár. Jóhanna Sigurð-
ardóttir virðist vera einn síð-
asti Íslendingurinn sem frétt-
ir þetta. Og hún virðist koma
algjörlega af fjöllum eða þá
úr Dýrafirði í tilefni afmælis-
ársins. Til viðbótar hefur ver-
ið upplýst að umræður um
bónusgreiðslur upp á gamlan
móð væru komnar
á fleygiferð á ný í
fjármálageiranum.
Í Vín sagði Jón
Gnarr Kristinsson
þarlendum blaða-
mönnum að-
spurður, að yrði Icesave fellt
þá gætu afleiðingarnar orðið
alvarlegar. Og hann taldi þær
alvarlegustu upp:
Íslendingar kæmust þá
kannski ekki inn í ESB.
Stjórn Jóhönnu og Stein-
gríms kynni að falla.
Íhaldsmenn kæmust að.
Og Jón sjálfur Gnarr þyrfti
að flytja til Grænhöfðaeyja.
Ef þessar ógnarspár Jóns G.
Kristinssonar reynast réttar
er komin upp alveg ný staða.
Það er þá ekki bara að ís-
lensk þjóð myndi vísa óbil-
gjörnum og löglausum kröf-
um Breta og Hollendinga til
föðurhúsanna heldur myndi
þjóðin sjálf, þetta venjulega
fólk, að auki fá bústinn bónus
í sinn hlut. Það var tími til
kominn.
Jón Gnarr boðar
bónusgreiðslur
til venjulegra
Íslendinga}
Sjá, ég boða yður bónus
R
étt eins og dropinn holar steininn
er víst að sprungur koma í kerfi
mannanna, sama hversu þaul-
hugsuð og vandlega útfærð þau
eru. Fólk á að vera viðbúið því, en
ekki láta það koma sér á óvart, og lærir vonandi
af reynslunni.
Þess vegna fer stundum í taugarnar á mér
heimsendapólitíkin sem ástunduð er hér á
landi, eins og bankahrunið hafi verið fyrsta
skiptið sem eitthvað fór verulega úrskeiðis.
Í bókinni Business Cycles eftir Lars Tvede
er fjallað um hagsveiflur í efnahagslífinu og
kortlagt hvernig misdjúpar niðursveiflur hafa
komið með reglulegu millibili, allt frá því papp-
írsseðlarnir voru fundnir upp, sem juku skuld-
setningu gífurlega. Og alltaf virtist það koma
fólki í opna skjöldu eða eins og segir í formála
bókarinnar: „Þegar það kom niðursveifla, þá héldu margir
að ástandið myndi aldrei lagast, og í uppsveiflu héldu sum-
ir að hún yrði endalaus.“
Samkvæmt útreikningum Tvedes líða um átján ár frá
einni stórri kreppu til annarrar. Hann rekur hvað það er
sem veldur kreppum og hvernig þær lýsa sér svo ná-
kvæmlega, að ég veit um fólk í atvinnulífinu sem tók mið af
því í aðdraganda bankahrunsins og hagaði ákvörðunum
sínum eftir því. Og eitt er næsta víst, að dropinn er þegar
farinn að hola steininn fyrir næsta stóra skell.
Spurningin er bara hvað veldur.
Í samtali sem ég átti við Jóhannes Nordal, fyrrverandi
seðlabankastjóra, fyrir nokkru sagðist hann
viss um að næsta niðursveifla yrði ekki af
sömu völdum og sú síðasta. Næstu árin verða
allir vakandi yfir bönkunum, en hvað mun okk-
ur yfirsjást?
Meira að segja stórveldin eru fallvaltleika
undirorpin. Sögulegir yfirburðir hafa alltaf
reynst skammvinnir, að minnsta kosti á mæli-
kvarða mannkynsins. Það þarf ekki meira en
örlitla sprungu í vegginn til þess að hann molni
með tímanum. Eðli málsins samkvæmt vilja
aðrir njóta sömu velsældar og veggurinn lætur
að lokum undan þunganum. Þannig var það
með Rómverja, eins og Pétur Gunnarsson lýs-
ir í Myndinni af heiminum:
„Hestamannafélagið Mongólar sem í ár-
hundruð hefur þeyst um slétturnar fer í óvenju
langan reiðtúr og leggur undir sig nærliggj-
andi sveitir með þeim afleiðingum að fólkið flosnar upp og
ryðst inn í næsta land og hreyfing kemst á fólkið þar og
þannig öldu af öldu uns brimskaflinn brotnar á sjálfu
Rómarveldi sem er orðið svo innantómt að það fellur sam-
an eins og hol skurn.“
Sama hversu rammgerðar stoðirnar eru, sem halda
uppi velferðinni, þá molna þær á einhverjum tímapunkti.
Kynslóðir koma og fara, þekking fyrnist, mannskepnan er
breysk og sömu mistökin eru endurtekin aftur og aftur.
En ekkert er nýtt undir sólinni. Þegar veggurinn hryn-
ur opnast ný tækifæri. Endalokin marka nýtt upphaf. Og
hringrásin heldur áfram. pebl@mbl.is
Pétur
Blöndal
Pistill
Og hringrásin heldur áfram
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
L
ög um dýravernd, reglu-
gerð um dýrahald í at-
vinnuskyni og lög um
búfjárhald skarast á
ýmsum sviðum og eft-
irlit með framkvæmd þeirra er hjá
sitthvoru ráðuneytinu. Vinna við
endurskoðun og samræmingu á lög-
um um dýravernd er langt komin og
munu þau heyra undir landbúnaðar-
ráðuneytið og stofnanir þess í fram-
tíðinni. Þau verða væntanlega kölluð
lög um dýravelferð.
Í nýju frumvarpi eru ákvæði um
aðgerðir og meðhöndlun á dýrum
skýrð mun betur en áður hefur verið
í ljósi mikillar og hraðrar þróunar á
þessu sviði á undanförnum árum. Til
dæmis verður lagt til að öll slík
starfsemi verði leyfisskyld, svo sem
dýraspítalar, endurhæfingarstöðvar,
þjálfunarstöðvar, sýninga- og
keppnishúsnæði, dýragarðar og
dýragæslur, hestaleigur og önnur
sambærileg starfsemi.
Aðspurður segir Halldór Run-
ólfsson yfirdýralæknir að til þessa
hafi ekki verið gerð krafa um að öll
fyrrnefnd starfsemi væri leyfis-
bundin. Í löggjöf um dýrahald í at-
vinnuskyni hafi t.d. verið leyfisskylt
að reka dýrageymslur og dýragarða
og fleira. Á síðustu árum hafi orðið
hröð þróun í margvíslegri þjónustu
við dýr og nefnir Halldór þjálf-
unarstöðvar í því sambandi, þar sem
eigendur koma t.d. með hesta sína til
tímabundinnar þjálfunar eða með-
ferðar. Ekki sé hægt að fella slíkan
rekstur undir lög um dýrahald í at-
vinnuskyni.
Hundar og kettir heyri
undir landbúnaðarráðuneyti
Til þessa hefur málaflokkurinn
heyrt undir umhverfisráðuneyti og
Umhverfisstofnun hvað varðar dýra-
vernd og dýrahald í atvinnuskyni.
Undir landbúnaðarráðuneytið heyra
hins vegar lög um búfjárhald og hef-
ur Matvælastofnun fylgt fram-
kvæmd þeirra eftir. Með nýju laga-
frumvarpi sé markmiðið að einfalda
þessi mál og að þau heyri undir eitt
ráðuneyti og eina stofnun.
„Það verður að viðurkennast að
flækjustigið hefur verið talsvert,“
segir Halldór. „Ég nefni sem dæmi
að hafi verið kvartað yfir meðferð á
hundum hefur kvörtunin átt heima
hjá Umhverfisstofnun. Héraðs-
dýralæknar eru hins vegar starfs-
menn Mast og þeir hafa þá farið að
beiðni Umhverfisstofnunar í skoðun
vegna kvartana þegar um til dæmis
hunda og ketti er að ræða. Þeir hafa
síðan skrifað skýrslur og sent til
Umhverfisstofnunar sem annast
eftirfylgni vegna málsins. Það er
mikil samvinna á milli fyrrnefndra
stofnana og það er reynt að láta dýr-
in ekki líða fyrir flókna stjórnsýslu,
en með nýjum lögum er ætlunin að
minnka flækjustigið.“
Endurskoðun á lögum um dýra-
vernd hófst vorið 2008 og jafnframt
skoðun á ákvæði laga um búfjárhald
og um friðun og veiðar á villtum
fuglum og spendýrum með það fyrir
augum að samræma sem best
ákvæði þessara laga og laga um
dýravernd. Lagt er til að talað verði
um lög um dýravelferð, þar sem talið
er að hugtakið velferð dýra lýsi bet-
ur efnisinntaki frumvarpsins, segir á
heimasíðu Mast. Tekið er fram að nú
verður skylt að fara vel
með dýr, í stað þess að
bannað sé að fara illa
með þau.
Kveðið er á um fjöl-
breyttari heimildir til að bregð-
ast við ólíkum brotum að eðli og
alvarleika og m.a. koma inn ný-
mæli um stjórnvaldssektir við
ákveðnum brotum.
Flækjustig minnkað í
lögum um dýravelferð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsast að hundasið Með nýjum lögum verður meðferð mála einfölduð.
Gildissvið frumvarpsins nær
m.a. til búfjár bæði í mat-
vælaframleiðslu eða í annarri
þjónustu við manninn, þ.e.
nytja- og sýningardýra og gælu-
dýra, og einnig til þeirra dýra
sem kallast meindýr og tekið er
fram að aflífun allra dýra, þ.m.t.
meindýra, skuli framkvæmd á
mannúðlegan hátt.
Skylda til einstaklingsmerk-
inga verður aukin til muna og
talið að það muni hafa hagræði í
för með sér þegar kemur að
handsömun dýra sem tapast
hafa. Þá verða þvingunarúrræði
gerð mun markvissari og þeim
ætlað að
auðvelda
eftirlits-
aðila að
tryggja
aukna dýra-
velferð og að geta
brugðist hraðar við
þegar um er að ræða
brot á lögunum.
Auknar
merkingar
MARKVISSARI ÚRRÆÐI