Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Þegar er farið að bera á mótmælum í
múslímaríkjum gegn árásunum og
fullyrt að þær beinist gegn íslam,
einnig gagnrýna Rússar og Kínverj-
ar aðgerðirnar. Nokkur arabaríki
taka þátt í hernaðinum. Sameinuðu
arabísku furstadæmin leggja til orr-
ustuvélar og leiðtogar Jórdaníu,
Marokkó og Katar tóku þátt í fundi í
París um aðgerðirnar á laugardag.
En Arababandalagið sendi í gær frá
sér gagnrýna yfirlýsingu.
„Það sem er að gerast í Líbíu er í
andstöðu við markmiðið með flug-
banni, það sem við viljum er að al-
mennir borgarar verði verndaðir,“
sagði Egyptinn Amr Mussa, fram-
kvæmdastjóri bandalagsins.
Einn af talsmönnum Baracks
Obama Bandaríkjaforseta sagði að-
spurður um þessi ummæli Moussa
að í ályktun öryggisráðsins hefði
verið veitt heimild til að beita „öllum
nauðsynlegum ráðum“ til að vernda
óbreytta borgara. Öllum hefði verið
gert ljóst að það merkti flugbann.
Arababandalagið samþykkti fyrir
viku stuðning við alþjóðlegar að-
gerðir til að vernda líbíska borgara
en tók fram að ekki mætti gera inn-
rás í Líbíu og ekki ráðast á loftvarna-
stöðvar. Var þegar bent á að færu
menn eftir þessum fyrirmælum yrði
auðvelt fyrir liðsmenn Gaddafis að
skjóta niður flugvélar sem reyndu að
framfylgja flugbanni. Er ljóst að
Vesturveldin ákváðu að taka ekki til-
lit til þessa fyrirvara. kjon@mbl.is
Arabar gagnrýna loftárásirnar
Reuters
Reiði Efnt var til mótmæla í Bangladesh í gær gegn loftárásunum.
Framkvæmdastjóri Arababandalagsins segir það aðeins hafa samþykkt á fundi sínum fyrir viku
alþjóðlegar aðgerðir til að vernda óbreytta borgara í Líbíu fyrir árásum herja Gaddafis
Talsmaður rússneska utanrík-
isráðuneytisins, Alexander Lúk-
asjevítsj, sagði í gær að loft-
árásir Vesturveldanna hefðu
m.a. beinst gegn skotmörkum
sem væru ekki af hern-
aðarlegum toga. Vegir, brýr og
miðstöð hjartasjúkdóma hefðu
orðið skotmörk. En samþykkt
öryggisráðs SÞ um flugbann
hefði aðeins náð til aðgerða til
að vernda almenna borgara.
Óánægðir
RÚSSAR SÁTU HJÁ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Vesturveldin hófu loftárásir á stöðv-
ar stjórnarhersins í Líbíu skömmu
fyrir klukkan 17 á laugardag og
voru það Frakkar sem riðu á vaðið
með Dassault Rafale-orrustuþotum
en yfirstjórn aðgerðanna er á hendi
Bandaríkjamanna. Breskar Tor-
nado-herþotur fylgdu í kjölfar
frönsku vélanna, allmörgum skrið-
drekum og öðrum farartækjum, að-
allega í grennd við Benghazi, var
grandað þegar fyrsta daginn.
Í gærmorgun og um kvöldið
heyrðist sírenuvæl og gelt í loft-
varnabyssum við höfuðborg lands-
ins, Tripoli. Herþotur flugu yfir
borgina. Tiltölulega rólegt virtist
vera í Benghazi í gær en þúsundir
manna flýðu frá borginni á laug-
ardag vegna harðra bardaga upp-
reisnarmanna og stjórnarherliðs.
Var hundruðum bíla ekið aftur inn í
borgina í gær frá bæjum austan við
hana. Enn mun þó vera mikið líbískt
herlið í grennd við borgina og óvíst
hver viðbrögð þess verða við loft-
árásunum.
Beitt var Tomahawk-stýriflaug-
um frá skipum til að eyðileggja loft-
varna- og fjarskiptastöðvar Líb-
íuhers í upphafi átakanna.
Bandarískar F-15 og F-16 orrustu-
flugvélar og torséðar B-2 sprengju-
þotur tóku síðan þátt í aðgerðunum
í gærmorgun. Mike Mullen, forseti
bandaríska herráðsins, sagði í gær
að í reynd væri búið að koma á flug-
banni yfir Líbíu.
Hótar Vesturveldunum
Muammar Gaddafi Líbíuleiðtogi
sagði í ávarpi til þjóðarinnar að
Vesturveldin myndu iðrast þess að
hafa ráðist á landið og hét „löngu
stríði“ þar sem allir landsmenn
myndu fá vopn í hendur. „Við mun-
um ekki yfirgefa landið og munum
frelsa það,“ sagði Gaddafi. Hann
virtist auk þess gefa í skyn að „eng-
in olía“ yrði eftir í Líbíu handa
Bandaríkjamönnum, Frökkum eða
Bretum en útskýrði ekki frekar
hvað hann ætti við. Að líkindum var
hann þar að ýta undir þá trú
margra í Arabalöndum að vestræn
ríki réðust ávallt á þau til að kló-
festa olíu.
Reuters
Sigur Vígreifur liðsmaður uppreisnarsveitanna við Benghazi í austurhluta Líbíu, vopnaður sprengjukastara, við flakið af skriðdreka sem vestrænar þotur
hafa grandað. Óljósar fregnir bárust af því að sveitir Gaddafis væru á leið burt frá borginni með vígtól sín en hún er helsta borg uppreisnarmanna.
Gaddafi Líbíuleiðtogi
varar við „löngu stríði“
Tiltölulega rólegt á ný í Benghazi og íbúar sem flýðu farnir að snúa aftur heim
Mikill aflsmunur í lofti
» Gaddafi ræður yfir mörgum
herþotum, aðallega frönskum
og rússneskum, einnig þyrlum.
En megnið af vélunum hefur
fengið lélegt viðhald.
» Engar líbískar herflugvélar
munu hafa farið á loft eftir að
aðgerðirnar hófust.
» Norðmenn og Danir taka
þátt í aðgerðunum, leggja til
sex F-16 orrustuþotur, hvor
þjóð, í Líbíu.
» Dönsku þoturnar lögðu af
stað á laugardag og verða
staðsettar á Sikiley en norsku
þoturnar leggja af stað í dag.
Hrottalegar yfirlýsingar Gaddafis
Líbíuleiðtoga í liðinni viku um þau
örlög sem biðu andstæðinga hans í
Benghazi, borg með um 700 þúsund
íbúa, ollu skelfingu. „Við munum
finna ykkur í skápunum. Við mun-
um enga miskunn sýna!“ Ban Ki-
moon, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, segir Gaddafi nú
finna fyrir vilja alþjóðasamfélags-
ins. Ekki væri hægt að trúa leiðtog-
anum sem hefði ekki staðið við lof-
orð sitt um vopnahlé; hann segði
aldrei sannleikann.
„Hann lýsti því yfir að hann
myndi fara hús úr húsi og drepa
alla. Þetta er óviðunandi,“ sagði
Ban í gær. „Ég vona að líbísk
stjórnvöld fari að fullu og öllu eftir
ályktun öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna, lýsi tafarlaust yfir vopna-
hléi og grípi til ráðstafana til að
tryggja öryggi þjóðarinnar.“
Reuters
Heima Bresk orrustuþota lendir í Eng-
landi eftir flug yfir Líbíu.
Hrottalegar
yfirlýsingar
Loftárásir á Líbíu
Skannaðu kóðann til
að lesa það nýjasta
um átökin í Líbíu.
Sonur Muammars Gaddafis, Saif al-
Islam Gaddafi, sagði í viðtali við
bandarísku ABC-sjónvarpsstöðina í
gær að árásir Vesturveldanna stöf-
uðu af „misskilningi“. Einnig and-
mælti hann kröfum um að leiðtog-
inn, sem reyndar gegnir engri
formlegri stöðu í landinu en stýrir
bak við tjöldin, færi frá.
„Þjóðin er sameinuð í baráttunni
gegn vopnuðum skæruliðum og
hryðjuverkamönnum,“ sagði Saif
al-Islam. „Ef þið Bandaríkjamenn
viljið hjálpa fólkinu í Benghazi, far-
ið þá þangað og frelsið Benghazi
undan skæruliðunum og hryðju-
verkamönnunum.“ Hann hét því að
ekki yrði ráðist á borgaralegar
flugvélar yfir Miðjarðarhafi en hót-
anir þess efnis höfðu áður heyrst
frá ráðamönnum.
Líbíumenn
sameinaðir?
Reuters
Stríð Brunnin bílflök við Benghazi eftir
loftárásir Vesturveldanna.