Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Hjördís Stefánsdóttir
hjordst@hi.is
Spænski leikarinn Javier Bardem hefur alla
tíð verið vandlátur í hlutverkavali sínu. Hann
hefur spreytt sig á margvíslegum og kyn-
legum hlutverkum í gegnum tíðina og yfirleitt
valið frekar að leika í sérstæðum myndum
fremur en þeim sem vænlegastar eru til vin-
sælda. Ferill Bardems er því afar skrautlegur
og þar sem hann hefur lagt sál sína í leikinn
hefur hann hlotið fjölda verðlauna og verð-
skuldað lof gagnrýnenda og kvikmyndagerð-
arfólks.
Bardem fæddist árið 1969 í Las Palmas á
Kanarí. Hann á ættir að rekja til margra kyn-
slóða af leikurum og kvikmyndagerðarfólki.
Frumraun sína á hvíta tjaldinu þreytti hann
sex ára og í kjölfarið fór hann með lítil hlut-
verk í nokkrum sjónvarpsþáttum. Á unglings-
árum ætlaði hann að verða listmálari en fór
svo að spila rúgbí af fullum krafti. Framan af
starfaði hann sem þjónn, öryggisvörður og
meira að segja sem strippari en um tvítugt fór
hann að taka að sér aukahlutverk í kvikmynd-
um. Hlutverkin urðu sífellt stærri og með tím-
anum blómstraði leiklistarferill hans.
Kyntáknið Bardem
Bardem hóf ferilinn undir handleiðslu
spænska leikstjórans Bigas Luna, sem al-
ræmdur er fyrir að gera klámfengnar kvik-
myndir. Fyrst fór Bardem með aukahlutverk í
Las edades de Lulú (Hin ýmsu skeið Lulú,
1990) þar sem hann lék kynóðan samkyn-
hneigðan mann. Árið 1992 fór hann svo með
burðarrullu í költmyndinni Jamón, jamón
(Skinka, skinka) þar sem hann lék upprenn-
andi nautabana sem ráðinn er til að táldraga
fagra snót (Penélope Cruz).
Í framhaldinu lék hann kyntákn í fjölmörg-
um spænskum myndum og festist næstum í
því hlutverki en náði að rífa sig lausan þegar
hann lék í mynd Pedros Almodóvars, Carne
trémula (Kvikt hold, 1997). Þar fór hann eft-
irminnilega með hlutverk fyrrverandi löggu
sem bundin er við hjólastól eftir voðaskot í
átökum við fagra snót og elskhuga hennar.
Þessi þrjú rata í flóknar ástarflækjur með til-
heyrandi ógæfu og afbrýði.
Skáld í sjálfsmorðshugleiðingum
Þegar Bardem hafði leikið í rúmlega 20
myndum á Spáni lét hann fyrst almennilega að
sér kveða á alþjóðavettvangi þegar hann lék í
myndinni Before Night Falls árið 2000. Þar fór
hann aftur með hlutverk samkynhneigðs
manns, kúbverska skáldsins Reinaldos Are-
nas, sem hraktist í útlegð til Bandaríkjanna og
framdi síðar sjálfsmorð með hjálp elskhuga
síns eftir að hann greindist með alnæmi. Fyrir
leik sinn var hann tilnefndur til Óskars-
verðlauna, fyrstur Spánverja. Í kjölfarið hafn-
aði hann hlutverki í Minority Report en valdi
þess í stað að fara aftur í gervi löggu, þó öllu
hugsjónameiri, í leikstjórnarfrumraun Johns
Malkovich, The Dancer Upstairs (2002).
Árið 2004 lék hann svo aftur skáld í sjálfs-
morðshugleiðingum. Í The Sea Inside berst
Bardem, sem Ramón Sampedro, fyrir því í 30
ár að mega deyja með reisn eftir að hafa lam-
ast í dýfingaslysi. Persóna Bardems er hríf-
andi eins og margar fyrri persónur hans, en
það vegur upp á móti þunglyndislegum und-
irtóni myndarinnar.
Lítt heillandi, siðblindir óþokkar
Fyrsta stóra Hollywood-myndin sem Bar-
dem lék í var Collateral. Þar fer hann með
aukahlutverk glæpaforingja sem ræður laun-
morðingja (Tom Cruise) til starfa. Eftir þá
mynd hélt hann aftur til Spánar og lék í sögu-
legu drama Milos Formans Goya’s Ghosts
(2006). Persóna hans í þeirri mynd er dul-
arfullur meðlimur hinnar valdamiklu spænsku
klerkastéttar sem verður blindaður af ást á
ungri og fagurri listagyðju (Natalie Portman)
hins fræga málara Franciscos Goya (Stellan
Skarsgård).
Árið 2007 lék Bardem svo í mynd Coen-
bræðra No Country for Old Men og Love in
the Time of Cholera. Fyrrnefnda myndin fékk
langtum meiri athygli en þar fór Bardem með
hlutverk siðblinds morðingja sem varpar hlut-
kesti til að skera úr um hverjir skuli lifa og
hverjir deyja. Fyrir fantagóða frammistöðu
sína hlaut hann fjölmörg verðlaun, meðal ann-
ars Óskar.
Frá skúrkum til hrífandi elskhuga
Frá hinum ógeðfellda morðingja venti Bar-
dem enn einu sinni kvæði sínu í kross og tók á
ný að sér hlutverk kynþokkafulls spænsks
sjarmatrölls í mynd Woodys Allens, Vicky
Cristina Barcelona (2008). Sjarmörinn stígur í
vænginn við tvær amerískar vinkonur (Re-
beccu Hall og Scarlett Johansson) á sama tíma
og hann á í stormasömu sambandi við fyrrver-
andi eiginkonu sína (Penélope Cruz). Bardem
lék því næst aftur elskhuga á móti Juliu Rob-
erts í vinsældamyndinni Eat Pray Love (2010).
Nýjasta mynd Bardems sem nú er í sýningu
hér á landi er Biutiful (2010), í leikstjórn mexí-
kanska leikstjórans Alejandros González Iñ-
árritu. Sagan gerist í fátækrahverfum Barce-
lona þar sem Bardem leikur Uxbal, þjak-
að- an mann sem þarf að gera
upp mál sín og sjá fyrir
framtíð barna sinna eftir
að hann kemst að því að
hann er dauðvona.
Nýlega var kapp-
anum svo boðið að
leika aðalhlutverkið í
aðlögun á Dark Tower-
bókaseríu Stephens
Kings. Honum hefur
einnig boðist hlutverk í
næstu Bond-mynd og
gestahlutverk í banda-
rísku sjónvarpsþátt-
unum Glee. Hollywood kall-
ar augljóslega en vonandi
heldur Bardem áfram að
vera vandlátur í hlutverka-
vali og takast á við krefj-
andi, kynlegar og ögrandi
persónur.
Þjakaður Tveggja barna faðir, Uxbal, þarf að koma málum sínum á hreint í snatri eftir að hann kemst að því að hann er dauðvona, í kvikmyndinni Biutiful.
Margvísleg og kynleg hlutverk
Javier Bardem fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Biutiful Fyrir leik sinn í henni var hann til-
nefndur til Óskarsverðlauna en það kemur fæstum á óvart sem fylgst hafa með blómlegum ferli hans
Javier Bardem og þokkagyðjan Penélope Cruz fóru að rugla saman reyt-
um árið 2007. Þau létu pússa sig saman á síðasta ári og eignuðust sitt
fyrsta barn í byrjun þessa árs, þremur dögum áður en Bardem var til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Biutiful. Bardem og Cruz
eru óneitanlega farsælustu spænsku leikarar samtímans en leikferlar
þeirra hafa skarast nokkuð gegnum tíðina. Þau léku par í fyrstu mynd
Cruz, Jamón, jamón (1992), og fóru bæði með stórt hlutverk í Carne
trémula (1997). Ástin blossaði við gerð Vicky Cristina Barcelona árið
2007 og í framhaldinu áttu skötuhjúin að leika saman í Nine (2009) en
Bardem varð frá að hverfa vegna ofþreytu. Bardem og Cruz eru einu
spænskættuðu leikararnir sem hafa verið tilnefndir og hlotið Ósk-
arsverðlaun enda eru þau með afbrigðum hrífandi og hæfileikarík.
Blossandi ást
BARDEM OG CRUZ
Ást Bardem og Cruz í
Vicky Cristina Barcelona.
Óþokki Árið 2008 var persóna Bardems í mynd Coen-bræðra, No Country for Old Men, í 26.
sæti á lista Entertainment Weekly yfir „50 harðsvíruðustu óþokka kvikmyndasögunnar.“