Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Fátt fréttum við frá Mið-Afríku
nema af hörmungum og hryllingi.
Víst þekkja einhverjir til trommu-
leikaranna frá Búrúndí sem farið
hafa ótal tónleikaferðir um heim-
inn, en þá má segja að það sé
upptalið sem heyrst hefur af tón-
list eða frést af listum frá ófrið-
arslóðum við vötnin miklu í Mið-
og Austur-Afríku. Fyrir stuttu
rak þó á fjörur Evrópumanna
diskinn Kigali y’ izahabu með
þremur uppgjafahermönnum frá
Rúanda, The Good Ones, sem
sannar að þar eru menn að semja
fallega tónlist og ekki síðri en
annars staðar í heimsálfunni
miklu.
Sagan er nokkurn veginn þessi:
Upptökustjórinn Ian Brennan var
á ferð um Rúanda í leit að tónlist.
Þar sem hann er á ferð um stræti
Kigali sér hann tvo tónlistarmenn
álengdar, annar með gítar en báð-
ir syngja. Hann hreifst af sam-
söngnum og lögunum og spurði
þá hvort honum væri óhætt að
hljóðrita þá. Þeir tóku því ekki vel
því það vantaði einn félaganna, en
Hörmungar verða að ást
Tríó frá Rúanda vekur mikla athygli manna nú um stundir Á nýrri skífu
The Good Ones er að finna verkamannasöngva um ást og aðskilnað
Innblásnir Rúandísku félagarnir í The Good Ones – Adrien Kazigira, Jeanvier Havugimana og Stany Hitimana.
sömdu um það að hittast daginn
eftir hjá kunningja þeirra.
Garmur og gítar
Þar var skífan síðan tekin upp,
tólf lög alls. Félagarnir mættu með
kassagítarinn með sér, hálfgerðan
garm og ekki nema fjóra strengi,
en það tókst að skaffa annan gítar,
aðeins betri. Garmurinn var því
gerður að bassa og hinn gítarinn sá
um laglínurnar. Átta laganna eru
eftir Adrien Kazigira, sem syngur
aðalrödd og leikur á gítar, og fjög-
ur eftir Jeanvier Havugimana, sem
syngur bakraddir, en þriðji liðs-
maðurinn
er Stany
Hitimana,
sem leikur
á gítar og
syngur.
Kazigira og
Hitimana
eru 47 ára
gamlir, en
Jeanvier 38
ára. Þeir
hafa hafa
átt erfiða
daga, eins
og flestir
íbúar landsins reyndar, því Rúanda
er eitt af fátækustu löndum heims.
Áhrif koma úr ýmsum áttum;
Kazigira segist innblásinn af Bob
Marley, Hitimana leitar í smiðju
Carlos Santana og Jeanvier hlustar
á zouk, en svo kallast danstónlist
úr Karíbahafi. Að því sögðu þá
dregur músíkin dám af því sem
hæst hefur borið í Vestur- og Mið-
Afríku á undanförnum árum og
soukous frá Kongó setur sterkan
svip á lagasmíðar þeirra félaga,
þótt það sé ekki sama fjör enda
órafmagnað. Lögin syngja þeir á
kinyarwanda, sem er mállýska út
frá rwanda-rundi, opinberu tungu-
máli Rúanda, aðallega notuð í Ki-
gali. Hvað textana varðar þá kemur
fram á vefsetri útgáfunnar að lögin
séu dæmigerðir verkamanna-
söngvar þar sem sungið er um ást
og aðskilnað.
Í Búrúndí er starfræktur kon-
unglegur trommuflokkur sem
getið er hér til hliðar. Hann hef-
ur verið á ferðinni um heiminn
frá því snemma á sjöunda ára-
tugnum, víða farið og haft tals-
verð áhrif á svo ólíka listamenn
sem Joni
Mitchell,
Echo & the
Bunnymen
og Adam and
the Ants.
Sveitin legg-
ur ekki minna
upp úr
trommu-
fimleikum en
trumbu-
slætti.
Konungleg
trommusveit
BUMBUSLÁTTUR
Svo virðist sem Thom Yorke ætli að
reyna fyrir sér í hip-hop tónlist, í
það minnsta ef marka má banda-
ríska rapparann Doom. Hann lét
þau orða falla í nýlegu viðtali við
3D World tímaritið að þeir Yorke
væru að „undirbúa einhvern fjand-
ann“. Ku Doom vonast eftir því að
úr þessu samstarfi gæti orðið til
plata með dúettum þessara ólíku fé-
laga. „Hann er kúl og með fullt af
svaðalegum hugmyndum,“ sagði
Doom, einn fremsti rappari Banda-
ríkjanna, í viðtalinu.
Thom Yorke
hyggst rappa
Kúl Thom Yorke er best þekktur
sem söngvari Radiohead.
„Born this Way“, eitt af lögum
bandarísku tónlistarkonunnar
Lady Gaga, hefur verið ritskoðað af
nokkrum malasískum útvarps-
stöðvum út af jákvæðri umfjöllun
um samkynhneigð í texta lagsins,
skv. tilskipunum frá yfirvöldum en
samkynhneigð er refsiverð skv.
malasískum lögum. Þykir yfir-
mönnum útvarpsstöðvanna umfjöll-
unarefnið forboðið og misbjóða
hlustendum og var því gripið til
þess ráðs að setja píphljóð yfir orð
sem vísa í samkynhneigð í laginu.
Lag eftir Gaga rit-
skoðað í Malasíu
Reuters
Ritskoðuð Lady Gaga í miklum
ham á tónleikum fyrr á árinu.
Skannaðu kóðann til
að sjá myndband með
The Good Ones að
flytja lagið Sara af Ki-
gali y’ izahabu
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- ROGER EBERT
HHHH
- H.S. - MBL
HHHH
- Þ.Þ. - FT
EKKERT GETUR UNDIRBÚIÐ ÞIG
FYRIR ÞAÐ SEM GERIST NÆST
MÖGNUÐ STÓRMYND SEM BEÐIÐ HEFUR
VERIÐ EFTIR MEÐ EFTIRVÆNTINGU
HHHH
Rango er afbragðs skemmtun
og veisla fyrir þá sem kunna
að meta metnaðarfullar
teiknimyndir
- H.S. - MBL
LOVE AND OTHER DRUGS Sýnd kl. 8 og 10:20
BATTLE: LOS ANGELES Sýnd kl. 8 og 10:20
RANGO ENSKT TAL Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
RANGO ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 5:50
OKKAR EIGIN OSLÓ Sýnd kl. 6
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
SEASON OF THE WITCH KL. 8 – 10.15 14
BATTLE LOS ANGELES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
BATTLE LOS ANGELES LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
OKKAR EIGIN OSLÓ KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 L
THE ROOMMATE KL. 10.30 14
RANGO MEÐ ÍSLENSKU TALI KL. 3.30 - 5.45 L
RANGO MEÐ ENSKU TALI KL. 3.30 L
JUST GO WITH IT KL. 5.30 - 8 L
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%
5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
-K.S.B., MONITOR
LOVE AND OTHER DRUGS KL. 8 – 10.30 7
BIUTIFUL KL. 6 – 9 12
THE ROMANTICS KL. 10.30 L
OKKAR EIGIN OSLÓ KL. 5.45 - 8 - 10.10 L
RANGO MEÐ ÍSLENSKU TALI KL. 5.40 L
HOW DO YOU KNOW KL. 5.30 L
BLACK SWAN KL. 8 16
MEÐ ÍSL. OG ENSKU TALI
MÖGNUÐ STÓRMYND SEM BEÐIÐ HEFUR
VERIÐ EFTIR MEÐ EFTIRVÆNTINGU.
BATTLE: LOS ANGELES KL. 8 - 10.15 12
RANGO MEÐ ÍSLENSKU TALI KL. 6 L
BLACK SWAN KL. 6 16
OKKAR EIGIN OSLÓ KL. 8 L
THE MECHANIC KL. 10 16
-H.S., MBL -Þ.Þ., FT
-T.V. - KVIKMYNDIR.IS