Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ENN EIN
VILLT HELGI
ÉG VEIT
HVAÐ VIÐ GETUM
GERT!
FÖRUM Í LYFTU OG LÁTUM SEM
OKKUR SÉ GÍFURLEGA ÓGLATT!
MÉR ER NÚ
ÞEGAR ORÐIÐ
ÓGLATT
PABBA
HEFUR LENGI
LANGAÐ AÐ
VERÐA GÓÐUR Í
KEILU EÐA
GOLFI
HANN LANGAR AÐ VERA JAFN
GÓÐUR Í KEILU OG DON
CARTER EÐA JAFNGÓÐUR Í
GOLFI OG TIGER WOODS
HVERNIG
HEFUR HONUM
GENGIÐ MEÐ ÞAÐ?
HANN ER JAFN GÓÐUR Í
KEILU OG TIGER WOODS OG
JAFN GÓÐUR GOLFARI OG
DON CARTER
ÉG SKIL
EKKI KARLMENN!!
ÞÚ SKILUR ÞÁ ÞEGAR
ÞÚ VERÐUR ELDRI
EN ÞÁ VERÐUR
ÞAÐ ORÐIÐ OF
SEINT
ÞAÐ ER
EKKI RÁÐLEGT
AÐ NOTA SAMA
LEYNIORÐIÐ
FYRIR
TÖLVUPÓSTINN
ÞINN OG FYRIR
HLIÐIÐ AÐ
KASTALANUM
BARA
SKEMMTILEG, VIÐ
ERUM BÚIN AÐ FÁ
FYRSTA VERKEFNIÐ
OKKAR
VIÐ EIGUM AÐ TAKA
VIÐTAL VIÐ ÖMMU OKKAR Í
AÐRA HVORA ÆTTINA. ÉG
HAFÐI HUGSAÐ MÉR AÐ TAKA
VIÐTAL VIÐ ÖMMU BJÖRGU
JÁ,
HÚN HEFUR
VISSULEGA
LIFAÐ
ÁHUGAVERÐU
LÍFI
VISSU-
LEGA, EN ÞÚ ERT
EKKI NÓGU GAMALL
TIL AÐ HEYRA
MEGNIÐ AF ÞVÍ
HVERNIG
VISSI ÞESSI
STÚLKA AÐ ÞÚ
VÆRIR HÉRNA?
HÚN VAR
SVO SANNARLEGA
EKKI AÐ LEITA AÐ
MÉR
ÞÚ SAGÐIST HAFA HITT
HANA ÁÐUR...
KANNSKI
VAR HÚN AÐ LEITA
AÐ ÞÉR!
HVERNIG
VAR FYRSTA VIKAN
ÞÍN Í SKÓLANUM
NONNI?
Bíóraunir
Ég skellti mér á The
King’s Speech í Sam-
bíóunum Egilshöll sl.
miðvikudag. Ég er
ekki vanur því að
kvarta, en í þetta
skiptið fannst mér
ýmislegt að. Eins og
venja er þegar maður
skellir sér í bíó þá
kaupir maður sér
poppkorn. Poppið er
venjulega búið eftir
15 mínútna auglýs-
ingarunu í byrjun
myndarinnar. Í þetta
skiptið var poppið
brimsalt og nánast óætt. Þegar
myndin byrjaði loksins tók ég eftir
því að dyrnar, sem bíógestir labba
út um í lok myndarinnar, voru opn-
ar. Heyrðist því vel í myndinni í
salnum við hliðina á okkar sal. Loks
þegar þeirri mynd var lokið opn-
uðust dyrnar á þeim sal og út
streymdi fólkið. Auk þess gat mað-
ur heyrt lagið í lok
þeirrar myndar sem
var um hann Justin
Bieber. Það var ekki í
lægri kantinum. Þetta
skemmdi talsvert
myndina sem við vor-
um að horfa á. Það er
ekki ódýrt að skella
sér á bíó. Fyrir 1400
krónurnar sem miðinn
kostar gerir maður
ákveðnar lágmarks-
kröfur um að salurinn
sé lokaður á meðan
myndin er í sýningu
og að maður sé ekki
að horfa á tvær mynd-
ir í einu. Auk þess
mætti poppið vera betra.
Ég vænti þess að Sambíóin verði
búin að kippa þessu í liðinn næst
þegar ég skelli mér í bíó.
Bíógestur.
Ást er…
… það sem kemur þér í
gegnum erfið tímabil.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, út-
skurður/myndlist kl. 13. Félagsvist kl.
13.30.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Félagsvist kl. 13.30.
Myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur,
handavinna, leikfimi kl. 13, sögustund
kl. 13.45.
Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín
kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, bæna-
stund kl. 9.30, söngur á 2. hæð kl.
10.30, leikfimi kl. 11, upplestur kl. 14.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30.
Danskennsla kl. 17.
Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9.
Botsía kl. 11. Handverksklúbbur Valdórs
kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinna kl. 9, botsía kl. 9.30, gler og
postulín kl. 9.30/13, lomber kl. 13, ka-
nasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17, skap-
andi skrif kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
lín kl. 9, tréskurður kl. 9.30, ganga kl.
10, handavinna/brids kl. 13. Félagsvist
kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10, 11, vatns-
leikfimi kl. 12.10, aðalfundur FEBG í
Jónshúsi kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9. Spilasalur opinn frá hád. Kóræf-
ing l. 15.30. Föstud. 1. apríl kl. 13 farið
að Nesvöllum í Reykjanesbæ. Fimm-
tud. 7. apríl leikhúsferð í Borgarleik-
húsið, Nei ráðherra, skráning hafin á
staðnum og s. 5757720.
Furugerði 1, félagsstarf | Bókband
kl. 10. Leikfimi kl. 13. Framhaldssaga
kl. 14.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Spil, spjall og kaffi kl. 13.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
bænastund kl. 10, Helga fótafræðingur
er á staðnum tímap. í síma 6984938,
Hárgreiðslustofa Fjólu er opin kl. 9-14,
tímapantanir í s. 8946856.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga
kl. 10 frá Haukahúsi, kór kl. 10.30,
glerbræðsla kl. 13, tréskurður kl. 13,
félagsvist og botsía kl. 13.30, vatns-
leikf. kl. 14.40.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30,
9.30 og 10.30. Vinnustofa kl. 9. Brids
kl. 13, kaffisala.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum kl. 11.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga frá Eg-
ilshöll kl. 10, sjúkraleikfimi Eirborgum
kl. 14.30. Sundleikfimi kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við
Hringborðið - spjallhópur kvenna kl.
10.30, handverks- og bókastofa kl.
11.30, Prjónaklúbbur o.fl. kl. 13, botsía
kl. 13.30, söngstund kl. 15.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10. Út-
skurður kl. 13. Handavinna kl. 9/13.
Samverustund með djákna kl. 14.
Vesturgata 7 | Handavinna, botsía,
leikfimi kl. 9.15. Tölvukennsla kl. 12,
kóræfing kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
postulín/bókband kl. 9, morgunstund
kl. 9.30, botsía kl. 10, framh.saga kl.
12.30, handavinnustofa/stóladans/spil
kl. 13.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir sendikveðju til Vísnahornsins. „Það
er alltaf gaman að lesa það og góð
hvíld frá hruni og bullinu í borg-
arstjóranum.“ Og hún yrkir vísu
undir yfirskriftinni „Litli þröst-
urinn í garðinum mínum“:
Ekki voru alveg nóg
örfá korn í nefið.
Sárast hungrið söddu þó
og senn við fljúgum út í mó.
Verður okkur þar af Guði gefið.
Og hún yrkir við starfslok:
Þó að fölni fortíðin,
er fagrir geislar dvína.
Láttu aldrei leiðindin
lama sálu þína.
Ingibjörg sendi vinkonu við móð-
urmissi:
Svona er lífið, ljúfan mín,
létt það áfram stikar.
Þótt við tregum tryggan vin
og tár í auga blikar.
Loks á Biblíudegi:
Lífsins bók er lista mest
og líkna flestum kann.
Sögur fagrar segir þér
um sjálfan meistarann.
Því er best á flugi og ferð
og fjarri heimarann
að geta af hennar brunni bergt
hans boð um kærleikann.
Davíð Hjálmar Haraldsson kast-
ar fram limru:
Í grjóti og grund tók að jálma,
geldneyti óðar fékk stálma,
skyr stóð í báli
og skegg óx á á Njáli
er Jófríður sönglaði sálma.
Guðmundur Stefánsson hefur
þann sið að láta sæða kvígurnar
framan af vetri en setur svo tudda í
þær seinni part vetrar til þess að
klára málið eða „hreinsa upp“, eins
og sumir kalla það. Hann setti tudd-
ann Kranga fyrir stuttu í kvíg-
urnar:
Ekki fangið festa ná,
fúlar stangast, bíða.
Kvígna langan, þörf og þrá,
þeim mun Krangi hlýða.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af hungri og Kranga