Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Öflugir TUDOR High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.
Það er bagalegt hvernig ágengir„fræðimenn“ í H.Í. hafa glutr-
að niður trúnaði fólksins sem held-
ur þeirri stofnun uppi. Skrif Evr-
ópuvaktarinnar endurspegla þetta:
Komið hefurfram í fréttum
að Lagastofnun Há-
skóla Íslands muni
taka að sér á vegum
innanríkisráðu-
neytis að ganga frá
kynningarefni
vegna Icesave III, sem sent verði
inn á hvert heimili á landinu.
Eins og bent hefur verið á hér áEvrópuvaktinni eru fjölmarg-
ir kennarar Háskóla Íslands, svo og
einstakar svonefndar stofnanir inn-
an skólans, sem oft eru í raun ekki
annað en samheiti fyrir starfsemi
kennaranna utan kennslustofa, svo
miklir þátttakendur í þjóðfélags-
umræðum að ekki er hægt að ganga
út frá því að slíkar háskólastofn-
anir, hverju nafni sem nefnast, geti
gengið frá slíku efni á þann veg að
það geti talizt „hlutlaus“ kynning.
Hver mundi t.d. taka mark áslíkri „kynningu“ frá Alþjóða-
málastofnun Háskóla Íslands um
Evrópusambandið?!!
Af þessum sökum er eðlilegt aðAlþingi sjái til þess að þeir
hópar, sem hafa orðið til og berjast
gegn samþykki Icesave III fá pen-
inga úr ríkissjóði til þess að kynna
almenningi sína hlið á málinu.
Þeir sem vilja samþykkja IcesaveIII hafa engan einkarétt á rík-
issjóði.“
Þessi ummæli og mörg önnursýna að það er orðið brýnt fyr-
ir H.Í. að koma „fræðilegri um-
ræðu“ um dægurmál upp á hærra
plan.
Háskóli Íslands
Vantar traust
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.3., kl. 18.00
Reykjavík 3 slydda
Bolungarvík -4 skýjað
Akureyri -6 snjókoma
Egilsstaðir -1 skýjað
Kirkjubæjarkl. 0 alskýjað
Nuuk -11 léttskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 3 heiðskírt
Kaupmannahöfn 5 léttskýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 2 léttskýjað
Lúxemborg 8 heiðskírt
Brussel 11 heiðskírt
Dublin 12 skýjað
Glasgow 11 alskýjað
London 12 heiðskírt
París 12 heiðskírt
Amsterdam 10 heiðskírt
Hamborg 10 léttskýjað
Berlín 6 heiðskírt
Vín 7 skýjað
Moskva 1 heiðskírt
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 20 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 12 skýjað
Winnipeg 2 skúrir
Montreal 0 léttskýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 7 skúrir
Orlando 26 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:26 19:45
ÍSAFJÖRÐUR 7:30 19:51
SIGLUFJÖRÐUR 7:13 19:34
DJÚPIVOGUR 6:55 19:15
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
„Ég kaus á þessum tíma að standa
frekar með minni samvisku heldur en
að vera hlutlaus í afgreiðslu ráðningar
nýs bankastjóra. Ég taldi líka mikil-
vægt miðað við stöðu bankans, að nýr
bankastjóri fengi fullan stuðning allrar
stjórnarinnar við ráðninguna,“ segir
Kristján Jóhannsson, fulltrúi Banka-
sýslu ríkisins (BR) í stjórn Arion
banka.
BR tilkynnti í gær að hún myndi
ekki endurnýja umboð hans til setu í
stjórninni þar sem hann hefði stutt
ákvörðun um laun Höskuldar Ólafs-
sonar, forstjóra bankans, sem nema
um 2,9 milljónum á mánuði.
Inntur eftir því hvort honum hafi
ekki blöskrað þessi laun segir Krist-
ján: „Eigendastefna ríkisins kveður á
um að launin skuli vera samkeppnis-
hæf en ekki leiðandi. Við ákvörðun
launanna var kannað hvernig kaupin
gerast á eyrinni, þ.e.a.s. hvernig laun
stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum af
þessari stærð eru. Okkar niðurstaða
var sú að þessi laun væru í hærra með-
allagi en ekki leiðandi.“ Hann bætir því
við að samantekt viðskiptablaðs Morg-
unblaðsins í síðustu viku af þessu til-
efni hefði leitt í ljós að mánaðarlaun
forstjóra stórra íslenskra fyrirtækja
lægju á bilinu 2 – 4 milljónir. „Það
gladdi mig að sjá að við höfum ekki
verið út úr kortinu með okkar mat.“
Hefði verið rétt að sitja hjá
Í fréttatilkynningu frá í gær segir
Bankasýslan að stjórn hennar telji að
stjórnarmenn BR í Arion banka og Ís-
landsbanka hafi ekki brotið gegn eig-
andastefnu ríkisins. Fulltrúi BR í
stjórn Íslandsbanka sat hjá við af-
greiðslu launa forstjóra hans en Krist-
ján samþykkti laun forstjóra Arion
banka. „Einnig telur stjórn BR að
ráðningarferlið í Arion banka hafi ver-
ið vandað, eins og því er lýst í grein-
argerð stjórnarmanns,“ segir í til-
kynningunni. Stjórnin taki ekki
afstöðu til launanna, enda ákvörðun
um launakjör ekki í höndum ríkisins.
„Stjórnin telur þó jafnframt að með
tilliti til eðlis málsins hefði verið rétt af
fulltrúa BR í Arion banka að taka ekki
þátt í afgreiðslu þess, bæði í ljósi við-
kvæmrar stöðu bankanna við endur-
reisn bankakerfisins, nú þegar stefnt
er að því að byggja upp traust og trú-
verðugleika fjármálafyrirtækja, og
viðleitni stjórnvalda til að hafa hemil á
launahækkunum hærri launa.“
Báru saman laun stjórnenda
Mikilvægt að nýr bankastjóri fengi stuðning allrar stjórnarinnar við ráðningu,
segir fulltrúi BR í stjórn Arion Launin í hærra meðallagi en ekki leiðandi
Þorsteinn Þorsteinsson, formaður
stjórnar Bankasýslu ríkisins, segir
stjórnarmenn hennar í bönkunum
starfa sjálfstætt. „Þeir bera ábyrgð
á sínum störfum og síðan metur
Bankasýslan hvernig þeir hafa stað-
ið sig. Það er í samræmi við hluta-
félagalög að eigandinn hafi ekki
áhrif á daglegan rekstur fyrirtæk-
isins.“
Það hafi hins vegar ábyrgð í för
með sér. „Þetta mál er þannig vaxið
að við hefðum talið æskilegt og eðli-
legt að stjórnarmaðurinn hefði met-
ið það þannig af sinni eigin fyrir-
hyggju að þetta væri mál sem ekki
væri eðlilegt að fulltrúi ríkisins tæki
þátt í.“
Inntur eftir því hvort ekki hefði
verið eðlilegra að fulltrúarnir hefðu
hafnað launum forstjóra bankanna
svarar Þorsteinn: „Það er þeirra að
ákveða það, við gerum enga kröfu
þar um. Við teljum eðlilega afstöðu
að taka ekki þátt í afgreiðslu málsins
því þar sem ríkið er með minnihluta í
báðum þessum bönkum er ákvörð-
unin ekki í okkar höndum.“
Hann segir BR ekki hafa orðið
fyrir pólitískum þrýstingi vegna
málsins og að yfirlýsingar ráða-
manna í fjölmiðlum vegna þess hafi
ekki haft áhrif á ákvörðunina.
„Reyndar vorum við með stjórn-
arfund um miðja viku og tókum okk-
ar ákvarðanir þá þannig að t.d. þetta
viðtal við forsætisráðherra sem var á
laugardag gat ekki haft nein áhrif á
okkur. Enda er markmiðið með
Bankasýslunni að færa eignarhluta
ríkisins af hinum pólitíska vettvangi
og yfir á þann faglega. Fjármála-
ráðherra getur þó beint til okkar til-
mælum skriflega. Það hefur ekki
verið gert.“
Enginn pólitískur
þrýstingur að baki
Morgunblaðið/Ómar
Arion Fulltrúi BR í stjórn bankans
fær ekki endurnýjað umboð.