Morgunblaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Raðauglýsingar 569 1100
Félagsstarf
Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Garðabæ
Aðalfundur
verður haldinn þriðjudaginn 29. mars 2011 á
heimili félagsins að Garðatorgi 7, Garðabæ, og
hefst klukkan 17.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Önnur mál
Stjórn Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.
Félagslíf
MÍMIR 60110321 III° HEKLA 6011032119 VI
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Ferðalög
Árshátíð - Óvissuferð - Vorferð
Humarhlaðborð - Aðstoðum við
skipulagningu ferða - Allt að 50%
afsláttur af rútuferðum -
Sími 511 3100 - www.hafidblaa.is
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 85 ,140 og 160m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, s. 897- 5300.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Skemmtanir
2 fyrir 1 á kvöldin í mars og apríl.
Sjávarbarinn Grandagarði.
sjavarbarinn.com. S. 517 3131.
Til sölu
Smáratorgi
Lágvöruverðsverslun fyrir
heimilið
Mikið úrval af nýjum vörum.
Lægsta verð kr. 290. Gott verð kr.
390. Hæsta verð kr. 690.
Vélaskemma 82 ferm. til sölu
15 metra löng, 5,3 m á hæð. Verð nú
799 þús. kr. Uppl. í s. 849-2302.
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar í
úrvali. Auk gullhringa eigum við m.a.
titanium og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðar-
þjónusta.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhaldsstofan ehf., Reykja-
víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi,
launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl,
stofnun fyrirtækja. Magnús Waage,
viðurkenndur bókari, s. 863 2275,
www.bokhaldsstofan.is.
Skattframtöl
Framtöl - bókhald - ársreikningar
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga
og rekstraraðila. Mikil reynsla. Einnig
bókhald, ársreikn. o.fl. fyrir fyrirtæki.
HAGSTÆTT VERÐ. S. 517-3977.
www.fob.is
Þjónusta
ERFÐASKRÁR
Ég, Hilmar Þorsteinsson, meistara-
nemi í lögfræði, tek að mér
samningu erfðaskráa, þannig að
öllum lagaskilyrðum sé fullnægt.
Hóflegt verð — persónuleg
þjónusta. Sími: 696 8442,
netfang: hth56@hi.isÝmislegt
Ódýr gæðablekhylki og tonerar
í prentarann þinn. Öll blekhylki
framleidd af ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517 0150
- Sloppar
- N
Fr Sigur laug
in s. 774-7377
TVEIR GLÆSILEGIR
Teg. PRISCILLA - Push up. Fæst í
A,B,C,D skálum á kr. 7.680,-
Teg. TABOO - Push up fyrir þær
stærri í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr.
7.680,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Mikið úrval af flottum dömuskóm
úr leðri. Allir skinnfóðraðir.
Verð frá 13.885,- til 16.485,-
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18,
laugardaga 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Hyundai Starex 4x4 dísel
árg. 2003
Til sölu Hyundai Starex 4x4 dísel, árg.
2003, stærri vélin, ek. 132 þ. Vel með
farinn, 7 manna, frábær fjölskyldubíll,
dráttarbeisli, nýskoðaður. Verð 1490
þús. Uppl. í síma 664 8363.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Öruggur í vetraraksturinn.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '11.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar,
gler og gluggaskipti.
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
✝ Sigurlaug Jó-hanna Jóns-
dóttir fæddist í
Botni í Dýrafirði
14. febrúar 1914.
Hún lést á Drop-
laugarstöðum 9.
mars 2011. For-
eldrar hennar voru
Kristjana Sigur-
línadóttir, f. 6. jan-
úar 1882, d. 27.
mars 1971, og Jón
Jústsson, f. 28. sept. 1854, d.
27. apríl 1945. Systkini: Sig-
urlína, f. 1900; Sigríður, f.
1901; Þórður, f. 1904; tvíbur-
arnir Magnús og Ragnheiður f.
1909; Ingunn er
ein eftirlifandi, f.
1916, og dvelur á
Hrafnistu í Reykja-
vík; Garðar, f.
1917, og Snæbjörg
Inga, f. 1921.
Sonur Sig-
urlaugar og Stef-
ans Antonssonar, f.
21. feb. 1927, var
Steve Antonsson, f.
15. nóv. 1958, hann
lést í Bandaríkjunum 21. feb.
1981.
Útför Sigurlaugar fer fram í
Fossvogskapellu í dag, 21. mars
2011, og hefst athöfnin kl. 13.
Fyrstu æviárin dvaldi
Lauga, eins og við kölluðum
hana alltaf, hjá móðurforeldr-
um sínum, en eftir andlát afa
síns flytur Lauga með ömmu
sinni til móðursystur sinnar
Magnfríðar sem bjó í Ólafsvík.
Aðeins 10 ára fer hún í vist til
Kristínar og Jóns Sigmunds-
sonar á Grafarbakka á Hellis-
sandi og var þar til 17 ára ald-
urs.
Jón var formaður á Blika
sem nú er til sýnis á safni á
Sandi og er það merkisbátur.
Lauga sagði frá því að þetta
hefði verið tíæringur en seinna
var sett í hann vél. Það var gott
atlæti hjá þeim hjónum en nóg
að starfa. Meðal annars fór hún
með mat niður í fjöru til sjó-
mannanna þegar þeir komu að
landi. Það hefur örugglega ver-
ið erfitt hjá henni að bera mat-
inn langar leiðir, en það var nú
ekki siður hjá henni að kvarta.
Þar sannaðist máltækið að
margur er knár þó að hann sé
smár.
Á fullorðinsárum vann hún á
hinum ýmsu stöðum og yfirleitt
við matreiðslu eða þrif. Hún
lærði til matreiðslu og vann
meðal annars sem ráðskona á
Bændaskólanum á Hólum í
Hjaltadal.
Hún fór til Bandaríkjanna
1953 og var þar í um það bil 15
ár og vann einna lengst við
matreiðslu á Gyðingasjúkrahúsi
í New York. Í Bandaríkjunum
eignaðist hún vinkonur sem
hún hélt tryggð við allt til síð-
asta dags.
Við systkinin og fjölskyldur
þökkum Laugu löng og góð
kynni. Hún og mamma voru
vinkonur og þannig kom hún
inn í okkar líf og við höfum
haldið sambandi eftir andlát
mömmu. Á níræðisaldri kom
hún í heimsókn til Maryland í
Bandaríkjunum þar sem Halla
tók á móti henni og var ferðin
henni ógleymanleg og sérstak-
lega að geta vitjað leiðis sonar
síns.
Lauga bjó lengst af í húsi
Öryrkjabandalagsins í Hátúni
eftir heimkomu frá Bandaríkj-
unum. Lauga var einstakega
gjafmild og gestristin. Enginn
fór svangur frá hennar borði og
hvað henni þótti gaman að bera
fram kræsingar og stundum
skipti árstími máli og var t.d.
villltur lax að sumri í miklu
uppáhaldi. Enga Þorlákmessu
muna tvíburasynir Torfa nema
í veislu hjá Laugu allt þar til
hún fór á dvalarheimilið.
Síðustu tvö árin dvaldi hún á
Droplaugarstöðum og var vel
hugsað um hana þar.
Í æsku langaði Laugu til að
ganga til mennta en aðstæður
og efni leyfðu ekki. Hún lærði
ung að lesa enda fróð og vel að
sér um menn og málefni og
stálminnug fram í háa elli. Hún
hafði mjög gaman af tónlist og
ekki var óalgengt að ljúf tónlist
tæki á móti er gesti bar að
garði og voru karlakórar í sér-
stöku uppáhaldi.
Blessuð sé minning þín.
Halla, Torfi
og fjölskyldur.
Sigurlaug Jóhanna
Jónsdóttir Morgunblaðið birtir minn-ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviá-
gripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent er ráð-
legt að senda myndina á net-
fangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar