Morgunblaðið - 21.03.2011, Síða 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Sudoku
Frumstig
2
2 8
7
2 6 3
7 3 2 4
4 5 9 7
5 6 4 8
9 7 2 3 4 5
7 6 3
9 8 2 6 7
4 5 8
3
6 9
3 7
6 5
2 8 3
6 4
9 7 4 2
8
9 6 1 4 2
5 3
9 6 2
5 4 1 3
3 4 2 6
2 8
1 6 4
1 9
5 4 8 6 3 1 9 7 2
9 7 2 8 4 5 6 1 3
3 1 6 2 9 7 4 8 5
6 5 4 3 8 2 7 9 1
1 9 7 5 6 4 3 2 8
2 8 3 1 7 9 5 6 4
8 6 9 4 2 3 1 5 7
4 2 5 7 1 6 8 3 9
7 3 1 9 5 8 2 4 6
5 2 3 9 1 8 6 7 4
6 9 4 5 7 3 8 1 2
8 1 7 2 4 6 5 3 9
1 3 8 4 6 5 9 2 7
9 4 6 1 2 7 3 8 5
7 5 2 8 3 9 4 6 1
2 7 9 3 8 4 1 5 6
3 6 5 7 9 1 2 4 8
4 8 1 6 5 2 7 9 3
8 2 4 3 1 6 5 9 7
7 6 9 2 4 5 1 3 8
1 5 3 7 9 8 4 6 2
4 3 7 6 5 1 2 8 9
5 9 2 8 7 3 6 4 1
6 8 1 9 2 4 3 7 5
3 1 8 5 6 7 9 2 4
2 4 6 1 8 9 7 5 3
9 7 5 4 3 2 8 1 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 21. mars, 80. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Nokkur stórveldi ákveða aðhætta lífi eigin borgara til að
verja vopnlaust fólk sem sætir
grimmd af hálfu eigin ráðamanna.
x x x
Víkverji veltir því fyrir sér hvorthann sé einn um að finnast dá-
lítið undarlegt að hlusta á ráðherra
og fleiri stjórnmálamenn á Alþingi
skamma svonefnt alþjóðasamfélag
fyrir að hafa allt of lengi brugðist al-
menningi Líbíu. Og hrósa síðan ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir
að samþykkja flugbann sem merkir
loftárásir.
x x x
Sama fólkið og ærðist 2003 yfirþví að Bandaríkjamenn og
Bretar réðust inn í Írak til að stöðva
grimmdarsegg sem hafði látið drepa
hundruð þúsunda óbreyttra borgara
segir nú að þetta sé fínt í Líbíu
vegna þess að öryggisráðið hafi
samþykkt aðgerðirnar! Saklaust
fólk lét lífið í innrásinni í Írak eins
og alltaf í stríði, það sama hlýtur að
gerast í loftárásunum á Líbíu.
x x x
Annað sem líka fær Víkverja tilað velta fyrir sér orðinu hræsni
er að þess er krafist hér að sumar
þjóðir beiti vopnum þegar allt annað
þrýtur. En óhugsandi að Íslend-
ingar, aðildarþjóð NATO, komi sér
upp nokkur hundruð manna herliði
sem nota mætti m.a. við frið-
argæslu. Fámennu liði en fleiri ríki
eru fámenn. Eistlendingar eru að-
eins um fimm sinnum fleiri en við og
miklu fátækari. Samt eru þeir með
um 150 manna her í Afganistan.
x x x
En Eistlendingum finnst að þeirverði að leggja sitt litla lóð á
vogarskálarnar til að geta borið höf-
uðið hátt og þegið þá vernd stór-
veldanna sem felst í aðildinni að
NATO. Þeir vilja ekki fá alltaf frí-
miða. Og þeir vita vegna hræðilegr-
ar reynslu af grönnum sínum í
austri að frelsið er ekki ókeypis,
eins og einn þeirra sagði Víkverja
nýlega.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skvampa, 4 hrós-
aði, 7 ómerkileg manneskja,
8 vanvirða, 9 blóm, 11 brún,
13 vangi, 14 hakan, 15 lauf,
17 skoðun, 20 bókstafur, 22
ávarpar, 23 hreyfir fram og
aftur, 24 kasta, 25 áma.
Lóðrétt | 1 bugða, 2 beisk-
an, 3 keyrir, 4 lof, 5 birta, 6
duglegur, 10 vanskil, 12 af-
reksverk, 13 rösk, 15 ótta,
16 ójafnan, 18 laghent, 19
kaka, 20 baun, 21 ófríð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skrælingi, 8 sótti, 9 urtur, 10 nón, 11 iðrun, 13 nærri,
15 stáls, 18 stekk, 21 kóp, 22 flaga, 23 urrar, 24 vankantur.
Lóðrétt: 2 kætir, 3 ærinn, 4 Iðunn, 5 getur, 6 usli, 7 grái, 12 ull,
14 æft, 15 saft, 16 ábata, 17 skark, 18 spurn, 19 eirðu, 20 kort.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 0-0
5. 0-0 d6 6. c4 Rbd7 7. Rc3 c6 8. e4 Dc7
9. h3 a6 10. a4 e5 11. Be3 exd4 12. Rxd4
He8 13. Dc2 a5 14. Had1 Rc5 15. Hfe1
Bd7 16. f4 Had8 17. Rb3 Rxb3 18. Dxb3
c5 19. Bf2 Bc6 20. Rb5 Bxb5 21. Dxb5
h5 22. e5 dxe5 23. fxe5 Hxd1 24. Hxd1
Hxe5 25. Bxb7 Hg5 26. Bg2 Hf5 27.
Db7 De5 28. He1 Dd6 29. Da8+ Kh7
30. Dxa5 Rd7 31. Be4
Staðan kom upp á MP Reykjavík-
urskákmótinu sem lauk nýverið í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Alþjóðlegi meist-
arinn Jón Viktor Gunnarsson (2.428)
hafði svart gegn dönsku skákkonunni
Oksana Vovk (2.204). 31. … Bd4! 32.
Bxf5 Dxg3+ 33. Kh1 Df3+ 34. Kh2
Dxf2+ 35. Kh1 Df3+ 36. Kh2 Df4+ 37.
Kg2 Df2+ 38. Kh1 gxf5 39. Hb1 Df3+
40. Kh2 Df4+ og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Kunnur kennimaður.
Norður
♠963
♥9832
♦Á953
♣ÁD
Vestur Austur
♠10852 ♠ÁKDG
♥K5 ♥G7
♦G ♦10762
♣K109852 ♣G74
Suður
♠74
♥ÁD1064
♦KD84
♣83
Suður spilar 5♥ dobluð.
Í hópi bridsmanna er Mike Cappel-
letti best þekktur fyrir samnefnda
sagnvenju, sem notuð er inn á grand-
opnun mótherja. En hann er líka kunn-
ur kennimaður í póker, og sem slíkur
vel að sér í blekkingarleik. Cappelletti
var með spil austurs í Lebhar-
tvímenningnum í Louisville í síðustu
viku. Hann opnaði á 1♠ og eftir snarpa
sagnbaráttu var suður doblaður í 5♥.
Út kom ♦G, augljóst einspil. Sagnhafi
tók í borði og svínaði ♥D. Vestur drap,
spilaði spaða og Cappelletti tók með
kóng. Spilaði svo tígultvisti til baka
sem hliðarkall í laufi! Vestur dansaði
með, trompaði og spilaði laufi. Sagn-
hafi trúði hliðarkallinu og fór upp með
♣Á. Þrír niður.
Norskt par vann keppnina, en okkar
menn, Jón Baldursson og Þorlákur
Jónsson, urðu í öðru sæti.
21. mars 1734
Jarðskjálftar urðu í Árnes-
sýslu. Sjö eða átta menn létust
og sextíu bæir skemmdust,
einkum í Flóa, Ölfusi og
Grímsnesi. Tíu bæir féllu til
grunna og voru ekki aftur
byggðir upp „fyrir vatni og
sprungum jarðar,“ sagði í
Mælifellsannál.
21. mars 1968
Snjódýpt í Vestmannaeyjum
mældist 90 sentimetrar, sem
mun vera einsdæmi. Hitamæl-
irinn á Stórhöfða fór á kaf.
Fólk þurfti víða að fara út um
glugga á íbúðarhúsum og
björgunarsveitir grófu eitt
hús upp, en í því bjuggu eldri
hjón.
21. mars 1973
Samþykkt var stofnun fólk-
vangs í Bláfjöllum. Hann er 84
ferkílómetrar og liggur m.a.
að Heiðmörk og Reykjanes-
fólkvangi.
21. mars 1974
Undirskriftir 55.522 Íslend-
inga voru afhentar forseta
sameinaðs Alþingis þar sem
varað var við uppsögn varn-
arsamningsins við Bandaríkin.
Þetta var stærsta undir-
skriftasöfnunin hérlendis og
var hún nefnd Varið land.
21. mars 1982
Fjarhitun Vestmannaeyja var
formlega tekin í notkun, en
það var fyrsta hraun-
hitaveitan í heiminum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Jenný Friðjónsdóttir, naglafræðingur og gámabíl-
stjóri, er þrítug í dag. Hún býr í Mosfellsbæ en er
upphaflega að norðan og þangað lá leið hennar
um helgina, meðal annars til að hitta fjölskylduna.
„Maðurinn minn vinnur hjá Samskipum og fyrir-
tækið var að fara í eiginlega óvissuferð þar. Við
ákváðum að sameina þetta í svona afmælis- og
vinnudjammsferð,“ segir Jenný.
Jenný er lærður naglafræðingur og tekur á
móti viðskiptavinum heima til þess að laga neglur
og setja naglalakk. Jafnframt hefur hún unnið við
gámakeyrslu fyrir Samskip. „Maður verður að
hafa mörg járn í eldinum,“ segir hún. Það sé ekki svo óvenjulegt að
blanda þessum tveimur starfsgreinum saman, þær séu nokkrar sem
geri það. „Það er frekar að fólk reki upp stór augu þegar það sér
saumavélina og svo vörubílinn úti heldur en neglurnar og bílinn,“ seg-
ir Jenný en hún er að eigin sögn sauma- og prjónafíkill.
Prjónar hún hitt og þetta og ekki veitir af því hún á þrjú börn á
aldrinum 8 mánaða til 10 ára. „Dóttirin er dugleg við að týna vett-
lingum, þannig að það eru alltaf prjónaðir nýir fyrir hana,“ segir
Jenný. kjartan@mbl.is
Jenný Friðjónsdóttir er þrítug í dag
Prjónar og keyrir gámabíl
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
21. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.12 -0,2 7.16 4,4 13.30 -0,2 19.40 4,4 7.26 19.45
Ísafjörður 3.19 -0,3 9.11 2,3 15.39 -0,3 21.39 2,3 7.30 19.51
Siglufjörður 5.23 -0,2 11.46 1,4 17.53 -0,1 7.13 19.34
Djúpivogur 4.30 2,3 10.37 0,0 16.48 2,4 23.06 -0,1 6.55 19.15
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einhver hefur látið erfiðlega við þig
undanfarið, nú er kominn tími til að snúa
dæminu við. Vertu upp með þér yfir hrósi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Nú er að grípa tækifærið og gera tilboð
í það sem þú hefur lengi haft augastað á.
Samstarfsmenn þínir kunna vel að meta
hæfileika þína sem og yfirmenn þínir.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Á þessu og næsta ári hefurðu ein-
stakt tækifæri til að fegra heimili þitt og bæta
heimilisaðstæður þínar. Byrjaðu ótrauð/ur
upp á nýtt og talaðu nú tæpitungulaust.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Samband blómstrar þegar þú leggur
eitthvað til málanna. Ef eitthvað veldur þér
óánægju, segðu þá frá því.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Einhver vinnur ekki vinnuna sína og það
hefur áhrif á þig. Vertu því þolinmóð/ur og
leggðu málið til hliðar þar til sameiginleg nið-
urstaða liggur fyrir.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér finnst þú vera beitt/ur óréttlæti
og vilt helst leggjast undir sæng og vorkenna
þér. Vertu sá/sú sem rífur upp stemninguna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það hefur lítið upp á sig að gera áætlanir
ef þeim er svo stungið undir stól. Reyndu
hvað þú getur að ná sambandi við unglinginn.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Drífðu þig af stað og sinntu er-
indum eða notaðu daginn fyrir stuttar ferðir.
Aðra daga, eins og í dag, þarftu að spyrja þig:
hvað gleður mig í lífinu?
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þegar gleðistundir bresta á,
finnst þér þú heppnasta manneskja jarð-
arinnar. Notaðu tæknina til að afla þér upp-
lýsinga og kynna þér möguleika þína.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er auðvelt að falla í þá gildru
að hafa of miklar áhyggjur í dag, einkum og
sér í lagi með kvöldinu. Einhver fer yfir strikið
– það lendir á þér ef þú brest ekki við.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það vantar ekki mikið upp á að
þér takist að klára það verkefni sem þér hef-
ur verið falið. Fáðu útrás fyrir listamanninn í
þér ef þú mögulega getur. Flýttu þér hægt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér líður eins og þú þurfir að forða
þér. Innst inni leiðist þér fyrirsjáanleg rútínan
og þú leitar eftir spennu.
Stjörnuspá