Morgunblaðið - 21.03.2011, Qupperneq 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2011
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Norski rithöfundurinn Vidar Sund-
støl kom í stutta heimsókn hingað til
lands fyrir skömmu. Tilefnið var ís-
lensk útgáfa á glæpsögu hans Hinir
dauðu sem er framhald af verðlauna-
bókinni Land draumanna sem einnig
hefur komið út á íslensku. Þriðja
bókin og sú síðasta í þríleiknum um
lögreglumanninn Lance Hansen
kemur út í Noregi 1. maí.
Í Landi draumanna fann Lance
Hansen lík norsks ferðamanns við
Lake Superior. Lance kemst að því
að annað morð var framið á þessum
stað hundrað árum fyrr, á tímum
vesturferðanna þegar forfeður hans
flykktust til Minnesota. Lance grun-
ar að bróðir hans hafi framið morðið
á ferðamanninum en treystir sér
ekki til að segja frá því og annar
maður er sakaður um morðið og sett-
ur í fangelsi. Í annarri bókinni Hinir
dauðu fara bræðurnir saman á veiðar
og mikil spenna myndast milli
þeirra. Í bókinni leysist svo hin alda-
gamla morðgáta.
Heildstæð glæpasaga
Sundstøl er fyrst spurður að því
hvort hann hafi í byrjun ákveðið að
bækurnar yrðu þrjár.
„Nei,“ segir hann. „Ég bjó um
tíma með konu minni í nágrenni
Minnesota á svæði þar sem fjölmarg-
ir íbúar eru afkomendur Norðmanna
og Svía. Íbúarnir sögðu mér sögur
um forfeður sína og erfiðið sem þeir
lögðu á sig til að komast burt og
hefja nýtt líf í ókunnum heimkynn-
um. Þessar frásagnir snertu mig og
ég var sömuleiðis heillaður af um-
hverfinu og þessu mikla vatnasvæði,
Lake Superior. Ég hafði líka áhuga á
kynnum innflytjenda og indjána sem
bjuggu á svæðinu. Upphaflega lang-
aði mig til að skrifa langa skáldsögu
en þegar ég fór að hugsa um sögu-
þráðinn og huga að byggingu gerði
ég mér grein fyrir því að ég yrði að
skrifa fleiri en eina bók – og þær
urðu þrjár. Ég lít á þríleikinn sem
heildstæða glæpasögu eins og les-
andanum verður ljóst þegar hann les
allar bækurnar. Bók númer tvö hefur
ekki byggingu hefðbundinnar glæpa-
sögu, er meir í átt við sálfræðitrylli,
er miðkaflinn í langri glæpasögu.“
Þegar þú byrjaðir að skrifa söguna
vissirðu þá hvernig hún myndi enda?
„Já, en hlutverk sumra persóna í
bókinni breyttist í vinnuferlinu. Það
á til dæmis við um indjánann, töfra-
lækninn, sem hvarf fyrir hundrað ár-
um og birtist svo aftur sem draugur.
Í fyrstu bókinni segi ég um miðbik
bókarinnar að draugasögur hafi orð-
ið til um þann mann. Þegar ég skrif-
aði þá setningu fór ég að velta því
fyrir mér hvernig þessi þríleikur yrði
ef draugurinn skyti allt í einu upp
kollinum, rétt eins og hann væri lif-
andi maður og aðalpersónan sæi
hann öðru hvoru. Þessi draugagang-
ur setur svip á þríleikinn og skapar
sérstakt andrúmsloft. Þarna stökk
ég á hugmynd sem kviknaði í miðri
bók og skilaði sér svo í næstu bók.“
Fyrsta bókin í flokknum, Land
draumanna, valin besta glæpasagan í
Noregi. Það hlýtur að hafa glatt þig?
„Það gladdi mig en kom mér líka
mjög á óvart því húna var fyrsta
glæpasagan mín. Áður en hún kom
út hafði ég skrifað þrjár bækur. Þar
skiptir söguþráðurinn ekki eins
miklu máli og í glæpaþríleiknum.
Glæpir koma þar hvergi við sögu,
heldur fjalla bækurnar um ást og
samskipti eða skort á ást. Þar eru af-
ar einmana karlmenn, eins og Lance
er, í aðahlutverki. Ætli ég sé ekki
bara alltaf að skrifa um einmana
karlmenn. En þegar Land
draumanna kom út tóku norskir
gagnrýnendur henni ekki sem
glæpasögu. Hún fékk mjög góða
dóma við útkomu en það var ekki
fyrr en ég fékk verðlaunin ári seinna
sem verulegt skrið komst á þá bók,
hún var seld til annarra landa og öðl-
aðist eiginlega nýtt líf.“
Íslensk söguhetja
Tvær einangraðar manneskjur
eru í forgrunni út alla bókina. Varstu
ekki hræddur um að þér myndi ekki
takast að halda athygli lesandans
með því að láta verkið snúast nær
eingöngu um spennu milli þessara
tveggja einstaklinga?
„Nei, ég óttaðist það ekki en það
var mikil ögrun að viðhalda spennu í
gegnum alla bókina. Þegar ég byrja
að skrifa bók vil ég hafa á tilfinning-
unni að ég geti ekki skrifað hana,
hún sé of erfið. Um leið þarf ég að
vita innst inni að mér muni takast
það. Ég þarf að finna að skrifin séu
mikil og stöðug áskorun og að ég sé
að vinna bug á hindrunum sem ég
hef ekki mætt áður. Ef ég veit fyr-
irfram að ég get skrifað bók vegna
þess að ég hafi skrifað eitthvað álíka
áður þá hættir vinnan að vera
spennandi.“
Hvað ætlarðu að skrifa um næst?
„Næsta bók nefnist á ensku In-
visible King og er fyrsta bók í nýj-
um bókaflokki. Ef allt fer sam-
kvæmt áætlun kemur hún út árið
2013. Aðalpersónan í bókunum er
hálfenskur og hálfíslenskur karl-
maður sem býr í London en ólst upp
á Íslandi. Faðir hans, sem var ís-
lenskur, var fornleifafræðingur sem
vann í Pompei og hvarf einn daginn.
Móðirin sem er ensk fór þá með
fimmtán ára drenginn til London.
Þegar við hittum hann er hann 35
ára gamall blaðamaður sem vinnur
fyrir ferðatímarit. Í fyrstu bókinni
er hann í Alexandríu þar sem er
verið að leita að gröf Alexanders
mikla og flækist inn í mál sem snert-
ir hvarf föður hans tuttugu árum
fyrr.
Ég vonast til að skrifa að minnsta
kosti fimm bækur í þessum bóka-
flokki og vonandi fleiri. Hver bók er
sjálfstæð og fjallar að hluta til um
forna heimi. Bók númer tvö snýst
um Kleópötru og gamla styttu af
henni sem er seld á svörtum mark-
aði.“
Af hverju er aðalpersónan í þess-
um bókum hálfur Íslendingur?
„Ég vildi skapa alþjóðlegt and-
rúmsloft í þessum bókum og ætlaði
upphaflega að láta aðalpersónuna
búa í stórri Evrópuborg, til dæmis
London. Fyrst velti ég því fyrir mér
að hafa persónuna hálfnorska en ég
þekki Noreg of vel. Ísland er nor-
rænt land sem ég þekki ekki nægi-
lega vel og mér fannst ég geta skrif-
að um það á heillandi hátt.“
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Er að vinna bug á hindrunum
Hinir dauðu er ný spennusaga eftir norska rithöfundinn Vidar Sundstøl Önnur bókin
í þríleik Höfundurinn vinnur að nýrri bók þar sem aðalpersónan er hálfíslensk
Vidar Sundstöl Ætli
ég sé ekki bara alltaf
að skrifa um ein-
mana karlmenn.
VANTAR ÞIG AUKAPENING?
Fín laun og stuttur vinnutími.
Gott með skóla eða vinnu.
Hlauparar þurfa að hafa bíl til umráða.
Launatrygging í boði.
Morgunblaðið óskar
eftir blaðberum og
hlaupurum.
Áhugasamir hafa samband við
dreifingardeild í síma 569 1440 eða
sendið umsókn á bladberi@mbl.is
Hinir dauðu er önnur bók hins norska Vidars Sundstøl
í Minnesota-þríleiknum. Vidar, sem sjálfur hefur búið
á slóðum sögunnar við Lake Superior, hefur hlotið
einróma lof fyrir bækur tvær.
Land draumanna, fyrsta bókin í þríleiknum, kom út
á íslensku 2010, hlaut Riverton-verðlaunin 2008 sem
besta glæpasaga ársins í Noregi og var tilnefnd til
Norrænu glæpasagnaverðlaunanna, Glerlykilsins,
2009.
Þriðja og síðasta bókin, Hrafnarnir, er væntanleg
haustið 2011.
Spennandi þríleikur
BÓKIN