Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 8
8 24. mars 2011fasteignir Gestir Mbl.is hafa und-anfarna föstudaga getaðhorft á upptökur af sprelliog gríni uppistandshóps- ins Mið-Íslands. Í þeim hópi er Jó- hann Alfreð Kristinsson sem, með- fram laganámi og uppistandi, starfar við þáttagerð fyrir Stöð 2. Jóhann er aðdáandi Gordons Ramsay og langar að ritstýra Mogganum. Draumastarfið? „Draumastarfið heggur nokkuð nærri því sem ég er að fást við núna. Þegar ég var yngri langaði mig að ritstýra Morgun- blaðinu. Ég fann einmitt svona traustan ritstjórafrakka um daginn í Hjálpræðishernum sem ég festi kaup á. Hann er með þessu flotta Matta Jó lúkki. Mér finnst ég hálfnaður í stól- inn þegar ég er í honum.“ Versta vinnan? „Ég starfaði mikið við sölumennsku fyrir nokkrum árum. Það getur verið virkilega fínt en á köflum var það alversta starf sem ég hef unnið. Það er þegar þú ert að selja vöru sem þú sjálfur myndir ekki pota í með priki. Þá var maður ótta- legur smáfugl.“ Draumabíllinn? „Af greindum Gar- ners skortir mig helst rýmisgreind- ina. Nýr bíll þyrfti því að hafa þá tvo eiginleika að koma mér frá A til B og vera með góðri bakkmyndavél. Þá væri ég sáttur. Toyota Prius væri bara dúndur, takk, ef einhver er að lesa.“ Hvað vantar á heimilið? „Mig vantar nauðsynlega vídeótæki inn á heimilið. Ég er með í geymslu fullt af gulli sem var tekið samviskusamlega upp á 10. áratugnum. Viðtalsþættir Eiríks Jónssonar á Stöð 2 eru meðal annars þarna í kippum. Eru þau enn í sölu? Framtíðarmúsíkin er líka að fá góðar hljómflutnings- græjur. Það eru mannréttindi að mann kitli í iljarnar þegar maður ger- ir góðri tónlist skil. Svo er ég bara svona túbulúði. En ætli flatskjárinn bíði ekki til haustsins, enda leiktíðin í enska að klárast. Ég er nýbúinn að festa kaup á Wok-pönnu, svo les- endur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því en það næsta í eldhúsið er gott Múlínex, sem setur mig ekki á haus- inn.“ Hvað langar þig í? „Ég er bara með svona ,,Hringja og senda sms“-síma. Mig langar virkilega í alvöru Andro- id-maskínu með góðri myndavél, mp3-spilara og neti til þrautavara. Reiknivélin datt strax út af símanum sem ég er með og því gæti verið lang- ur vegur í snjallsíma og Múlínex. Það setur heimilisbókhaldið í uppnám að vera ekki með reiknivél á símanum. Ég er nú óttalega meinlætalegur þeg- ar kemur að hlutum en þeim mun meira fyrir upplifanir. Flugfarseðill með British Airways, beint flug frá London til Buenos Aires, er eiginlega efstur á óskalistanum. Þá gæti ég heimsótt hann Helga, vin minn, en ég er búinn að vera á leiðinni í 2-3 ár.“ Hvað er best heima? „Ætli eldhúsið sé ekki uppáhaldsstaðurinn minn í íbúðinni. Þegar maður nær að vakna nógu snemma til að hella upp á gott- kaffi og láta daginn líða inn í róleg- heitum. Svo setur maður einhverja góða tónlist á og lífið er orðið eins og að lagi með Benny Anderson. Svo er ég mikið að woka þessa dagana. Er alveg óður með nýju pönnuna. Skoða Gordon Ramsey-myndbönd á You- Tube og woka svo bara inn í nóttina.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg „Mig vantar nauðsynlega vídeótæki inn á heimilið. Ég er með í geymslu fullt af gulli sem var tekið samviskusamlega upp á 10. áratugnum,“ segir Jóhann Alfreð. „Ég er nýbúinn að festa kaup á Wok-pönnu, svo lesendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því ...“ Óskalistinn Jóhann Alfreð Kristinsson Þegar lífið er eins og lag með Benny Anderson Reykjavík Hús Íslensku óperunnar (áður Gamla bíó) er elsta varðveitta kvikmynda- og tónleikahús Reykjavíkur. Húsinu hefur verið vel við haldið og verið notað sem óperu- og samkomuhús sl. 30 ár. Húsið er 1.678 fm að stærð með stórum samkomusal og svölum, leiksviði og hljómsveitargryfju. Glæsilegt anddyri með upprunalegum innréttingum; búningsherbergi, setustofur, hárgreiðslu- og förðunaraðstaða í kjallara. Salurinn tekur 473 áhorfendur í sæti. Hentar vel til leiksýninga og tónleikahalds. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. Hús Íslensku óperunnar er til leigu Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali. Kjarna, Þverholti 2, Mosfellsbæ Sími 586 8080, fax 586 8081 www.fastmos.is Blikahöfði 1, íbúð 103 - 270 Mosfellsbær Glæsileg 100,3 m2, 4ra herbergja íbúð ásamt 27,6 m2 bíl- skúr við Blikahöfða 1 í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í for- stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, stofu og eldhús. Íbúðinni fylgir 8,7 m2 sérgeymsla í kjall- ara. Falleg gólfefni og innréttingar. Stór timburverönd í suðvestur. V. 26,7 m. Opið hús í dag, fimmtudag, frá kl. 17:30 til 18:00 OP IÐ HÚ S Rúgakur 3b, Íbúð 205 - 210 Garðabær OP IÐ HÚ S Rúmgóð og glæsileg 116,2 m2, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í 2ja hæða lyftuhúsi ásamt stæði í bílakjallara við Rúgakur 3 í Garðabæ. Íbúðin skiptist í forstofu, rúm- gott svefnherbergi með fataherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og borðstofu. Íbúðinni fylgir bílastæði og sérgeymsla í bílakjallara. Rúmgóð og glæsileg íbúð með fallegum innréttingar. Íbúðin er nýmáluð og tilbúin til afhendingar strax. V. 26.7 m. Opið hús í dag, fimmtudag, frá kl. 16:00 til 17:00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.