Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 12

Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 12
12 24. mars 2011fasteignir Stundum er eins og engu séhægt að koma í verk. Slen,frestisýki, truflanir, óreiðaog hrein og klár leti eyði- leggja vinnudaginn eða verða í það minnsta til þess að mun minna áork- ast en vonir stóðu til. Hægt er að temja sér nokkra góða siði (og varast nokkra slæma) til að halda afköstunum góðum. Verkefnalistinn góði Fyrsta skrefið er að tileinka sér gott skipulag. Byrjaðu vinnudaginn 5 eða 10 mínútum fyrr og farðu yfir hvaða verkefni eru framundan. Skrifaðu niður á blað verkefni dags- ins og hafðu efst á blaði mikilvæg- ustu verkefnin. Þegar markmið dagsins eru skýr er auðveldara að halda einbeitingunni á því sem máli skiptir og minni líkur á að gleyma sér í aukaatriðunum. Svo er líka þægileg tilfinning að strika verk- efnin út af listanum eftir því sem líð- ur á daginn. Það má bæði skipuleggja daginn og vikuna, jafnvel mánuðinn. Hvort sem skipulagt er langt eða stutt fram í tímann þarf að varast að gera óraunhæfar áætlanir. Verkefnin verða að vera í takt við raunverulega getu og takmörk fyrir því hve mikið má gera á einum degi. Afköst snúast um að halda dampi en ekki ætla sér að takast á við allan heiminn í einum rykk. En um leið og markmiðin eiga að vera raunhæf þá verður líka að temja sér aga: ekki láta það eftir þér að skrópa og fresta, því þá hleður boltinn bara utan á sig. Vinnuaðstaða sem virkar Svo er að skapa skilvirkt vinnuum- hverfi. Hvað truflar einbeitingu og afköst á vinnustaðnum? Sumir liggja yfir tölvupóstinum allan daginn, aðrir fá engan frið fyrir félagslegum vinnu- félögum, og enn aðrir geta ekki stað- ist Facebook eða hættir til að gleyma sér á vefsíðum með myndum af sæt- um kettlingum. Reyndu að koma auga á hverjir veikleikarnir eru og laga þá. Ef t.d. tölvupósturinn er allt- af að pípa, prufaðu þá að breyta still- ingunum og temja þér að skoða póst- inn aðeins á vissum tímum. Einnig verður að huga að líkam- legu og andlegu hliðinni. Hvað gefur þér mesta vinnuorku? Slæmar svefn- venjur, óskynsamlegt mataræði og hreyfingarleysi geta dregið úr þér kraftinn til að vinna. Reyndu að læra á líkamann og hvað kemur þér í gang. Ef slenið er að ná undirtökunum er gott að standa upp, fá sér ferskt loft, skola niður vatnsglasi og borða eins og lófafylli af hnetu- og rús- ínublöndu. Léttara með jákvæðni Hugarfarið verður að vera rétt. Reyndu að temja þér að líta á verk- efnin sem áhugaverð og mikilvæg. Eins og Mjallhvít söng svo eftir- minnilega í Disney-myndinni forðum daga þá gengur allt betur ef þú flaut- ar meðan þú vinnur. Jákvætt viðhorf gerir verkin léttari en neikvæðni og bölsýni gerir allt erfiðara. Mundu líka að vinnan er ekki upphaf og end- ir alls og þeir sem ná bestum árangri passa upp á jafnvægið, halda góðri yfirsýn og hafa hugfast hvað skiptir raunverulega máli í lífinu. Taktu þér hlé á milli vinnutarna yfir daginn, hallaðu þér aftur í stólnum, slappaðu af og hreinsaðu hugann. Stanslaust stím og stress verður einfaldlega til þess að fólk brennur út. ai@mbl.is Hugarfar, skipulag og hollusta Góð ráð til að koma afköst- unum í lag Reuters Stundum þarf að staldra við og fá sér ferskt loft. Ástralskir skrifstofumenn á gangi. LÁGMÚLI Þóroddur S. Skaptason lögg. fasteignasali GARÐATORGI 7 • 210 GARÐABÆ Sími 545 0800 gardatorg@gardatorg.is www.gardatorg.is Til leigu eða sölu mjög glæsilegt og vel útbúið samtals 397,7 fm skrifstofuhúsnæði á frábærum stað við Lágmúla 7, Reykjavík. Húsnæðið er vel búið húsgögnum sem geta fyllt með hvort sem um að ræða leigu eða sölu. Um er að ræða alla 5. hæðina auk 40 fm geymslu í kjallara, hæðin var hönnuð af Go Form arkitektum. Húsið er í toppstandi að utan sem innan. Næg bílastæði. Mjög hagstæð leiga eða kaup! Sölumaður: Arnar Sölvason GSM 896-3601 Viltu vita hvers virði eignin þín er í dag? Frítt söluverðmat án skuldbindinga. Hringdu núna 699 5008 Hannes Steindórsson Sölufulltrúi hannes@remax.is Sími: 699 5008 Þórarinn Jónsson hdl. lögg. Fasteignasali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.