Morgunblaðið - 03.05.2011, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. M A Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 102. tölublað 99. árgangur
„STÆRSTI SIL-
UNGUR SEM ÉG
HEF VEITT“
FJALLABRÆÐUR
HAUST- OG
VETRARTÍSKAN
FRÁ MCQUEENS
OPNUN LISTAR ÁN LANDAMÆRA 34 SARAH BURTON 3723 PUNDA URRIÐI 8
Reuters
Harmur Stuðningsmenn Osama bin Lad-
ens í Quetta í Pakistan hrópa slagorð gegn
Bandaríkjamönnum á útifundi í gær.
Falli Osama bin Ladens á sunnu-
dag var fagnað á Vesturlöndum en
viðbrögðin voru blendin víða í
múslímaríkjum. Hamas-samtökin
palestínsku, sem stjórna á Gaza,
fordæmdu drápið á leiðtoga al-
Qaeda og sögðu hann hafa verið
„heilagan stríðsmann araba“.
Hins vegar sagði Ghassan Kha-
tib, talsmaður stjórnar Mahmouds
Abbas, forseta Palestínumanna,
sem stýrir miklum hluta Vestur-
bakkans, að fall bin Ladens væri
gott fyrir „heimsfriðinn“. »18
Misjöfn viðbrögð
við falli Osama bin
Ladens í Pakistan
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki er til björgunaráætlun fyrir
hvítabirni sem hingað villast. Um-
hverfisstofnun hefur sent umhverfis-
ráðherra tillögur um það hvernig
bregðast skuli við komu bjarna og
leggur til að dýrin verði felld þótt
björgunaráætlun komi einnig til
greina. Hvítabjörn sem gekk á land á
Hornströndum var aflífaður í gær.
Til stóð að fanga hvítabjörn sem
kom á land á Skaga fyrir þremur ár-
um. Búnaður var fluttur norður með
ærnum tilkostnaði en aðstæður voru
þannig að talið var nauðsynlegt að af-
lífa dýrið.
Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri
náttúruauðlinda hjá Umhverfisstofn-
un, segir að í gær hafi verið unnið eftir
viðbragðsáætlun sem gerð var eftir
komu hvítabjarna 2008. Ekki kom til
þess að umhverfisyfirvöld þyrftu að
taka afstöðu til þess hvort rétt væri að
reyna að fanga dýrið. Lögreglan mat
að öryggi fólks væri í hættu og ákvað
að nýta heimild í lögum til að fella það.
Besti flokkurinn í Reykjavík vill
stuðla að því að komið verði upp bún-
aði til að fanga hvítabirni sem hingað
villast og hefur efnt til fjársöfnunar.
Ógnar ekki stofninum
Í tillögum Umhverfisstofnunar að
starfsáætlun um viðbrögð við land-
töku hvítabjarna sem sendar hafa
verið til umhverfisráðherra er gert
ráð fyrir að dýrin verði felld og gerðar
nauðsynlegar lagabreytingar. Jafn-
framt kemur fram að hægt sé að gera
björgunaráætlun en þá verði fjár-
magn að vera tryggt til að fram-
kvæma hana.
Vísað er í öryggi borgaranna sem
rök fyrir því að fella dýrin. Einnig er
bent á að sérfræðingar telji ekki að
hvítabjarnastofninum stafi ógn af því
þótt hingað komi dýr stöku sinnum og
séu felld. Þá er nefnt að björgun sé
kostnaðarsöm enda þurfi að flytja
dýrin aftur til náttúrulegra heim-
kynna sinna.
Björgunaráætlun ekki til
Umhverfisstofnun leggur til að hvítabirnir sem hingað villast verði aflífaðir
Mögulegt er að gera björgunaráætlun en dýrt er að framkvæma hana
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Birna Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti skrokkinn af birnunni frá Hornströndum. Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar tóku við honum á Reykjavíkur-
flugvelli og munu standa fyrir krufningu á dýrinu og rannsóknum. Varðveita á beinagrind og feld þannig að mögulegt verði að stoppa birnuna upp.
MAflífaður af öryggisástæðum 4
Hætta er á að
þúsundir heimila
muni bætast í
hóp þeirra sem
geta ekki staðið í
skilum með af-
borganir, m.a.
vegna stöðugra
verðhækkana á
eldsneyti og öðr-
um nauðsynja-
vörum að undanförnu.
Þetta er mat Lilju Mósesdóttur
þingmanns en hún segir í samtali
við Morgunblaðið í dag að efna-
hagsstefna stjórnvalda hafi mistek-
ist. Lækka þurfi bensínskatta. »6
Þrengra í búi hjá
þúsundum heimila
Lilja Mósesdóttir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
vísað frá dómi máli tíu sjóðfélaga í
peningamarkaðssjóðnum Sjóði 9
gegn Íslandssjóðum sem Glitnir
rak. Sjóðfélögum er jafnframt gert
að greiða málskostnað.
Sjóðfélagarnir fóru í mál gegn
Íslandssjóðum og kröfðust skaða-
bóta vegna rýrnunar á verðmæti
eignarhluta sinna í Sjóði 9 – pen-
ingamarkaðsbréfum á þeim for-
sendum að mat á bréfum Baugs
Group, Eimskips og FL-Group/
Stoða endurspeglaði ekki raun-
verulegt verðmæti þeirra á tiltekn-
um tíma sumarið og haustið 2008,
fyrir fall bankans. Töldu þeir að
það að gengi sjóðsins hefði ekki
verið lækkað hefði falið í sér mis-
munun gagnvart öðrum eigendum
hlutdeildarskírteina í Sjóði 9 sem
hefðu innleyst þau fyrir fall bank-
ans.
Gert að greiða málskostnað
Íslandssjóðir kröfðust frávísun-
ar. Dómari við Héraðsdóm Reykja-
víkur féllst á það í úrskurði sem
kveðinn var upp í gær. Telur hann
sjóðfélagana hvorki hafa afmarkað
og skýrt nægilega hvert tjón þeirra
gæti talist vera né forsendur þeirr-
ar staðhæfingar að mat Íslands-
sjóða á verðbréfunum hefði ekki
endurspeglað „raunverulegt virði“
þeirra á þeim tíma sem um er rætt.
Stefnendum er gert að greiða Ís-
landssjóðum 350 þúsund krónur í
málskostnað.
Máli sjóðfélaga gegn
Sjóði 9 vísað frá dómi
Dómari taldi að ekki hefði verið sýnt fram á tjón
Íslensk stjórn-
völd brutu ekki
gegn Evróputil-
skipun um inni-
stæðutryggingar
og krefjast þess
að mál Eftirlits-
stofnunar EFTA
(ESA) þess efnis
verði látið niður
falla. Þetta segir
í svarbréfi stjórnvalda til stofn-
unarinnar sem afhent var í Brüssel
í gær.
Í bréfinu eru rök Íslendinga sett
fram og því meðal annars hafnað að
innistæðueigendum hafi verið mis-
munað með setningu neyðarlag-
anna. »12
Stjórnvöld andmæla
áminningu ESA
Árni Páll Árnason
Valsmenn gerðu sér lítið fyrir og
unnu sigurstranglegasta lið Ís-
landsmótsins í knattspyrnu, bikar-
meistara FH, í fyrstu umferðinni á
Hlíðarenda í gærkvöld, með einu
marki gegn engu. » Íþróttir
Morgunblaðið/Golli
FH-ingar lágu
á Hlíðarenda