Morgunblaðið - 03.05.2011, Side 10

Morgunblaðið - 03.05.2011, Side 10
Morgunblaðið/hag Mannvit Starfsmenn verkfræðistofunnar fá greitt fyrir að skilja bílinn eftir heima og koma sér með öðrum leiðum til og frá vinnu. Þannig eru bílastæðin spöruð um leið og starfsmönnum er umbunað fyrir samgöngumátann. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Þessi hugmynd kom frásamgöngusviðinu okkar enmargir starfsmenn þareru menntaðir í Seattle í Bandaríkjunum þar sem töluverð áhersla er lögð á annan samgöngu- máta en bíla. Þeir stungu upp á því að borga starfsmönnum okkar and- virði strætókorts fyrir að koma ekki á bíl til vinnu og það varð raunin,“ segir Auðunn Gunnar Eiríksson hjá verkfræðistofunni Mannviti, en starfsmenn þessarar stærstu verk- fræðistofu landsins eru sérstaklega iðnir við að nýta sér tvo jafnfljóta, hjól og almenningssamgöngur til að koma sér til og frá vinnu. „Þetta kom til út af því að við vorum með starfsstöðvar á Lauga- vegi, Grensásvegi og í Ármúlanum og á sumum þeirra, sérstaklega á Laugaveginum, var mjög lítið um bílastæði,“ heldur Auðunn áfram. „Á sama tíma eða árið 2007 vorum við í vangaveltum um að stækka við okkur húsnæðið á Grensásvegi 1 og þá hefði bílastæðum þar fækkað svo menn voru að leita ráða með hvern- ig fækka mætti bílum. Reyndar fór- um við ekki út í þær framkvæmdir en síðan hafa þeir sem það vilja fengið andvirði strætókortsins eins og það kostaði þá, eða 5.600 krónur á mánuði, eða að fyrirtækið greiðir græna kortið fyrir starfsmennina.“ Samgöngustyrkinn fær fólk greitt, hvort sem það hjólar, tekur strætó, gengur til vinnu eða fær far með öðrum og að staðaldri nýta 50 til 60 starfsmenn sér þetta tilboð. „Mjög margir velja að hjóla, sér- staklega yfir sumartímann, en þó er ákveðinn hópur sem hjólar allt árið um kring, jafnvel alla leið frá Garðabæ. Stór hluti þess fólks sem nýtir sér þetta býr hins vegar í fimm kílómetra radíus frá vinnu- staðnum eða minna.“ Þá er nokkur hópur starfsmanna sem hefur feng- ið sér sérstakan mótor á reiðhjólið, sem einn starfsmannanna, Sölvi Fá borgað fyrir að hjóla í vinnuna Hjá verkfræðistofunni Mannviti sparar fólk ekki bara dýra bensíndropa með því að fara hjólandi í vinnuna heldur græðir beinharða peninga á því í leiðinni. Þar fyrir utan hefur það jákvæð áhrif á heilsuna og umhverfið svo allir vinna. Morgunblaðið/hag Alla leið Átakið Hjólað í vinnuna er tekið með trompi hjá Mannviti. 10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011 Á heilsuvef breska ríkisútvarpsins, www.bbc.co.uk/health er að finna vandaða og ítarlega umfjöllun um flest er viðkemur andlegri og lík- amlegri heilsu. Sé farið inn á þessa slóð kemur upp á forsíðu málefni sem eru efst á baugi hverju sinni og sem stendur má þar velja flipa með umfjöllun um heilbrigði á ferðalögum enda stutt í að mesti ferðatími fólks hefjist. Þá er sérstök umfjöllun um þyngd og ráð um það hvernig best sé að halda henni í skefjum; fjallað er um verðandi mæður sem ástunda óæskilega lifnaðarhætti á meðgöngu og sérstakan flipa er að finna um barnauppeldi þar sem fjallað er um það frá ólíkum hliðum. Þá er sérstakt vefsvæði þar sem líkamleg heilsa er tekin fyrir, þar sem m.a. er fjallað um sjúkdóma, frjó- semi, kynheilbrigði og þroska barna; fjallað er um andlegt heilbrigði á sér- svæði og líkamsþjálfun fær ítarlega umfjöllun. Að auki er boðið upp á þjónustu ýmissa reiknivéla, þar sem t.a.m. líkamsþyngdarstuðull, hlutfall mittis og mjaðma og hæðarkúrfur barna eru reiknaðar út og eins má finna þar meðgöngu- og frjósemis- dagatöl. Loks er að finna á síðunni ítarlegan lista yfir ýmiskonar stuðnings- samtök, hvort sem þau einbeita sér að fjölskyldumálum, almennu heil- brigði, uppeldi og ættleiðingum, and- legri heilsu eða öðru sem viðkemur heilbrigði. Og þótt samtökin séu bresk má finna á heimasíðum þeirra eitt og annað gagnlegt og fróðlegt. Vefsíðan www.bbc.co.uk/health Reuters Í ræktinni Þótt ekki hafi Bretadrottning skellt sér á þrekhjól í þessari heim- sókn á dögunum hafði hún gaman af því að fylgjast með unga fólkinu. Bretar fjalla um heilsumál Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Þjálfun úti í náttúrunni hefur jákvæð áhrif á lundarfar og sjálfsmynd. Þetta eru niðurstöður könnunar sem norski heilsuvefurinn trening.no greinir frá. Í rannsókninni voru skoðaðar tíu rannsóknir sem náðu til 1252 manna í Bretlandi til að kanna hvaða áhrif svokölluð „græn þjálfun“, eða þjálfun úti í náttúrunni hefði á sjálfsmynd og skap fólks. Áhrifin voru svo metin út frá tímanum sem fólkið eyddi við þessar aðstæður sem og hversu ákaft það þjálfaði. Loks voru áhrifin skoðuð út frá þáttum á borð við kyn, aldur, heilsufar og umhverfi. Niðurstöðurnar sýndu verulega já- kvæð áhrif af þjálfuninni og að hvers kyns grænt umhverfi ýtti bæði undir sjálfstraust og gleði. Væri vatn einnig til staðar ýtti það enn frekar undir þessar niðurstöður. Græn þjálfun skilaði svipuðum Líkamsrækt Græn þjálfun góð fyrir geðið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.