Morgunblaðið - 03.05.2011, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011
Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson mun spila
einleik á opnunartónleikunum í Hörpu á morgun, pí-
anókonsert eftir Grieg. Þegar blaðamaður leit inn í að-
alsalinn, Eldborg, sat Víkingur við nýja Steinway-
flygilinn og lék listir sínar innan um iðnaðarmennina
sem voru að leggja lokahönd á hinn tilkomumikla sal.
Það hljóta að teljast forréttindi að fá að hlusta á og
upplifa spilamennsku Víkings Heiðars í slíku návígi,
hvað þá þegar maður er í vinnunni.
Víkingur brá sér frá og ræddi stuttlega við blaða-
mann á meðan hollenski píanóstillarinn og tækni-
sérfræðingurinn Michel Brandjes stillti hljóðfærið hans
til.
Hvernig líst þér á salinn?
Ég veit ekki alveg hvernig ég á að svara. Stórkost-
lega. Það er erfitt að finna orð til að lýsa því. Hann
virðist vera fullkomlega heppnaður og hljómurinn er
alveg guðdómlegur. Stór og mikill og allt um lykjandi,
hlýr en samt rosalega raffíneraður. Maður getur bæði
spilað hérna, öskrað og líka hvíslað. Ég held þetta hafi
heppnast eins vel og hægt var að óska sér.
Hvernig gengur undirbúningurinn?
Bara rosavel. Það eru tveir dagar í stóru stundina.
Það er svolítið óraunverulegt að vera hérna núna, part-
ur af þessu. Ég er búinn að vera hérna í fjóra, fimm
daga og sjá hvað það er allt klikkað. Það eru allir ein-
hvern veginn komnir yfir sín orkuþolmörk. Þannig að
nú eru menn að keyra á einhverri aukaorku og allir að
vinna að sama marki. Það er rosa-mikil spenna og rosa-
mikil stemning. En það er líka ákveðið brjálæði. Þann-
ig að ég reyni að loka mig af og vera svolítið einn, reyni
að finna einhvers konar kjarna svo ég geti einbeitt mér
fyrir þetta. En jú, frábær stemning.
Er mikið stress?
Já, þetta eru stærstu tónleikar sem ég mun nokkurn
tímann fá að spila á. Því það er ekkert stærra en að
halda fyrstu tónleikana í tónlistarhúsi sem er búið að
bíða eftir og berjast fyrir í hundrað ár. Það er ótrúlega
mikið á bakvið þessa stund. Þetta er stress, þetta er
spenna. En þetta er fyrst og fremst gaman. Það er
kannski best að hugsa ekkert svo mikið um þetta í
þessu samhengi fyrr en eftir á, heldur nálgast þetta
bara eins og venjulega tónleika. Annars held ég maður
fari bara yfir um. gislibaldur@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Stilla saman strengi Víkingur Heiðar, Steinunn Birna og Michel Brandjes við nýja Steinway-flygilinn. Brandjes er
staddur hér á landi til að stilla hljóðfærið, en hann er í fremstu röð meðal píanóstillara í heiminum.
„Stærstu tónleikar sem ég mun
nokkurn tímann fá að spila á“
Víkingur Heiðar leikur á opnunartónleikunum á morgun
Morgunblaðið/Ómar