Morgunblaðið - 03.05.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.05.2011, Blaðsíða 18
Qaeda um 1990 þegar hann barðist gegn Sovét- mönnum í Afganistan. Snerist gegn Bandaríkja- mönnum eftir að þeir sendu herlið til Sádi-Arabíu til að berjast gegn Saddam Hussein 1991.  Menn hans reyndu vorið 1993 að sprengja tvíburaturnana í New York.  Rekinn frá Sádi-Arabíu 1994. 7. ágúst 1998 sprungu bílsprengjur al-Qaeda við sendiráð Bandaríkj- anna í Kenía og Tansaníu. 224 létu lífið.  Talibanar náðu völdum í Afganistan 1996 og landið varð hreiður al-Qaeda. 11.9. 2001 stóð al-Qaeda fyrir árás- unum á Bandaríkin, um 3000 manns féllu.  Bin Laden hvarf en var talinn fela sig meðal vina í tor- sóttum fjallahéruðum á landa- mærum Pakistans og Afganist- ans. kjon@mbl.is Osama bin Laden, leiðtogi al-Qaeda, var leiðarljós þeirra ofstækisfullu múslíma (íslamista) sem frömdu flest hryðjuverk síðustu tvo áratugi og fjár- magnaði aðgerðirnar. Nánir aðstoðarmenn hans skipulögðu þær en bin Laden valdi sjálfur þá sem ráðast skyldu á Bandaríkin 2001.  Hann fæddist í Sádi-Arabíu 1957, var yngsti son- urinn í röð 52 barna og barn fjórðu eiginkonu Muhammads bin Ladens sem var sýrlensk.  Bin Laden-fjölskyldan var frá Jemen og auðgaðist á kaupsýslu og í byggingariðn- aði, fyrirtæki hennar lagði m.a. helstu þjóðvegi landsins. Muhammad bin Laden varð stórvinur Faisals, þáverandi konungs Sádi-Arabíu, og naut þess í viðskiptunum.  Faðirinn lést þegar Osama var tíu ára og erfði hann stórfé sem hann jók með margs konar fjárfestingum. Talið var að sonurinn ætti um 250 milljónir dollara, sumir töldu það þó vera ýkjur.  Lauk prófi í verkfræði við há- skóla í Sádi-Arabíu. Stofnaði al- Blóði drifinn ferill vellauðuga trúar- ofstækismannsins Osama bin Ladens Reuters 18 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Spurningar hafa vaknað um holl- ustu hers og leyniþjónustu Pakist- ans við Bandaríkin í hernaðinum gegn hryðjuverkanetinu al-Qaeda eftir að bandarísk sérsveit skaut Osama bin Laden til bana í árás í Pakistan í fyrradag. Talið hafði verið í mörg ár að bin Laden væri í felum í fjöllum í norðvesturhluta Pakistans, á einu af einangruðustu landsvæðum heims, eða innan landamæra Afg- anistans. Sagt var eftir hryðju- verkin í Bandaríkjunum 11. sept- ember 2001 að bin Laden byggi aldrei lengi á sama stað, heldur flytti sig frá einum helli til annars til þess að forðast handtöku. Ólíkt Saddam Hussein, sem fannst í holu við bóndabæ í Írak árið 2003, fannst Osama bin Lad- en í dýru stórhýsi í borginni Ab- bottabad, um 100 km norðan við pakistönsku höfuðborgina Islama- bad. Hermt er að húsið hafi verið um 800 metra frá herforingjahá- skóla pakistanska hersins. Á með- al herforingja sem hafa útskrifast frá skólanum eru yfirhershöfðingi landsins og yfirmaður leyniþjón- ustu hersins, ISI. Að sögn blaðsins The Fin- ancial Times vekur þetta grun- semdir um að Pakistansher leiki tveimur skjöldum, að yfirmenn í hernum séu hallir undir íslamska öfgamenn og landið sé notað sem bækistöð fyrir alþjóðlega hryðju- verkastarfsemi. „Aðstæðurnar eru enn óljósar, en við þurfum að komast að því hvernig á því stend- ur að illræmdasti hryðjuverka- maður heimsins fannst nálægt bækistöð hersins,“ hefur blaðið eftir vestrænum stjórnarerindreka í Islamabad. Margra ára rannsóknarvinna Bandarísk stjórnvöld höfðu lagt 25 milljónir dollara, jafnvirði tæpra þriggja milljarða króna, til höfuðs bin Laden sem var efstur á lista yfir þá hryðjuverkamenn sem Bandaríkjamenn hafa lagt mesta áherslu á að handtaka eða drepa. Hermt er að bandaríska leyniþjón- ustan hafi komist á slóð bin Lad- ens þegar hún komst að dvalar- stað eins af sendiboðum hans. Leyniþjónustan hafði í mörg ár leitað upplýsinga um nánustu samstarfsmenn bin Ladens og hafði sérstakan áhuga á einum af fáum sendiboðum sem hryðju- verkaleiðtoginn treysti. Fangar í Guantánamo-fangelsinu á Kúbu sögðu frá dulnefni mannsins við yfirheyrslur og lýstu honum sem skjólstæðingi Khalids Sheikh Mo- hammeds, sem viðurkenndi að hafa verið heilinn á bak við hryðjuverkin 11. september 2001. Leyniþjónustan komst síðan að réttu nafni sendiboðans fyrir um það bil fjórum árum. Um tveimur árum síðar fékk leyni- þjónustan upplýsingar um að hann byggi í grennd við Íslamabad og í ágúst síðastliðnum komst hún að því að hann bjó með bróður sínum í stóru húsi í Abbottabad. Grunsamlegt hús Leyniþjónustumennirnir átt- uðu sig strax á því að þetta var ekkert venjulegt hús. Það reyndist vera um 2.500 fermetrar, þriggja hæða og margfalt stærra en önnur hús á svæðinu. Fáir gluggar eru á húsinu og umhverfis það er rúm- lega fimm metra hár múr með gaddavír og eftirlitsmyndavélum. Tvö öryggishlið eru við húsið en engar símalínur liggja inn í það. Engar nettengingar eru í húsinu og leyniþjónustumennirnir tóku eftir því að öllu sorpi var brennt á lóðinni. Húsið var reist árið 2005 og verðmæti þess er áætlað um millj- ón dollarar, eða rúmar 110 millj- ónir króna. Eftir að hafa fylgst með húsinu í nokkra mánuði komst leyniþjónustan að þeirri niðurstöðu að það hlyti að vera dvalarstaður einhvers hátt setts manns innan al-Qaeda, líklega bin Ladens. Um miðjan febrúarmánuð taldi leyniþjónustan miklar líkur á því að bin Laden dveldi í húsinu og byrjaði að skipuleggja hugsan- lega árás á það. 14. mars sat Bar- ack Obama Bandaríkjaforseti fyrsta fundinn í þjóðaröryggisráði sínu um aðgerðina. Ráðið kom alls fimm sinnum saman til að ræða málið næstu sex vikurnar. Obama fyrirskipaði síðan árásina á föstu- daginn var. Árásinni hefur ekki verið lýst í smáatriðum, en hermt er að sér- sveitarmennirnir hafi verið fluttir með tveimur eða þremur þyrlum. Bin Laden var skotinn í höfuðið og líki hans var síðar sökkt í sjó- inn „í samræmi við íslamska hefð“, að sögn bandarískra emb- ættismenna. Þeir sögðu að stjórn- völdum í Pakistan hefði ekki verið skýrt frá árásinni fyrirfram. Vekur efasemdir um hollustu Pakistanshers  Bin Laden skotinn til bana í stórhýsi í grennd við herforingjaháskóla í Pakistan Fimm lágu í valnum » Auk bin Ladens lágu þrír karlmenn í valnum eftir árás sérsveitarinnar; sendiboði bin Ladens, bróðir hans og sonur bin Ladens. Bandarískir emb- ættismenn sögðu að kona, sem einn mannanna hefði reynt að skýla sér á bak við, hefði einnig beðið bana. » Enginn sérsveitarmann- anna féll eða særðist. Ein af þyrlum sérsveitarinnar brot- lenti, að sögn bandarískra embættismanna. Sérsveitar- mennirnir eyðilögðu hana með sprengjum. » Árásin hófst klukkan 17.30 í fyrradag að íslenskum tíma og stóð í 40-45 mín- útur. Skannaðu kóðann til að lesa meira um árásina Reuters Allur Sölumaður gengur framhjá sandlistaverki með mynd af Osama bin Laden á strönd í indverska sambandsríkinu Orissa. 100 km 500 m 2010 Leyniþjónustan kemst að því að bræðurnir búa í stórhýsi í borginni Abbottabad Leyniþjónustumenn tóku eftir því að engar símalínur og nettengingar voru í húsinu, auk þess sem öllu rusli var brennt á lóðinni. Leyniþjónustan komst að þeirri niðurstöðu að húsið væri felustaður einhvers af leiðtogum al-Qaeda September CIA skýrir Obama forseta frá því að bin Laden dvelji líklega í húsinu ÁRÁSIN Á BIN LADEN Heimildir: Reuters, New York Times Ljósmynd: Reuters 2011 Febrúar Bandaríkjastjórn kemst að þeirri niðurstöðu að ástæða sé til að undirbúa árás á húsið 14. mars Obama situr fyrsta fundinn af fimm í Þjóðaröryggisráðinu um hugsanlegar aðgerðir til að handtaka eða drepa bin Laden 29. apríl Barack Obama forseti heimilar árásina á Osama Bin Laden 1. maí Sérsveitarmenn gera árás með þyrlum. Bin Laden, þrír aðrir karlmenn og kona biðu bana 2007 Bandaríska leyniþjónustan fær upplýsingar um sendiboða sem bin Laden treysti best 2009 CIA fær upplýsingar um að sendiboðinn og bróðir hans dvelji í grennd við Íslamabad Skólar/ háskólar Moskur Sjúkrahús Miðborg Abbottabad A B B OT TA B A D Ka ku l - ga ta K a ra ko ra m þ jó ð ve g u r Aw am i-gata Herfor- ingja- háskóli Húsið þar sem bin Laden var skotinn til bana Íslamabad Kabúl Marka- lína INDLAND P A K I S T A N AFG. TADSJ. Jammú & Kasmír Khyber Pakhtunkhwa Abbottabad

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.