Morgunblaðið - 03.05.2011, Síða 29

Morgunblaðið - 03.05.2011, Síða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011 ✝ Gunnar Haf-steinn Bjarna- son, verkfræð- ingur, fæddist í Hafnarfirði 22. september 1927. Hann lést á Sól- vangi í Hafnarfirði 19. apríl 2011. Gunnar var son- ur hjónanna Bjarna Matthíasar Jóhann- essonar, skipstjóra í Hafnarfirði, f. 16. apríl 1890 að Hesti í Önundarfirði, d. 14. októ- ber 1954, og Stefaníu Sigríðar Magnúsdóttur frá Skuld í Hafnarfirði, f. 24. október 1895, d. 1. febrúar 1970. Systkini hans eru Jóhannes, f. 29. nóvember 1920, d. 29. febr- úar 2008, Magnús f. 4. júlí 1924, Guðlaug, f. 24. september 1925, Jónína Margrét, f. 6. október 1928, Áslaug Þóra, f. 15. ágúst 1930, d. 2. nóvember 1938, Mar- grét Dagbjört, f. 2. október 1931, Sigurður Oddur, f. 6. nóv- ember 1932, d. 17. nóvember 1996, og Áslaug Þóra f. 15. mars 1942, d. 19. mars 1942. ember 1965. Börn þeirra eru Gunnar Dagur, f. 29. júní 1986, Rósa Líf, f. 22. september 1990, Hilda Sól, f. 29. febrúar 1992, og Gottskálk Darri, f. 24. nóvember 2001. Gunnar varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1948. Hann tók fyrrihluta- próf í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands 1951 og próf í vélaverk- fræði frá Danmarks Tekniske Höjskole í Kaupmannahöfn 1954. Hann starfaði sem verk- fræðingur hjá Íslenskum aðal- verktökum 1955-1958; hjá Stáls- miðjunni hf. 1959-1963. Hann rak eigin verkfræðistofu með öðrum 1963-1964. Hann starfaði hjá Stálsmiðjunni hf. og Járn- steypunni hf. 1964-1985 og var framkæmdastjóri fyrirtækjanna 1974-1985. Hann starfaði sem verkefnastjóri hjá Sjóefna- vinnslunni hf. 1986-1987. Gunn- ar sat í stjórn Slippfélagsins í Reykjavík 1982-1995, þar af sem formaður 1982-1989. Hann gegndi félags- og trún- aðarstörfum fyrir verkfræðinga og sat um skeið í stjórnum Verk- fræðingafélags Íslands, Stétt- arfélags verkfræðinga og Véla- verkfræðingafélags Íslands. Gunnar Hafsteinn verður jarðsunginn frá Hafnarfjarð- arkirkju í dag, 3. maí 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Hinn 6. sept- ember 1958 kvænt- ist Gunnar Magneu Rósu Tómasdóttur, lyfjafræðingi, f. 20. september 1928. Foreldrar hennar eru Tómas Maríus Guðjónsson, út- gerðarmaður frá Höfn í Vest- mannaeyjum, f. 13. janúar 1887, d. 14. júní 1958, og Sigríður Vilborg Magnúsdóttir frá Brekkum á Rangárvöllum, f. 4. október 1899, d. 18. september 1968. Börn Gunnars og Rósu eru: 1) Sigríður Erla, f. 26. desember 1958. Hennar börn eru Ívar Karl, f. 16. nóvember 1990, Æg- ir Sindri, f. 5. janúar 1993, Óð- inn Dagur, f. 7. september 1994, Bjarnasynir. 2) Áslaug María, f. 3. nóvember 1960. Hennar börn eru Iða Brá, f. 4. október 1986, Harpa Lind, f. 9. desember 1988, og Birta Hrund, f. 24. maí 1995, Ingadætur. 3) Agnar Darri, f. 23. júlí 1964, kona hans er Inga K. Gottskálksdóttir, f. 6. nóv- Elsku Gunnar minn, mig langar að kveðja þig með nokkr- um orðum. Ég vil þakka þér fyrir hvað þú tókst vel á móti mér þegar ég flutti í kjallarann til ykkar Rósu. Þú studdir vel við bakið á ungri fjölskyldu. Þó að heilsa þín væri búin að undirbúa okkur fjölskylduna þá er samt sárt að kveðja. Þú varst góður maður og mikið prúðmenni. Ég dáðist að þér í veikindum þínum hvað þú varst æðrulaus og þolinmóð- ur. Ég veit að það hefur ekki verið auðvelt fyrir duglegan mann eins og þig. Það var alltaf gaman að bjóða þér í mat því að allur matur var veislumatur í þínum augum nema kannski pasta. Þú varst börnunum mín- um góður afi og duglegur að ýta þeim áfram menntaveginn. Á svona tímamótum er það fullvissan um að þú ert kominn á betri stað sem lætur okkur líða betur. Mig langar að enda þetta á ljóðinu Draumalandið því það minnir mig svo á þig. Ó, leyf mér þig að leiða til landsins fjalla heiða með sælu sumrin löng. Þar angar blómabreiða við blíðan fuglasöng. Þar aðeins yndi fann ég, þar aðeins við mig kann ég, þar batt mig tryggðarband, því þar er allt sem ann ég. Það er mitt draumaland. (Jón Trausti) Hvíldu í friði. Þín tengdadótt- ir, Inga Gottskálksdóttir. Elsku afi, nú kveðjum við þig með söknuði og minningar streyma um hugann. Okkur fannst gott að koma í heimsókn á Látraströndina til afa og ömmu. Afi hjálpaði okkur við lærdóminn og hafði gaman af stærðfræðinni enda verk- fræðingur í húð og hár. Afi var skipulagður og vandvirkur og átti erfitt með að sitja auðum höndum. Hann vildi alltaf vera að gera eitthvað og vinna. Afi lét ekkert verk eftir hálfklárað og það átti að vera fullkomið. Eftir að heilsunni hrakaði fannst honum gaman að fylgjast með okkur í vinnu og leik. Sam- an áttum við góðar stundir í Kofalandinu. Þar voru verkefnin óteljandi, t.d. að virkja lækinn, girða, smíða, grafa skurði og búa til tjörn. Stundum fannst okkur nóg um, t.d. þegar átti að grjóthreinsa landið og skyldi hver einasti steinn fjarlægður. Við eigum öll góðar minningar um hann afa okkar. Mér er minnisstætt þegar við bjuggum í kjallaranum hjá ykk- ur ömmu. Þá gat ég læðst upp í eldhús til þín og var rúgbrauð skorið í teninga í miklu uppá- haldi. Einn dag þegar ég kom heim úr skólanum beiðst þú á tröppunum með veiðistangir, klár í veiðitúr. Veiðiferðirnar voru margar og fátt gladdi þig meira en að sjá strákana þína setja í fisk. Sex ára gamall bjó ég hjá þér og ömmu í hálft ár. Þið gættuð þess ég hefði nóg fyrir stafni svo ekki gafst tími til að sakna mömmu og pabba. – Gunnar Dagur. Elsku afi minn. Ég man eftir stjörnuskoðunum okkar á vetr- arkvöldum. Oft gafstu mér nýtt stjörnukort svo ég gæti skoðað stjörnurnar um kvöldið. Þér fannst gaman að koma í heim- sókn í hesthúsið og fylgjast með mér sinna hestunum. Ég man líka eftir bíltúrum um sveitirn- ar. Þér þótti mjög vænt um landið þitt Ísland og vildir að við þekktum fjöllin. Við áttum að þekkja Helgafell og þú sagðir að allir Hafnfirðingar ættu að þekkja það. – Rósa Líf. Ég man vel eftir því þegar ég gisti hjá ykkur ömmu. Þá gat ég aldrei sofnað fyrr en þú hafðir farið með þulurnar Fagur fiskur í sjó og Lilli puttispilleman. Ég á minningar úr Kofanum eins og þegar þú hjálpaðir okkur að veiða hornsíli og flytja þau í tjörnina þína. Það var gaman þegar þú komst til mín í vinn- una og keyptir pulsu og kók. – Hilda Sól. Elsku afi minn. Þú varst allt- af svo góður og traustur. Einu sinni þegar var ég í bíltúr með pabba sprakk dekk á bílnum. Þú varst eini maðurinn sem ég treysti til að laga dekkið og bað pabba að hringja í þig. Mamma sagði mér að þú værir farinn til Guðs og að þér líði vel núna. Ég veit að þér finnst það ekki leið- inlegt en mér finnst það leið- inlegt. – Gotti Darri. Við dáðumst að æðruleysi þínu í veikindunum sem voru ekki auðveld fyrir athafnamann eins og þig. Þú varst okkur góð fyrirmynd. Við kveðjum þig með söknuð í hjarta og minning um einstakan afa lifir. Þín barnabörn, Gunnar Dagur, Rósa Líf, Hilda Sól og Gott- skálk Darri. Föðurbróðir minn Gunnar H. Bjarnason er allur. Hann lést eftir erfið veikindi. Það er skarð fyrir skildi hjá stórfjölskyldu Gunnars, eða Hadda, eins og við kölluðum hann í minni fjöl- skyldu. Gunnar var tápmikill, hafði góða nærveru og var hvers manns hugljúfi. Ógleymanlegar eru þær stundir sem við Gunnar veiddum gæsir saman. Margt var skrafað og margt sem olli kæti. Magn veiðibráðar var ekki það sem skipti máli heldur fé- lagsskapurinn, útiveran og hvíldin frá önnum dagsins. Hann var frábær frændi og gott var að geta leitað til hans um ráð þegar starfsvettvangur minn var annars vegar. Gunnar tilheyrði þeim hópi verkfræð- inga sem hafði lengstan starfa að því að framkvæma, byggja upp og framkvæma hugverk annarra. Hann var útsjónarsam- ur, hagsýnn og kjarkaður. Alla þessa eiginleika þurfti til að keppa um verkefni við innlenda og ekki síður erlenda verktaka. Skapa störf heima fyrir og byggja upp þekkingu með ís- lensku þjóðinni á verklegum framkvæmdum. Á erfiðum tímum þessarar þjóðar eru það menn eins og Gunnar sem koma hlutunum í verk með þrautseigju, tækni- þekkingu, hagsýni og lífsgleði að leiðarljósi og ryðja veg til betri tíðar. Hans er sárt saknað. Ég votta Rósu, börnum og barnabörnum samúð. Þeirra missir er mikill. Eftir lifir minn- ingin um góðan dreng. Magnús Magnússon. Ég vil minnast móðurbróður míns, Gunnars Hafsteins, sem jafnan var kallaður Haddi innan stórfjölskyldunnar. Hann fædd- ist í Hafnarfirði og var fjórði í röð níu systkina. Fjögur lifa bróður sinn. Móðurbróðir minn var skemmtilegur frændi, hann hafði yndi af góðum sögum, var gæddur góðri frásagnargáfu og var stálminnugur á menn og málefni. Heilu sagna- og kvæða- bálkana gat hann þulið af mikilli innlifun svo unun var að hlusta á. Haddi var verkfræðingur að mennt og útvegaði hann mér vinnu í Stálsmiðjunni nokkur sumur á námsárum mínum. Sterkustu minningarnar tengdar Hadda eru þó árlegar sameiginlegar laxveiðiferðir í gegnum árin. Upphaf þessara veiðiferða nær tugi ára aftur í tímann er faðir minn ásamt Guðmundi föðurbróður mínum og Hadda ákváðu að taka sér hvíld frá erilsömum störfum og fara saman í laxveiði í Hrúta- fjarðará. Fyrsta ferðin varð að hefð sem hefur staðist tímans tönn. Synir félaganna bættust síðan við í hópinn hver af öðrum og afasynir þegar þeir höfðu aldur til. Þannig skyldi ungviðið læra og njóta veiðimennskunnar í íslenskri náttúru í félagsskap sér reyndari manna á sama tíma og ættartengslin væru styrkt. Þeir eldri miðluðu af sinni reynslu í fyrstu en svo fór að bera á því að „eggin kenndu hænunum“. Ógleymanlegar frænda- og feðgaferðir. Til- hlökkunarefni allt árið. Erfitt að fullyrða hvaða kynslóð skemmti sér best. Góður matur fram- reiddur að kvöldi og mikið skrafað og hlegið langt fram á nótt. Haddi var þar hrókur alls fagnaður. Honum þótti nauð- synlegt að halda veiðiklúbbnum við þar sem félagsskapurinn skipti mestu máli. Haddi kom með okkur eins lengi og heilsan leyfði þótt hann gæti ekki veitt sjálfur í síðustu skiptin. Sat hann þá við árbakkann, gaf góð ráð og naut náttúrunnar. Hans verður sárt saknað af hópnum. Ætli faðir minn og Haddi séu ekki farnir að skipuleggja veiði- túr saman á nýjum slóðum? Að leiðarlokum kveð ég góð- an frænda og veiðifélaga með virðingu og þakklæti fyirr góð kynni. Fjölskylda mín og ég sendum Rósu eiginkonu hans, börnum þeirra þremur Sigríði, Áslaugu og Darra og þeirra fjöl- skyldum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minn- ing Gunnars Hafsteins. Stefán Bj. Gunnlaugsson. Gunnar Bjarnason var einn af þessum öðlingum sem maður kynnist á lífsleiðinni. Hvernig hann og Rósa tóku alltaf á móti okkur Eyjafólkinu gleymist ekki. Þegar gaus í Heimaey, þá var opið hús á Látraströndinni og svo oft fyrr og síðar. Stórfjölskyldan átti þar alltaf samastað. Hann var Hafnfirðingur eða „Gaflari“ og hún Eyjamær. Ágæt saman. Þegar ég fór í skóla á Reykja- víkursvæðið var skotið skjóls- húsi yfir peyjann. Og það var gott að vera hjá þeim. Þess vegna var heimþráin ekki alveg eins sterk. Gunnar var fyrir mig eins og félagi og vinur. Ef það var góð stríðsmynd í bíó, þá var ein- staka sinnum skroppið. Maður fékk stundum ískalda bjórkollu til að hressa mann við. Fínn og vel bruggaður heimabjór rann úr dælu. Þá var ekki hægt að kaupa bjór í ríkinu, og menn redduðu sér bara. Á þessum ár- um var líf og fjör, Gunnar stjórnaði Stálsmiðjunni, og það voru næg verkefni við virkjanir. Þeir voru miklir vinir, pabbi og Gunnar, og þeim leiddist ekkert að fá sér whiskytár saman, hressir karlar. Joddarinn á eftir að sakna þeirra stunda, þykist ég vita. Við kveðjum einstaklega ljúf- an og hreint yndislegan mann, þannig var hann fyrir mér, það var bara þannig. Það er alltaf sárt að kveðja. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra, Rósa og krakkarnir. Með kærri þökk fyrir allt. Tómas Jóhannesson. Gunnar Hafsteinn Bjarnason Kaupi gamla mynt og seðla Kaupi gömul mynt og seðlasöfn, geri tilboð á staðnum. Gull- og silfurpen- ingar. Sími 825 1016, Sigurður. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Spádómar ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI – Spámiðill Spái í spil og kristalskúlu Heilunartímar Fyrirbænir Algjör trúnaður Sími 618 3525 www.engill.is Gisting Þú átt skilið að komast í hvíld! Í Minniborgum bjóðum við upp á ódýra gistingu í notalegum frístunda- húsum. Þú færð 3 nætur á verði 2. Fyrirtækjahópar, óvissuhópar, ættarmót. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. Minniborgir.is Gisting á góðum stað. Upplýsingar í síma 868 3592. Golf Rafmagnsgolfhjól Eigum á lager rafmagnsgolfhjól á góðu verði. 250.000 kr. H-Berg ehf. Sími 565 6500 . Óska eftir Kaupi silfur! Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is – Sími 551-6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897-9809. Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verk Upplýsingar í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Málarar Hagstætt verð í boði Fagleg vinnubrögð. Margra ára reynsla. Tilboð strax í dag þér að kostnaðarlausu. Haukur, sími 777 2722. Bátar Strandveiðimenn Fiskiker gerðir 300, 350, 450 og 460. Línubalar 70 og 80 l. Allt íslensk framleiðsla í hæsta gæðaflokki. www.borgarplast.is Mosfellsbæ, s. 561 2211. Hjólhýsi Hjólhýsi til sölu Til sölu Hobby excelsior 540 UFE Markisa, sjónvarpsloftnet, bakarofn o.fl. Virkilega vel með farið. Verð 3.300 þús. Uppl. í síma 660 8122. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar, gler og gluggaskipti. og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD Lóðavinna · Hellulagnir · Múrviðgerðir Flísalagnir · Pípulagnir · Raflagnir Málningavinna · Smíðavinna Tilboð þér að kostnaðarlausu Upplýsingar í s: 820 8888

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.