Morgunblaðið - 03.05.2011, Side 40
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 123. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Sýndu bin Laden látinn
2. Líki bin Laden sökkt í sæ
3. Osama bin Laden allur
4. Ísbjörn á Hornströndum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Vinir Sjonna eru komnir til Düssel-
dorf og farnir að æfa lagið „Aftur
heim“ af krafti. Lagið verður svo flutt
10. maí næstkomandi. Gunni Óla
ræddi við Morgunblaðið um að-
stæður þarna úti. »36
Evróvisjónfarar tjá
sig um aðstöðuna
Sunnudaginn 8.
maí nk. heldur
Kammerkórinn Ís-
old rokktónleika í
menningarhúsinu
Hofi á Akureyri.
Hann mun flytja
dægurtónlist,
nýja sem gamla,
ásamt hljómsveit.
Á efnisskránni eru m.a. lög sem
þekkt eru í flutningi Bítlanna, The
Beach Boys, Muse, Dukes Ellington
og Black Eyed Peas.
Kammerkórinn Ísold
rokkar feitt!
Gímaldin og félagar eru í óðaönn að
klára plötuna Þú ert ekki sá sem ég
valdi og munu þeir efalítið leika efni af
henni á Bakkusi í kvöld. Á henni eru
fjórtán lög eftir gímaldin sem hljóm-
sveitin hefur verið að útsetja og leika
undanfarna mánuði.
Einnig
mun
Markús
& the Di-
version
Sessions
troða upp.
Tónleikar gímaldins
og félaga á Bakkusi
Á miðvikudag og fimmtudag Austan 3-10 m/s, hvassast með
suðurströndinni. Skýjað með köflum og þurrt að kalla. Líkur á
þokulofti við ströndina. Hiti víða 5 til 12 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 3-8 m/s. Skýjað og úrkomulítið
með norður- og austurströndinni, en yfirleitt léttskýjað sunnan
heiða. Hiti 4-16 stig, svalast við NA-ströndina, hlýjast SV-lands.
VEÐUR
Meistaraefnin í FH urðu að
sætta sig við tap í heimsókn
sinni til Valsmanna á Hlíðar-
enda í gærkvöldi í upp-
hafsumferð úrvals-
deildar karla í
knattspyrnu, lokatölur
1:0. Keflavíkurliðið lagði
Stjörnuna, 4:2, og
Grindavíkurliðið
sýndi mikinn
baráttudug
þegar það lagði
Fylki. 3:2. »4
Grindvíkingar
sneru blaðinu við
Tryggvi Guðmundsson innsiglaði ÍBV
þrjú stig í fyrsta leik liðsins í úrvals-
deild karla, Pepsi-deildinni, í gær
þegar hann skoraði á síðustu mínútu
á Hásteinsvelli í leik við Fram.
Tryggvi hefur þar með skorað 117
mörk í efstu deild, er níu frá
markameti Inga Björns Alberts-
sonar, Val. »2
Tryggvi Guðmundsson
færist nær Inga Birni
Pétur Guðmundsson, fyrsti Evrópu-
búinn sem lék í NBA-deildinni, segir
að körfuboltinn sé góð leið fyrir
óvenjuhávaxna krakka til að finna sig
í lífinu. Þau þurfi oft að glíma við ein-
elti og stríðni vegna stærðarinnar,
eins og hann hafi sjálfur upplifað.
Pétur var á landinu um síðustu helgi
og tók þátt í þjálfun í æfingabúðum
fyrir hávaxna pilta og stúlkur. »6
Körfubolti góð leið fyrir
óvenjuhávaxna krakka
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Miroslaw Adam Zyrek er mikill hjól-
reiðaáhugamaður og hefur stundað
íþróttina í rúm tvö og hálft ár. Hann á
alls fimm mismunandi hjól sem hann
notar en nýjasta hjólið keypti hann í
pörtum, víða að og að mestu í gegn-
um netið. Hann segir hjólreiðarnar
vera dýra íþrótt en með því að setja
hjólið saman sjálfur sparaði hann
rúmlega hálfa milljón króna.
„Mig langaði að kaupa hjól sem
væri léttara, sterkara og hrað-
skreiðara en gamla hjólið mitt og
keypti stellið frá Póllandi í gegnum
netið. Það er úr koltrefjum og frá
góðu merki. Restina af pörtunum, svo
sem stýri og sætispóst, keypti ég hér
og þar á netinu, m.a. frá Bretlandi og
Bandaríkjunum, og fékk sent,“ segir
Miroslaw en einhverja íhluti keypti
hann einnig hér heima af hjólreiða-
félögum sínum.
Hann segir tilbúin hjól af þessu
tagi kosta í kringum milljón en hann
hafi greitt um það bil 450 þúsund fyr-
ir stellið og íhlutina. Það sé algengt
að þeir sem taki hjólreiðarnar alvar-
lega, séu að keppa og reyna að vera
skrefinu framar en hefðbundnir
áhugamenn, fari þessa leið til að eign-
ast góð hjól. „Þetta kostar mikið og
maður verður að spara aðeins,“ segir
hann, með því að gera þetta svona
hafi hann fengið nákvæmlega þá hluti
sem hann vildi, á hagstæðu verði.
Góðar fyrir bakið
Miroslaw starfar sem smiður í
Reykjavík en er íþróttamaður í
grunninn. Hann er fæddur og
uppalinn í Póllandi en fluttist til
Íslands árið 1997 til þess að
starfa sem skíðaþjálfari hjá
skíðadeild Ármanns. Sjálfur
æfði hann á skíðum í 15 ár,
frá 13 ára aldri, og var m.a. í
pólska skíðalandsliðinu.
Eftir 9 ár hjá Ármanni ákvað
hann hins vegar að leggja skíðin á
hilluna í bili. „Ég hætti þegar þriðja
barnið fæddist, þá var ég líka svolítið
upptekinn við skólann, að læra
smíði,“ segir hann. „Þá tók ég pásu og
fór að leita að annarri íþrótt, fór að-
eins að hlaupa og spila fótbolta.“
Brjósklos í baki var þó að hrjá
hann og ljóst að ekki myndu allar
íþróttir henta, en það var félagi í fót-
boltanum sem benti honum á hjól-
reiðarnar, sem Miroslaw segir henta
vel fyrir bakið. Og hann er feginn að
hafa fundið nýtt og skemmtilegt
sport til að iðka. „Ég hef æft síðan ég
var krakki, miklar og stífar æfingar,
og ég get ekki bara hætt. Þetta er
eins og fíkn. Eins og að drekka kaffi,“
segir hann að lokum.
Hjól í bútum úr öllum áttum
Setti hjólið sam-
an sjálfur og spar-
aði hálfa milljón
Morgunblaðið/Ómar
Hjólið góða Miroslav hjólreiðakappi er aldeilis ánægður með nýja hjólið sem hann setti saman sjálfur.
Á morgun hefst heilsu- og hvatn-
ingarátakið Hjólað í vinnuna en
þetta er í 9. skiptið sem til þess
er efnt. Þátttakendum hef-
ur fjölgað jafnt og þétt í
gegnum árin en
fyrsta árið sem efnt
var til átaksins,
árið 2003, var 71
lið skráð til
leiks frá 45
vinnustöðum. Þá tóku 533 ein-
staklingar þátt og hjóluðu alls
21.967 kílómetra en það gerir 16,4
hringi í kringum landið.
Í fyrra voru skráð til leiks 1347
lið frá 551 fyrirtæki. Þetta voru
alls 9.451 einstaklingar og hjóluðu
þeir alls 647.865 kílómetra. Þessi
vegalengd samsvarar 493 hringj-
um í kringum landið og 16,5 hringj-
um í kringum jörðina. »10-11
16,5 hringir í kringum jörðina
HJÓLAÐ Í VINNUNA HEFST Á MORGUN