Morgunblaðið - 12.05.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
„Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði,“ voru einkunn-
arorð séra Friðriks Friðrikssonar eins stofnenda Knatt-
spyrnufélagsins Vals sem í gær fagnaði hundrað ára afmæli
sínu. Blásið var til mikillar afmælishátíðar á Hlíðarenda í til-
efni dagsins þar sem meðal annars fór fram fánahylling undir
lúðrablæstri og blómsveigur var lagður að styttu af séra Frið-
riki við kappelluna á Hlíðarenda. Gestir á hátíðinni voru með-
al annarra forseti Íslands og forsetar KSÍ, HSÍ og KKÍ. Yngri
kynslóðin lét ekki sitt eftir liggja og fagnaði afmælisdegi
uppáhaldsfélagsins íklædd fagurrauðum liðsbúningum og
fylgihlutum. Dagskráin endaði síðan á viðeigandi máta með
leik Vals og ÍBV í knattspyrnu karla.
Knattspyrnufélagið Valur fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær
Morgunblaðið/Ómar
Kátt í koti hjá krökkunum á Hlíðarenda
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Vilmundur Jósefsson, formaður
Samtaka atvinnulífsins, sagðist í
gærkvöld ekki hafa séð kvótafrum-
vörp Jóns Bjarnasonar sjávarút-
vegsráðherra ennþá. Félagsmenn
SA eru nú að greiða atkvæði um nýju
kjarasamningana og stendur at-
kvæðagreiðslan fram á morgundag-
inn. Formaður LÍÚ fór mjög hörð-
um orðum um kvótafrumvörp
rikisstjórnarinnar þegar í hádegis-
fréttum Ríkisútvarpsins í gær.
„Ég held að þetta hafi ekki nein
áhrif á atkvæðagreiðsluna,“ sagði
Vilmundur. „Við höfum gluggann
fram til 22. júní [þegar hagfræðinga-
nefndin skilar áliti um efnahagslegu
áhrifin af kvótafrumvörpunum]. Það
kom bókun frá ríkisstjórninni um að
við kæmum að efnislegri umræðu
um kvótamálið og tryggt yrði að
sjávarútvegurinn hefði góð rekstrar-
skilyrði. Það merkir að fyrirtækin
verði alþjóðlega samkeppnisfær, það
er það sem við miðum við. Ef það
verður þannig að þetta frumvarp
rýri sjávarútveginn allsvakalega þá
förum við ekki út í þriggja ára samn-
ing. Þá er samningurinn upp í loft.“
Atkvæðavægi sjávarútvegsfyr-
irtækja í SA er tæp 20% en Vil-
mundur segir aðspurður að full
eining sé í stjórn samtakanna
um þessa stefnu.
Málið gæti breyst í
meðförum þingsins
Ekki hefur verið neitt
leyndarmál að stjórnar-
flokkarnir hafa verið
ósammála um kvótamálin
og enn er óljóst hvort frum-
vörp VG-mannsins Jóns
Bjarnasonar sjávarútvegsráð-
herra ná að brúa það bil. Ólína Þor-
varðardóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, er varaformaður
sjávarútvegsnefndar.
„Frumvörpin eru enn til meðferð-
ar í þingflokkum stjórnarflokkanna
og fara frá þeim til þinglegrar með-
ferðar og þar tekur við ákveðið ferli,
ég á alveg eins von á því að frum-
vörpin taki breytingum,“ sagði Ól-
ína. „Svona stórt mál rennur ekki í
gegn. Það verður örugglega tekist á
um það og það verður rætt mjög
vandlega í sjávarútvegsnefnd áður
en það kemur aftur inn í þing.“
Hún er spurð um harkaleg við-
brögð LÍÚ og segir að þann mál-
flutning hafi menn í reynd hlustað á í
tvö ár. „Það eru engin ný rök, þetta
er bara sama platan, ég tek ekkert
mark á þessu.“
– Var farin fyrningaleið í frum-
vörpunum?
„Það fer eftir því hvernig þú skilur
orðið. En fyrningaleiðin felur það í
sér að breyta kerfinu á 20 árum og
innkalla kvótann í áföngum á þeim
tíma. Nú verður allur kvótinn inn-
kallaður á einu bretti og honum út-
hlutað að nýju í tímabundnum samn-
ingum til 15 ára. Markmiðin í stefnu
Samfylkingarinnar og VG hafa náðst
ef þetta verður að lögum. Hins vegar
getum við deilt um það hvort kerfið
sé nægilega opið, það eru ýmis út-
færsluatriði sem á eftir að ræða bet-
ur.“
– Það var líka rætt um samninga-
leiðina?
„Þá spyr maður hvað samninga-
leiðin sé og það hefur ekki nokkur
maður getað svarað því. En það er
verið að útfæra þarna ákveðna
samningaleið. Hún felur það í sér að
gera nýtingarsamninga við útgerð-
ina um afnot af auðlindinni til ákveð-
ins tíma.“
Frumvörpin gætu koll-
varpað kjarasamningum
Ólína segir að verið sé að útfæra ákveðna samningaleið með kvótafrumvörpum
Forseti Alþingis leggur mikla
áherslu á að staðið verði við starfs-
áætlun þingsins sem gerir ráð fyrir
að vorþingi ljúki 9. júní. Hugsanlegt
er að afgreiðsla kvótafrumvarpa
frestist fram í september.
Frumvörp til laga um breytingar
á fiskveiðistjórnarlöggjöfinni voru
til umræðu í þingflokkum stjórnar-
flokkanna í gær og verða lögð fram á
Alþingi fljótlega. Raunar verður
álitsgerð hagfræðinga um áhrif
breytinganna á þjóðarbúið og at-
vinnugreinina ekki lögð fram fyrr en
í byrjun júní.
Hátíðarhöld framundan
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, segist ekki geta
metið það hvort frumvörpin verði af-
greidd fyrir lok þings í vor. Hún
leggur mikla áherslu á það við ráð-
herra og þingmenn að standa við
starfsáætlun þingsins sem gerir ráð
fyrir að síðasti fundur vorþings verði
9. júní. Bendir hún á að þá séu fram-
undan hátíðahöld vegna þess að 200
ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sig-
urðssonar forseta og 100 ár liðin frá
stofnun Háskóla Íslands og Alþing-
ishúsið upptekið vegna þess.
Þinghaldi verður framhaldið eftir
sumarhlé 2. september og er áform-
að að fundir verði til 15. september.
Ásta Ragnheiður bendir á að þing-
fundirnir í september séu ætlaðir til
að ljúka afgreiðslu mála sem langt
hafi verið komin við lok vorþings.
Gert er ráð fyrir að nýtt þing verði
síðan sett 1. október. helgi@mbl.is
Starfsáætl-
un þingsins
standi
Morgunblaðið/Kristinn
Tvö kvótafrumvörp Jóns Bjarna-
sonar sjávarútvegsráðherra voru
afgreidd úr ríkisstjórn í vikunni og
voru rædd í þingflokkum stjórn-
arflokkanna í gær. Annað þeirra er
til eins árs og á að taka gildi í
haust. Þar er að sögn heim-
ildarmanna kveðið á um
hækkun veiðigjalds um
70%. Hitt frumvarpið
er til lengri tíma og á
að taka gildi með fisk-
veiðiárinu, sem hefst 1.
september 2012. Þar verð-
ur veiðigjaldið tvöfaldað
frá því sem nú er. Í haust
verður aukið við byggðakvóta og
fleiri tonn fara til strandveiða en
nú er reyndin.
Veiðigjald gæti skilað hátt í
þremur milljörðum króna í rík-
issjóð á þessu ári, fjárhæðin gæti
orðið 5,6 milljarðar frá og með
haustinu 2012.
Varanlegt framsal verður leyft í
15 ár með forleigurétti ríkisins. Út-
hlutun á kvóta verður breytt í nýt-
ingarheimildir samkvæmt samn-
ingum til afmarkaðs tíma. Síðan
fara 8% allra aflaheimilda í potta
og hlutfallið eykst smám saman,
verður loks 15% af heildarkvóta.
Róttækar breytingar
SJÁVARÚTVEGSFRUMVÖRP JÓNS BJARNASONAR
Morgunblaðið/RAX
Fiskvinnsla Margar hendur koma að því að vinna aflann í landi en stór hluti
hans er hins vegar unninn í frystitogurunum úti á sjó.
!
"
www.stjornlagarad.is.
$
%
" Stjórnarskrá lýðveldisins varðar okkur öll
Stjórnlagaráð, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík - sími: 422-4400 - netfang: skrifstofa@stjornlagarad.is - vefslóð: www.stjornlagarad.is
Vefslóð Stjórnlagaráðs: www.stjornlagarad.is