Morgunblaðið - 12.05.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
Ríkisstjórn þeirra Steingríms ogJóhönnu hefur verið í önd-
unarvél um skeið.
Það er ÞráinnBertelsson sem
stendur vaktina á
gjörgæsludeildinni.
Komi það einnig íhans hlut að
skrifa að lokum
dánarvottorðið er
vissara að láta sóma-
kæra lesa það yfir.
Ella er hætta á að það verði fyrstadánarvottorðið í sögunni sem
verður bannað innan 18 ára aldurs.
Þráinn var af Vinstri grænumsettur í virðulegustu nefnd sem
til er, sjálfa Þingvallanefndina. Rök-
semdin var sú að Þráinn væri á heið-
urslaunum, á Þingvöllum væri heið-
ursgrafreitur og ekki skilyrði að
maður væri heiðursmaður til að fá
sæti í nefndinni.
Eftir að sú skipun var kunngjörðmyndaðist 10 metra djúp hola í
sjálfri Almannagjánni miðri.
Þeir sem eru best að sér í hind-urvitnum og heiðnum siðum
töldu augljós tengsl á milli þessara
tveggja atburða.
En aðrir bentu á að álfar ogheiðnir menn hafa ekkert með
hina fínu nefnd að gera lengur.
Og Jóhanna og Steingrímurspurðu:
Hverjir voru skipaðir í Þingvalla-nefnd þegar þær holur og pytt-
ir mynduðust sem við erum sífellt og
eilíflega að falla í?“
Læti á Lögbergi
STAKSTEINAR
Álfheiður
Ingadóttir
Þráinn
Bertelsson
Veður víða um heim 11.5., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 5 léttskýjað
Akureyri 5 skýjað
Egilsstaðir 7 skýjað
Kirkjubæjarkl. 11 skýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 9 þoka
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 16 heiðskírt
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 13 léttskýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 21 léttskýjað
Berlín 22 skúrir
Vín 25 skýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 26 heiðskírt
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg 7 alskýjað
Montreal 15 léttskýjað
New York 15 alskýjað
Chicago 27 léttskýjað
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:23 22:26
ÍSAFJÖRÐUR 4:06 22:53
SIGLUFJÖRÐUR 3:48 22:37
DJÚPIVOGUR 3:47 22:01
Einar Örn Benediktsson, borgar-
fulltrúi Besta flokksins og fulltrúi í
hverfisráði Grafarvogs, segist ekki
vita skýringu á því að starfsmenn
Reykjavíkurborgar rifu niður körfu-
boltakörfu á leikvelli í Grafarvogi,
fjarlægðu klifurkastala og tyrfðu yfir
sandkassa. Hópur ungmenna safn-
aðist á þriðjudagskvöld saman á leik-
vellinum, sem er við Garðhús og Veg-
hús, og mótmælti harðlega
framkvæmdunum. Íbúasamtök furða
sig á því að ekki hafi verið haft neitt
samráð við þau eða hverfisráð um
framkvæmdina.
Einar Örn sagðist ekki vita hvaða
svið kæmu að málinu, nokkur kæmu
til greina. „Ég hef sent fyrirspurnir
til þeirra og vil fá upplýsingar um
hvaða framkvæmdir þetta eru,“ sagði
Einar Örn. „Þessir körfuboltavellir
hafa verið dálítið hávaðamyndandi á
sumrin en ekkert verið hægt að gera í
þessu. Kannski hefur verið þarna ein-
hver fjöldi af kvörtunum, ég veit það
ekki. Við vitum ekki hvað á að koma
þarna í staðinn, það er verið að end-
urnýja öll leiksvæði í Reykjavík. Ég
held að við verðum bara að bíða eftir
upplýsingum, sjá hvað eigi að koma í
staðinn svo að hægt sé að vinna úr
þessu.“
Elísabet Gísladóttir, formaður
íbúasamtaka Grafarvogs, sagðist
mjög hissa á því að ekki væri haft
neitt samráð við íbúa áður en ráðist
væri í aðgerðir. Og fólk sem ákveði að
fá sér húsnæði rétt við skóla hljóti að
vita að skólum fylgi einhver hávaði.
„Ég veit ekki hvað er eiginlega í
gangi og hvaða ástæða er fyrir
þessu,“ segir Elísabet. „Við erum að
reyna að berjast fyrir því að krakk-
arnir séu ekki alltaf inni og í tölvunni.
En um leið er verið að taka niður
svona leiktæki sem voru sett upp til
þess að þau hafi þó eitthvað við að
vera! Ég myndi nú segja að við ætt-
um frekar að efla þetta og styrkja.
Það er farin af stað umræða um þessi
mál hér í hverfinu, ég vona að þetta
verði til þess að við vöknum.“
kjon@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Mótmæli Ungir sem aldnir í Grafarvogi efndu til friðsamlegra mótmæla á
leikvellinum í fyrrakvöld, þar sem leikinn var körfubolti án spjaldsins.
Beðið eftir skýr-
ingum í Grafarvogi
Söguleg karfa
» Karfan umdeilda mun að
sögn heimildarmanna hafa ver-
ið á staðnum í fjöldamörg ár.
» Talsmaður mómælendanna
sagði mbl.is að landsliðsmenn
hefðu byrjað að spila við körf-
una sem nú er á brott.
Leiktæki voru fjarlægð án samráðs
Sigurður er Dagsson
Rangt var farið með eftirnafn Sig-
urðar Dagssonar í myndatexta með
umfjöllun á bls. 33 í blaðinu sl.
þriðjudag um opnun Kex Hostels, og
hann sagður Bergsson. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Samkvæmt talningum Ferða-
málastofu fóru 34.333 erlendir
ferðamenn frá landinu um Leifs-
stöð í apríl síðastliðnum en þeir
hafa aldrei áður farið yfir 30 þús-
und í aprílmánuði. Segir stofnunin
að um sé að ræða 40% aukningu frá
því í apríl á síðasta ári. Gosið í Eyja-
fjallajökli hafði hins vegar veruleg
áhrif á fjölda ferðamanna í apríl í
fyrra og eru því miklar sveiflur í
tölunum milli ára. Fjölmennustu
aprílmánuðir til þessa voru 2007 og
2009 þegar erlendir ferðamenn
voru rétt innan við 28 þúsund.
Ferðamönnum fjölg-
aði í apríl um 40%
Að hefja töku lífeyris
Lífeyrissjóður verzlunarmanna býður sjóðfélögum sínum til fræðslufundar í maí undir yfir-
skriftinni „Að hefja töku lífeyris“. Sérfræðingar lífeyrissjóðsins fjalla um réttindi lífeyrisþega
og hverju þarf að huga að þegar kemur að töku lífeyris. Starfsfólk Tryggingastofunnar fer yfir
helstu núgildandi reglur um réttindi og greiðslur til lífeyrisþega. liv
e.
is
Lífeyrissjóður verzlunarmanna | Kringlunni 7 | 103 Reykjavík | Sími 580 4000 | skrifstofa@live.is
Haldnir verða tveir fundir í maí á Hilton Reykjavík Nordica í sal E
» 17. maí kl. 17.30 – 19.00
» 31. maí kl. 20.00 – 21.30
Vinsamlegast skráið þátttöku með tölvupósti á netfangið skrifstofa@live.is
eða hringið í síma 580 4000.
Kaffi og
léttar
veitingar
ÍM
Y
N
D
U
N
A
R
A
F
L
/
LV