Morgunblaðið - 12.05.2011, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
Das Auto.
2.390.000 kr.
Verð frá:
www.volkswagen.is
Komdu og reynsluaktu Volkswagen í maí og þú gætir unnið Evrópuferð!
Sparar sig
vel í borginni
Volkswagen Polo Trendline TDI
Meðaleyðsla aðeins
3.8 lítrar á hverja 100 km
Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum Volkswagen Polo Trendline 1.2 TDI.
Bí
ll
á
m
yn
d:
V
ol
ks
w
ag
en
Po
lo
H
ig
hl
in
e
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hofsjökull hefur tapað 5% af rúm-
máli sínu, eða nálægt tíu rúmkíló-
metrum af ís, á undanförnum 15 ár-
um. Starfsmenn Veðurstofu Íslands
fóru nýlega í vorferð til afkomumæl-
inga á jöklinum.
Vetrarafkoma á norðanverðum
Hofsjökli mældist vera 1,73 metra
aukning á liðnum vetri sem er 18%
betri vetrarafkoma en að meðaltali
á árunum 1988-2010, samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðum. Í fyrra-
vetur, 2009-2010, var afkoman á
sama svæði sú minnsta sem mælst
hefur frá upphafi mælinga eða 0,98
metrar. Tölurnar eru nokkuð dæmi-
gerðar fyrir jökulinn í heild.
Í fyrrasumar mældist svo mesta
leysing sem um getur frá upphafi
mælinga á Hofsjökli árið 1988.
Gjóska úr Eyjafjallajökli jók mjög
sólbráð á jöklinum sumarið 2010 og
átti sinn þátt í því að leysing varð þá
svo mikil sem mælingar sýndu.
Þetta átti sinn þátt í því að ársaf-
koma Hofsjökuls 2009-2010 varð sú
slakasta sem sögur fara af frá upp-
hafi mælinga eða -2,4 metrar. Ársaf-
koma hans hefur verið neikvæð á
hverju ári frá 1995.
Mæla jökulinn tvisvar á ári
Þorsteinn Þorsteinsson, jökla-
fræðingur hjá Veðurstofu Íslands,
var í vorferðinni á Hofsjökul dagana
27. apríl til 4. maí sl. Starfsmenn
Veðurstofunnar fara tvisvar á ári á
Hofsjökul til að fylgjast með af-
komu jökulsins.
Kjarnaborað var í gegnum snjó-
lag vetrarins á 26 stöðum. Einnig
voru bræddar holur og settar í þær
sex metra langar leysingastikur.
Vitjað verður um þær í haust til að
mæla leysinguna í sumar. Efst á
jöklinum er óhætt að láta efsta
hluta stanganna standa upp úr yf-
irborðinu. Á neðsta hluta leysinga-
svæðisins verður að bræða allt að
8-9 metra djúpar holur í ísinn og
sökkva stöngunum í. Þær verða
komnar upp úr ísnum þegar farið
verður í haustvitjun.
En kom það á óvart að ákoma á
jökulinn skyldi vera yfir meðaltali?
„Nei, í sjálfu sér ekki miðað við
hvernig veðurlagið hefur verið sér-
staklega eftir jól. Það hefur verið
talsvert mikil úrkoma á landinu og
það var talsvert mikill snjór á há-
lendinu,“ sagði Þorsteinn. Framtíð
jöklanna er mörgum hugleikin, ekki
síst í ljósi hnignunar þeirra og hops
á undanförnum árum. Þorsteinn
sagði menn hafa talsvert velt fram-
haldinu fyrir sér.
Spár eru til um að íslensku jökl-
arnir verði horfnir eftir um 200 ár ef
svo fer fram sem horfir. Íslenskir
vísindamenn hafa unnið að því, í
samvinnu við kollega á Norðurlönd-
um, að fínpússa þessar spár. Ná-
kvæmir útreikningar um mögulega
þróun fram á miðja 21. öldina eru
væntanlegir fljótlega. Þorsteinn
sagði niðurstöðurnar ekki vera
verulega frábrugðnar fyrri niður-
stöðum um bráðnun jöklanna.
Stóru jöklarnir þrír, Hofsjökull,
Langjökull og Vatnajökull bregðast
misjafnlega hratt við hlýnun lofts-
lags. Þar ræður mestu mismunandi
hæð yfir sjávarmáli því það er kald-
ara eftir því sem ofar dregur.
Langjökull liggur lægst og teygir
hann sig upp í um 1.400 metra hæð.
Þessi árin sést því mest á honum, að
sögn Þorsteins.
Hofsjökull er innar í landinu og
nær mest í um 1.800 metra hæð og
bráðnar því hægar. Vatnajökull nær
allt frá sjávarmáli og upp fyrir 2.100
metra hæð og er langstærstur að
flatarmáli þeirra þriggja. Þorsteinn
segir að samkvæmt mælingum
Jarðvísindastofnunar HÍ sé mjög
hröð bráðnun í Breiðamerkurjökli
sem nær alveg niður að sjávarmáli.
Vatnajökull tapar þó ekki jafn miklu
hlutfallslega á hverju ári og minni
bræður hans Langjökull og Hofs-
jökull. Þróun þeirra allra stefnir þó í
sömu átt. Þeir minnka allir ár frá
ári.
Jöklarnir minnka ár frá ári
Ljósmynd/Þorsteinn Þorsteinsson
Kjarnaborun Bergur Einarsson (t.v.) og Vilhjálmur Kjartansson bora í jökulinn með kjarnabor. Borað er í gegnum vetrarlagið og venjulega koma fram
greinileg hausthvörf í borkjarnanum. Þannig er hægt að mæla vetrarafkomuna. Borað var í gegnum snjólag vetrarins á 26 stöðum í ferðinni á Hofsjökul.
Vetrarafkoma Hofsjökuls var 18% yfir meðaltali frá upphafi mælinga Ársafkoma Hofsjökuls í
fyrra var sú slakasta sem mælst hefur Jökullinn hefur tapað nálægt tíu rúmkílómetrum af ís frá 1995
Hvar er Hofsjökull?
Hann er nánast á landinu miðju.
Kjalvegur er vestan við jökulinn
en Sprengisandur fyrir austan
hann.
Hvað er Hofsjökull stór?
Hann er um 890 km2 að flat-
armáli og jökulmassinn um 200
km3 að rúmmáli. Til sam-
anburðar má nefna að allt höf-
uðborgarsvæðið, frá Hafnarfirði
og upp í Kjós og með útnesjum,
er um 1.062 km2.
Spurt&svaraðAfkoma Sátujökuls
Grunnkort: LMÍ
Hofsjökull
Sátujökull
3
2
1
0
-1
-2
-3
-4
Va
tn
sg
ild
i(
m
et
ra
r)
1990 1995 2000 2005 2010
Vetrarákoma
Ársafkoma
Sumarleysing