Morgunblaðið - 12.05.2011, Qupperneq 14
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Íslendingar létu ekki sitt eftir
liggja þegar kom að því að kjósa í
fyrri forkeppni Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva á þriðju-
dagskvöl. Ekki frekar en fyrri dag-
inn. Samkvæmt upplýsingum frá
Vodafone, sem heldur utan um
símaskosninguna hér á landi, bár-
ust tólf prósent fleiri atkvæði en í
fyrri hluta forkeppninnar fyrir ári.
Og ef Íslendingar fylgja fordæmi
fyrri ára mun sá fjöldi þrefaldast á
laugardag þegar úrslitin fara fram.
Aukningin kemur fram þrátt
fyrir að kostnaður við hvert at-
kvæði hafi hækkað um nítján krón-
ur frá síðustu keppni. Raunar má
kjósa tuttugu sinnum úr hverju
númeri en að sögn fulltrúa Voda-
fone er fyrirtækinu ekki heimilt að
veita nákvæmar upplýsingar um
kosningarnar. Ekki fengust upp-
lýsingar um heildarfjölda atkvæða
né heldur meðalfjölda atkvæða á
hvert símanúmer.
Í upphafi símakosningar í Evr-
óvisjón kostaði hvert atkvæði 99
kr. Það hækkaði upp í hundrað
krónur og svo aftur í forkeppninni
hér á landi í janúar upp í 119 krón-
ur. Samkvæmt upplýsingum frá
Vodafone var það RÚV sem hafði
frumkvæði að hækkuninni en við
vinnslu fréttarinnar náðist ekki í
neinn sem gat rökstutt hækkunina.
Verð fyrir hvert atkvæði í Evr-
óvisjón helst svo í hendur við verð-
ið í forkeppninni hér heima, þó svo
að RÚV sé kaupandi að þjónustu
Vodafone fyrir íslensku keppnina
en þýska fyrirtækið Digame fyrir
Evróvisjón. En burtséð frá bolla-
leggingum um kostnað við að
greiða atkvæði er víst að Íslend-
ingar halda áfram að kjósa
Mun fleiri sms til útlanda
Óþarft er að fjölyrða um
frammistöðu íslensku keppend-
anna, Vina Sjonna, enda gert ann-
ars staðar í blaðinu. En velta má
fyrir sér hvaða aðrir þættir spiluðu
inn í til að tryggja sæti í úrslit-
unum.
Í því ljósi má meðal annars
nefna þjónustu, og átak, Símans en
viðskiptavinir fyrirtækisins voru
iðnir við sendingar sms-skilaboða
til útlanda til að minna fólk á að
kjósa framlag Íslands. Síminn
bauð viðskiptavinum sínum að
senda téð skilaboð endurgjalds-
laust.
Samkvæmt upplýsingum frá
Símanum voru 35-40% fleiri sms-
skilaboð send til útlanda á þriðju-
dag en til að mynda á mánudag og
þriðjudag fyrir viku.
Leikurinn verður svo endurtek-
inn á laugardag, en þá fara úrslitin
fram. Eru Íslendingar því á ný
hvattir til að senda vinum og
vandamönnum sem búsettir eru
erlendis skilaboð og minna þá á og
hvetja til þess að kjósa framlag ís-
lensku keppendanna. Og jafnvel
fara fögrum orðum um framlag Ís-
lands á mannamótum.
Reuters
Tólf prósent fleiri atkvæði
Íslendingar slá ekki slöku við þegar kemur að atkvæðagreiðslum í Evróvisjón
Einnig voru send 35-40% fleiri sms-skilaboð til útlanda en á venjulegum degi
Hvað kostar hvert atkvæði?
Lan
dlín
a
Far
sím
i
SM
S
Lan
dlín
a
Far
sím
i
SM
S
Lan
dlín
a
Far
sím
i
SM
S
Lan
dlín
a
Far
sím
i
SM
S
Frá Íslandi Frá Bretlandi Frá Ítalíu Frá Svíþjóð
Algengt verð (í krónum) fyrir símaþjónustu við atkvæðagreiðslu
119 119 119
140 140
28
123 123 123
66 66 66
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
Das Auto.
Metanlegur
sparnaður
Volkswagen Passat EcoFuelwww.volkswagen.is
Volkswagen Passat
Eldsneytiskostnaður Volkswagen
Passat á hverja 1000 km*
Metan 8.040 kr
Dísil 12.095 kr
Bensín 16.319 kr
* Miðast við almennt verð á eldsneyti hjá Olís 11. maí 2011
Komdu og reynsluaktu Volkswagen í maí og þú gætir unnið Evrópuferð!
Líkurnar á því að
Ísland yrði á með-
al tíu efstu land-
anna í und-
ankeppni
Evrjóvisjón og
yrði síðasta land-
ið af þessum tíu
til að vera til-
kynnt í úrslitin
síðastliðnar þrjár
keppnir eru
0,0172% eða 1/5.814. Gera útreikn-
ingarnir ráð fyrir að öll löndin sem
tóku þátt í undankeppnunum hafi
átt jafna möguleika á því að komast í
tíu efstu sætin en þau voru 18 árið
2009, 17 árið 2010 og 19 árið 2011.
Það verður ekki gefið upp fyrr en
eftir aðalkeppnina hvernig raðaðist
í sæti í undankeppnunum en þá kem-
ur m.a. í ljós í hvaða sæti Noregur,
sem margir höfðu spáð áfram, hafn-
aði. Norðmenn hafa lent í neðsta
sæti keppninnar oftar en nokkur
önnur þjóð, eða tíu sinnum, en þeir
hafa unnið hana þrisvar sinnum. Ír-
land er það land sem oftast hefur
unnið eða sjö sinnum en Frakkland,
Bretland og Lúxemborg hafa farið
með sigur af hólmi fimm sinnum.
Líkurnar 1
á móti 5.814
eða 0,0172%
Ísland í síðasta
umslaginu 3 ár í röð
Norðmenn þekkja
neðsta sætið vel.
Hvorki sást til hvítabjarna né nýrra
spora í eftirlitsflugi sem Landhelg-
isgæslan fór í gær um friðlandið á
Hornströndum. Gömul för sáust þó
í snjóskafli, skammt frá þeim stað
þar sem björninn var felldur 2. maí
síðastliðinn.
Í tilkynningu frá Landhelg-
isgæslunni segir að mikill almennur
þrýstingur hafi verið á að farið yrði
í slíkt flug, þar sem sérstaklega
yrði leitað að ummerkjum um
hvítabirni á svæðinu.
Frá Ísafirði voru firðir og fjörur
kannaðar frá Aðalvík að Furufirði.
Með í för var Jón Björnsson, land-
vörður á Hornströndum og starfs-
maður Umhverfisstofnunar. Var
ágætt skyggni til leitar.
Sáu hvorki
hvítabirni
né ný spor
og fáðu smá-
forrit í símann
til að sækja öll
Evróvisjónlögin
og annað efni
tengt keppninni.
Skannaðu kóðann