Morgunblaðið - 12.05.2011, Síða 16

Morgunblaðið - 12.05.2011, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 Das Auto. 3.490.000 kr. Verð frá: www.volkswagen.is Sparnaðarráð frá Þýskalandi Volkswagen Golf Trendline TDI Meðaleyðsla aðeins 4.2 lítrar á hverja 100 km Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum Volkswagen Golf Trendline 1.6 TDI. Komdu og reynsluaktu Volkswagen í maí og þú gætir unnið Evrópuferð! A uk ab ún að ur á m yn d: Á lfe lg ur Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst árin 2011 til 2020 áratug aðgerða í ör- yggismálum í umferðinni og hvetja aðildarlönd sín til þess að efla hvers kyns aðgerðir í því skyni að fækka banaslysum og alvarlegum slysum í umferðinni. Herferðin hófst í mörg- um aðildarríkjum SÞ í gær og verð- ur gerð úttekt á henni árið 2020. Sett hefur verið fram áætlun um fyrstu skref sem miða að því að herða á ýmsum umferðaröryggisað- gerðum hérlendis, auka rannsóknir og hvetja til aukinnar vitundar um afleiðingar umferðarslysa. Núllsýn Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra setti átakið hérlendis hjá miðstöð ökukennslu á Kirkjusandi í Reykjavík en auk hans fluttu ávörp forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Guðbjartur Hannes- son velferðarráðherra. Ögmundur sagði að þótt margir hefðu í áraraðir unnið að umferð- aröryggismálum mættu yfirvöld og einstaklingar gera betur. Hann sagði það vera unnt meðal annars með því að auka fjármagn til um- ferðaröryggisaðgerða, auka rann- sóknir, auka gagnasöfnun og úr- vinnslu, auka fræðslu, bæta lagasetningu og auka samstarf við aðrar þjóðir. Enginn gæti verið undanskilinn í þessu átaki, það þyrfti að ná til þjóðhöfðingja, stjórnmálamanna, fjölmiðla, emb- ættismanna, félagasamtaka, fyrir- tækja og einstaklinga. ,,Ef allir leggjast á eitt er ekki óraunhæft að ætla að í lok áratugarins hafi um- ferðarslysum hér á landi fækkað umtalsvert, en takmarkið er vit- anlega að útrýma banaslysum og alvarlegum slysum í umferðinni,“ sagði ráðherra. „Á því leikur eng- inn vafi – við búum okkur undir að taka upp núllsýn.“ Guðbjartur benti á að um- ferðarslys væru mikið heil- brigðisvandamál. Frá 1973 til 2009 hefðu 220 manns orðið fyrir mænuskaða í slysum hér á landi og þar af 98 í umferðar- slysum eða 44,5%. Helmingur þeirra hefði verið á aldrinum 4-30 ára, 40% 31-60 ára og 10% eldri en 60 ára. steinthor@mbl.is Herferð um ör- yggi í umferðinni  Áratugur aðgerða að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna Morgunblaðið/Ómar Átak gegn umferðarslysum Nemendur þriðja bekkjar N í Laugarnesskóla slepptu í gær 201 blöðru til minningar um jafnmarga sem létust í umferðarslysum hérlendis árin 2001 til 2010. Verkfall Félags leikskólakennara hefst væntanlega 22. ágúst ákveði fé- lagsmenn að fara í aðgerðir og samn- ingar hafi ekki tekist fyrir þann tíma. Öllum leikskólum sveitarfélag- anna verður þá lokað við upphaf nýs skólaárs. Eftir árangurslausa samninga- fundi Félags leikskólakennara með samninganefnd sveitarfélaganna fyrr í vikunni ákvað nefndin að leggja tillögu um að efna til atkvæða- greiðslu meðal félagsmanna um boð- un verkfalls fyrir aðalfund sem hald- inn verður á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku. Næsti samningafundur með viðsemjendum er ekki boðaður fyrr en 23. maí þann- ig að ekki er sjáanlegt að breyting verði á aðstæðum fyrir aðalfundinn. Kjaradeila leikskólakennara og sveitarfélaganna er hjá Ríkissátta- semjara og er það eina málið gagn- vart samninganefnd sveitarfélaga sem vísað hefur verið þangað. Í gær fundaði samninganefnd sveitarfélag- anna með grunnskólakennurum og segir Inga Rún Ólafsdóttir, sviðs- stjóri hjá Sambandi íslenskra sveit- arfélaga, að viðræðurnar gangi ágætlega. Fundað verður með bæj- arstarfsmannafélögum og verka- lýðsfélögum fyrir og um helgina. Vonast Inga Rún til að hægt verði að ljúka fyrstu samningunum fljótlega í næstu viku. Hafa dregist aftur úr í launum Mikið ber á milli leikskólakennara og sveitarfélaganna. Fjóla Þorvalds- dóttir, varaformaður Félags leik- skólakennara, segir að leikskóla- kennarar hafi dregist langt aftur úr viðmiðunarstéttum í launum enda samningar verið lausir frá 2008. Seg- ir hún nærtækt að nefna hin kenn- arafélögin, þar sem grunnlaun séu 12-15% hærri. Munurinn sé mun meiri þegar litið sé til heildarlauna vegna þess að leikskólinn hafi farið illa út úr samdráttaraðgerðum vegna hrunsins. „Við leggjum áherslu á þann mannauð sem er í leikskólunum. Það hefur hentað sveitarstjórnarmönn- um að tala um þá sem flaggskip sitt fyrir hverjar kosningar en þegar á reynir er það allt gleymt.“ Hún segir að leikskólakennarar hafi staðið sig ótrúlega vel, bæði fyr- ir og eftir kreppu. „Þegar mesta uppsveiflan var vantaði fagfólk og við unnum baki brotnu. Verst var ástandið á höfuðborgarsvæðinu. Þegar kreppan kom og hægt var að ráða fleira fólk voru um leið teknar af mestallar launauppbætur sem leikskólakennarar höfðu fengið,“ segir Fjóla. helgi@mbl.is Verkfall miðað við upphaf næsta skólaárs  Leikskólakennarar huga að aðgerðum Morgunblaðið/Ómar Börn Kjaradeila leikskólakennara og sveitarfélaganna er í hnút. Leikskólinn » 277 leikskólar eru í landinu. » Starfsmenn voru 5.488 í desember sl., samkvæmt upp- lýsingum Hagstofunnar, og fækkaði um 150 á árinu. » Á sama tíma fjölgaði börn- um á leikskólum um 245. Þau voru 18.960 í desember. » Álag á starfsfólk hefur auk- ist frá 2008, eftir að hafa minnkað í mörg ár þar á undan. Samkvæmt fjárlögum er gert ráð fyrir að 350 milljónir króna fari í umferðaröryggi af ýmsum toga hérlendis í ár. Talið er að árlega farist um 1,3 milljónir manna í umferð- arslysum á heimsvísu. Ef ekkert yrði að gert er talið líklegt að árið 2020 verði þessi tala kom- in upp í 1,9 milljónir. Um 90% þessara umferðarslysa verða í þróunarlönd- unum. Talið er að um 1-3% af vergri þjóð- arframleiðslu aðild- arríkja SÞ fari í kostnað vegna um- ferðarslysa, sem nemur um 500 millj- örðum dollara ár- lega. 350 milljónir í málaflokkinn UMFERÐARÖRYGGI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.