Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 ATKVÆÐAGREIÐSLA Atkvæðagreiðsla um nýgerðan kjarasamning Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins er hafin hjá aðildarfélögum LÍV. Kjörgögn hafa verið send til félagsmanna. Nánari upplýsingar um framkvæmd kosninga eru á heimasíðum félaganna og heimasíðu LÍV, www.landssamband.is Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þingmennirnir John Kerry, forseta- efni demókrata árið 2004, og repú- blikaninn Richard G. Lugar, sem einnig á sæti í öldungadeildinni, telja dauða Osama bin Ladens, leiðtoga hryðjuverkanetsins al-Qaeda, gefa tilefni til að endurskoða framhald hernaðaraðgerða í Afganistan. Fjallað er um málið á vef New York Times en þar segir að ummæli þingmannanna séu vísir að hörðum deilum á Bandaríkjaþingi um hvern- ig skuli staðið að brottkvaðningu Bandaríkjahers frá Afganistan. Ósjálfbær hernaðarútgjöld „Það þarf ekki að fara í graf- götur með að það er að grunni til ósjálfbært að halda áfram að verja 10 milljörðum dala í gríðarlega um- fangsmikla hernaðaraðgerð sem engan enda virðist ætla að taka,“ hafði blaðið eftir Kerry í lauslegri þýðingu. Nemur upphæðin 10 millj- örðum dala, sem svarar hátt í 1.140 milljörðum króna á núverandi gengi. Má til samanburðar geta þess að áætlað hefur verið að skuldir bandarísks ríkissjóðs aukist um 450 milljarða króna á dag. Þá hefur blað- ið eftir Lugar að umfang hernaðar- aðgerðanna bendi til að ætlunin sé að stuðla að breytingum á efnahags- sviðinu, í stjórnmálum og í öryggis- málum í Afganistan. „En það metn- aðarfulla markmið er handan getu okkur,“ er haft eftir Lugar. Slógu þingmennirnir báðir þann varnagla að þeir væru andvígir ótímabæru brotthvarfi hersins. Ekki er einhugur um sjónarmið þingmannanna tveggja og segir í frétt New York Times, að innan bandaríska varnarmálaráðuneytis- ins haldi embættismenn því sjónar- miði á lofti, að fremur skuli haldið áfram á braut núverandi hernaðar- stefnu í Afganistan, svo festa megi þann árangur sem hefur náðst í sessi og um leið þrýsta á talibana að setj- ast að samningaborðinu. Hverfi frá Afganistan  Dauði bin Ladens vekur umræður á Bandaríkjaþingi um framhald hernaðar- aðgerða í Afganistan  Stríðsreksturinn kostar 1.140 milljarða króna á mánuði Reuters Vígamenn Talibanar stilla sér upp á óuppgefnum stað í Suður-Afganistan. Netrisinn Google hef- ur að undanförnu beitt sér fyrir því að yfirvöld í sambandsríkinu Nevada í Banda- ríkjunum heimili að ökumanns- lausir, tölvustýrðir bílar fari í um- ferðina. Fréttavefur New York Times skýrði frá þessu en þar kom fram að Google hefði ráðið hagsmunavörðinn David Goldwater til að þrýsta á um lagasetninguna í Nevada. Ágæt reynsla þegar komin Er þar einnig rifjað upp að fyrir ári hafi Google upplýst að fyrirtækið hefði þá þegar reynsluekið tölvu- stýrðum bílum vel á annað hundrað þúsund kílómetra, meðal annars á milli Los Angeles og San Francisco. Segir blaðið að sex Toyota Prius- bifreiðar og ein Audi TT-bifreið séu í hinum nýstárlega flota Google. Sérfræðingur í gervigreind að nafni Sebastian Thrun fer fyrir verkefninu og er haft eftir honum á vef blaðsins að net tölvustýrðra bíla sem almenningur skiptist á að nota geti fækkað bílum á götunum um allt að helming. Eiga smáskilaboð að duga til að fá bílinn að dyrunum. Ökumenn óþarfir Stjórn Bar- acks Obama Bandaríkja- forseta stefnir að því að kalla 5.000 her- menn heim frá Afganist- an í júlí og allt að 5.000 til viðbótar í lok ársins, að því er fram kom á vef Wall Street Jo- urnal. Sagði þar að fækkun um 5.000 hermenn yrði óveruleg blóðtaka enda væri nú um 100.000 manna herlið í landinu. Til viðbótar væri ríflega 40.000 manna alþjóðlegt her- lið. Ráðist var inn í landið í kjöl- far árásanna 11. september 2001. Brotthvarf í áföngum HORFT TIL SUMARSINS Barack Obama Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Þetta er mikið áfall, ekki aðeins fyr- ir útgerðarfélagið heldur allt fær- eyskt samfélag. Athena er stærsta fiskiskip færeyska flotans,“ segir Hans Andrias Joensen, fram- kvæmdastjóri færeyska útgerðar- félagsins Thor, spurður um stór- brunann í frystitogaranum Athenu aðfaranótt mánudags. Það leyndi sér ekki að Joensen var enn í áfalli vegna brunans þegar slegið var á þráðinn til hans síðdegis í gær. Vildi hann því að öðru leyti ekki tjá frekar um málið nema hvað óráðið væri hvort útgerðin næði að fá til sín nýtt skip áður en næsta makrílvertíð fer í hönd. Of snemmt að meta tjónið Brynhild Thomsen, blaðakona hjá Dimmalætting, útbreiddasta dagblaði Færeyja, tók undir að bruninn hefði komið færeysku þjóð- inni í opna skjöldu. „Þetta er mikið áfall fyrir Fær- eyjar. Fólk skilur ekki hvernig þetta gat gerst. Það er of snemmt að meta tjónið til fjár. Það er þó ljóst að tryggingafélög og bankar munu verða fyrir höggi. Fólk á bágt með að trúa því að Athena sé nú bruna- rústir. Það segir við sjálft sig: Þetta getur ekki verið satt. Síðasta föstu- dag fluttum við fréttir af því að ríf- lega 200 manns hefðu sótt um pláss á Athenu og á skipinu Poseidon, sem Thor seldi fyrir um mánuði. Útgerð- arfélagið var að sækja um makríl- kvóta og þess vegna var áhersla lögð á að hafa innlenda áhöfn,“ segir Thomsen og bætir því við að útflutn- ingur á sjávarafurðum vegi geysi- lega þungt í færeyskum útflutningi. Eldfim efni um borð Eldurinn braust út aðfaranótt mánudags en skipið var þá í höfn í Skálafirði þar sem unnið var að endurbótum á því. Mikið af olíu og öðrum eldfimum efnum var um borð, þ.m.t. um 18,5 tonn af ammoníaki, svo eldsmaturinn var nægur. Ógn þótti stafa af eiturgufum frá eldhafinu og var nokkur hundruð manns gert að yfirgefa heimili sín við Skálafjörð. Fékk fólkið að snúa til síns heima að kvöldi mánudags. Thomsen bendir á að þetta sé í þriðja sinn sem eldur brýst út í At- henu. Fyrst hafi kviknað í skipinu í árslok 2007 og síðan aftur á síðari hluta síðasta árs, þegar talsverðan tíma hafi tekið að ráða niðurlögum eldsins. Áður hafi eldur blossað upp í togaranum Herculesi, sem gerður var út af sömu útgerð, með þeim af- leiðingum að 11 skipverjar fórust. Má geta þess að fram kemur í skýrslu danskra yfirvalda um brun- ann að tekist hafi að bjarga 105 skip- verjum frá eldhafinu í Herculesi. Segir þar einnig að eldvarnakerfið í togaranum hafi ekki virkað sem skyldi þegar á reyndi. „Mikið áfall fyrir Færeyjar“  Eitt stærsta skip færeyska fiski- skipaflotans stórskemmdist í bruna Reuters Stórbruni Mikinn reyk lagði frá Athenu eftir að eldurinn braust út. Nýuppgerð » Fram kemur á vef útgerðarfélagsins Thor, að At- hena hafi verið smíðuð árið 1992 og gengið í gegnum mikl- ar endurbætur í fyrra. » Togarinn er um 8.000 tonn og er rúm fyrir allt að 125 manna áhöfn um borð. Hans Andrias Joensen Brynhild Thomsen Hraðametið fyrir farþegalestir er fallið með tilkomu háhraðalestar af gerðinni CRH 380A á leiðinni milli Shanghai og Peking. Hámarkshraði lestarinnar er hvorki meira né minna en 468 km á klst. en stærstan hluta leið- arinnar verður ferðahraðinn á bilinu frá 250 og upp í 300 km á klst. Lestin samanstendur af sextán lestarvögnum og er rými fyrir rétt ríflega 1.000 farþega um borð. Breska dagblaðið Daily Tele- graph ber saman ferðatíma á milli stórborganna með flugi og nýju lestinni. Er niðurstaðan sú að þrjá og hálfan tíma taki að fljúga frá Peking til Shanghai að innritunar- og biðtíma meðtöldum. Þá bætist við ferðatími frá flugvelli til mið- borgar. Til samanburðar taki lestarferðin innan við fimm tíma. Nær allt að 468 km hraða Reuters

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.