Morgunblaðið - 12.05.2011, Side 28

Morgunblaðið - 12.05.2011, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 ✝ Sveinn Ólafs-son fæddist í Syðra-Brekkukoti í Arnarneshreppi, Eyjarfirði, 2. febr- úar 1928. Hann lést á dvalarheim- ilinu Hrafnistu 23. apríl 2011. For- eldrar hans voru Ólafur Rósinants- son, f. 6. júlí 1897, d. 18. júlí 1967, og Sigríður Berglín Sigurð- ardóttir, f. 4. ágúst 1905, d. 19. mars 2003. Árið 1952 giftist Sveinn Guð- björgu Malmquist (Gullý), f. 1930. Foreldrar hennar voru Einar Jörgen Malmquist Ein- arsson og María Ágústa Ein- arsdóttir. Sveinn og Gullý hófu búskap á Akureyri 1952 og fluttust til Reykjavíkur um haustið sama ár. Börn Sveins og Gullýjar eru: 1) Drengur, fæddur og látinn 1949. 2) Ólaf- ur Sveinsson, f. 1952, maki Inda Sigrún Gunnarsdóttir, barn þeirra er Ólafur Rúnar, dóttir Indu er Gunnur Rós. Fóst- urdætur hans frá fyrri sambúð með Ósk Axelsdóttur (látin) eru Judith og Solveig. 3) María Sif Sveins- dóttir, f. 1954, maki Þórarinn Sig- urðsson (látinn), synir þeirra eru Gunnar Þór, maki Eva, börn þeirra Freyja og Embla, Sveinn Bjarki, maki Kolbrún, börn þeirra Kristín Sif og Þór- arinn Bjarki, og Egill Örn. 4) Sveinn Sveinsson, f. 1957, maki Lára Ingvarsdóttir, börn þeirra Berglind Ösp og Andri Rafn. 5) Sigríður Nanna Sveinsdóttir, f. 1959, maki Jakob Líndal, börn þeirra eru Eiríkur Birkir, Bald- ur Emil, Eva Guðbjörg og Kristín Amalía. Sveinn átti auk þess soninn Sigurð Val. Sveinn vann nærri öll sín starfsár hjá Loftleiðum og síðar Flugleiðum við skrifstofu- og afgreiðslustörf. Útför Sveins fór fram í kyrr- þey. Jæja, Sveinn minn, þá er þessari vegferð lokið. 83 ára æviskeið er bara nokkuð ásætt- anlegt. Ég kynntist þér fyrst sum- arið 1981 þegar við vorum báðir að taka á móti Nönnu, á Hótel Loftleiðum, þegar hún var að koma heim í sumarfrí frá Dan- mörku. Þið Gullý tókuð mig upp í bílinn ykkar síðasta spölinn að hótelinu. Þú varst að taka á móti yngstu dóttur þinni, en ég var að sækja heitmey mína sem ætlunin var að ræna frá ykkur. Með þetta í huga mældir þú mig út. Gjóaðir þögull útundan þér á mig augum og bruddir tennur. Þú þurftir ekki að segja mikið enda varst þú upptekinn við akstur. Gullý hélt uppi sam- ræðum fyrir ykkur bæði. Síðan höfum við fylgst að í 30 ár í gegnum alla lífins flóru. Við höfum búið hjá ykkur, brotið brauð með ykkur, hlegið, grátið og farið í frí með ykkur. Þú hef- ur reynst okkur styrk stoð í gegnum lífið og ekki síst sem afi barna okkar. Það var ómet- anlegt að hafa ykkur að til að létta okkur störfin við „þrí- burana“ þegar álagið var sem mest. Þú hefur reynst okkur traustur, greiðvikinn og skyldu- rækinn maður. Þú hafðir alltaf haft þínar ákveðnu skoðanir á þjóðmálum og gast alltaf fundið skýringu á því hvernig atburða- rásir höfðu og myndu þróast. Þú hafðir líka ákveðna áráttu sem fólst í tækjum, þ.e. leitin að hinni fullkomnu græju sem leysti allar heimsins þrautir. Ég held að hápunkti hafi verið náð með opinberun sem kom með tilurð þráðlausu ryksug- unnar og þráðlausu garðsláttu- vélarinnar. Þessir nýju félagar þínir gátu veitt þér ómælda ánægju í tíma og ótíma. Ef grasið á Birkigrundinni vogaði sér að vaxa um sentimetra var full ástæða til að kalla út sláttu- hundinn sem flakkaði kerfis- bundið um garðinn og sá til þess að ekkert strá ætti sér griðland. Nú, ef ekkert meira væri að fá úr garðinum var örugglega kominn tími til að virkja innipúkann og láta hann valsa um öll gólf og ryksuga allt sem fyrir var. Að sjálfsögðu þurftir þú að fylgjast vel með þessum tækjum vökulum aug- um. Ekki sakaði að bryðja dáld- ið tennur svona til að auka áhrifin. Svona gátu dagar og vikur liðið. Sveinn minn, þú áttir ágætis ævi, náðir 83 ára aldri, laukst farsælu ævistarfi hjá Loftleið- um og svo Flugleiðum, fylgdir maka þínum í 55 ár og þar til yfir lauk, ólst upp 4 börn og náðir að fylgja þeim til fullorð- insára, varðst afi 10 barna og langafi 4 barna. Vegferð þinni í þessum heimi lauk með hinsta andardrætti kvöldið fyrir páskadag. Þetta er bara nokkuð gott hjá þér. Ég vil vera í þeirri trú að þú sért nú eftir 4 ára aðskilnað að njóta endurfunda með henni Gullý þinni, á öðrum björtum og friðsælum lendum. Sendu kveðju frá okkur öll- um til allra okkar ástvina og þakka þér fyrir samfylgdina. Jakob Líndal og fjölskylda. Ég heimsótti hann nafna minn í síðasta mánuði og sá strax að honum hafði hrakað mikið, svo að það kom mér ekki á óvart þegar Nanna hringdi í mig og tilkynnti mér að hann hefði látist kvöldinu áður. Við kynntumst þegar hann var starfsmaður Loftleiða hf. á Ak- ureyri, en þangað fór ég frá Siglufirði á hverju vori í heim- sókn til afa og ömmu. Ég vissi að Gullý frænka mín Malm- quist, sem var glæsileg og bráð- skemmtileg stúlka, var nýtrú- lofuð einhverjum manni, sem bar sama nafn og ég. Ég var mjög spenntur að hitta þennan mann og gera úttekt á honum, því að mér var sko ekki sama hvaða karl fengi hana Gullý mína sem eiginkonu. Daginn eftir að ég kom til Akureyrar fór ég inn á skrifstofu Loftleiða í Hafnarstrætinu og hitti þar Svein Ólafsson í fyrsta skipti. Fór vel á með okkur strax í byrjun og úr varð mikill vin- skapur, sem aldrei bar skugga á. Sveinn var mjög glaðlegur, og þegar á reyndi var hann vin- ur í raun. Samskiptin voru mik- il og ánægjuleg alla tíð, ekki síst eftir að mín fjölskylda og hans fluttum í Fossvogsdalinn, perlu Reykjavíkur og Kópa- vogs. Tveggja mínútna gangur var á milli heimila okkar og vorum við í þessu nábýli í 32 ár án þess að nokkurn tíma bæri skugga á. Við Gullý vorum systrabörn, mæður okkar fædd- ar og uppaldar á Akureyri, móðurættin frá Sunnudal í Vopnafirði en föðurættin frá Völlum í Þistilfirði. Við höfðum oft heyrt fólkið okkar tala um að ættingjar úr móðurætt hefðu fluzt til Brasilíu 1873, en að ekkert samband hefði verið við þá síðan 1912. Það er nú oft þannig að áhugi á ættfræði kemur ekki fyrr en fólk er kom- ið á miðjan aldur, og þannig var það hjá okkur. Eftir níu ára leit náðum við sambandi við fólkið okkar, en það býr í Curitiba í Paraná-fylki, og til þess að gera langa sögu stutta, þá náðum við sambandi við afkomendur 1997, þeir komu til Íslands 1998 og við fórum til Brazilíu 2000 og tókum þátt í vígslu Praca de Is- landia í Curitiba, Íslandstorgs. Að sjálfsögu voru Sveinn og Gullý með og þeirra afkomend- ur og þessi heimsókn var í einu orði „grand“ … Sveinn og Gullý ferðuðust mikið til útlanda, og þar sem ég hef starfað að ferðamálum í 35 ár fór ekki hjá því við rækjumst á þau hjónakornin suður við Miðjarðarhafið og víðar og voru það alltaf ánægjulegir endur- fundir. Nú er komið að ferða- lokum og við Erla þökkum Sveini fyrir allt og sendum af- komendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sveinn Gústavsson. Við systurnar viljum skrifa nokkur orð til minningar um Svein Ólafsson. Við kynntumst honum og Gullý konu hans sem börn og þau kynni einkenndust af velvild þeirra og góð- mennsku, alltaf vorum við vel- komnar á heimili þessara heið- urshjóna hvort sem við komum með mömmu og Óla, syni þeirra, eða einar seinna meir. Sveinn starfaði lengi hjá Flug- leiðum og ferðaðist mikið um heiminn talsvert áður en það varð almennur vani fólks að ferðast til annarra landa oft á ævinni. Starf Sveins og jafnvel hann sjálfur var þannig að vissu leyti sveipað nokkurri dulúð í augum okkar systranna, að minnsta kosti fyrstu árin. Sveinn var einn af þeim mönn- um sem gefin var ákaflega þægileg nærvera og ljúflyndi, það var ekki margt sem raskaði ró hans. Það er með þakklæti í hjarta og væntumþykju sem við minn- umst Sveins. Við samhryggj- umst innilega börnum hans og fjölskyldum þeirra vegna frá- falls hans. Solveig og Judith Guðmundsdætur. Sveinn Ólafsson Þegar ég frétti af dauðsfalli Ásgeirs bróður míns kom strax upp í huga mér hvað við vorum í litlu sambandi eftir að hann flutti út og að ég hefði viljað fá að kynnast honum bet- ur. Það eru 14 ár á milli okkar Ásgeirs og því áttum við kannski ekki margt sameiginlegt þegar ég var að alast upp. Þrátt fyrir það vorum við góðir vinir og all- ar mínar minningar um Ásgeir eru mjög góðar. Ég heimsótti Ásgeir, Guðrúnu og Jökul til Gautaborgar árið 1998. Ég tók strax eftir því hvað hann var orðinn mikill Svíi eftir aðeins fjögur ár og augljóst að fjölskyldunni leið vel þarna úti. Hann talaði látlaust um að Sví- þjóð væri frábært land og greini- legt var að hann var ekkert á leiðinni heim í bráð. Ásgeir sýndi mér borgina, við fórum saman á tónleika og áttum reglulega góð- Erlendur Ásgeir Júlíusson ✝ Erlendur Ás-geir Júlíusson fæddist í Reykja- vík 25. júní 1964. Hann varð bráð- kvaddur í London 19. apríl 2011. Út- för Ásgeirs fór fram frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík 10. maí 2011. ar stundir saman í íbúðinni þeirra í Studiegangen. Fyr- ir þennan tíma er ég mjög þakklátur. Ásgeir elskaði tónlist og allt henni tengt. Hann fór mikið á tónleika, átti stórt safn af diskum, plötum og græjum því tengt. Af og til sendi hann mér disk eða benti mér á tónlist á netinu sem ég yrði að hlusta á. Ásgeiri leið einnig vel í eldhús- inu og því fékk ég að kynnast þegar ég heimsótti hann. Ásgeir hafði ákveðnar skoð- anir og hafði gaman af að rök- ræða hlutina. Hann fylgdist vel með öllu sem gerðist hér á Ís- landi, sérstaklega pólitíkinni. Hann var því vel inni í öllum hlutum þegar hann kom í heim- sóknir til Íslands. Það var alltaf gaman þegar Ásgeir kom heim því þá voru umræðurnar í fjöl- skylduboðunum svo líflegar. Það er sárt að hugsa til þess að þær stundir verða ekki fleiri. Ég á eftir að sakna Ásgeirs mikið. Elsku Guðrún og Jökull, miss- ir ykkar er mikill og sendum við Kristín ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Davíð. Okkur langar að minnast Ás- geirs frænda, bróðursonar okk- ar, sem nú er fallinn frá allt of fljótt, en tengsl okkar voru afar náin og sterk allt fram á fullorð- insárin. Minningarnar eru marg- ar og þær streyma fram og verða okkur ómetanlegur fjár- sjóður um ókomin ár. Ásgeir var mjög geðgóður og glaðlyndur drengur. Hann var sjö ára þegar við frændur hans, Hilmar sem var á svipuðum aldri og Nonni nokkru eldri, flytjum í nágrenni við hann í Breiðholtinu. Mikill samgangur var á milli heimila og ríkti mikill stuðningur, kærleik- ur og frændsemi milli okkar strákanna. Heimili Ásgeirs var okkur alltaf opið og viðtökur góðar. Það var ýmislegt brallað og bardúsað, og áttum við marg- ar skemmtilegar og ánægjulegar gleðistundir. Fótbolti, tónlist og bókmenntir voru helstu áhuga- málin, en síðar heimspekilegar samræður og djúpar pælingar um stjórnmál, lífið og tilveruna, enda hafði Ásgeir sínar eigin skoðanir og rökfærslur. Oft var tekist á og sýndist sitt hverjum, en alltaf náðist niður- staða og frændsemin styrktist. Nærvera hans var alltaf mjög þægileg og notaleg, okkur fannst hann kunna list „sálfræð- innar“ og hann setti sig í spor þeirra sem hann ræddi við. Það var líka alltaf stutt í grínið og glensið, því húmorinn var svo sannarlega í lagi hjá þessum ást- kæra frænda okkar sem var okk- ur sem bróðir. Þegar kom fram á fullorðins- árin skildi leiðir, en þá fór Ás- geir til náms til Svíþjóðar ásamt Guðrúnu, sambýliskonu sinni, og syninum Jökli. Svo fór að þau ílengdust í Gautaborg, en við fengum þó alltaf fréttir af fjöl- skyldunni, og vorum við bræð- urnir reglulega stoltir af frammistöðu og velgengni Ás- geirs frænda okkar í námi og starfi við háskólann. Okkur er minnisstætt þegar Jökull fermd- ist, þá héldu þau Ásgeir og Guð- rún glæsilega fermingarveislu á Íslandi þar sem stórfjölskyldan sameinaðist. Þá var virkilega ánægjulegt að sjá hvernig Ás- geir, Guðrún og Jökull blómstr- uðu, enda glæsileg fjölskylda. Ásgeir var ljúfur og mikið prúðmenni, hann talaði lítið um sjálfan sig og gortaði ekki af sín- um afrekum og sigrum. Hóf- semi, umhyggja og æðruleysi einkenndi þennan góða frænda og erum við bræðurnir þakklátir fyrir þann tíma sem við áttum með honum og er það okkur ómetanlegt. Elsku frændi okkar, við bræð- urnir kveðjum þig með söknuði. Megi minningin um ástkæran frænda lifa að eilífu. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (úr Hávamálum) Hilmar Steinar og Jón Sigurðssynir. Sum börn eru þannig að mað- ur verður hálffeiminn þegar þau líta á mann. Opna og einarða augnaráðið hans Steina litla náði inn fyrir allt hismi, beint að kjarnanum. Því varð ekki svarað nema í sömu mynt. Þessi fín- gerði drengur bjó frá upphafi yf- ir einstökum persónuleika, það var eitthvað svo fullorðinslegt við hann strax sem ungbarn. Hvað skyldi hann vera að hugsa, spurði ég mig oft þegar ég fylgd- ist með honum dunda sér, alvar- legur og niðursokkinn eins og lít- ill fullorðinn maður. Hann var svo grannur og virtist svo brot- hættur, að ég hélt að hann yrði innibarn – bókaormur. En það var nú eitthvað annað. Uppeldið ástríka og ævintýralega hjá dugnaðarforkunum Birni Davíð og Kristrúnu og með Kötu stóru systur, sem getur allt, varð fljótt til þess að kalla fram veiðimann, ævintýrahetju og íþróttamann í litla bókaorminum mínum. Mar- blettir upp og niður leggina og sólbrennd eyru, geislandi augun og breitt bros – og enginn tími til að stoppa inni, því það lá á að komast aftur í leikinn. Það var svo gaman að fylgjast með hon- um vaxa og þroskast – og eflast. Hann efldist á heimili þar sem foreldrarnir verja ómældum tíma með börnum sínum í starfi og leik. Hann varð fjölhæfur og öruggur, því honum var leiðbeint og talinn í hann kjarkurinn þar til hann fann að hann gat gert hlutinn sjálfur. Gamli sumarbústaður afa míns á Þingvöllum hefur orðið okkur til þeirrar blessunar að leiða saman margar kynslóðir Þorsteinn Björnsson ✝ ÞorsteinnBjörnsson fæddist á Landspít- alanum í Reykjavík 12. apríl 2002. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 2. maí 2011. Útför Þorsteins fór fram frá Graf- arvogskirkju 9. maí 2011. fjölskyldunnar allan ársins hring – ár eftir ár. Það er gott að kynnast með því að vinna saman og það er sérstaklega fínt fyrir gamla töntu að kynnast litlum frændum með því að halda í spýtu meðan þeir negla. Það þarf ekki að segja margt, traustið byggist upp hægt og hægt og sambandið verður ekta. Það er gæfa að fá að eiga fjöl- skyldu og vini eins og Kristrúnu, Björn Davíð, Steina og Kötu. Þegar þeim eru búin svona vægðarlaus örlög slær þögn á hópinn. Við vitum þó að vakin og sofin verða þau ævinlega umvaf- in ást okkar og kærleika. Guðrún Pétursdóttir. Það hljóðnar svo margt þegar haustar að og héla á blómið sígur. Sem eftir sumarsins sólskinsbað í sárum til jarðar hnígur. En vissan er ljúf, eftir vetrarblund er vorbjartir dagar hlýna, þá mun það einhverja morgunstund á móti þér aftur skína. (S.Á.) Sendum þér, elsku Kristrún, og fjölskyldu þinni allri innilegar samúðarkveðjur vegna ykkar mikla missis. Ásta og Sigurfinnur. Nú kveðjum við Leiknisfólk einn af okkar betri sonum, dreng sem var félaginu til sóma hvar sem komið var. Þorsteinn Björnsson lést síðastliðinn mánudag, níu ára gamall. Hann var að leik með vinum sínum fyr- ir utan heimili sitt í sólskininu þegar skyndileg veikindi gerðu vart við sig og á örskömmum tíma var Þorsteinn horfinn úr þessum heimi. Það er erfiðara en tárum taki að rita niður þessa stuttu kveðju um félaga okkar Þorstein. Við kveðjum hann með miklum söknuði en um leið gleði yfir því að hafa fengið að vera hluti af hans lífi. Þorsteinn var einn af þessum strákum sem þarf að hafa lítið fyrir. Hvers manns hugljúfi, indæll, kurteis og draumur hvers þjálfara. Að auki var hann mjög frambæri- legur og metnaðarfullur fót- boltadrengur og dvaldi langtím- um á Leiknisvellinum. Á sínum níu árum auðnaðist honum að leika listir sínar með fjöldanum öllum af drengjum því auk þess að æfa og spila með jafnöldrum sínum var hann gjarnan fenginn til að leika upp fyrir sig með eldri piltum. Hann þekkti þess vegna marga krakka í félaginu okkar og snerti strengi okkar allra. Spor Þorsteins verða aldr- ei fyllt á Leiknissvæðinu og hann verður í hjörtum allra Leiknis- manna um ókomna tíð. Hugur okkar og hjarta eru sannarlega hjá fjölskyldu Þorsteins, móður hans Kristrúnu, föður hans Bjössa og systur hans Kötu. Þeim sendum við hugheilar sam- úðarkveðjur en þau hafa fylgt stráknum og Leikni síðan við sáum Þorstein fyrst agnarsmáan sparka í boltann af gríðarlegum áhuga. Um leið og við kveðjum þenn- an sómapilt með trega þökkum við fyrir þær stundir sem hann gaf okkur Leiknisfólki og vonum svo sannarlega að stundirnir með fjölskyldu Steina verði á komandi árum enn fleiri. Senn kemur vor, sólin vermir spor. Rísa af rökkurblund runnar og blóm. Fjallalind fríð laus við frost og vetrarhríð, létt og blítt í lautum hjalar hún við lágan stein. Fuglinn minn flaug, frjáls um loftið smaug, leitaði strandar í lifandi þrá. Norður til mín þar sem nætursólin skín, kvað hann þá, svo kátum rómi hátt um kvöldin löng. (Sigríður Þorgeirs.) Hvíldu í friði elsku Þorsteinn okkar allra. F.h. Íþróttafélagsins Leiknis, Þórður Einarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.